Dagur - 23.08.1988, Page 3

Dagur - 23.08.1988, Page 3
23. ágúst 1988 DÁGOr '- 3 Ómar og bræðurnir Hilmar Valur og Jóhann Kristinn með snigilinn. Mynd: IM Síðuskóli: Seinagangur við framkvæmdir mun raska kennslu Töluverður seinagangur hefur verið við framkvæmdir í Síðu- skóla í ár, svo mikill að fyrir- sjáanlegt er að röskun verði á kennslu vegna þessa. A fundi bæjarstjórnar Akureyrar í vik- unni urðu nokkrar umræður um þetta mál þar sem m.a. kom upp, að óljóst er hver skuli greiða fyrir viðgerð á bólgnum gólfdúk sem ekki hef- ur farið fram. Jón Baldvin Hannesson skóla- stjóri sagði að framkvæmdir hefðu gengið fremur rólega í sumar. Ljúka átti við innréttingar í kjallara norðurálmu, en þar eiga að vera salur og ein kennslu- stofa. Sýnilegt þykir þó að þeim framkvæmdum takist að ljúka. Öllu verr lítur út með kennslu- stofu fyrir heimilisfræði, en þar hefur ekkert verið gert. „Við vor- um búnir að ráða kennara í heim- ilisfræðikennslu og treystum á eins og til stóð, að aðstaðan yrði tilbúin. Pá hefur gengið erfiðlega að fá þá skýr svör um hvort pen- ingarnir myndu duga til að koma heimilisfræðistofunni í gagnið svo við værum ekki að ráða fólk til kennslu í greinum sem ekki er hægt að bjóða upp á. Það er greinilegt að aðstaðan verður ekki tilbúin þegar skólinn byrjar og spurning hvenær hægt verður að taka heimilisfræðistofuna í notkun,“ sagði Jón. Flestir nemendur skólans áttu að læra heimilisfræði í vetur, bæði verklega og bóklega. Erfitt yrði að koma tímafjöldanum fyr- ir í öðrum skóla þó að aðstaða fengist og þyrfti þá sömuleiðis að koma nemendum og kennara á milli skóla. VG Meðal þess sem tafíst hefur er viðgerð á bólgnum gólfdúk í Síðuskóla. Mynd: GB Milljónir á hverjum laugardegi! Upplýsingasími: 685111 Húsavík: Erlendur snigill " ferðalagi a „Fyrst hélt mamma að hann væri dauður og kom aðeins við hann en þá spýttist hann inn í skelina og henni brá náttúrlega smá,“ sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson. I síðustu viku kom hann við á skrifstofu Dags á Húsavík, og með honum voru Hilmar Valur, bróðir hans og frændi þeirra, Ómar Özcan. Piltarnir höfðu með sér nokkur græn vínber í glerkrukku og hjá vínberjunum var: „Fallegur, röndóttur, útlenskur snigill. “ Vín- berin höfðu verið keypt í kaup- félaginu daginn áður og það var ekki fyrr en um morguninn sem innflytjandinn fannst. „Ég var svo hissa og mamma sagði að hann væri greinilega frá útlöndum," sagði Jóhann. „Ég hef átt heima í Noregi og komið til Englands, þar sá ég snigil skríða á gamalli, tómri rusla- tunnu,“ svaraði Jóhann, aðspurður um ferðalög erlendis og kynni af sniglalífi þar. „En ég var alveg gáttaður á þessu, átti ekki von á að sniglar kæmu svona til landsins." Piltarnir sögðust ekki vita hvað þeir mundu gera við snigilinn en þá lá svona einhvern veginn í loft- inu að vel yrði hugsað um hann og honum búið vistlegt heimili í krukkunni. IM VBjö.ðSoX’ VtSA Hafnarstræti 88, Akureyri, sími 25250. Vinningstölur 20. ágúst 1988. Heildarvinningsupphæð kr. 3.807.289,- 1. vinningur kr. 1.907.557.- Aðeins einn þátttakandi var með 5 réttar tölur. 2. vinningur kr. 571.332.- Skiptist á milli 188 vinningshafa kr. 3.039.- á mann. 3. vinningur kr. 1.328.400.- Skiptist á milli 5400 vinningshafa sem fá 246 kr. hver. Sölustaðirnir eru opnir frá mánu- degi til laugardags og loka ekki fyrr en 15 mínútum fyrir útdrátt. Stórútsala í fullum gangi Jakkar frá kr. 1000.- Kápur frá kr. 3000.- Pardus herrafrakkar frá kr. 4200,- ★ Verslunin hættir 1. september. ★ Verid velkomin

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.