Dagur - 28.07.1988, Síða 6
6 - DAGUR - 28. júlí 1988
Vigfús Jóhannesson skipstjórí ásamt eiginkonu og dætrum við heimkomuna.
Á milliþilfari er mikið af tækjum og vinnuaðstaða öll hin besta. Hér líta gestir á blóðgunarborðið.
Þrátt fyrir norðan strekking og
rigningu í fyrradag var fjöldi
manns saman kominn á bryggj-
unni á Dalvík til að fagna nýj-
um togara Útgerðarfélags Dal-
víkinga. Skipið kemur í stað-
inn fyrir 14 ára gamlan togara,
fyrsta skuttogara Dalvíkinga
sem bar sama nafn, Biörgvin
EA 311.
Nýja skipið er búið öllum
bestu fiskileitar- og siglingatækj-
um. Stærð þess er 499 tonn sem
er 50 tonnum meira en gamla
skipið. í skipinu er svokallað
auto-troll sem er sjálfvirkur bún-
aður á hífingu og slökun, auk
þess er einnig data-troll sem er
sjálfvirkt eftirlit með átaki tog-
víra, lengd og fleira. í skipinu eru
tvær lestar sem báðar geta notast
sem frysti- eða kælilestar. Skipið
er búið tækjum fyrir lausfrystingu
sem fyrst og fremst notast við
vinnslu á karfa og grálúðu svo og
undirmálsfiski. í skipinu er 2500
hestafla Deutz vél og aðstæður
allar í vélarrúmi mjög góðar. Þá
eru vistarverur skipverja hinar
glæsilegustu. Á skipinu verður 16
manna áhöfn en fleiri þegar ein-
göngu verður veitt fyrir lausfryst-
inguna.
Merk tímamót
Við móttökuathöfnina síðastlið-
inn miðvikudag blessaði séra
Pálmi Matthíasson nýja skipið en
því næst flutti Kristján Þór
Júlíusson bæjarstjóri stutt ávarp.
Hann sagði m.a.:
„Þegar við gleðjumst yfir
komu þessa skips þá gerum við
okkur um leið grein fyrir því að
þratt fyrir fullkomna smíði
verður skipið ekki rekið af sjálfs-
dáðum. í fyrsta lagi mun þessi
mikla fjárfesting útgerðarfélags-
ins kalla á það að gaumgæft sé vel
hvert það spor sem tekið verður á
næstunni varðandi arðsemi fjár-
festingarinnar og hagsmuni eig-
enda. f annan stað þá þarf á skip-
ið áhöfn og það er mikil ábyrgð
sem skipstjóra og mannskap hans
er ætlað að axla um borð i þessu
skipi. Af góðri reynslu veit ég að
þessum mönnum öllum er treyst-
andi í hvívetna. Fyrir hönd Dal-
víkurbæjar vil ég þakka öllum
þeim sem lagt hafa lóð sitt á vog-
arskálarnar og unnið hafa að því
að þetta skip er nú í heimahöfn."
Valdimar Bragason, fram-
kvæmdastjóri Útgerðarfélags
Dalvíkinga tók næst til máls og
þakkaði hlý orð í garð félagsins,
skips og áhafnar. Ennfremur
sagði hann:
„Þetta er stór dagur í sögu
Útgerðarfélags Dalvíkinga. Þaö
vitum við öll, sem hér erum
saman komin, að atvinnusaga er
gildur þáttur í samspunninni sögu
hvers byggðarlags og á stað eins
og Dalvík finnum við fljótt fyrir
því hvernig atvinnufyrirtækin
ganga, svo nærri erum við upp-
hafi verðmætasköpunarinnar að
minnstu sveiflur merkjast í dag-
legu lífi okkar. Á þann hátt má
segja að með hverjum degi séum
við að tvinna sameiginlega þráð
þar sem hver leggur sitt af mörk-
um til að ekki myndist hnökri og
að þráðurinn myndi sterka heild.
Með þessum skipakaupum
Útgerðarfélags Dalvíkinga er
vissulega stigið djarft spor. Spor
sem við vonum öll og trúum að
eigi eftir að skila okkur fram á
veginn en jafnframt spor sem
leggur á okkur auknar kröfur og
skyldur varðandi skuldbindingar
sem gerðar eru jafnframt þessum
skipakaupum."
Með nýjan Björgvin
í þriðja sinn
Björgvin Jónsson, stjórnarfor-
maður Útgerðarfélags Dalvík-
inga hf., var skipstjóri á fyrsta
fiskiskipi ÚD sem keypt var árið
1958. Björgvin var framkvæmda-
stjóri félagsins og aðal baráttu-
maður fyrir skipakaupunum 1974
og nú er hann enn við stjórnvöl-
inn þegar fimmti togari félagsins
og þriðja skipið með sama nafni,
er keypt.
„Jú, ég man nokkurn veginn
eftir heimkomunni með fyrsta
Björgvin EA 311 árið 1958. Við
komum með skipið til Dalvíkur á
Þorláksmessu og fengum ágætt
veður alla leið. Skipið var smíðað
í Stralsund í Þýskalandi og það er
einna helst eftirminnilegt úr
heimferðinni að á kortið sem við
fengum vantaði svo mikið að
þegar við komum á Kattegat
þurftum við að leggjast á gólfið
til að teikna okkur betra kort.
Við höfðum náttúrlega aldrei far-
ið þetta áður og þekktum leiðina
þess vegna lítið,“ segir Björgvin
hlæjandi.
Skipasmíðastöðin í Flekke-
fjord í Noregi hefur nú fullsmíð-
að tvö skip fyrir ÚD, þ.e.
Björgvin árið 1974 og síðan þetta
nýja skip nú. Sama stöð smíðaði
einnig skrokkinn af Björgúlfi sem
Slippstöðin á Akureyri fullsmíð-
aði árið 1977.
Ólýsanleg tilfinning
Vigfús Jóhannesson skipstjóri
var að vonum kátur við heim-
komuna. Hann var fyrst spurður
hver væri helsti munurinn á nýja
skipinu og því gamla.
„Fyrst og fremst er það
stærðin. Þetta skip fer á allan hátt
betur með mannskapinn auk þess
sem allur búnaður er sá besti sem
völ er á. Þetta er allt saman nýtt
fyrir mér og gjörbylting frá því
sem var,“ segir Vigfús og bætir
við að togkraftur skipsins sé mun
meiri en var á gamla Björgvin
sem gerir að verkum að hægt er
að toga við erfiðari skilyrði.
Stór dagur í sögu
Útgeröarfélags Dalvíkinga
Björgvin Jónsson núverandi stjórnarformaður Útgerðarfélags Dalvíkinga
við brúna á nýja togaranum. Myndír: jóh
í heimahöfn
„Ég veit ekki hvort maður get-
ur sagt að skipið sé mun afkasta-
meira. Við gátum fiskað ágætlega
á gamla skipið en það kom líka
oft fyrir að maður þurfti að
stoppa einmitt þegar mest veidd-
ist.“
- Hvernig tilfinning er það að
koma í heimahöfn með nýtt og
glæsilegt skip?
„Þetta er ólýsanleg tilfinning,“
segir Vigfús og horfir yfir höfnina.
„Manni finnst eiginlega skrýtið
að maður skuli eiga þetta skilið
og sé treyst fyrir þessu. En þetta
er annarra mat. Ábyrgðin á
skipstjórann og áhöfnina að taka
við nýju skipi er vissulega mikil
en þegar menn eru búnir að vera
lengi til sjós, eins og ég, þá er
þetta ekki eins og margir halda.
Fyrir mér er þetta eins og hvert
annað verkefni sem maður leysir
eftir bestu samvisku. Þetta er
hluti af starfinu," segir Vigfús að
lokum. JÓH
- bæjarbúar fagna nýjum togara
Bæjarbúum gafst kostur á að skoða nýja skipið og njóta veitinga um borð. Hinir eldri voru mest uppteknir af tækj-
um og tólum í skipinu en gosið og snitturnar hcilluðu yngri gestina.