Dagur - 07.07.1988, Qupperneq 15
7: jtfl'í 1988 - DAGUfi '- 15
Bæjakeppni í golfi:
Ólafsfirðingar
sigruðu
- Sauðkrækingar hirtu flest verðlaun
Bæjakeppni í golfi fór fram á
Hlíðarendavelli Golfklúbbs
Sauðárkróks sl. sunnudag.
Heimamenn, golfklúbbar
Ólafsfjarðar, Skagastrandar og
Blönduóss leiddu saman hesta
sína í 18 holu keppni í karla-,
kvenna- og unglingaflokki,
með og án forgjafar. Bæja-
keppni sem þessi hefur mörg
undanfarin ár tíðkast á milli
Sauðárkróks og Ólafsfjarðar,
en hinir sívaxandi klúbbar á
Blönduósi og Skagaströnd
bættust í hópinn í fyrsta skiptið
1987.
Keppni var hörð að þessu sinni
og spiluðu menn ágætlega í
þokkalegu veðri. Aukaverðlaun
voru veitt fyrir að vera næst holu
og fæst pútt. Næstur holu á 3. braut
var Magnús Rögnvaldsson GSS
með 3,44 m og á 6. braut var Páll
Þorsteinsson GSS 4,07 m frá því
að hitta holuna í fyrsta höggi.
Fæst pútt, eða 28 talsins, notaði
Hjörtur Geirmundsson GSS.
í keppninni um glæsilegan
Bæjakeppnis-skjöld unnu Ólafs-
firðingar, en tekið var mið af
árangri 6 efstu manna með for-
gjöf í öllum flokkum. Golfklúbb-
ur Ólafsfjarðar var því með 417
högg, Golfklúbbur Sauðárkróks
kom næstur með 437 högg, Golf-
klúbburinn Ós Blönduósi með 469
högg og Golfklúbbur Skaga-
strandar með 488 högg. Úrslit í
einstaklingskeppni urðu þessi:
Kvennaflokkur:
1. BjarnhildurSigurðardóttirG.Sk. lSOhögg.
2. Valgerður Sverrisdóttir GSS 141 högg.
Unglingaflokkur með forgjöf:
1. Þröstur Sigvaldason G.Ó. 63 högg.
2. Skúli Hjartarson G.Sk. 68 högg.
3. Guðmundur Sverrisson GSS 80 högg.
Án forgjafar:
1. Þröstur Sigvaldason G.Ó. 89 högg.
2. Guðmundur Sverrisson GSS 93 högg.
3. Skúli Hjartarson G.Sk. 96 högg.
Karlaflokkur með forgjöf:
1. Hafsteinn Jakobsson G.Ó. 67 högg.
2. Steinar Skarphéðinsson GSS 68 högg.
3. Matthías Sigvaldason G.Ó. 71 högg.
Án forgjafar:
1. Steinar Skarphéðinsson GSS 81 högg.
2. Magnús Rögnvaldsson GSS 86 högg.
3. Örn Sölvi Halldórsson GSS 87 högg.
Eftir bráðabana um 3. sæti án
forgjafar við Þorvald Jónsson
G.Ö. (markvörð Leifturs) og
Matthías Sigvaldason G.Ó. á 9.
braut, og á 1. og 5. braut við
Matthías, náði Örn Sölvi að
merja bronsið. -bjb
Verðlaunahafar og hluti af keppendum ■ bæjakeppninni. Sigvaldi Einarsson, formaður Golfklúbbs Ólafsfjarðar,
fyrir miðju með sigurlaunin, glæsilegan skjöld. Mynd: bjb
Knattspyrna 2. flokkur:
KA burstaði Ármann
2. flokkur KA gersigraði Ár-
mann þegar liðin mættust í
Reykjavík um síðustu helgi.
Leikurinn var liður í C-riðli
Islandsmótsins í knattspyrnu
og lauk honum 8:1 fyrir KA.
Staðan í hálfleik var 4:1.
KA menn yfirspiluðu Ármenn-
inga algerlega í þessum leik og
miðað við gang leiksins og mark-
tækifæri hefði sigurinn getað orð-
ið enn stærri. Björn Pálmason og
Tveir Norðlendingar
í drengjalandsliðið
Lárus Loftsson, þjálfari
drengjalandsliðsins, hefur val-
ið þá 16 Ieikmenn sem keppa
munu fyrir Islands hönd á
Norðurlandamóti drengja-
'landsliöa sem firam fer í Váster-
ás í Svíþjóð dagana 31. júlí - 7.
ágúst nk. Tveir Norðlending-
ar, Steingrímur Örn Eiðsson
KS og Ægir Þormar Dagsson
KA, voru valdir í hópinn sem
skipaður er eftirtöldum leik-
mönnum:
Arnar B. Gunnlaugsson ÍA
Bjarki B. Gunnlaugsson ÍA
Friðrik Ingi Þorsteinss. Fram
Guðmundur Páll Gíslas. Fram
Gunnar Þór Pétursson Fylki
J. Ásgeir Baldurs UBK
Kjartan Páll Magnúss. Stjömunni
Kristinn Ingi Láruss. Stjörnunni
Lárus Orri Sigurðsson ÍA
Nökkvi Sveinsson Tý
Pétur Hafliði Marteinss. Fram
Sigurður Fr. Gylfason Tý
Sigurður Ómarsson KR
Steingrímur Örn Eiðsson KS
Þórhallur Dan Jóhannss. Fylki
Ægir Þormar Dagsson KA
Sex þjóðir taka nú þátt í
Norðurlandamótinu, íslending-
Knattspyrna yngri flokka:
Tindastóll lá
fyrir Völsungi
Tindastóll og Völsungur áttust
við í 4. og 3. flokki á Sauðár-
króksvelli sl. sunnudag.
Húsvíkingar höfðu betur í báð-
um leikjunum, unnu 2:1 og
6:2, og voru þetta sanngjörn
úrslit.
4. flokkur lék fyrst. Þar var
jafnræði fyrst í leiknum, í leik-
hléi var staðan 1:1. í síðari hálf-
leik tóku Völsungar leikinn í sín-
ar hendur og óðu í færum, en
Ingvar Ormarsson markvörður
Tindastóls sá svo um að þeir
gerðu bara'eitt mark. Fyrir Völs-
ung skoruðu Árni Guðmundsson
og Þorvaldur Guðmundsson og
Jón Óskar Júlíusson skoraði fyrir
Tindastól.
Völsungar áttu ekki í erfiðleik-
um með slaka Tindstælinga í 3.
flokki, gerðu sex mörk gegn
tyeimur mörkum heimamanna.
Fyrir Völsunga skoruðu
Ásmundur Arnarsson 2, Þór
Stefánsson, Arnar Bragason,
Baldvin Viðarsson og Jónas
Garðarsson eitt hver. Orri
Hreinsson skoraði annað mark
Tindastóls en hitt var sjálfsmark
að hálfu Völsunga. -bjb
Birgir Arnarson skoruðu tvö
mörk hvor fyrir KA en þeir Þór-
arinn V. Árnason, Árni Her-
mannsson, Helgi Jóhannsson og
Svanur Valgeirsson skoruðu eitt
mark hver.
Þá léku KA menn einnig við
FH-inga í sömu ferð og lauk
þeim leik með jafntefli, 2:2. KA-
menn voru betri aðilinn í leikn-
um og þegar 10 mínútur voru til
leiksloka höfðu þeir forystu 2:0.
Þá var Jóhannes Baldursson hjá
KA rekinn af leikvelli og FH-ing-
ar náðu að skora tvö mörk á
lokamínútunum. Það voru þeir
Björn Pálmason og Birgir Arn-
arson sem skoruðu mörk KA.
JHB
Árni Hermannsson skoraði í stór-
sigri KA á Ármanni.
ar, Danir, Svíar, Norðmenn og
Finnar auk Englendinga. Verður
keppninni þannig háttað að allir
keppa við alla.
Knattspyma 2. flokkur:
Þórsarar
töpuðu
tvívegis
2. flokkur Þórs hafði ekki
heppnina með sér um síðustu
helgi. Þá lék liðið tvo leiki í
íslandsmótinu í knattspyrnu, á
laugardaginn gegn KR í
Reykjavík og á sunnudag gegn
ÍA á Akranesi, og tapaði
báðum, 1:0 í Reykjavík og 4:1
á Akranesi.
Leikurinn gegn KR var sann-
kallaður hörkuleikur. KR-ingar
voru heldur meira með boltann
en náðu þó aldrei yfirhöndinni.
Leikurinn hefði getað farið á
hvorn veginn sem var en Þórsarar
urðu að sætta sig við tap eftir að
KR-ingar náðu að ~skora um
miðjan síðari hálfleik.
í leiknum á Akranesi náðu
heimamenn að skora 3 mörk á
fyrstu 20 mínútum leiksins og
það réði úrslitum. Þórsarar áttu
góðan leik en gekk illa að skora
og Skagamenn náðu að bæta einu
marki við fyrir leikhlé. Þórsarar
áttu síðari hálfleikinn algerlega
og fengu fjölda marktækifæra en
náðu aðeins að nýta eitt þeirra.
Það var Páll Gíslason sem skor-
aði eina mark Þórs í leiknum.
JHB
Þór sigraði
Leiftur 14:0
- í 4.
Þórsarar unnu örugga sigra á
Leiftri þegar yngri flokkar
félaganna mættust á Þórsvell-
inum á Akureyri á sunnudag.
Leikiö var í 3. og 4. flokki og
sigruðu Þórsarar 14:0 í 4.
flokki og 6:1 í 3. flokki.
Guðmundur Benediktsson
skoraði 7 mörk fyrir 4. flokk
Þórs, þar af eitt úr víti. Jóhann
flokki
Bessason skoraði 3 mörk, Elmar
Eiríksson 2 og Ágúst Bjarnason
og Arnar Bill Gunnarsson 1
hvor.
Aðalsteinn Pálsson skoraði 3
mörk fyrir 3. flokk og þeir Rúnar
Sigtryggsson, Steindór Gíslason
og Ingólfur Guðmundsson skor-
uðu 1 mark hver. Jónmundur
Gunnarsson skoraði mark Leift-
urs. JHB
ÞJALFARI
Sunddeild Völsungs óskar eftir þjálfara fyrir
næsta keppnistímabil, sem hefst 1. september
1988.
Vinnutími a.m.k. 25 klst. á viku auk undirbúnings og
keppnisferða.
Æskileg menntun, reynsla og eiginleikar:
★ Áhugi
★ Metnaður
★ Gleði í starfi
★ Gott lag á börnum
★ A-stigs námskeið eða meira
★ Fyrri reynsla eða menntun í sundkennslu eða
sundþjálfun
★ íþróttakennara- eða sjúkraþjálfamenntun
★ Tölvukunnátta
Skriflegar umsóknir sendist Gunnari Rafni Jónssyni,
Skálabrekku 17, 640 Húsavík. Heimasími 96-
41668, vinnusími 96-41333 og veitir hann jafnframt
frekari upplýsingar.
Umsóknarfrestur er til 1. ágúst 1988.
Sundráð Völsungs.