Dagur - 28.07.1988, Page 5

Dagur - 28.07.1988, Page 5
28! júíí 1988 - DAGUR - 8 Tveir Sómabátar frá Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði verða aflientir á sýningunni. Fyrsta sjávarútvegssýning Grænlendinga: Tæplega 40 íslensk fyrirtæki taka þátt Fyrsta sjávarútvegssýning Græn- lendinga verður haldin dagana 28.-31. júlí í Nuuk. Tæplega 40 íslensk fyrirtæki munu taka þátt í sýningunni og bjóða þar margvís- legar vörur og þjónustu fyrir sjáv- arútveg, allt frá nærfötum og ýmsum smávörum, upp í flókinn rafeindabúnað og skip. Er þetta langöflugasta þátttaka Íslendinga í vörusýningu erlendis hingað til. Á þessu ári verður Grænland að öllum líkindum mikilvægasti markaður okkar fyrir tæknivörur í sjávarútvegi og gera menn sér góðar vonir um sölu á sýning- unni. Mikill áhugi er fyrir henni á Grænlandi og reiknað með allt að 400 þátttakendum erlendis frá, þar á meðal frá Norðurlöndun- um, meginlandi Evrópu og Bandaríkjunum. Gera má ráð fyrir að um 100 íslendingar sæki sýninguna, þar af stór hópur frá ísafirði. íslenska svæðið er alls um 150 fermetrar að stærð og verður byggt upp sem eyja á miðju sýn- ingarsvæðinu. Meðal þátttak- enda verða Fínull og Skipasmiðja Marsellíusar, Skipasmiðjan Hörður og Trefjaplast. Báta- smiðja Guðmundar mun afhenda tvo Sómabáta á sýningunni og lögðu þeir af stað 21. júlí. Þetta er löng sigling og búist við að hún taki allt að 10 daga. Á leiðinni verður komið við í nokkrum grænlenskum höfnum og bátur- inn kynntur ásamt búnaði. Plastos, Plastprent og Umbúðamiðstöðin kynna umbúðir sínar, Normex, Sæplast og Plasteinangrun kynna plastker og kassa, Marel og Pólstækni sýna tölvuvogir og skráningar- tæki og Jósafat Hinriksson sýnir, auk Skipasmiðjunnar Harðar, íslenska toghlera. Af öðrum þátt- takendum má nefna DNG, Sjó- vélar, Gneista, Snartak, Asiaco, Vélsmiðjuna Klett, Sjöfn, ísco, Icecon og eins og áður segir, fjölda þjónustufyrirtækja frá Isa- firði. Tannverndarráð: Harðfískur og púsluspil - til þeirra sem spenna beltin! Um verslunarmannahelgina mun Tannverndarráð, sem starfar á vegum heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytisins, dreifa til ungra vegfarenda smápokum með harðfiski, eins og gert var á sl. ári í samvinnu við Umferðar- ráð og lögreglu. Var þetta gert um leið og frætt var um atriði varðandi umferðina eins og Umferðarráð og lögregl- an hafa annast undanfarin ár. Tekist hefur góð samvinna með þessum aðilum, sem allir starfa að forvörnum hver á sínu sviði. Oft vill vera erfitt að finna verkefni fyrir börn og unglinga á löngum ökuferðum. Þá er oft gripið til sætinda, sem leiðir til þess m.a. að tennurnar verða þaktar sykri, sé það gert stöðugt. Liggja þær þá í sýrubaði, sem leysir upp glerunginn. Harðfiskur er aftur á móti heppilegur valkostur, sem vert er að benda á. Jafnframt mun verða dreift nokkru magni af púsluspilum til að stytta yngstu vegfarendunum stundir, en myndin á púsluspilun- um sýnir ungling, sem er að hreinsa tennur sínar með tann- bursta og fluortannkremi. Púsluspilinu er ætlað að minna á mikilvægi þess að hirða tenn- urnar vel og sérstaklega að sofa með hreinar tennur. Sams konar púsluspilum var dreift á vegum Tannverndarráðs til allra leikskóla landsins sl. vor. Sjálfsbjörg skorar á stjómvöld Framkvæmdastjórn Sjálfs- bjargar, landssambands fatl- aðra, hefur samþykkt og sent frá sér eftirfarandi ályktun: „Framkvæmdastjórn Sjálfs- bjargar l.s.f. skorar á stjórnvöld að gera stórátak í því að rjúfa nú þegar félagslega einangrun heyrnarlausra. Sjálfsbjörg leggur áherslu á að tölvur, sem koma í stað textasíma verði almennings- eign og að heyrnarlausum verði tryggð þjónusta táknmálstúlka. Sjálfsbjörg telur eðlilegt að íslenskt efni í sjónvarpi sé gert öllum skiljanlegt - einnig heyrn- arlausum.“ Undir þetta rita for- maður og framkvæmdastjóri Sjálfsbjargar. Vífilfell: Nýtt Fanta- appelsín Verksmiðjan Vífilfell hf. hefur hafið framleiðslu á nýju Fanta- appelsíni, þ.e. drykkurinn er framleiddur eftír annarri upp- skrift en áður. í nýja Fanta-appelsíninu eru engin litarefni og er drykkurinn að einum tíunda hluta hreinn ávaxtasafi. Einnig hefúr orðið nokkur breyting á bragði frá því sem áður var, en ákvörðun um bragðtegund var tekin í kjölfar víðtækrar markaðskönnunar nú nýverið. Til þess að koma enn betur á móts við óskir neytenda er Fanta- appelsín nú fáanlegt í fleiri teg- undum umbúða en áður. Má þar meðal annars nefna nýjar hálfs lítra plastflöskur, en á þeim er ný tegund plasttappa sem gerir fólki kleift að loka flöskunum aftur mun þéttar en áður. Ný bók frá AB: Silunga- og laxaflugur AB hefur gefið út bókina Silunga- og laxaflugur eftir John Buckland í þýðingu Björns Jóns- sonar. Bókin kemst vel fyrir í vasanum á veiðijakkanum og gef- ur greinagott yfirlit yfir vin- sælustu flugugerðir sem notaðar eru við sportveiðar um víða veröld, útlit þeirra, uppruna og fiskana sem þær eiga að tæla. Þetta er handhægur leiðarvísir fluguveiðimanna hvert sem þeir fara til að stunda íþrótt sína. Meira en 1200 flugugerðum er lýst í máli og myndum í bókinni. Er þeim skipt í blautflugur og þurrflugur og skipað saman eftir lit. Sýndar eru valdar flugur frá heimsþekktum framleiðendum. Fjallað er um lifnaðarhætti og æti sportfiska og áhrif þess á hnýting- ar gerviflugna. Þá er rætt um hirðingu og geymslu gerviflugna. Bókin er 191 bls. að stærð og lit- prentuð. Húsnæði Kristnesspítali óskar eftir aö taka á leigu í eitt ár rúmgóöa þriggja eöa fjögurra herbergja íbúö handa aðstoöarlækni. Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri í síma 31100. Kristnesspítali. Lokað vegna sumarleyfa frá 1 .-7. ágúst. Vélsmiðja Steindórs hf. Frostagötu 6a, Akureyri. Felga og dekk á aðeins kr. 7.500.- Fyrir: Pajero Land Cruser Rocky HiLux Nissan Tilboðsverð meðan birgðir endast ■ ■ Hjólbarðaverkstæði nöldursf.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.