Dagur - 06.08.1988, Blaðsíða 7

Dagur - 06.08.1988, Blaðsíða 7
6. ágúst 1988 - DAGUR - 7 Bikarkeppni FRÍ á Akureyrar- velli um helgina Bikarkeppni FRÍ, 2. deild, verður haldin á Akureyrarvelli núna um helgina. Það er UMSE sem hefur umsjón með keppninni og hefst hún kl. 14 í dag og 12 á morgun. Sex lið eigast við í keppninni. Tvö komast upp í 1. deild að ári en tvö falla niður í þriðju deild. Má búast við mjög tvísýnni og spennandi keppni. Þess má geta að meðal kepp- enda verða spjótkastararnir Sigurður Einarsson Ármanni og , Sigurður Matthíasson UMSE. Sumartónleikar í þremur kirkjum Síðustu sumartónleikarnir verða nú um og eftir helgina. Arnaldur Arnarsson gítarleik- ari leikur í Akureyrarkirkju kl. 17.00 á sunnudag, í Húsavík- urkirkju kl. 20.30 á mánudags- kvöld. og í Reykjahlíðarkirkju kl. 20.30 á þriðjudagskvöld. Arnaldur er fæddur í Reykja- vík árið 1959. Hann hóf gítarnám í Svíþjóð tíu ára gamall og hélt því síðar áfram hjá Gunnari H. Jónssyni í Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar. Hann tók loka- próf frá Royal Northern college of Music í Manchester árið 1982. Kennarar hans þar voru Gordon Crosskey, George Hadjinikos og John Williams. Hann var eitt ár við framhaldsnám hjá José Tomás í Alicante á Spáni og hefur sótt námskeið hjá Álirio Díaz, Oscar Ghiglia, David Russel og Hop- kinson Smith. Kafflsala í Tunguseli Á morgun, sunnudag, verður Kvenfélagið Tilraun í Svarfað- ardal með kaffisölu í Tunguseli við Tungurétt. Félagið hefur staðið fyrir sams konar kaffisölu undanfarin ár en kaffi verður selt næstu þrjá sunnudaga þ.e. 7., 14. og 21. ágúst. Salan hefst kl. 14 á sunnudag og verður opið í Tunguseli til kl. 18. Semsagt upp- lagt að taka Svarfaðardalshring- inn næstu sunnudaga og koma við hjá kvenfélagskonum. Aftnælismót Bridgefélags SigluQarðar í tilefni af 50 ára afmæli Bridgefélags Siglufjarðar mun félagið efna til stórmóts í tví- menningi helgina 3.-4. sept. Spillað verður samkvæmt Mit- ehell-kerfi, líklega þijár 28 spila lotur. Vegleg verðlaun eru í boði. Fyrstu verðlaun nema 120.000 kr., en peningaverðlaun verða fyrir fimm efstu sætin, alls 280.000 kr. Fyrir hæstu skor í hverri lotu verða ferðavinningar frá Samvinnuferðum/Landsýn. Auk þess verða veittar viður- kenningar fyrir 6.-10. sæti. Spila- mennska hefst kl. 10.30 á Hótel Höfn. Keppnisstjóri verður Hermann Lárusson. Tilkynning um þátttöku þarf að hafa borist fyrir 20. ágúst en hámarksfjöldi para er 50. Skrán- ing er hjá Samvinnutryggingum (96-71228) á skrifstofutíma. Keppnisgjald er 5000 kr. á par. Þetta er annað sumarið sem sumartónleikar í þremur kirkjum á Norðurlandi eru haldnir og sagði Björn Steinar Sólbergsson einn af hvatamönnum þeirra að vel hefði gengið í sumar og aðsókn hefði farið fram úr björtustu vonum. Tilgangur tón- leikanna var fyrst og fremst sá að stuðla að fjölbreyttari kynningu á menningu landsins með flutningi íslenskrar tónlistar og/eða ís- lenskum flytjendum. mþþ Módefflug- vélar á Mel- gerðismelum Áhugamenn um flugvélamódel halda árlegt mót sitt um helg- ina. Mótiö verður haldiö á Melgerðismelum og hefst kl. 9.00 á laugardagsmorgun og stendur fram á sunnudag. Á Melgerðismelum er verið að taka í notkun nýja aðstöðu, og er þetta í fyrsta sinn sem mótið er haldið þar. Þátttakendur á mót- inu koma víða af landinu og sýna listir sínar. Stærstu vélarnar eru með tveggja hestafla bensín- hreyflum og eru um 30 kíló að þyngd. Þeir sem áhuga hafa á módelflugvélum ættu ekki að láta þetta mót framhjá sér fara. Sigurður Matthíasson, spjótkastari. Ókcypis söngskemmtun í Glerárkirkju Þrjú vestur-íslensk ungmenni í íslenska landnámsbænum River- ton í Kanada hafa stofnað söng- kór sem þau nefna „Fine Country Kids“. Þau eru nú á ferðalagi hér á landi og hafa farið víða. Hingað til Akureyrar koma þau á laugar- daginn, og um kvöldið ætla þau að gleðja bæjarbúa og aðra með söng sínum og undirleik í Glerár- kirkju. Leikin verða og sungin íslensk og erlend lög. Aðgangur er ókeypis, en fólki er að sjálfsögðu frjálst að greiða eitthvað, ef það vilí styrkja ferða- lög þessara ungmenna. Er þess fastlega vænst, að sem flestir leggi leið sína í Glerárkirkju laugardagskvöldið 6. ágúst kl. 9. afsláttur af sólhúsgögnum og viðlegubúnaði til 13. ágúst E OpiÖ laugardaga 9-1 2. 111EYFJÖRÐ Hjalteyrargötu 4 - Sími 22275 SUMARGJALDDAGI HÚSNÆÐISLÁNA VAR1. MAÍ SL. sept- 1 á lán með byggingarvísitölu. FORÐIST ÓÞARFA AUKAKOSTNAÐ VEGNA DRÁTTARVAXTA ^Húsnæðisstofnun ríkisins LAUGAVEGI 77 101 REYKJAVIK S: 69 69 00

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.