Dagur - 14.07.1988, Blaðsíða 14

Dagur - 14.07.1988, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - 14. júlí 1988 Raðhús við Dalsgerði 130 fm raðhús á tveimur hæðum til sölu. Laust fljótlega. Fasteignatorgið Geislagötu 12, Sími: 21967 Sölustjórí Bjöm Kristjánsson, heimasími: 21776 ■Fp F.F. Felag Faeteignaula Tilkynning til launaskattgreiðenda Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að gjalddagi launaskatts fyrir mánuðina maí og júní er 15. júlí nk. Launaskatt ber launagreiðendum að greiða til innheimtu- manns ríkissjóðs, í Reykjavík, tollstjóra og afhenda um leið launaskattsskýrslu í þríriti. Fjármálaráðuneytið. er hún komin kotasælan með lauk . ••• Mjólkursamlag KEA Akureyn Simi 96-2U00 Smiðir athugið! Óskum eftir að ráða smiði í vinnu nú þegar. Upplýsingar á vinnustað (Verkmenntaskólinn) eða í síma 27589 á daginn. Fjölnismenn sf. Byggingarverktakar Trésmiðja FJOUHSMENN Draupnisgötu 7 ■ Akureyri. Þórshafnarbúar Dagur óskar eftir að ráða umboðsmann til að sjá um dreifingu á blaðinu á Þórs- höfn. Upplýsingar gefur Hafdís Freyja Rögnvaldsdóttir sími 24222. heilsupósturinn í- Umsjón: Siguröur Gestsson og Einar Guðmann Heilsuæði og heilsubóla eru slag- orð sem flestir kannast við og hafa lengi verið milli tannanna á fólki. Dagblöðin hafa verið dug- leg við að smjatta á þessari bólu og yfirleitt alltaf látið það fylgja að þetta sé eitthvað sem sé að ganga yfir og eigi eftir að falla úr tísku. En er svo? Þetta sem menn kalla heilsuæði og hófst í Banda- ríkjunum upp úr 1930 fer ennþá vaxandi. Samt sem áður hafa menn alltaf talað um að þetta sé nokkuð sem eigi eftir að deyja út. Það að hugsa um heilsuna kemur ekki til með að deyja út, einfaldlega vegna þess að með aukinni fræðslu nú á dögum sjá Beverly Crown, 50 ára, byrjaði að æfa vaxtarrækt 43ja ára gömul. Heflsuæði - eða hvað? menn betur að þeir krankleikar sem menn eiga í höggi við svo sem hjarta- og kransæðasjúk- dómar, offita, æðahnútar, syk- ursýki, botnlangabólga og harð- lífi eiga rætur sínar að rekja til einhæfs og rangs mataræðis og hreyfingarleysis auk þess sem stress og reykingar eiga þar einnig stóran þátt. Það sem menn gera síðan til þess að halda í heilsuna og vera vel á sig komnir er mjög misjafnt. Algengast er þó að menn stundi einhverjar íþróttir og kennir þar ýmissa grasa. Úrvalið er mikið og ættu allir að finna eitthvað við sitt liæfi án tillits til aldurs eða líkamlegs ástands. Það er þó allt of algengt að ein- ungis þeir sem eru í góðu formi stundi einhverjar íþróttir og þeir sem eru illa á sig komnir líkam- lega og þurfa f raun og veru mest á því að halda stundi enga líkams- rækt. Eldra fólk hefur oft mesta þörfina fyrir það að hreyfa sig en lítur á íþróttir sem eitthvað fyrir unga fólkið. Fólk á aldrinum 30- 50 hefur enga afsökun fyrir því að vera í lélegu formi, en á þess- um aldri fer það einmitt að segja til sín ef menn vanrækja sig. Margir á þessum aldri geta varla reimað skóna sína hjálparlaust vegna offitu og kvala hér og þar í skrokknum sem enn og aftur staf- ar af þessu sama þ.e.a.s. röngu mataræði og hreyfingarleysi. Þetta er sem sagt nánast ein- göngu eigið sjálfskaparvíti og aumingjaskapur sem enginn get- ur bjargað manni út úr nema maður sjálfur og því fyrr sem menn byrja að snúa þessari þró- un við því betra. Ennþá er u.þ.b. helmingur þjóð- arinnar sem hefur komist að þeirri niðurstöðu að það sé lang best að sitja fyrir framan sjón- varpið í afslappandi stellingum og horfa stjörfum augum á allt sem á skjáinn kemur teljandi sjálfum sér trú um að þeir séu svo þreyttir eftir vinnudaginn að þeim sé ómögulegt annað en sitja þarna hálf rænulausir allt kvöldið og hvíla sig. En staðreyndin er nefnilega sú að með því að taka hæfilega æfingu eftir vinnu, endurnýja menn þrótt sinn og verða hressari eftir það. Svo er það þetta sívinsæla að hafa ekki tíma til að stunda líkamsrækt en það er mjög léleg afsökun vegna þess að hálfrar klukkustundar líkamsrækt 4 sinnum í viku geta flestir stundað sé viljinn fyrir hendi. Spurningunni um hvaða líkamsrækt hentar hverjum og einum er ekki hægt að svara nákvæmlega en flestar íþróttir geta menn stundað að einhverju marki á hvaða aldri sem er. Æskilegt er þá að blanda saman þolæfingum og styrkjandi æfing- um. Sem dæmi um styrkjandi æfingar eru leikfimiæfingar og æfingar með lóðum og í tækjum. En dæmi um þolæfingar eru ganga, hlaup, sund og einnig til dæmis dans. Bestu æfingarnar til að byggja upp styrk og stælingu eru með lóðum og í tækjum vegna þess að þar getur þú valið þá þyngd sem þér hentar en í Íeikfimiæfingum hefur þú aðeins eina þyngd sem er þín eigin líkamsþyngd. Stundum er hún of mikil eða of lítil. Þú getur hvort heldur sem þú vilt valið þér ein- staklings- eða hópíþrótt. Kostur- inn við það að stunda einstaklings- íþrótt er fyrst og fremst sá að þú ert engum háður og æfir á þeim hraða og af þeim krafti sem þér hentar. En hins vegar kostirnir við hópíþróttirnar eru þeir að félagarnir hvetja þig áfram og veita þér aðhald þó svo að það megi einnig segja um einstaklings- íþróttirnar. í sambandi við rétt mataræði er litla aðstoð að fá og standa íþróttafélögin og leiðbein- endur þeirra sig vægast sagt mjög illa í þeim efnum, en eru þó eitthvað að vakna til meðvitund- ar um það hvað mataræði er stór þáttur í því að ná árangri í íþrótt- um. Það er ótrúlegt að keppnis- fólk sem stundað hefur íþrótt sína í tíu til fimmtán ár skuli ekki vita nokkurn skapaðan hlut um næringarfræði. Það er stað'reynd að svona er þetta í dag. Besta leiðin fyrir þann sem vill eitthvað fræðast um rétt mataræði er að lesa sér sjálfur til í þeim efnum og til þess eru til ýmis tímarit svo sem Líkamsrækt og næring og ýmis erlend Iíkamsræktarblöð. Það á við um þessi efni eins og önnur að þú uppskerð eins og þú sáir. Einar Guðmann. Sigurður Gestsson.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.