Dagur - 07.07.1988, Qupperneq 7
Ö7C' jútíil 9B& -SDAGUR-í 7
j Samkeppni um stækkun Amtsbókasafnsins á Akureyri:
Islenskur arkitekt í Noregi
hlaut fyrstu verðlaun
- sýning á tillögunum 25 stendur nú yfir í Síðuskóla
Síðastliðinn föstudag voru
kynnt úrslit í samkeppni um
stækkun Amtsbókasafnsins á
Akureyri. Til þessarar sam-
keppni var efnt í kjölfar þeirr-
ar ákvörðunar bæjarstjórnar
Akureyrar á 125 ára afmæli
bæjarins 29. ágúst 1987 að
þeirra tímamóta skyldi minnst
á þann hátt að reisa nýbygg-
ingu við Amtsbókasafnið.
Þátttaka í samkeppninni var
mjög góð, 25 tillögur bárust og
segir um þessa þátttöku í
greinargerð dómnefndar að
hún sýni þann áhuga sem arki-
tektar hafi fyrir þessu viðfangs-
efni.
í keppnislýsingunni var gert
ráð fyrir nýbyggingu á lóð Amts-
bókasafnsins sem rúma skyldi tvo
sali, myndlistarsal og fjölnýtisal,
ásamt rúmgóðum forsal. Æski-
legt var talið að sameina mætti
alla þessa sali í einn ef þörf
krefði. Þá skyldu í tengslum við
salina vera málverka- og muna-
geymslur, fundaherbergi, vinnu-
aðstaða og skrifstofa umsjónar-
manns, svo og kaffistofa fyrir
gesti.
Nettóflatarmál byggingarinnar
var áætlað 1225 fermetrar. Dóm-
nefndin vakti athygli á núverandi
byggingu og mikilvægi þess að
nýbygging félli vel að henni, bæði
hvað varðar útlit og fyrirkomu-
lag.
Um tillögurnar 25 segir í grein-
argerð dómnefndar:
„Yfirlýstur vilji allra höfunda
er í samræmi við þá ósk dóm-
nefndar að virða núverandi hús,
inntak þess og form, eða hvort
tveggja.
Aðferðir þeirra til þess eru
mismunandi, allt frá því að gera
nýbyggingu næstum ósýnilega og
til þess að hún sé í yfirgnæfandi
andstæðu við núverandi hús.
Á milli þessara andstæðna
liggja þó flestar lausnir.
Þær bestu þeirra má flokka á
eftirfarandi hátt:
1. Tillögur sem byggjast á því
að endurspegla inntak og form
núverandi húss í formi nýbygg-
ingar án þess að um eftirlíkingu
sé að ræða.
2. Tillögur sem losa sig frá
núverandi húsi en sýna því tillits-
semi í stærðarhlutföllum og stað-
setningu nýbyggingar.
3. Tillögur sem innlima núver-
andi hús í eitt heilsteypt hús.“
Akureyringur í fyrsta sæti
Sú tillaga sem hlaut 1. verðlaun í
keppninni er tillaga Guðmundar
Jónssonar arkitekts í Noregi.
Guðmundur hlaut 726.000 kr. í
verðlaunafé og mælir dómnefnd
með að honum verði falin fulln-
aðarhönnun byggingarinnar.
Guðmundur Jónsson er uppal-
inn á Akureyri og þekkir því
nokkuð til staðhátta. Hann hefur
getið sér gott orð sem arkitekt og
fengið fjölda viðurkenninga í
samkeppnum, bæði hér á landi
og í Noregi. Guðmundur vann
samkeppni um tónlistarhús í
Reykjavík og þá má geta þess að
hann vinnur nú að hönnun á
Kjarvalssafni.
Dómnefnd fór lofsamlegum
orðum um tillögu Guðmundar en
í niðurstöðum segir:
„Megineinkenni þessarar til-
lögu er snilldarleg aðlögun að
núverandi húsi í hlutföllum,
meðferð einstakra flata og efn-
isvali. Markmið höfundar, að
túlka á stílfærðan hátt megin-
hugsun að baki núverandi húsi,
skilar sér á sannfærandi hátt í
nýbyggingunni. Glæsileiki ein-
kennir útlit byggingarinnar í fullu
samræmi við núverandi hús.
Útsýni frá núverandi húsi og
nýbyggingu er eins og best verður
á kosið.
Form sala er mjög gott, bæði í
grunnmynd og sniði, hvort sem
þeir eru aðgreindir og sameinað-
ir. Innra samhengi er gott og
sveigjanleiki í notkun salarkynna
í nýbyggingu mikill.
Vinnuaðstöðu starfsfólks er vel
fyrir komið.
Galli á fyrirkomulagi er að sal-
ir í núverandi húsi skuli ekki
tengjast nýbyggingu nema um
starfsaðstöðu. Engin tengsl eru
því fyrir almenning milli núver-
andi húss og nýbyggingar. Lyfta
þjónar almenningi ekki fyllilega
til að komast á aðra hæð hvorki í
nýbyggingu og núverandi húsi.
Lóð austan við hús er vel
skipulögð og býður upp á lítlega
notkun. „Lesgarður undir próf“
er athyglisverður, en sá ljóður er
á, að fyrir almenning er hann eiri-
ungis aðgengilegur í gegnum
kaffistofu starfsfólks á annarri
hæð.
Stærð hússins er óhóflega mikil
bæði hvað varðar flatarmál og
rúmmál.
Tillagan er mjög vel unnin og
framsetning frábær."
Samstarfsmenn Guðmundar
við gerð tillögunnar voru: Beate
Brunn, Eilert Gabríelson, Tor-
unn Lein, Jenny Turesson,
Antund Gulden og Viel Bjerkos-
ot.
„Eitt fegursta og stíl-
hreinasta hús bæjarins“
Tillögurnar sem hlutu 2. og 3.
verðlaun sýna núverandi húsi
fullan sóma, að mati dómnefnd-
ar, og eru vel gerðar til þess að
þjóna sínu hlutverki.
Þrjár tillögur hlutu innkaup og
einnig þóttu fjórar tillögur
athyglisverðar og fengu viður-
kenningu.
Hugmyndin með viðbyggingu
við Amtsbókasafnið snýst um
það tvennt að bæta úr húsnæðis-
þörf Amtsbókasafnsins og hér-
aðsskjalasafnsins auk þess að
eignast húsnæði þar sem aðstaða
verði til listsýninga og ýmissar
annarrar menningarstarfsemi.
Bókhlöðubyggingin í Brekku-
götunni á Akureyri er eitt feg-
ursta og stílhreinasta hús bæjar-
ins, segir í greinargerð dóm-
nefndar. Því var talið nauðsyn-
legt að efna til samkeppni um
hönnun viðbyggingar við þetta
hús, tilgangurinn var að fá sem
fegurstaog hagkvæmasta lausn á
þessu máli.
Sýning á tillögunum 25 stendur
nú yfir í Síðuskóla á Akureyri.
Full ástæða er fyrir bæjarbúa og
aðra að kynna sér þær og sjá
hvernig Amtsbókasafnið kemur
til með að líta út í framtíðinni.
Sýningin er opin kl. 18-21 virka
daga og 13-18 um helgar. Sýning-
unni lýkur þann 10. júlí. JÓH
"■Xvý,-.
Þannig lítur sigurtillaga Guðmundar Júnssonar út í líkani. Eins og sjá má verður húsið mjög glæsilegt. Myndir: gb
Að lokinni kynningu á niðurstöðum dómnefndar var gestum boðið að þiggja veitingar og skoða Amtsbókasafnið
sem hefur verið viðfangsefni arkitektanna í keppninni síðustu mánuði.
Guðmundur Jónsson, sigurvegari, ásamt norsku samstarfsfólki sínu.