Dagur - 07.07.1988, Síða 14

Dagur - 07.07.1988, Síða 14
14-DAGUR-7. júlí 1988 Ævintýraferð á hestum Farið verður 3ja daga ferð í Fjörður og heim um Látraströnd, 14., 15. og 16. júlí nk. Gist á Þönglabakka og á Látrum. Útvega hesta fyrir þá sem vilja. Fjöldi 8-10 manns. Upplýsingar gefur Stefán Kristjánsson, Grýtubakka II, Höföahverfi. Sími 33179. r Veiðimenn! Taka skal pöntuð veiðileyfi í Eyjafjarðará fyrir 10. júlí, annars seld öðrum. Ópið laugardaga kl. 9-12. liIEYKJÖRÐ Hjalteyrargötu 4 • Sími 22275 J Einnig nýjar þýskar mottur. Stærðir 1x0,70m - 1x1,40 - 1x1,65. Leitið upplýsinga. Mjög hagstætt verð. Oskum eftir starfsfólki í glerframleiðslu og speglagerð. Upplýsingar á staðnum. ISPAN HF Norðurgötu 55. AKUREYRARB/ER wB/ Lausar stöður við grunnskólana á Akureyri Hlutastöður við kaffihitun og mötuneyti og við gæslu 6-8 ára barna í Barnaskóla Akureyrar. Hálf staða gangavarðar við Síðuskóla. Heil staða gangavarðar og hálf staða ritara við Gagnfræðaskóla Akureyrar. Umsóknarfrestur er til 20. júlí nk. Nánari upplýsingar hjá viðkomandi skólastjórum eða skólafulltrúa og starfsmannastjóra bæjarins. Bæjarstjórinn á Akureyri. Minning: Ý Guðbjörg Kristín Sveinbjamardóttir Kær frænka mín, Guðbjörg Kristín Sveinbjarnardóttir and- aðist 25. maí síðastliðinn á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri. Hafði hún dvalið þar um eitt ár oft þungt haldin. Fögnum við með henni, að mega nú næðis njóta í skauti móður jarðar á gróanda vori. Það veit ég að var henni hugþekk gjöf. Aldrei naut hún sín betur en er hún hlúði að litlu blómi eða gróðursetti viðar- grein. Öll sú fegurð er þessum gróðri fylgdi brosti til hennar með litskrúðugum krónum, er fylling vaxtar hafði náð hámarki. Gullregnið í garði Guðbjargar var mjög fagurt, en sjaldgæft í íslenskum görðum. En yfir höfuð var blómríki hennar ríkulegt af yndislegum gróðri, svo segja má að gróðurinn óx í sporin hennar. Guðbjörg var fædd á óðali móður sinnar að Nikhól í Mýrdal. Móðir hennar var dóttir merkishjónanna Vilborgar Sig- urðardóttur og Gríms Sigurðs- sonar. Þau áttu saman mörg mannvænleg börn. Voru synir þeirra vaskir sjómenn, en dæt- urnar skipstjórakonur, nema móðir Guðbjargar, Sigurlína, er giftist móðurbróður mínum Sveinbirni Kjartanssyni prófasts frá Holti undir Eyjafjöllum. Þeirra fyrsta barn var Guðbjörg. Örlögin höguðu því svo að for- eldra sinna naut hún ekki. Föður sinn sá hún aldrei og móður sína ei að heldur fyrr en hún var sjálf orðin fulltíða kona. Guðbjörg mun hafa verið á fyrsta ári, er þau yfirgáfu hana og héldu til Vesturheims. Þá trúðu margir á bjartari framtíð í því fjarlæga landi. Víst var að ekki þótti fýsilegt, að byrja búskap á íslandi fyrir þá menn, er ei höfðu löngun til að hokra með lítið bú á illa hýstu koti. Mun móðurbróðir minn hafa haft trú á, að gæfan biði þeirra hjóna í Kanada. Svo sannarlega ætlaði hann að sækja dóttur sína þegar gullinu væri safnað. Þann sjóð sá hann aldrei, og andaðist lítt fjáður á miðjum aldri fjarri heimaslóðum. Litla dóttirin á íslandi átti ástúð- legt athvarf á prófastsheimilinu, hún var sólargeisli aldraðra fóst- urforeldra og alls heimilisfólks- ins. En eftir fjögurra ára samvist- ir dó fóstri hennar. Leystist þá upp þessi gróni friðsæli reitur og ekkjan, frú Kristín Sveinbjarnar- dóttir, flutti þá til Reykjavíkur með fósturdóttur sína og bjó þar til æviloka. Guðbjörg var gjörvuleg og greind, gædd miklu listnæmi. Hún naut gagnfræðamenntunar frá Menntaskólanum í Reykja- vík. Á þeim tíma var það nota- drjúgt nám. Að því loknu starf- aði hún hjá Natan og Ólsen þar sem henni líkaði afar vel. En hin listræna þörf leitaði eftir farvegi þekkingar. Þá var enginn lista- skóli í Reykjavík, sem hægt var að nema við. En hún var svo lán- söm að kynnast konu, sem kenndi postulínsmálningu og nam hún hjá henni. Kom sér upp sérstaklega fallegum hlutum, svo sem stellum og blómavösum. Sem eldri kona sótti hún lista- námskeið og vann sérstaklega fallega muni, sem varðveittir verða um ókomna tíma meðal niðja hennar. Eins og um er getið ólst Guð- björg upp í Reykjavík og unni borginni sinni, en örlög manna fara ýmsar leiðir. Er Guðbjörg var um tvítugs aldur andaðist frú Kristín eftir stutta sjúkdómslegu. Var það Guðbjörgu mikið harmsefni, og nú stöð hún ein eftir með aldraða, lamaða konu, sem var ömmusystir hennar, og frú Kristín hafði tekið að sér sem var henni þó vandalaus. Aðeins göfugt hjarta hafði knúið hana til þess. Frú Kristín var seinni kona séra Kjartans væn kona og merk, enda unni Guðbjörg henni ein- læglega. Um þetta leyti kynnist Guð- björg ungum manni ættuðum frá Seyðisfirði. Var það Arnþór Þor- steinsson síðar forstjóri Gefjunar á Akureyri. Á þessum árum voru engar tryggingar svo að einstæð- ingar urðu að dvelja meðal ætt- ingja eða verða sveitarlimir. Þeim örlögum gat enginn hugsað sér að una. Beið nú ömmusystur Guðbjargar, eftir ljúft atlæti hjá húsmóður sinni, flutningur á fæðingarhrepp. Kom þá Arnþór hinn drengilegi fjölskyldumeð- limur gömlu konunni á Elliheim- ilið Grund í Reykjavík, sem þá var nýstofnað og greiddi sjálfur meðlagið með henni til hinsta dags. Honum sé að eilífu vottað þakklæti fjölskyldu minnar. Minning hans er okkur öllum kær. Eftir nokkur ár í hjúskap fluttu þau til Akureyrar. Þar hlaut hann góða stöðu, enda harðduglegur og víðsýnn maður. Fjölskylda mín saknaði þeirra. Þá var Akur- eyri svo fjarlæg, vegakerfið lélegt og vetur þungir í augum okkar Sunnlendinga, og fannst okkur Guðbjörg vera töpuð fyrir fullt og allt. En hún undi sér vel á Akureyri og eftir að samgöngur bötnuðu áttum við frændfólk hennar margar ánægjustundir á hinu fallega heimili þeirra hjóna. Var aldrei neitt til sparað, er okkur mætti til gleði verða. Fyrir það skal þeim báðum tjáðar hjartans þakkir. Arnþór og Guðbjörg eignuð- ust þrjú börn. Þau eru: Jón Sveinbjörn fulltrúi hjá SÍS á Akureyri, Kristinn ullarfræðing- ur hjá Álafossi á Akureyri og Sig- ríður húsfreyja á Grenivík. Hjá henni dvaldi Guðbjörg síðustu árin. Nú hafa börnin kvatt góða móður, og geyma í minningunni samverustundir með henni, sem gæddar voru trausti og trú á hið góða hér og annars heims. Frænka mín ræktaði trú sína og sáði hinu góða sæði meðal sam- ferðamanna sinna. Ég kveð hana með orðum skáldsins Steingríms Thorsteins- sonar: „Ó hvíl með friði góða víf ígarði sem gaf og tók hans náðin veiti þér, að endurvakna í sælum samfögnuði til samfunda meðþví, sem kærast er. “ Ég sendi börnum hennar ein- lægar samúðarkveðjur. G.Jak. Náttúrulækningafélögin sækja í sig veðrið - gefa út nýtt og glæsilegt tímarit Náttúrulækningafélag íslands átti 50 ára afmæli í fyrra. Frumkvöðull að stofnun félagsins var Jónas Kristjáns- son læknir og var hann aðal- hvatamaðurinn að því að Nátt- úrulækningahælið í Hvera- gerði var sett á laggirnar. Ekki var mikið um hátíðarhöld vegna afmælisins í fyrra, en nú hefur NLFÍ hleypt af stokkun- um herferð til að kynna starf- semi félagsins. NLFÍ hefur látið gera 20 mínútna mynd um þau grundvallarsjón- armið sem náttúrulækningafélög- in starfa eftir og nefnist myndin „Verksmiðja lífsins." í þessari mynd er kynnt starfsemi heilsu- hælisins í Hveragerði og einnig fjallað um byggingu Náttúru- lækningafélags Akureyrar í Kjarnaskógi. í tilefni af afmælinu hefur hreyfingin hleypt af stokkunum tímaritinu, Heilsuvernd. Blaðið fjallar um heilbrigt líferni, hreyf- ingu og hollt mataræði í takt við tíðarandann. Hollir lífshættir eru lífsstíll sem meirihluti fólks vill tileinka sér og því þykir tímabært að efla útgáfu tímarits sem eink- um sérhæfir sig í umfjöllun um heilbrigða lífshætti, birtir fróð- leik og skemmtileg viðtöl um allt sem nöfnum tjáir að nefna og varðar heilsuvernd. Reyndar er Heilsuvernd byggt á gömlum grunni, en blað undir þessu nafni hefur verið gefið út á vegum NLFÍ í 43 ár. Ritstjóri er Anna Ólafsdóttir Björnsson og útlitsteiknari Björgvin Ólafsson. í frétt frá samtökunum segir að blaðið sé málsvari; „öfgalausrar umfjöllunar um heilbrigði allra og leitast sé við að fá álit færustu sérfræðinga og um leið að fjalla á ferskan og hressan hátt um efnið.“ AP

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.