Dagur - 28.07.1988, Blaðsíða 2
■ 2 - DAGUR - 28. júli 1988
Bæjarráð Siglufjarðar mótmælir:
Söluskattur vegna
snjómoksturs
ekki endurgreiddur
Bæjarráð Siglufjarðar sam-
þykkti fyrir skömmu tillögu
Brynju Svavarsdóttur, bæjar-
fulltrúa, þar sem sú ákvörðun
fjármálaráðuneytisins að
endurgreiða bæjarfélaginu
ekki söluskatt af snjómokstri
að upphæð 1,4 milljónir króna
er hörmuð.
Bæjarstjórn Siglufjarðar barst
bréf frá fjármálaráðuneytinu í
lok júníinánaðar þar sem segir að
ráðuneytið geti því miður ekki
órðið við tilmælum Siglufjarðar-
kaupstaðar um endurgreiðslu
söluskatt af snjómokstri, þar sem
framlag til slíkrar endurgreiðslu í
fjárlögum fyrir árið 1988 hafi ver-
ið fellt niður.
í tillögunni sem Bæjarráð
Siglufjarðar samþykkti segir að
rökin fyrir beiðninni um endur-
greiðslu söluskatts af snjómokstri
séu þau að Siglfirðingar búi við
meira vetrarríki en önnur sveitar-
félög í kjördæminu. Frá 1. janúar
hafi 5,7 milljónum króna verið
varið til snjómoksturs en af þeirri
upphæð séu 1,4 milljónir sölu-
skattur. í lok tillögunnar segir að
bæjarráð feli bæjarstjóra að rita
þingmönnum kjördæmisins bréf
þar sem þess er óskað að þcir
beiti sér fyrir því að endur-
greiðsluheimild komi á ný inn i
fjárlög á næsta ári, svo og að til
endurgreiðslu komi í ár. EHB
Hverju ætlar þú aö klæöast á Fjöri '88?
ÞaÖ er auðvitað fatnaðurinn í felulitunum,
og það fæst allt í Eyfjörð:
Húfur, hattar, bolir, buxur, jakkar, töskur, tjöld,
regnslár, vatnspelar og ótal margt fleira,
allt í felulitunum, litnum sem slær í gegn.
EYFJORÐ
Hjalteyraraötu 4 ■ Sími 22275
VtSA
&
klippa þeir vélarhlífar af líka?
Akureyri:
Klippt af
óskoðuðum
bíluni
Aö sögn lögreglunnar og bif-
reiðaeftirlitsins á Akureyri
hefur verid klippt af á annað
hundrað óskoðuðum bílum í
bænum í sumar, aðallega síð-
ustu vikurnar. Víða má sjá
númerslausa bíla vegna þessa,
bæði í íbúðagötum og á bíla-
sölum.
Hjá Bifreiðaeftirliti ríkisins
fengust þær upplýsingar að ekki
væri meira um að klippt hefði ver-
ið af bílum nú en undanfarin ár.
Sigurður Indriðason, umdæmis-
fulltrúi, sagði að óhemju margir
eldri bílar hefðu verið afskráðir,
og nýjum bílum liefði fjölgað
mikið á árinu. Bílaflotinn hefur
yngst vegna þessarar endurnýj-
unar og fjöldann allan af nýjum
bifreiðum þyrfti ekki að færa til
skoðunar.
Erlingur Pálmason, yfirlög-
regluþjónn, sagði að lögreglu-
þjónar hefðu undanfarið við og
við klippt númer af óskoðuðum
bílum í bænum. Varðandi versl-
unarmannahelgina sagði Erlingur
að lögreglan myndi hafa vakandi
auga með óskoðuðum bílum og
klippa af þeim þegar þeirsæjust.
EHB
Heimsmetstílraim
á Melgerðismelum?
- Lendir fallhlífarstökkvari mjúkri lendingu
á hrossinu Guttormi?
Mætti bjóða þér að stökkva í
fallhlíf og lenda á hestbaki?
Forráðamenn útihátíðarinnar
Ein með öllu, sem haldin verð-
ur á Melgerðismelum um
verslunarmannahelgina aug-
lýsa grimmt að heimsmets-
tilraun í fallhlífarstökki af
þessari gerð eigi að reyna á
Melunum. „Þetta er ekkert
grín, og engin brella,“ sagði
Pétur Bjarnason einn af
aðstandendum Fjörs sem
stendur að hátíðinni.
Hesturinn sem fallhlífar-
stökkvarinn reynir að lenda á
heitir Guttormur og er frá Mel-
gerði í Eyjafirði. Jón Ólafur
Sigfússon formaður hestamanna-
félagsins Léttis sagðist vona að
Guttormur þessi væri mikill
kerrujálkur, sem léti sér hvergi
bregða og fallhlífarstökkvari úr
innsta hring tók í sama streng og
nefndi að „blindur og heyrnar-
laus“ klár væri ekki slæmur kost-
ur í þessu tilfelli.
Menn hafa velt vöngum yfir
hvort tiltækið sé hættulaust með
öllu, bæði fyrir menn og hross,
eða eins og formaður Léttis orð-
aði það: „Eg vona að stökkvarinn
sé þegar búinn að eignast þau
börn sem hann ætlar sér!’“
Fallhlífarstökkvari sem rætt
var við sagði nýju fallhlífarnar
vera orðnar svo góðar að hægt
væri að bremsa sig vel af áður en
lent væri og höggið í lendingunni
væri þar af leiðandi ekki mikið.
Þessi sami stökkvari sagði að
vandræðalaust ætti að vera að
lenda á hrossinu, ef aðstæður
væru góðar og vanur maður
stjórnaði fallhlífinni. mþþ
Ökuleikni
íkvöld
I kvöld verður keppt í öku-
leikni bæði á bifreiðum og
reiðhjólum. Það er Bindindis-
félag ökumanna sem stendur
að ökuleikninni í samvinnu við
DV og JC Súlur á Akureyri.
Keppnin fer fram við Þórunn-
arstræti fyrir ofan Menntaskól-
ann á Akureyri.
Keppnin hefst kl. 18.30 í
kvöld, en keppni sem þessi hefur
verið árlegur viðburður til fjölda
ára. í ökuleikni verður keppt í
karla- og kvennariðli og einnig
verður keppt á reiðhjólum.
Akureyri:
Níu sækja um tvö
ný leyfi við BSO
- samdráttur í leiguakstri
Leigubflstjórum fjölgar á næst-
unni úr 25 í 27, en á Akureyri
verða bráðlega veitt tvö ný
leyfí fyrir leigubfla. Níu manns
sóttu um þessi leyfi og er nú
verið að fara yfír umsóknir. í
sumar var tekið inn í reglugerð
um takmörkunm leigubifreiða
á Akureyri, að leigubílstjórar
hætti akstri við 75 ára aldur, en
veittur er þriggja ára aðlögun-
artími, þannig að slíkt kemur
ekki til framkvæmda fyrr en
árið 1991.
Jakob Jónsson formaður Bíl-
stjórafélags Akureyrar sagði að
við úthlutun leyfa væri einkum
farið eftir hver hefði mesta
reynslu í akstri og að Bílstjóra-
félagið hefði augastað á ungum
mönnum í starfið, þar sem full
þörf væri á endurnýjun f starfs-
stéttinni. Bílstjórafélagið er nú
með umsóknirnar til skoðunar og
sendir þær síðan til úthlutunar-
manna sem eru fulltrúar frá
félaginu og ráðuneyti.
Þessi fjölgun nú er í samræmi
við breytingu á reglugerð, en
áður var gert ráð fyrir einum bíl
fyrir hverja 600 íbúa á Akureyri.
Nú hefur höfðatölunni verið
breytt og hún lækkuð niður í 500.
„Við megum alls ekki vera
fleiri,“ sagði Jakob, „það er
greinilegur samdráttur í leigu-
akstri, t.d. er mun minna að gera
hjá okkur nú í júlí en var á sama
tíma í fyrra. Mér sýnist að muni
vanta um 25% til að við náum inn
sömu krónutölu og í júlí fyrir
ári.“ mþþ