Dagur - 28.07.1988, Blaðsíða 15

Dagur - 28.07.1988, Blaðsíða 15
28. júlí 1988 - DAGUR - 15 íþróttir Knattspyrna 2. flokkur: Enn tap hjá TindastóÍi Strákarnir í 4. flokki Tindastóls ásamt fararstjóranum tilbúnir til brottfarar frá Sauðárkróki á Norway-cup ’88. Mynd: bjb Tindastóll á stærsta knattspymnmót heims - 1080 lið á Norway-cup ’88 í Ósló 2. flokkur Tindastóls keppti við Keflvíkinga sl. sunnudag á Sauðárkróksvelli í Islandsmót- inu. Leikurinn fór fram í norð- an garra, en sólin náði aðeins að verma leikmenn og áhorf- Bikarkeppnin 3. flokkur: Jafnt hjá Völsungi og KA Völsungur og KA skildu jöfn þegar liðin mættust í 3. flokki á Húsavík fyrir nokkru. Leikur- inn var liður í Bikarkeppni KSI og urðu lokatölurnar 4:4. Jón Egill Gíslason skoraði 2 mörk fyrir KA og Karl Karlsson og Helgi Níelsson 1 mark hvor. Því miður fengust ekki upplýs- ingar um markaskorara Völs- ungs. JHB 2. flokkur KA er úr leik í Bikarkeppni KSÍ eftir að liðið tapaði fyrir ÍBK á Akureyrar- velli um síðustu helgi. Jafn- ræði var með liðunum lengst af en Keflvíkingarnir voru grimmari upp við markið og nýttu færi sín betur og sigruðu með fjórum mörkum gegn tveimur. í fyrri hálfleik sóttu liðin á víxl en aðeins eitt mark var skorað og það gerðu Keflvíkingar skömmu fyrir leikhlé. Keppni í Norðurlandsriðlum 3., 4. og 5. flokks íslandsmóts- ins í knattspyrnu er nú nær lokið. Aðeins einn leikur er eftir, leikur Tindastóls og KS í 3. flokki, en línur eru orðnar skýrar og ljóst er hvaða lið fara í undankeppni og hvaða lið fara beint í úrslit. KA fer í úrslit í 3. flokki en lið- ið hafði nokkra yfirburði í riðlin- um og sigraði í öllum sínum leikj- um. Þórsarar enduðu í öðru sæti og fara í undankeppni þar sem 8 lið leika um 2 sæti í úrslitakeppn- inni. KA fékk einnig lið í úrslit í 4. flokki. Liðið fékk einu stigi meira en Þór sem varð í öðru sæti og fer í undankeppnina. Keppnin í 5. flokki var mjög tvísýn og ekki fyrr en í síðustu leikjunum sem úrslitin réðust. Þar ræður samanlagður árangur A og B liða hvaða lið komast áfram og Þórsarar reyndust hafa hagstæðari markatölu en Siglfirð- ingar sem voru með jafn mörg stig á toppnum. Ef töflurnar eru skoðaðar sést að A lið KS var endur. Ekki voru mörg mörk skoruö, aðeins eitt, og þaö roru Keflvíkingar sem gerðu það undir lok leiksins. Sem kunnugt er tapaði Tindastóll 5:1 fyrir ÍBK í fyrri umferð, en nú voru Tindstælingar nær fullmannaðir og áttu ekki síður í leiknum en ÍBK. Leikurinn var heldur daufur á að horfa og fátt markvert gerðist í fyrri hálfleik. Liðin skiptust á að sækja og var jafnræði með þeim. Þótt Keflvíkingar hefðu vindinn i bakið í fyrri hálfleik áttu þeir ekkert meira í leiknum. Þegar Tindastóll fékk vindinn í sitt lið í seinni hálfleik áttu heimamenn nokkrar góðar sóknir, en herslumuninn vantaði. Þegar lengra leið á leikinn var mikil harka komin í hann og mik- 'ið um óþarfa brot. Það var svo 10 mínútum fyrir leikslok sem ÍBK skoraði sigurmarkið, gegn gangi leiksins, og það var Garðar Jónasson sem gerði það. Klaufa- legt mark sem markvörður Tindastóls átti að eiga, en gerði ekki. -bjb Keflvíkingarnir byrjuðu mjög vel í síðari hálfleiknum og náðu fljótlega að bæta við tveimur mörkum. KA-menn minnkuðu muninn með mörkum Þórarins V. Árnasonar og Árna Hermanns- sonar og komu þau mörk með stuttu millibili þegar um stund- arfjórðungur var til leiksloka. KÁ-menn sóttu síðan stíft en náðu ekki að bæta við mörkum en þess í stað fengu Keflvíkingar eina skyndisókn á lokamínútun- um og bættu við fjórða markinu og gulltryggðu sigurinn. JHB með fullt hús stiga en B lið Þórs stóð sig vel og tryggði félagi sínu farseðil í úrslitin. Hér á eftir fer yfirlit yfir síð- ustu leikina í riðlunum. KS-Dalvík Fyrsti leikurinn á nýjum grasvelli Siglfirðinganna var leikur KS og UMFS Dalvíkur í 5. flokki sem fram fór sl. fimmtudag. Leiknum hafði verið frestað um nokkurn tíma en honum lauk með stór- sigri KS, 12:2. Agnar Sveinsson skoraði 7 mörk fyrir KS, Bjarki Már Flosason 2 og Gísli Már Helgason og Árni Þór Vigfússon 1 hvor. Eitt markið var sjálfsmark. Heiðar Sigurjónsson og Anton Ingvason skoruðu mörk UMFS Dalvíkur. UMFS Dalvík-Leiftur Leiftursmenn heimsóttu Dalvík- inga á laugardag og léku þrjá leiki. Gestirnir sigruðu 2:1 í 5. flokki og skoruðu þeir Albert Arason og Steinn Gunnarsson mörk Leifturs. Heiðar Sigurjóns- son skoraði mark Dalvíkinga. 4. flokkur Tindastóls í knatt- spyrnu hélt fyrir skömmu til Noregs á stærsta knattspyrnu- mót í heimi sem haldið er árlega í Ósló og heitir Norway- cup. Þetta er í 16. skipti sem mótið er haldið og í þriðja skiptið sem Tindastóll sendir 4. flokk til keppninnar. Fyrst var það ’84 og þá fyrst íslenskra liða. Hópurinn sem núna er á Norway-cup telur 19 manns með fararstjórum. Þegar komið var til Noregs var fyrst farið til vinabæjar Sauðár- króks, Kongsberg, og þar léku strákarnir nokkra leiki. Á Nor- way-cup keppa 1080 lið og alls eru keppendur um 20 þúsund talsins í stráka- og stelpnaflokk- um. í flokknum sem Tindastóll keppir í eru 228 lið í mörgum Leik 4. flokks lauk með sigri Dalvíkinga, 8:4. Ottó Freyr Ottós- son skoraði 4 mörk fyrir Dalvík, Sigurbjörn Hreiðarsson 3 og Gunnlaugur Gunnlaugsson 1. Samúel Árnason og Júlíus Bjarnason skoruðu tvö mörk hvor fyrir Leiftur. Dalvíkingar sigruðu 5:3 í 3. flokki. Örvar Eiríksson skoraði 4 mörk fyrir Dalvík og Daði Jóns- son 1. Logi Harðarson skoraði 2 mörk fyrir Leiftur og Friðfinnur Skúlason 1. Tindastóll-KS 4. og 5. flokkur Tindastóls og KS áttust við á Sauðárkróki um síð- ustu helgi en leikur 3. flokks hef- ur enn ekki farið fram. Leik A liða 5. flokks lauk með 5:2 sigri KS. Agnar Sveinsson skoraði 2 mörk fyrir KS og þeir Sindri Guðnason, Árni Þór Vigfússon og Guðni Haraldsson 1 hver. Fyrir Tindastól skoruðu Þráinn Björnsson og Guðmundur Guðmundsson. Jafntefli varð í leik B liðanna, 3:3. Hilmar Hilmarsson skoraði riðlum. Keppt er á 40 völlum frá kl. 8 á morgnana til 8 á kvöldin þannig að nóg er um að vera. Tindastóll leikur 3 leiki í sínum riðli. Tvö efstu lið halda áfram í A-keppni, þriðja liðið fer í B- keppni og fjórða liðið dettur út. Þegar Tindastóll tók fyrst þátt í mótinu ’84 datt liðið út, en ’86 komst 4. flokkur í B-keppnina. Ekki væri verra ef strákarnir kæmust nú í A-keppnina. Stefnt er að því að Tindastóll haldi áfram að senda 4. flokkinn á Norway-cup annað hvert ár þannig að næst verður farið 1990, og þá fara þeir strákar sem eru núna í 5. flokki Tindastóls. Þau lið sem hingað til hafa farið til Noregs hafa staðið að fjársöfnun fyrir ferðirnar og hafa þær gengið vel. M.a. hafa ljósastaurar bæjar- ins verið málaðir hátt og lágt og öll mörk heimamanna en Gísli Helgason skoraði 2 mörk fyrir KS og Bjarki Flosason 1. Siglfirðingarnir sigruðu 2:1 í 4. flokki og þar skoruðu þeir Steindór Birgisson og Mikael Björnsson mörk KS en Finnur Kristinsson mark Tindastóls. Völsungur-KA 3. flokkur Völsungs og KA léku á Húsavík á sunnudag. KA-menn sigruðu með þremur mörkum gegn tveimur og skoruðu þeir Jón Egill Gíslason, Þórður Guðjóns- son og Sigurður Ólafsson mörk KA. Því miður tókst ekki að afla neinna upplýsinga um marka- skorara Völsungs. Á mánudaginn fóru síðan 4. og 5. flokkur KA til Húsavíkur. Markalaust jafntefli varð í leik 4. flokks og jafntefli varð einnig í leik A liða 5. flokks, 3:3. Matthías Stefánsson, Óli Björn Ólafsson og Óskar Bragason skoruðu mörk KA. Vöisungar sigruðu 3:1 í leik B liðanna og það var Ingvar Már Gíslason sem skoraði mark KA. JHB/-bjb foreldrar strákanna tekið þátt í þessu með þeim af miklum áhuga. -bjb Stc 3. iðan flokkur 3. flokkur, D-riðilI: KA 6 6-0-0 39: 6 12 Þór 6 4-1-1 21: 6 9 Völsungur 6 3-2-1 26: 7 8 TindastóII 5 2-0-3 9:15 4 KS 5 1-2-2 7:20 4 UMFSDalvík 6 1-0-5 6:30 2 Leiftur 6 0-1-5 7:29 1 Einn leikur er eftir í riðUnum, en það er leikur Tindastóls og KS sem fer fram einhvern næstu daga. 4. flokkur 4 flokkur. D-riðill: KA 7 6-1-0 40: 4 13 Þór 7 6-0-1 47: 8 12 KS 7 4-1-213:17 9 Hvöt 7 4-0-3 15:15 8 Völsungur 7 2-3-210:13 7 Leiftur 7 1-1-512:38 3 TindastóII 71-0-6 6:24 2 UMFS Dalvík 7 1-0-6 16:41 2 5. flokkur A lið 5. flokks, E-riðilI: KS 7 7-0-0 47: 8 14 Völsungur 7 5-1-1 39:14 11 Þór 7 5-0-2 35: 9 10 KA 7 3-2-2 28:18 8 Leiftur 7 3-0-4 12:25 6 Tindastóll 7 2-1-4 22:29 5 UMFS Dalvík 7 1-0-613:33 2 Hvöt 7 0-0-7 2:61 0 B lið 5. flokks, E-riðilI: Þór 4 3-1-0 16: 2 7 TindastóU 4 2-2-0 16: 8 6 'KS 4 1-1-2 6:10 3 Völsungur 4 1-0-3 5:11 2 KA 41-0-3 5:17 2 Samanlagt: Þór 11 8-1-2 51:1117 KS 11 8-1-2 53:18 17 Völsungur 11 6-1-4 44:25 13 Tindastóll 11 4-3-4 38:37 11 KA 11 4-2-5 33:35 10 Leiftur 7 3-0-4 12:25 6 UMFS Dalvík 7 1-0-613:33 2 Hvöt 7 0-0-7 2:61 0 Bikarkeppnin 2. flokkur: KA-menn úr leik íslandsmót yngri flokka: Keppni í riðluimm nær lokið - KA með tvö lið í úrslit og Þór eitt

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.