Dagur - 14.07.1988, Síða 14
14 - DAGUR - 14. júlí 1988
Raðhús við Dalsgerði
130 fm raðhús á tveimur hæðum til sölu.
Laust fljótlega.
Fasteignatorgið
Geislagötu 12, Sími: 21967
Sölustjórí Bjöm Kristjánsson, heimasími: 21776
■Fp
F.F. Felag
Faeteignaula
Tilkynning til
launaskattgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að gjalddagi
launaskatts fyrir mánuðina maí og júní er 15. júlí nk.
Launaskatt ber launagreiðendum að greiða til innheimtu-
manns ríkissjóðs, í Reykjavík, tollstjóra og afhenda um
leið launaskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið.
er hún komin
kotasælan
með lauk .
••• Mjólkursamlag KEA
Akureyn Simi 96-2U00
Smiðir athugið!
Óskum eftir að ráða smiði í vinnu nú
þegar.
Upplýsingar á vinnustað (Verkmenntaskólinn) eða í
síma 27589 á daginn.
Fjölnismenn sf.
Byggingarverktakar
Trésmiðja
FJOUHSMENN Draupnisgötu 7 ■ Akureyri.
Þórshafnarbúar
Dagur óskar eftir að ráða umboðsmann
til að sjá um dreifingu á blaðinu á Þórs-
höfn.
Upplýsingar gefur Hafdís Freyja Rögnvaldsdóttir
sími 24222.
heilsupósturinn
í-
Umsjón: Siguröur Gestsson og Einar Guðmann
Heilsuæði og heilsubóla eru slag-
orð sem flestir kannast við og
hafa lengi verið milli tannanna á
fólki. Dagblöðin hafa verið dug-
leg við að smjatta á þessari bólu
og yfirleitt alltaf látið það fylgja
að þetta sé eitthvað sem sé að
ganga yfir og eigi eftir að falla úr
tísku. En er svo? Þetta sem menn
kalla heilsuæði og hófst í Banda-
ríkjunum upp úr 1930 fer ennþá
vaxandi. Samt sem áður hafa
menn alltaf talað um að þetta sé
nokkuð sem eigi eftir að deyja út.
Það að hugsa um heilsuna
kemur ekki til með að deyja út,
einfaldlega vegna þess að með
aukinni fræðslu nú á dögum sjá
Beverly Crown, 50 ára, byrjaði að æfa vaxtarrækt 43ja ára gömul.
Heflsuæði - eða hvað?
menn betur að þeir krankleikar
sem menn eiga í höggi við svo
sem hjarta- og kransæðasjúk-
dómar, offita, æðahnútar, syk-
ursýki, botnlangabólga og harð-
lífi eiga rætur sínar að rekja til
einhæfs og rangs mataræðis og
hreyfingarleysis auk þess sem
stress og reykingar eiga þar einnig
stóran þátt.
Það sem menn gera síðan til
þess að halda í heilsuna og vera
vel á sig komnir er mjög misjafnt.
Algengast er þó að menn stundi
einhverjar íþróttir og kennir þar
ýmissa grasa. Úrvalið er mikið og
ættu allir að finna eitthvað við sitt
liæfi án tillits til aldurs eða
líkamlegs ástands.
Það er þó allt of algengt að ein-
ungis þeir sem eru í góðu formi
stundi einhverjar íþróttir og þeir
sem eru illa á sig komnir líkam-
lega og þurfa f raun og veru mest
á því að halda stundi enga líkams-
rækt. Eldra fólk hefur oft mesta
þörfina fyrir það að hreyfa sig en
lítur á íþróttir sem eitthvað fyrir
unga fólkið. Fólk á aldrinum 30-
50 hefur enga afsökun fyrir því
að vera í lélegu formi, en á þess-
um aldri fer það einmitt að segja
til sín ef menn vanrækja sig.
Margir á þessum aldri geta varla
reimað skóna sína hjálparlaust
vegna offitu og kvala hér og þar í
skrokknum sem enn og aftur staf-
ar af þessu sama þ.e.a.s. röngu
mataræði og hreyfingarleysi.
Þetta er sem sagt nánast ein-
göngu eigið sjálfskaparvíti og
aumingjaskapur sem enginn get-
ur bjargað manni út úr nema
maður sjálfur og því fyrr sem
menn byrja að snúa þessari þró-
un við því betra.
Ennþá er u.þ.b. helmingur þjóð-
arinnar sem hefur komist að
þeirri niðurstöðu að það sé lang
best að sitja fyrir framan sjón-
varpið í afslappandi stellingum
og horfa stjörfum augum á allt
sem á skjáinn kemur teljandi
sjálfum sér trú um að þeir séu svo
þreyttir eftir vinnudaginn að
þeim sé ómögulegt annað en sitja
þarna hálf rænulausir allt kvöldið
og hvíla sig. En staðreyndin er
nefnilega sú að með því að taka
hæfilega æfingu eftir vinnu,
endurnýja menn þrótt sinn og
verða hressari eftir það. Svo er
það þetta sívinsæla að hafa ekki
tíma til að stunda líkamsrækt en
það er mjög léleg afsökun vegna
þess að hálfrar klukkustundar
líkamsrækt 4 sinnum í viku geta
flestir stundað sé viljinn fyrir
hendi. Spurningunni um hvaða
líkamsrækt hentar hverjum og
einum er ekki hægt að svara
nákvæmlega en flestar íþróttir
geta menn stundað að einhverju
marki á hvaða aldri sem er.
Æskilegt er þá að blanda saman
þolæfingum og styrkjandi æfing-
um. Sem dæmi um styrkjandi
æfingar eru leikfimiæfingar og
æfingar með lóðum og í tækjum.
En dæmi um þolæfingar eru
ganga, hlaup, sund og einnig til
dæmis dans. Bestu æfingarnar til
að byggja upp styrk og stælingu
eru með lóðum og í tækjum
vegna þess að þar getur þú valið
þá þyngd sem þér hentar en í
Íeikfimiæfingum hefur þú aðeins
eina þyngd sem er þín eigin
líkamsþyngd. Stundum er hún of
mikil eða of lítil. Þú getur hvort
heldur sem þú vilt valið þér ein-
staklings- eða hópíþrótt. Kostur-
inn við það að stunda einstaklings-
íþrótt er fyrst og fremst sá að þú
ert engum háður og æfir á þeim
hraða og af þeim krafti sem þér
hentar. En hins vegar kostirnir
við hópíþróttirnar eru þeir að
félagarnir hvetja þig áfram og
veita þér aðhald þó svo að það
megi einnig segja um einstaklings-
íþróttirnar. í sambandi við rétt
mataræði er litla aðstoð að fá og
standa íþróttafélögin og leiðbein-
endur þeirra sig vægast sagt mjög
illa í þeim efnum, en eru þó
eitthvað að vakna til meðvitund-
ar um það hvað mataræði er stór
þáttur í því að ná árangri í íþrótt-
um. Það er ótrúlegt að keppnis-
fólk sem stundað hefur íþrótt
sína í tíu til fimmtán ár skuli ekki
vita nokkurn skapaðan hlut um
næringarfræði. Það er stað'reynd
að svona er þetta í dag. Besta
leiðin fyrir þann sem vill eitthvað
fræðast um rétt mataræði er að
lesa sér sjálfur til í þeim efnum
og til þess eru til ýmis tímarit svo
sem Líkamsrækt og næring og
ýmis erlend Iíkamsræktarblöð.
Það á við um þessi efni eins og
önnur að þú uppskerð eins og þú
sáir.
Einar Guðmann.
Sigurður Gestsson.