Dagur - 06.08.1988, Page 3

Dagur - 06.08.1988, Page 3
jst 1988-ÐAGUR-3 -I heilsupósturinn t Umsjón: Sigurður Geslsson og Einar Guðmann Velduþérvana Það eru sennilega ekki allir sem hafa gert sér grein fyrir því að sækni okkar í einhverjar ákveðnar matartegundir og matarvenjur er í raun og veru einungis spurning um vana. Fólk sem sækir í feita fætu var nokkuð örugglega alið upp við feitar matartegundir. En svo aftur á móti þeir sem vilja frek- ar fá sér ávöxt í staðinn fyrir súkkulaðistykki hafa frekar alist upp við heimilissiði þar sem sykur og sælgæti eru bannvörur eða einungis borð- að við einstök tækifæri. Vani er alltaf vani svo það er jafn auðvelt að koma sér upp góðum vana eins og slæmum. Með því að venja börnin við það að vilja frekar fitusnauðan mat og kólesterollágan í staðinn fyrir fitu, sykur og saltríkan mat, þá er hægt að gera þeim það eiginlegt að vera á heilsusamlegu fæði 'og uppbyggjandi, sem minnkar lík- urnar á því að þau verði síðar á ævinni fórnarlömb hjarta- og kransæðasjúkdóma og ótal ann- arra kvilla auk offitu. Þegar menn eru hins vegar orðnir fullorðnir og þurfa að breyta um mataræði hvort sem það er samkvæmt læknisráði eða ekki þá er það í flestum tilfellum mjög erfitt þar sem vaninn er sterkur og löngunin í það að borða einungis það sem fram að þessu hefur verið vaninn, er sterk. Þarna liggur oft kjarninn á bak við það hvers vegna mönnum tekst ekki að verða grannir þar sem það þýðir ekki að ætla sér að gera einhverjar endalausar bylt- ingar í megrun. Það þarf að koma sér upp næringarríku og góðu mataræði á eðlilegan hátt, átakslaust með því smám saman að koma sér upp betri og betri venjum. Engin stökk. Það er mjög persónubundið hversu auðveldlega mönnum tekst að breyta um fæðuvenjur, það fer þó oftast eftir því hversu vanir menn eru að taka sjálfa sig á beinið og sýna rétta breytni. Menn hafa tekið alls kyns ráðlegg- ingum til þess að bæta úr þessu og hafa ráðin verið jafn misjöfn eins og þau eru mörg. En því miður þá er engin almenn lausn á því hvernig menn eigá að fá sjálfa sig til þess að breyta um matar- æði eða önnur skyld atriði en eitt er víst og það er að hugsana- breyting þarf að koma til, þar sem venjur eru mest huglægar. Út frá þessu ættu menn að sjá að það er ábyrgðarhlutverk að velja mat handa börnum og auðvitað á þetta ekki einungis við um matar- æði heldur einnig ýmsar aðrar venjur sem foreldrar taka sér fyr- ir hendur. í því sambandi má ekki gléyma að börnin læra af fyrirmyndum. Yfirleitt þegar fólk fer í mat- vöruverslun til þess að kaupa til heimilisins er allt keypt sem hug- urinn girnist og fjárhagurinn leyf- ir. Þegar farið er að versla með því hugarfari er auðvelt að láta blekkjast og kaupa hvað sem er. Alls staðar eru hillur fullar af alls kyns vörum misjöfnum að gæð- um og gerðum. Það sem er hættulegast í þessu öllu saman er það að það er orðið of algengt að fólk flokki matvör- ur niður eftir bragðgæðum og engu öðru. Þetta gerir fram- leiðendum kleift að framleiða og selja næstum því hvað sem er svo lengi sem engin hættuleg rotvarn- ar- eða litarefni koma þar við sögu. Auðvelt er að koma vörum á framfæri með skrautlegum auglýsingum og slagorðum og vinsælt er að sýna fjölskyldur, börn, unglinga, eða einhverjar sérstaka hópa háma í sig eitthvert góðgæti. Áhorfendur sem kenna sig við einhverja af þessum hóp- um telja síðan vöruna vera eitthvað fyrir sig. Sölumenn elska áhrifagjarnt fólk þar sem hægt er að teyma það fram og til baka að þeim óvitandi, eftir því hvað þarf að selja. Ert þú undir áhrifum? % 'Si Of oft vega bragðgæði þyngra en hollusta. Nú T .... 1.900.- >00-- .... 490.- )°0-- ...... -.900- jög mikið og gott urval. JómuBarpeysur * Nu ....... -• .. 1.200.- ■■900-‘ .... 990.- >.900.- ....... , , yjjög mikið og gott urval. löt Áður ^ 16.900. ....... i*“,. 15.900. ....... 12.900. ....... 5-W- Leðurjakkar gS.............s£r ÍSr” N. 3-200,- ..... IZ: Góðar skyrtur - gott verö. Buxur í ~ir Nú 4.400, ...... 1900‘- 3.900. ...... 3.900, - ........ 99 Jakkar tx........... ‘S',............?%■. 8.900, ..... 6.900, - .... 2*9U Stutterma boBr Áður Nú 2.500, ......... Z? 1.990, ....... Fjölbreytt úrval. Frakkar Áður N" 11.900,...... 8.900, .... •'•;„,-. 8.900, - ... í’*vuu> Gallastakkar f9ðo“r ■ '•«- 7 qnf) _ .... 3.700* 5 900', ..... J-900- Stakkar Áður N“ 9.900, ..... 6.900, ..... ;•;„,•. 5.900, - ... 2,VU þetta kööum við •alvöru útstilu HERRAdEILCÍ Cránufélagsgötu 4 Akureyn • Sirru 23

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.