Dagur - 06.08.1988, Blaðsíða 3
jst 1988-ÐAGUR-3
-I
heilsupósturinn
t
Umsjón: Sigurður Geslsson og Einar Guðmann
Velduþérvana
Það eru sennilega ekki allir
sem hafa gert sér grein fyrir því
að sækni okkar í einhverjar
ákveðnar matartegundir og
matarvenjur er í raun og veru
einungis spurning um vana.
Fólk sem sækir í feita fætu var
nokkuð örugglega alið upp við
feitar matartegundir. En svo
aftur á móti þeir sem vilja frek-
ar fá sér ávöxt í staðinn fyrir
súkkulaðistykki hafa frekar
alist upp við heimilissiði þar
sem sykur og sælgæti eru
bannvörur eða einungis borð-
að við einstök tækifæri.
Vani er alltaf vani svo það
er jafn auðvelt að koma sér upp
góðum vana eins og slæmum.
Með því að venja börnin við það
að vilja frekar fitusnauðan mat
og kólesterollágan í staðinn fyrir
fitu, sykur og saltríkan mat, þá er
hægt að gera þeim það eiginlegt
að vera á heilsusamlegu fæði 'og
uppbyggjandi, sem minnkar lík-
urnar á því að þau verði síðar á
ævinni fórnarlömb hjarta- og
kransæðasjúkdóma og ótal ann-
arra kvilla auk offitu.
Þegar menn eru hins vegar
orðnir fullorðnir og þurfa að
breyta um mataræði hvort sem
það er samkvæmt læknisráði eða
ekki þá er það í flestum tilfellum
mjög erfitt þar sem vaninn er
sterkur og löngunin í það að
borða einungis það sem fram að
þessu hefur verið vaninn, er
sterk. Þarna liggur oft kjarninn á
bak við það hvers vegna mönnum
tekst ekki að verða grannir þar
sem það þýðir ekki að ætla sér að
gera einhverjar endalausar bylt-
ingar í megrun. Það þarf að
koma sér upp næringarríku og
góðu mataræði á eðlilegan hátt,
átakslaust með því smám saman
að koma sér upp betri og betri
venjum. Engin stökk.
Það er mjög persónubundið
hversu auðveldlega mönnum
tekst að breyta um fæðuvenjur,
það fer þó oftast eftir því hversu
vanir menn eru að taka sjálfa sig
á beinið og sýna rétta breytni.
Menn hafa tekið alls kyns ráðlegg-
ingum til þess að bæta úr þessu
og hafa ráðin verið jafn misjöfn
eins og þau eru mörg. En því
miður þá er engin almenn lausn á
því hvernig menn eigá að fá sjálfa
sig til þess að breyta um matar-
æði eða önnur skyld atriði en eitt
er víst og það er að hugsana-
breyting þarf að koma til, þar
sem venjur eru mest huglægar.
Út frá þessu ættu menn að sjá að
það er ábyrgðarhlutverk að velja
mat handa börnum og auðvitað á
þetta ekki einungis við um matar-
æði heldur einnig ýmsar aðrar
venjur sem foreldrar taka sér fyr-
ir hendur. í því sambandi má
ekki gléyma að börnin læra af
fyrirmyndum.
Yfirleitt þegar fólk fer í mat-
vöruverslun til þess að kaupa til
heimilisins er allt keypt sem hug-
urinn girnist og fjárhagurinn leyf-
ir. Þegar farið er að versla með
því hugarfari er auðvelt að láta
blekkjast og kaupa hvað sem er.
Alls staðar eru hillur fullar af alls
kyns vörum misjöfnum að gæð-
um og gerðum.
Það sem er hættulegast í þessu
öllu saman er það að það er orðið
of algengt að fólk flokki matvör-
ur niður eftir bragðgæðum og
engu öðru. Þetta gerir fram-
leiðendum kleift að framleiða og
selja næstum því hvað sem er svo
lengi sem engin hættuleg rotvarn-
ar- eða litarefni koma þar við
sögu. Auðvelt er að koma vörum
á framfæri með skrautlegum
auglýsingum og slagorðum og
vinsælt er að sýna fjölskyldur,
börn, unglinga, eða einhverjar
sérstaka hópa háma í sig eitthvert
góðgæti. Áhorfendur sem kenna
sig við einhverja af þessum hóp-
um telja síðan vöruna vera
eitthvað fyrir sig.
Sölumenn elska áhrifagjarnt
fólk þar sem hægt er að teyma
það fram og til baka að þeim
óvitandi, eftir því hvað þarf að
selja. Ert þú undir áhrifum?
%
'Si
Of oft vega bragðgæði þyngra en hollusta.
Nú
T .... 1.900.-
>00-- .... 490.-
)°0-- ...... -.900-
jög mikið og gott urval.
JómuBarpeysur
* Nu
.......
-• .. 1.200.-
■■900-‘ .... 990.-
>.900.- ....... , ,
yjjög mikið og gott urval.
löt
Áður ^
16.900. ....... i*“,.
15.900. .......
12.900. ....... 5-W-
Leðurjakkar
gS.............s£r
ÍSr” N.
3-200,- .....
IZ:
Góðar skyrtur - gott verö.
Buxur
í ~ir Nú
4.400, ...... 1900‘-
3.900. ......
3.900, - ........ 99
Jakkar
tx...........
‘S',............?%■.
8.900, .....
6.900, - .... 2*9U
Stutterma boBr
Áður Nú
2.500, ......... Z?
1.990, .......
Fjölbreytt úrval.
Frakkar
Áður N"
11.900,......
8.900, .... •'•;„,-.
8.900, - ... í’*vuu>
Gallastakkar
f9ðo“r ■ '•«-
7 qnf) _ .... 3.700*
5 900', ..... J-900-
Stakkar
Áður N“
9.900, .....
6.900, ..... ;•;„,•.
5.900, - ... 2,VU
þetta kööum við
•alvöru útstilu
HERRAdEILCÍ
Cránufélagsgötu 4
Akureyn • Sirru 23