Dagur - 28.07.1988, Blaðsíða 3
28. júlí 1988 - DAGUR - 3
Rækjuvinnslan Dögun á Sauðárkróki:
Gálgafrestur
fyrir starfsfólkið
- 20 tonnum af rækju ekið í burtu
í viku hverri
Flugvclarnar tvær frá Flugskóla Helga Jónssonar tilbúnar fyrir næstu ferð til Meistaravíkur í Grænlandi. Bresku
framhaldsskólanemarnir bíða við flugvélamar. Mynd: bjb
Alexandersflugvöllur:
Breskir skólakrakkar
fluttir til Grænlands
- fyrsta millilandaflug frá Sauðárkróki
Um síðustu helgi flugu tvær
vélar frá Flugskóla Helga
Jónssonar upp frá Alexanders-
flugvelli á Sauðárkróki með
breska framhaldsskólanema á
leið til Grænlands. Þetta er í
fyrsta skipti sem flug á milli
tveggja landa er flogið frá
Sauðárkróki um Alexanders-
flugvöll. Bresku skólakrakk-
arnir, uin 60-70 talsins, voru að
fara í 6 vikna lciðangur til
Grænlands og var lent með
hópinn í Meistaravík. Farnar
voru margar ferðir, því ekki
fóru nema 9 í hvora vél. Aður
var búið að fljúga með frakt til
Grænlands og það klárað sl.
þriðjudag.
Fyrst átti að fljúga með Bret-
ana frá ísafirði en þar leyfðu
aðstæður það ekki, m.a. sökum
mikillar fuglamergðar við flug-
völlinn og var Alexandersflug-
völlur því valinn til að selflytja
hópinn til Meistaravíkur. Síðan
mun Flugskóli Helga Jónssonar
ferja hópinn til baka í gegnum
Alexandersflugvöll síðast í ágúst-
mánuði.
Bresku nemarnir eru úr mörg-
um framhaldsskólum víðs vegar á
Bretlandseyjum sem fengu
Grænlandsleiðangur í verðlaun
fyrir góðan námsárangur. Mun
hópurinn m.a. stunda ýmsar
rannsóknir á eyjunni „grænu" í
jarðfræði, veðurfræði og fleiri
vísindagreinum. Ekki gátu fróð-
leiksfúsir Bretarnir beðið með
tækjabúnað sinn þangað til í
Grænlandi, heldur komu upp
„mini“ veðurtunglastöð á Alex-
andersflugvelli með tilheyrandi
tölvum og senditækjum. Gátu
þeir fylgst með veðurskilyrðum á
norður-heimskautssvæðinu og
fóru flugmennirnir eftir þessum
tækjum hjá „tölvufríkum" Bret-
anna, sem höfðu tækin uppi þar
til í síðustu ferð. Þeir komu upp
loftneti fyrir utan flugskýlið,
stungu tölvu og senditækjum í
samband og voru þar með komn-
ir í samband við hin ýmsu veður-
og gervitungl. Að sögn flug-
mannanna var mjög gott að hafa
þessa þjónustu Bretanna á með-
an flogið var til Grænlands, enda
veður ekki beint hagstætt til
flugs.
íbúasamtök í Síðuhverfi:
Vilja apótek
í úthverfi
íbúasamtökin í Síðuhverfí
hyggjast á næstunni skrifa bréf
til forráðamanna apótekanna
tveggja sem eru á Akureyri og
spyrjast fyrir um hvort annað
þeirra sé tilbúið að flytja
starfsemi sína út í hverfið.
Ekki þykir ráðlegt að setja á
stofn þriðja apótekið í bænum,
þar sem þau tvö sem fyrir eru
anni vel verkefnum sínum, að
sögn Ragnars Steinbergssonar
forstjóra Sjúkrasamlags Akur-
eyrar.
í dag halda íbúasamtökin fund
með bæjarráði og þar sem m.a.
verða kynntar hugmyndir manna
um flutning apóteks úr miðbæjar-
kjarnanum, eða að stofnað verði
útibú frá þeim í hverfinu. „Við
leggjum áherslu á að þjónustan
færist út í hverfin. Það er ekki
skynsamlegt að öll þjónusta safn-
ist saman í Miðbænum, þar sem
mjög erfitt getur reynst að fá
bílastæði,“ sagði Sigurður Jóns-
son félagi í íbúasamtökunum.
Staðsetningu apóteks, ef til kæmi
sagði hann ekki ákveðna, en
verslunarmiðstöðin i Sunnuhlíð
væri á margan hátt ágætur
kostur.
Það sem einkum þykir til fyrir-
stöðu varðandi flutning apóteks
út í Glerárhverfi er að þar er eng-
in læknaþjónusta fyrir hendi, en
læknamiðstöð þykir forsenda
þess að apótek rísi. mþþ
Þar með er visir kominn að
millilandaflugi frá Alexanders-
flugvelli og vonandi að rneira
verði af því í framtíðinni. -bjb
Frá rækjuverksmiðjunni Dög-
un á Sauðárkróki hefur í júlí-
mánuði verið ekið um 20 tonn-
um af rækju í viku hverri til
vinnslu annars staðar. Þetta er
gert til þess að vinnslukvóti
verksmiðjunnar endist lengur
en ella og uppsagnir komi síðar
til.
Að sögn Garðars Sveins Árna-
sonar framkvæmdastjóra verk-
smiðjunnar er gert ráð fyrir að
með þessu móti muni vinnslu-
kvóti hennar endast fram í sept-
ember. Ef ekki hefði komið til
þessi ráðstöfun hefði rækjan
aðeins enst rétt fram yfir næstu
mánaðamót. í rækjuvinnslunni er
því aðeins unnið frá átta til sjö á
daginn og sú rækja sem þá er eftir
hefur verið flutt til vinnslu á
Blönduósi og Siglufirði. Þetta
hafa að jafnaði verið um 20 tonn
á viku.
Þegar vinnslukvótinn er búinn
verður starfsfólki rækjuvinnsl-
unnar sagt upp því Garðar segist
ekki ætla að fjárfesta í tækjum til
að taka á móti frosinni rækju
erlendis frá. í rauninni er því
aðeins um gálgafrest að ræða fyr-
ir starfsfólkið.
Dögun er með fimm báta í við-
skiptum, þar af einn sem verk-
smiðjan á. Kvóti bátanna er rúm
1000 tonn en vinnslukvóti verk-
smiðjunnar var upphaflega 690
tonn. Eitthvað bætist við þá tölu
en þó er ljóst að kvóti bátanna
endist lengur. ET
Skagaströnd:
Símalínum
fjölgar
Á næstu dögum munu hefjast
framkvæmdir við stækkun
innanbæjarkerfisins á Skaga-
strönd. 100 lína strengur verð-
ur lagður frá símstöðinni að
frystihúsi Hólaness.
Að sögn Skúla Pálssonar,
símaverkstjóra á Blönduósi, er
áætlað að þessi framkvæmd
standi yfir í einn mánuð. Hann
kvaðst þó telja að verkið muni
taka mun lengri tíma því sami
mannskapur og vinnur við þetta
þurfi einnig að sinna útköllum
vegna bilana.
Skúli sagði að brýn þörf hefði
verið á að fjölga símalínum á
Skagaströnd og reyndar hefði
þurft að ganga mun lengra í
þessu. Ekki hefði fengist fjárveit-
ing til meiri framkvæmda að
þessu sinni. fh
Skoðanakönnun Stöðvar 2 og Skáís:
Rfldsstjómin nýtur
ekki mikils stuðnings
- 35% þeirra sem svara styðja ríkisstjórnina, 65% ekki
Ríkisstjórnin sem hélt upp á
eins árs afmæli sitt fyrr í sumar
á nokkuð í vök að verjast, en
um 60% þeirra sem afstöðu
tóku í skoðanakönnun Skáís
sem gerð var fyrir Stöð 2 um
síðustu helgi telja að stjórnin
falli nú á næstunni, í haust eða
á næsta ári. Um 65% þeirra
sem tóku afstöðu er þeir voru
inntir eftir stuðningi við ríkis-
stjórnina sögðust ekki styðja
hana.
Af þeim 656 aðilum sem spurð-
ir voru sögðust 197 styðja ríkis-
stjórnina, eða rétt um 35% af
þeim sem afstöðu tóku, en 356
sögðust ekki styðja hana, sem eru
um 65% aðspurðra.
Tæplega 41% þeirra sem
afstöðu tóku töldu að ríkisstjórn-
in myndi halda velli og sitja út
kjörtímabilið. Aftur á móti töldu
42% aðspurðra að stjórnin myndi
falla nú alveg á næstunni og um
11% að hún myndi springa í
haust. Rúmlega 6% þeirra sem
spurðir voru sögðu stjórnina falla
á næsta ári. Samtals eru því rúm-
lega 53% þeirra sem svöruðu
spurningunni á því að stjórnin
eigi eftir að falla, annað hvort
fljótlega eða þegar lengra verður
komið á annað starfsár hennar.
Þeir sem harðastir eru á því að
stjórnin sitji út kjörtímabilið eru
þeir sem sögðust kjósa Alþýðu-
flokk, eða um 60% þeirra. Um
42% þeirra sem sögðust myndu
kjósa Sjálfstæðisflokk töldu
stjórnina sitja áfram, en einungis
28% kjósenda Framsóknar-
flokksins. Helmingur kjósenda
Framsóknarflokksins taldi að
stjórnin myndi falla nú bráðlega
eða á næsta ári. Meira en helm-
ingur kjósenda Kvennalistans
taldi stjórnina falla nú eða síðar
og tæplega helmingur kjósenda
Alþýðubandalagsins. Um 30%
þeirra sem sögðust myndu kjósa
Alþýðuflokkinn telja að stjórnin
eigi eftir að falla og um 33%
kjósenda Sjálfstæðisflokks telja
stjórnina ekki hafa það í gegnum
kjörtímabilið. Kvennalistakonur
eru vantrúaðastar á setu stjórnar-
innar, en tæplega 11% þeirra
telja að stjórnin sitji tímabil sitt á
enda.
Þá var spurt í könnuninni
hvort menn vildu láta kjósa aftur,
eða reyna stjórnarmyndun án
kosninga ef til þess kæmi að
sjórnin félli og vildu langflestir,
eða um 75% þeirra sem spurðir
voru efna til kosninga á ný. Tæp-
lega 26% sögðust vilja láta reyna
á stjórnarmyndun án kosninga.
mþþ
Próscnt StucTningur vi& ríkisstjórnina
60 T
50-
40
30-
20-
10-
Nóu 87
Jan B8
liars 88
Stuíningur
ftpr 88
Júlí