Dagur


Dagur - 28.07.1988, Qupperneq 13

Dagur - 28.07.1988, Qupperneq 13
28. júlí 1988 - DAGUR - 13 Mættir voru fulltrúar frá stjórn Minjasafnsins auk fulltrúa eigenda. Talið frá vinstri: Elías I. Elíasson, Haraldur Sig- urðsson, Sverrir Pálsson, Hörður Geirsson, Páll Helgason, Valgarður Baldvinsson, Ingólfur Ármannsson og Jóhannes Sigvaldason. Sitjandi eru: Aðalheiður Steingrímsdóttir og Ólöf Jóhannesdóttir. Mynd: rþb Minjasaftiið gefur út bók um tilurð safnsins Um daginn var haldið kaffi- samsæti vegna útgáfu bókar um Minjasafnið á Akureyri. Þangað voru mættir fulltrúar eigenda Minjasafnsins, sem eru Akureyrarbær, KEA og sýslunefnd Eyjafjarðarsýslu, auk meðlima úr stjórn safnsins. Bókina skráði Sverrir Pálsson skólastjóri Gagn- fræðaskóla Akureyrar I tilefni 25 ára afmælis safnsins. Samkvæmt bók Sverris má rekja stofnun Minjasafnsins til ársfundar Mjólkursamlags KEA árið 1949. Á þeim fundi var sam- þykkt tillaga um „að eyfirskir bændur stofni til varanlegs minnismerkis um mjólkuriðnað og búskaparhætti forfeðra okkar.“ Um þetta mál var síðan stofnuð nefnd sem skipuð var Jakob Frímannssyni kaupfélags- stjóra,- Jónasi Kristjánssyni mjólkursamlagsstjóra og Þórarni Kr. Eldjárn. Þeirskoruðu síðan á sýslunefnd Eyjafjarðarsýslu og bæjarstjórn Akureyrar til þess að vinna ötullega að stofnun alhliða byggðasafns innan Eyjafjarðar- sýslu. Árið 1951 var ráðinn maður til þess að ferðast um og safna göml- um munum og sögulegum gögn- um. Sá maður var Snorri Sigfús- son og varð hann síðar formaður byggðasafnsnefndar sem breyttist í Minjasafnsnefnd árið 1962. Safnið var síðan opnað árið 1962 á 100 ára afmæli Ákureyrar- kaupstaðar. Þá var nýbúið að festa kaup á húseigninni Aðalstræti 58 en þar er Minjasafnið nú til húsa. Tildrög þess að ákveðið var að skrá sögu Minjasafnsins voru þau að Haraldur Sigurðsson og Ingi- mar Brynjólfsson úr stjórn Minjasafnsins komu að máli við Sverri sem hefur verið mikill áhugamaður um safnið og báðu hann að skrifa sögu þess. Handritið lauk Sverrir við vor- ið 1987 en bókin var ekki gefin út fyrr en nú í sumar vegna fjár- magnsskorts. Sverrir hélt smá tölu í samsæt- inu og þar kom fram að hann vildi þakka öllum þeim sem stutt hafa safnið og þá sérstaklega frumherjunum sem voru gæddir hugsjónaeldi um að allt tækist sem best og hugsuðu aldrei um neitt til sinna handa. Vinnslu bókarinnar annaðist Dagsprent hf. Akureyri. Bókin verður til sölu í Minja- safninu í Aðalstræti. KR Ferðafélag Akureyrar Skipagötu 13. Ath. aukaferð. 29. júlí til 1. ágúst: Kverkfjöll, Askja og Herðubreiðarlindir. 3.-7. ágúst: Arnarvatnsheiði, Borg- arfjörður og Kjölur. 6. ágúst: Hjaltadalsheiði. 13.-14. ágúst: Ingólfsskáli og Lauga- fell. 19.-21. ágúst: Dyngjufjalladalur og Bræðrafeil. 27.-28. ágúst: Fjörður. 3.-4. september: Eyvindarstaða- heiði. Ath. Árbókin er komin. Fólk er vinsamlegast beðið að sækja hana á skrifstofu Ferðafélagsins. Skrifstofa félagsins er í Skipagötu 13. Síminn er 22720. Skrifstofan er opin milli kl. 16 og 19 alla virka daga nema laugardaga. Borgarbíó Fimmtudagur 28. júlí Kl. 9.00 Space Balls Kl. 9.10 Best Seller Kl. 11.00 Space Balls Kl. 11.10 Best Seller Akureyrarprestakall. Fyrirbænaguðsþjónusta verður í Akureyrarkirkju í dag, fimmtudag kl. 17.15. Allir velkomnir. Sóknarprestarnir. Safnahúsið Hvoll á Dalvík. Verður opið í sumar frá 1. júlí til 15. september frá kl. 14-18 Héraðsskjalasafn Svarfdæla Dalvík. Opið á mánudögum og föstudögum frá kl. 13.00-17.00. Fimmtudögum frá kl. 19.00-21.00. Nonnahús verður opið daglega kl. 14.00-16.30 frá 12. júní til 1. sept. Nánari upplýsingar í síma 23555. Zontaklúbbur Akureyrar. Sigurhæðir. Húsið opið daglega kl. 2-4 frá 15. júní til 1. september. Náttúrugripasafnið Hafnarstræti 81, sími 22983. Sýningarsalurinn er opinn alla daga nema laugardaga frá kl. 9 til 16. Minjasafnið á Akureyri, Aðalstræti 58, sími: 24162. Opnunartímar: Alla daga frá 1. júní til 15. sept., kl. 13.30-17.00. Á sunnudögum frá 15. sept. til 1. júní, kl. 14-16. Friðbjarnarhús. Minjasafn, Aðalstræti 46, opið á sunnudögum í júlí og ágúst kl. 2-5. Allir velkomnir. Dalvíkurprestakall: Verð í sumarleyfi dagana 18. júlí til 15. ágúst og 25.-31. ágúst. Sóknarpresturinn í Hrísey, Hulda Hrönn Helgadóttir annast þjónustu í prestakallinu á meðan. Sími hennar er 61729. Jón Helgi Þórarinsson. Guðveldisskóli og Þjónustusamkoma fimmtudagskvöld kl. 19.30 í Ríkis- sal votta Jehóva, Sjafnarstíg 1, Akureyri. Dagskrá: Biblíuráðleggingar og sýni- kennslur. Allt áhugasamt fólk velkomið. Vottar Jehóva. AKU REYRARB/tR Akureyringar Eigendum þeirra númerslausu bifreiöa sem fjarlægöar hafa verið, af hálfu Heilbrigöiseftirlits Eyjafjaröar, af götum og opnum svæöum Akur- eyrarbæjar aö undanförnu, er hér meö gefinn lokafrestur til 10. ágúst 1988 til aö leysa þær út gegn áföllnum kostnaöi. Aö þeim tíma liönum mun bifreiöunum veröa hent. Heilbrigðisfulltrúi. Töboð -Tilboð 20% afsláttur af tjöldum 10% afsláttur (96)21400 af ferðatöskum AKUREYRARB/éR auglýsir laust til umsóknar starf hagsýslustjóra Krafist er háskólaprófs í viðskipta- eöa hagfræöi, auk starfsreynslu. Helstu verkefni hagsýslustjóra eru: Hagræn áætlanagerö, úttektir á rekstri deilda og stofnana, kostnaðareftirlit, fjárhagsleg ráögjöf og umsjón með erlendum lánum. Nánari upplýsingar um starfiö veitir bæjarritari. Upplýsingar um kaup og kjör veitir starfsmanna- stjóri. Umsóknir sendist undirrituðum fyrir 1. ágúst nk. Bæjarstjóri. Sjúkraliðar - Starfsfólk Kristnesspítali óskar eftir aö ráða sjúkraliða og ófaglært starfsfólk á sjúkradeildir spítalans. Um framtíðarstarf getur veriö aö ræöa. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 31100. Kristnesspítali. Stundakennari óskast til afleysinga við starfsdeild Noröurlands- umdæmis eystra, Löngumýri 15, Akureyri. Upplýsingar hjá Magna í síma 24248 eöa á Fræðsluskrifstofu Norðurlandsumdæmis eystra í síma 24655. Fræðsluskrifstofa Norðurlandsumdæmis eystra Furuvöllum 13, Akureyri.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.