Dagur - 28.07.1988, Page 9

Dagur - 28.07.1988, Page 9
28. júlí 1988 - DAGUR - 9 .<? - öA&íj®* - %\ / milli steinanna og lands má sjá hvernig þeir velta til, að því er virðist eftir sjávarstraumum. Haldbær skýring er engin til á þessu fyrirbæri. Þórshöfn Það er ekki hægt að skilja við Færeyjar án þess að geta höfuð- staðarins, Pórshafnar. Hún er minnsta höfuðborg Skandinaviu, íbúar eru aðeins 15.000. Samt sem áður virkar Pórshöfn risastór í samanburði við aðra staði í Fær- eyjum. Á Tinganesi, sem áður var minnst á, finnst manni sem tím- inn hafi verið færður aftur um nokkur hundruð ár. Gömul frið- uð hús, halla sér hvert að öðru og á milli þeirra eru aðeins örmjóir gangstígar. Hinum megin við höfnina er Skansinn, virki frá 1580, en frá því var innsiglingin til Pórshafnar varin. í Þórshöfn er allt sem fólk þarfnast, stórt og gott íþróttahús, stórkostleg sundlaug, verslanir, hótel og söfn. Eitt fallegasta hús Þórshafnar er Norðurlandahúsið og þar er ýmislegt á döfinni á menningar- og listasviðinu. Klakksvík er næststærsti staður Færeyja, með 4500 íbúa. Þar er stærsta gosdrykkja- og bjórverk- smiðja Færeyinga. Góður gervi- grasvöllur er í Klakksvík og ný og falleg kirkja. Glæsileg versl- unarmiðstöð er í bænum og gott veitingahús en hótelið er ennþá á teikniborðinu. Barsskor er lítil ferja sem gengur á milli Klakksvíkur og Larvíkur. Upphaflega er þessi bátur ættaður frá Akranesi. Rétt eins og viö Hér áður var minnst á uppruna Færeyinga. En hvernig er þetta fólk? Allt frá því fyrsta hefur snyrtimennska verið orð sem ég hef tengt Færeyingum. Og eftir ferðalag vítt og breitt um Færeyj- ar, er sú ímynd enn sterkari. Þeir eru snyrtimenni fram í fingur- góma. Mér allt að því létti, þegar ég sá á einum stað gömul bíla- hræ. ingancshellan, en yst á henni sátu þingmennirnir. Eins gott fyrir þá að gleyma sér ekki, því á flóði flæddi yfír jaðra cnnar og . . . Göturnar í elsta hluta Þórshafnar eru afar þröngar eins og sjá má. Gestrisni er Færeyingum einn- ig í blóð borin. Þeir veita gestum sínum allt hið besta sem þeir geta. En áfengislöggjöfin þeirra er einstök og á ekki sinn líka í veröldinni. Þeir fá að kaupa vín, frá Danmörku, samkvæmt kvóta, en þeir verða að vera skuldlausir við skattinn, áður en pöntun er getð. Vín er því hvergi hægt að fá með mat, nema í lokuðum einka- samkvæmum eða ef menn koma með það sjálfir og borða þá ein- hvers staðar út af fyrir sig. Þrátt fyrir þessa ströngu áfengislöggjöf eru Færeyingar miklir bjórfram- leiðendur, líkt og íslendingar. Sjómennska er aðalatvinnu- vegur Færeyinga, en landbúnað- ur heldur enn velli, enda er nafn eyjanna dregið af sauðfé. Þessir atvinnuvegir hafa mótað fólkið, gert það opið og hlýlegt. Húmor eiga Færeyingar til í ríkum mæli og þeir eiga sína „Hafnarfjarðar- brandara". Færeyska er eins og margir vita mjög lík íslensku a.m.k. á prenti og hafa íslending- ar oft skemmt sér við að lesa fær- eysk blöð og Færeyingar íslensk blöð. í Klakksvík rákumst við á nokkuð sem okkur fannst alveg bráðsniðugt. í miðbænum blasti allt í einu við okkur „gávubúð". Við vildum óð og uppvæg fá umboð og selja gáfur hér heima á Fróni. Þetta var fært í tal við okk- ar helsta leiðsögumann í Færeyj- um, Þórshafnarbúa. „Ja,“ sagði hann, „við þurfum enga svona verslun í Þórshöfn, bara þeir í Klakksvík.“ Minnir þetta ekki dálítið á sögur sem sendar eru á milli Akureyrar og Reykjavíkur? Ferða- og gistimöguleikar Það er hægt að nýta sér flesta ferðamáta í Færeyjum. Ferjur af flestum stærðum ganga á milli eyjanna og það er tilvalið að taka bílinn með. Vegakerfið færeyska er til fyrirmyndar og mættu íslendingar læra margt af þeim um vegalagningu og jarðganga- gerð. Ekkert er því til fyrirstöðu að hjóla eða jafnvel að ganga um í Færeyjum. Einnig er hægt fyrir hópa að leigja sér bíl og leið- sögumann, sem ferðast þá með menn til allra þeirra staða sem skemmtilegast er að skoða. Þyrlur eru mikið notaðar í Færeyjum, en þar er enginn flug- völlur fyrir venjulegar flugvélar, nema á Vogey. Þar um fer allt millilandaflug, þangað fljúga Flugleiðir á Fokker og síðan áfram til Bergen. Nýstofnað fær- eyskt flugfélag heldur uppi áætl- unarflugi til Danmerkur. Gistingu er hægt að fá í öllum verðflokkum. Samtals eru um 1300 rúm í öllum færeysku hótel- unum, síðan eru u.þ.b. 1000 rúm í gistiheimilum, heimahúsum og á farfuglaheimilum. Þannig að í allt er hægt að hýsa á 3000 manns vítt og breitt um Færeyjar. Þekktustu hótelin eru m.a. Hótel Borg og Hótel Hafnia í Þórshöfn, Hótel Nord á Viðareiði, Hót- el Vágar á Vogey og Hótel Eiði á Austurey. Eitt skemmti- legasta gistiheimilið er að Gjá- argarði. Þar er hægt að gista í litl- um klefum, nokkurs konar lok- rekkjum, sem eru í kvistunum á húsinu. Tilvalið fyrir þá sem eru á brúðkaupsferðalagi, eins og eigandinn sagði. í þessari frásögn er aðeins fjall- að um brot af því sem hægt er að upplifa í Færeyjum, en afganginn læt ég lesendum eftir að kynna sér sjálfir.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.