Dagur - 28.07.1988, Síða 1
ttmíF
71. árgangur
Akureyri, fímmtudagur 28. júlí 1988
140. tölublao
Miðnœtursigling.
Mynd: HG
Óhemju vatnavextir á Norðurlandi:
Vegir illa farnir vegna
grjóthruns og aurskriða!
- Flæddi inn í loðdýrabú á Svínabökkum í Vopnafirði
Ólafsfjaröarmúli er enn lokað-
ur og verður þar til upp styttir,
Ríkisstjórnin:
Lítill
stuðningur
Ríkisstjórnin á ekki stuðn-
ing nema um 35% kjósenda,
ef marka má skoðanakönn-
um sem Skáís gerði fyrir
Stöð 2 um síðustu helgi. Um
65% þeirra sem afstöðu
tóku sögðust ekki styðja
ríkisstjórnina og um 60%
aðspurðra töldu að ríkis-
stjórnin myndi falla annað
hvort nú bráðiega eða á
næsta ári. Þeir sem sögðust
kjósa Alþýðuflokk voru
einna trúaðastir á að stjórn-
in héldi velli, en helmingur
þeirra sem kjósa Framsókn-
arllokk telja að dagar
stjórnarinnar verði senn
taldir. Sjá nánar á bls. 3
en honum var lokað þar sem
grjóthnullungar féllu í stórum
stfl niður á veginn í fyrradag og
lokuðu honum. Vatnavextir
hafa verið miklir á Norður-
landi að undanförnu og var
veginum til Siglufjarðar lokað
um tíma vegna grjóthruns og
einnig féllu á hann aurskriður.
Vegurinn um Vopnafjarðar-
heiði var einnig illfær nema
jeppum í gær. Flóð í Selá ein-
angraði tvo bæi við Vopna-
Ijörð um tíma og gróf hún sig
undir vegg við loðdýrabú að
Svínabökkum.
Pétur Valdimarsson hjá Vega-
gerðinni í Ólafsfjarðarmúia sagði
að ástandið í Múlanum hefði ver-
ið skuggalegt í fyrradag, en í gær
var vatnsveðrið heldur að ganga
niður. Pétur sagði að mestu hætt
að hrynja úr fjallinu, en vegurinn
væri mikið skemmdur og viðgerð
hæfist ekki fyrr en veðrið yrði
skaplegt.
Vegurinn um Mánárskriður er
illa farinn sem og aðrir vegir á
leið til Siglufjarðar, en grjót og
aurskriður féllu á vegi í nágrenni
bæjarins. Vegurinn var þó opn-
aður fyrir umferð í gær, en Björn
Brynjólfsson hjá vegaeftirlitinu
sagði mikla vinnu fyrir höndum
svo vegirnir kæmust í samt lag og
gerðu menn lítið annað en halda
vegum opnum.
Vegagerðarmenn unnu í gær
að viðgerðum á veginum um
Vopnafjarðarheiði, en sá vegur
fór í sundur á tveimur stöðum
vegna vatnavaxta. Selá við Vopna-
fjörð flæddi yfir bakka sína með
þeim afleiðingum að bæirnir
Refsstaðir og Egilsstaðir einangr-
uðust um tíma, en viðmælandi
okkar á Refsstað sagði að það
hefði staðið stutt yfir. Við flóðið í
Selá ruddi hún varnargarða við
loðdýrabú á bænum Svínabökk-
um og gróf sig um einn og hálfan
metra undir húsið og inn í það.
„Þetta fór betur en á horfðist,“
sagði Jóhanna Jörgensdóttir á
Svínabökkum, en þegar flóðið
varð voru tvær ýtur á staðnum á
leið í vegaviðgerðir. Um 3000
minkar voru í húsinu, en þeir
kipptu sér ekki upp við það þó að
flæddi inn í hús þeirra. mþþ
Siglufjörður:
Tveggja
saknað
Leit stóð yfír í allan gærdag að
tveimur ungum mönnum sem
farið höfðu á gúmmíbát frá
Siglufírði í fyrradag. Báturinn
fannst mannlaus í fjörunni
undir Strákafjalli í gærmorg-
un. Síðast sást til ferða mann-
anna út af Sauðanesi og var
veður þá mjög farið að versna.
Félagar úr Björgunarsveitinni
Strákum og þyrla Landhelgis-
gæslunnar tóku þátt í leitinni og
var leitað úr bátum og fjörur
gengnar. Þyrla Landhelgisgæsl-
unnar hætti leit um miðjan dag
og leit var hætt af sjó seinni part-
inn í gær sökum vonskuveðurs.
Leitin hafði engan árangur borið
í gærkvöld. mþþ
Ásbyrgi:
Ferðafólk
flýr rigningu
„Það er hundleiðinlegt
veður,“ sagði Sigrún Barkar-
dóttir, landvörður í þjóðgarð-
inum við Asbyrgi í gær. Þá
hafði úrkoman við Garð í
Kelduhverfí mælst 50,5 milli-
metrar síðasta sólarhringinn og
er það þriðja mesta úrkoma
sem mælst hefur þar, síðan
mælingar hófust fyrir 25 árum.
Aðfaranótt mánudags gistu 80
manns í tjöldum í Ásbyrgi en í
gær voru fáir eftir á tjaldstæðinu,
þó þraukaði fólk í tveimur tjöld-
um og beið betra veðurs. Þeir
sem höfðu ætlað að gista í tjöld-
um á svæðinu fengu inni í skólun-
um í Lundi og Skúlagarði.
Sigurgeir ísaksson, verslunar-
stjóri útibús KNP í Ásbyrgi sagði
að ótrúlega mikið væri hringt í
verslunina til að spyrja um veður-
horfur um helgina, starfsfólk vís-
aði á veðurfræðinga í því sam-
bandi en samkvæmt spá væri útlit
fyrir veðrabrigði á föstudag eða
laugardag. IM
Aðaldalur:
Skotið á bifreið
með tveimur mönnum
Skotárás var kærð til lögregl-
unnar á Húsavík aðfaranótt
laugardags. Kæran bafet frá
tveim mönnum eftir að riffíl-
kúlu var skotið gegnum fram-
rúðu á bifreið þeirra sem stóð
á hlaði við bæ í Aðaldal. Riffíl-
kúlan fór út um hliðarrúðu á
bifreiðinni og mennina sakaði
ekki að öðru leyti en því að
flísar úr rúðunni stungust í
annan þeirra.
Á laugardagsmorgun handtók
Húsavíkurlögreglan þann sem
ákærður var fyrir að hafa hleypt
af skotinu og síðar um daginn var
hann dæmdur í gæsluvarðhald
meðan á rannsókn málsins stóð.
Á þriðjudagskvöld var maðurinn
látinn íaus en þá taldi lögreglan
rannsókn málsins lokið, a.m.k.
þannig að sakargögnum yrði ekki
frekar spillt. Hjá lögreglunni
fengust ekki upplýsingar um
hvort sá ákærði hefði viðurkennt
verknaðinn. Ekkert virðist hafa
kom fram um orsakir málsins en
Bakkus mun hafa verið með í
spilinu. IM