Dagur - 28.07.1988, Page 10
1Ö - DÁGO'R - 28. júlí 1988
Lyngholt: 5 herb. e.h. í tvíbýlis-
húsi, geymsla og herb. í kjallara
mjög rúmgóð. Ásamt bílskúr.
Sólvellir: 4ra herb. íbúð á neðri
haeð.
Stórholt: 4ra herb. neðri hæð I
tvlbýlishúsi.
Sólvellir: 137 fm efri hæð I tví-
býlishúsi, ásamt bílskúr.
Sólvellir: 3ja herb. íbúð I fjölbýl-
ishúsi. Afhendist fljótlega.
Hlíðargata: 176 fm einbýlishús
m/bílskúr. Góð eign á besta stað
I bænum.
Langamýri: Efri hæð I tvíbýlis-
húsi, góð eign á góðum stað. Ca.
120 fm.
Rimasíða: 135 fm raðhúsíbúð
ásamt bílskúr.
Tjarnarlundur: 2ja herb. fbúð á
4. hæð, skipti á stærri eign I
Glerárhverfi.
Bakkahlíð: Einbýlishús á VÆ
hæð ásamt innb. bílskúr. Ýmis
skipti möguleg.
Sunnuhlíð: Einbýlishús á 11/2
hæð ásamt innbyggöum bílskúr.
Ýmis skipti möguleg.
Bakkasíða: Gott einbýlishús
með innbyggðum bílskúr.
Víðilundur: 3ja herb. íbúð á
þriðju hæð. Skipti á hæð I rað-
húsi eða einbýlishúsi á Brekk-
unni.
Smárahlíð: 3ja herb. fbúð I fjöl-
býlishúsi. Skipti á góðri hæð eða
einbýlishúsi í Þorpinu.
Sunnuhlíð: 249 fm einbýlishús
á tveimur hæðum m/bílskúr. Lítil
íbúð ca. 60 fm í kjallara.
Grænamýri: Einbýlishús á
tveimur hæðum ásamt bflskúr.
Skipti á minni eign möguleg.
Langahlíð: Til sölu góð hæð í
þribýlishúsi ásamt bílskúr, laus
eftir samkomulagi.
Hafnarstræti: 120 fm e.h. m/bíl-
skúr, gott útsýni, allt sér.
Laus strax.
Hrafnagilsstræti: Einbýlishús á
tveimur hæðum með innb. bíl-
skúr ásamt lítilli íbúð í kjallara.
Melasíða: 4ra herb. íbúð á 4.
hæð í fjölbýlishúsi, góð eign.
Frábært útsýni.
Stapasíða: í byggingu 5 íbúðir
ca. 161 fm hver íbúð, með
bílskúr. Seljast á ýmsum bygging-
arstigum.
Múlasíða 30-38: í byggingu 5
raðhúsíbúðir ca. 108 fm hver
fbúð ásamt 26,6 fm bílskúr.
Seljast á ýmsum byggingar-
stigum.
Melasíða: Ný 2ja herb. 60 fm
blokkaríbúð, fullbúin. Til afhend-
ingar fljótlega.
Tjarnarlundur: 2ja herb. íbúð á
3. hæð ca. 57 fm í skiptum fyrir
3ja-4ra herb. stærri eign.
Tjarnarlundur: 3ja herb. íbúð á
3. hæð. Laus 20. júní ’88.
Grenivellir: 140 fm hæð og ris.
Nýtt þak. Nýir gluggar á efri hæð.
Ýmis skipti möguleg.
Eyrarvegur: 195 fm hæð ásamt
bílskúr. Góð eign á góðum stað.
Strandgata: Rúmgóð hæð og
ris, hentugt fyrir stóra fjölskyldu.
Einbýlishús í útjaðri bæjarins.
Fasteigna-Torgiö
Geislagötu 12, Akureyri
Sími: 21967
Opið frá kl. 13-19
F.F. Félag
Fasteignasala
Lögmaður
Asmundur S. Jöhannsson.
Sauðárkrókur:
Fundur með ungum ökumönnum
- fámennur en góðmennur
Lögreglan á Sauðárkróki hélt í
síðustu viku fund með ungum
ökumönnum. Á fundinn mætti
Sigurður Helgason frá
Umferðarráði og frá lögregl-
unni Björn Mikaelsson yfírlög-
regluþjónn. Tilefnið var hin
aukna slysatíðni hjá ungum
ökumönnum og var fundinum
ætlað að ná fram gagnlegum
umræðum á milli ökumanna
og „yfírvaldsins“. Heldur
fámennt var á fundinum en
engu að síður var hann fróð-
legur fyrir þá fáu sem mættu.
Sigurður Helgason hóf fundinn
og ræddi m.a. um aukna tíðni
umferðarslysa. í máli hans kom
fram að á síðasta ári slösuðust
um 1000 manns í umferðinni og
mestur hluti þeirra var ungt fólk
á aldrinum 17-24 ára. Slysakostn-
aður, þ.e. eignatjón, slys á fólki
og bætur, nam á síðasta ári um 4
milljörðum króna, sem má teljast
dágóð upphæð. Að meðaltali
deyja um 24 íslendingar á ári
hverju í umferðinni og er ungt
fólk þar í meirihluta. Þá kom
fram að meðaleignatjón í slysum
getur numið frá 300 þúsund
krónum upp í margar milljónir. Af
öllum þessum tölum má sjá að
miklu er fórnað í umferðinni og
Allt í útileguna
10% J
afsláttur
af öllum
viðlegu-
búnaoi,
garð- og sólhúsgögnum fram
að verslunarmannahelgi
eitt er ljóst að banaslysin verða
ekki metin til fjár.
Sigurður hvatti fundarmenn til
að koma af stað umræðu í vina-
hópum sínum um umferðina þar
sem menn tækju afstöðu og sýndu
ábyrgð í umferðinni. Hann
spurði ungu ökumennina um álit
þeirra á þeim mikla hraðakstri
sem á sér stað í umferðinni og
einn þeirra kom með stutta setn-
ingu sem sjálfsagt segir nóg:
„Algjör geðveiki.“ Það má taka
undir þau orð. Pá voru miklar
umræður um slæma vegi hér og
þar um landið, hraðatakmarkanir
og ölvunarakstur.
Á fundinum var ökukennsla
talsvert rædd og hvemig bæta
mætti hana og auka. Sigurður
Helgason sagði að fyrirkomulag á
ökukennslu væri ekki nógu gott
og þar þyrfti einhvern laga-
ramma. I því sambandi benti
hann á að framtíðin væri að setja
ökukennslu inn í skólakerfið og
koma upp sérstökum ökuskólum.
Honum fannst vera stórt gap í
umferðarfræðslu í landinu, frá
því börn eru í umferðarskóla 6
ára og fá blöð send heim til
sín, þar til þau fara í bílpróf 11
árum seinna. Á þessum 11 árum
vildi Sigurður að fræðsla yrði
aukin.
Einn ökukennari var á fundin-
um og sagði frá sinni reynslu sem
slíkur. Hann talaði um hve mis-
jafnir nemendur gætu verið,
þyrftu frá 13 upp í 40 tíma áður
en farið væri í prófið. Hann efað-
ist um að orsökin fyrir aukinni
slysatíðni hjá ungum ökumönn-
um væri ónóg ökukennsla, heldur
væru það auknar kröfur í þjóð-
félaginu með meiri fjölda kraft-
mikilla bíla og bílaeign ungs
fólks. Þá taldi ökukennarinn að
það væri varhugavert að auka
skriflega þáttinn í ökukennsl-
unni, hann gæti komið niður á
verklega þættinum sem ekki síð-
ur þyrfti að leggja áherslu á.
Björn Mikaelsson yfirlögreglu-
þjónn sagði frá reynslu sinni í
lögreglunni og var með ófagrar
lýsingar frá aðkomu að mörgum
slæmum slysum, sem ekki verða
tíundaðar hér. Björn sagði að frá
því í vor hafi margir eyðilagt bíla
sína í árekstrum á Sauðárkróki
og nágrenni og hafði hann
áhyggjur af miklum hraða- og
glannaakstri á götum bæjarins.
Bað hann fundarmenn að fara
varlega í umferðinni og gæta
fyllstu varúðar.
Sem fyrr segir var fámennt á
fundinum og hefðu margir ungir
ökumenn haft gagn og gaman af
að mæta á hann, því margt fróð-
legt kom fram í máli þeirra
Sigurðar og Björns. -bjb
Sérstæð mynd-
bandasýning
Snemma í ágúst mun Árný
Hjaltadóttir sem búsett er í
Winnepeg í Canada sýna mynd-
band (á ensku) þar sem kynntar
verða Kenningar hinna uppstignu
meistara og Hið mikla hvíta
bræðralag. Leiðbeint verður um
hvernig nota má vísindi hins tal-
aða orðs til að létta erfiðleika
daglegs lífs og hvernig kalla má
fram fjólubláa logann sem hreins-
ar og brennir allt það sem nei-
kvætt er í lífi okkar. Á eftir svar-
ar hún fyrirspurnum (á íslensku).
Staður og tími verður auglýst
síðar.
(Fréttatilkynning)