Dagur - 23.08.1988, Side 16
Akureyri, þriðjudagur 23. ágúst 1988
Stórbætt þjónusta
Getum smíðað alla vega púströr
Eigum til beygjur 45° og 90°
Stóraukið úrval af kútum, pakkningum
og festingum í flesta bíla
12 3 4
r~m 'í
ísetning á staðnum
þÓRSHAMAR HF.
Við Tryggvabraut ■ Akureyri ■ Sími 22700
Hegranes SK 2:
Mastur bognadi
um 30 gráður
Það óhapp átti sér stað um
borð í Hegranesinu SK 2,
togara Útgerðarfélags Skag-
fírðinga, sl. laugardag að mast-
ur bognaði og skemmdist
nokkuð þegar verið var að hífa
upp troll til skoðunar. Mastrið
bognaði aftur um 30 gráður og
að sögn Júlíusar Skúlasonar
skipstjóra kom mikill slynkur á
skipið þegar þetta gerðist.
Hegranesið kom inn til hafnar
á sunnudag og var þá mastrið
lagað, rétt aftur með krana og
logsoðið þannig að skipið er til-
búið til veiða á ný. Að þessu sinni
var Hegranesið með um 115 tonn
af þorski og ýsu, úr viku veiði-
ferð. Að sögn Júlíusar skipstjóra
fer skipið í einn túr áður en það
fer í siglingar á Þýskalandsmark-
að með karfa, en Hegranes á 680
tonn eftir af karfakvótanum. Um
300 tonn eru eftir að þorskkvót-
anum.
í lok september fer Hegranesið
í slipp í V.-Þýskalandi, þar sem
það verður yfirfarið, sandpússað
og málað. -bjb
Útafkeyrsla á
Sprengisandi
- Hjálparsveit send til aðstoðar
í fyrrinótt barst lögreglunni á
Akureyri beiðni um hjálp frá
manni sem var á leið yfír
Sprengisand. Hann hafði lent
út af og var Hjálparsveit skáta
á Akureyri send á staðinn hon-
um til aðstoðar. Hringing úr
farsíma þar sem tilkynnt var
um óhappið barst kl. 00.15
aðfaranótt mánudags og kom
hjálparsveitin í bæinn með
manninn um kl. 8.00 á mánu-
dagsmorgun.
Um helgina voru 6 teknir fyrir
of hraðan akstur á og við Akur-
eyri og 3 árekstrar urðu. Ekki
urðu slys á fólki fyrir utan smá
meiðsl þegar keyrt var á ungling
á hjóli í Geislagötu. Brotist var
inn í tískuvöruverslunina Ping
Pong aðfaranótt rnánudags. Rúð-
ur voru brotnar í húsum við
Strandgötu, Brekkugötu og í
Ríkissal votta Jehóva. Ekki var
mikil ölvun en nokkrir gistu þó
fangageymslur lögreglunnar.
Helgin hjá lögreglunni á Siglu-
firði var róíeg þrátt fyrir að dans-
leikir hafi verið fimmtudags-,
föstudags- og laugardagskvöld.
Tveir sátu þó inni fyrir óspektir.
Hjá lögreglunni á Dalvík feng-
ust þær upplýsingar að bílvelta
hefði orðið í Svarfaðardal og
slapp ökumaður merkilega vel
með smá skrámur. Að öðru leyti
var helgin róleg.
Hjá Ólafsfjarðarlögreglunni
var sömu sögu að segja allt var
Oddeyrin kaupir
Þorlák Helga
Enn bætist við skipaflota
Akureyringa, því Oddeyrin hf.
hefur fest kaup á Þorláki
Helga frá Siglufírði og verður
hann afhentur fljótlega í næsta
mánuði.
Þorlákur Helgi er 146 tonna
stálskip smíðað í Noregi fyrir 28
árum. Fyrri eigendur, útgerðar-
félagið Sædór á Siglufirði, seldi
Oddeyrinni hf. skipið á 40 millj-
ónir króna, en því fylgir 650
tonna þorskkvóti og 200 tonna
rækjukvóti. VG
þar með kyrrum kjörum um helg-
ina fyrir utan árekstur á blindhæð
við bæinn Þrasastaði á föstudag.
Enginn slasaðist í þeim árekstri.
KR
Þessi skemmtilega flétta kom upp úr matjurtagarði á Akureyri. Mynd: tlv
Þungur rekstur fyrirtækja:
„Staða fyrirtækja endur-
speglar efnahagsástandið“
- segir Sigurður P. Sigmundsson
framkvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar
„Við erum með tvö erfíð mál í
gangi en að öðru leyti er ekki
mikið af frétta af fyrirtækjum
sem við eigum aðild að,“ sagði
Sigurður P. Sigmundsson
framkvæmdastjóri Iðnþróun-
arfélags Eyjafjarðar hf. í sam-
tali við Dag.
„Það bendir flest til þess að
aðalfundur Sævers hf. í Ólafsfirði
verði nú loks haldinn um miðjan
næsta mánuð og þá verður tekin
ákvörðun um það hvernig gengið
verður endanlega frá þessu
dæmi. Aðalfundi fyrirtækisins,
sem er gjaldþrota, hefur tvívegis
verið frestað en þar sem nú er að
verða ljóst hvernig þetta liggur, á
ég von á að fundurinn verði hald-
inn eftir u.þ.b. mánuð,“ sagði
Sigurður.
Sigurður sagði að Víkurplast á
Svalbarðseyri ætti einnig við
rekstrarerfiðleika að etja, þó svo
að málið væri ekki eins alvarlegt
og hjá Sæveri. „Það er helst sölu-
tregða sem er þar aðalvandamál-
ið og kannski tengist það því að
heimamenn hafa ekki gert neitt
átak í markaðsmálum. En það
má segja það um Víkurplast eins
og önnur fyrirtæki, að það árar
ekkert vel um þessar mundir.
Þessi gífurlegi fjármagnskostnað-
ur og dýr aðföng, gera fyrirtækj-
um erfitt fyrir og þetta endur-
speglar efnahagsástandið.
Fyrirtæki eins og Gúmmí-
vinnslan sem hefur skilað hagn-
aði undanfarin ár, þarf að hafa
mun meira fyrir rekstrinum í dag.
Það tengist nú líka niðurfellingu
tollanna um síðustu áramót og
fyrirtækið er því að keppa við
innflutninginn.
Hjá Sæplasti gengur innheimt-
an mun verr en áður og útistand-
andi skuldir fyrirtækisins eru
mun meiri en áður og þetta er nú
það sem manni sýnist að sé
vandamál hjá fyrirtækjum á
svæðinu,“ sagði Sigurður.
Hann sagði einnig að það bitn-
aði á mörgunt fyrirtækjum þegar
skóinn kreppti í sjávarútvegin-
um. Bæði væri eftirspurn eftir
vöru og þjónustu minni og að erf-
iðara væri að fá borgað.
Aðspurður um það hvort
eitthvað væri um að ný fyrirtæki
væri að líta dagsins ljós á svæðinu
sagði Sigurður það ekki vera,
enda ekkert vit að stofna fyrir-
tæki nema tryggt sé að hlutafé sé
nægilegt í upphafi. „Það er ekki
hægt að ætía nýju fyrirtæki að
skila arði fyrstu tvö árin og því
þarf eiginfjárstaðan að vera sterk
í byrjun, því annars stendur það
á brauðfótum,“ sagði Sigurður P.
Sigmundsson. -KK
Akureyrin
slær metið
áný
Fyrir helgi kom Akureyrin EA
til Akureyrar með 274 tonn af
afla að verðmæti um 46 millj-
ónir króna eftir aðeins 22 daga
veiðiferð.
Þar með sló Akureyrin met
frystitogarans Haraldar Krist-
jánssonar HF 2, sem fyrr í mán-
uðinum „stal“ fyrra verðmæta-
meti Akureyrarinnar.
Afli skipsins samanstóð af
frystum þorsk- og ufsaflökum
auk ýmissa heilfrystra tegunda. í
gær var unnið við uppskipun og
stefnt var að því að togarinn
héldi á veiðar á ný í nótt. VG
73 kaup-
leiguíbúðir
á Norður-
landi
Húsnæðismálastjórn hefur
samþykkt að veita lán til bygg-
ingar eða kaupa á 187 kaup-
leiguíbúðum og auk þess var
samþykkt að 44 íbúðir, sem
heimilað var að byggja í verka-
mannabústöðum, skuli byggð-
ar sem kaupleiguíbúðir. Alls
var sótt um 472 íbúðir fyrir
þetta ár.
Samtals er hér um að ræða 231
kaupleiguíbúð, 183 almennar og
48 félagslegar kaupleiguíbúðir.
Fyrir Norðurland vestra voru 32
íbúðir samþykktar, þar af 1
félagsleg, en sótt var um 51. Fyrir
Norðurland eystra var 41 kaup-
leiguíbúð samþykkt, þar af 8
félagslegar, en sótt var um 46
íbúðir.
Sem dæmi má nefna að
Hólmavík fékk 6 almennar
kaupleiguíbúðir samþykktar,
Siglufjörður 6, Sauðárkrókur 8,
Hvammstangahreppur 4 og
Blönduós 4. Á Norðurlandi
eystra fékk Akureyri 10 almenn-
ar kaupleiguíbúðir og 5 félagsleg-
ar, Ólafsfjörður 5 almennar, Dal-
vík 10 og Árskógsstrandarhrepp-
ur 4. SS
Kaupþing Norðurlands:
Ummæli Ólafs hafa
ekki raskað ró viðskiptavina
Ekki hefur orðið vart við
aukningu á inniausnum Ein-
ingarbréfa hjá Kaupþingi
Norðurlands í kjölfar ummæla
Olafs Ragnars Grímssonar for-
manns Alþýðubandalagsins í
síðustu viku þess efnis, að
nokkur fjárfestingarfyrirtæki
standi höllum fæti.
Jón Hallur Pétursson fram-
kvæmdastjóri Kaupþings Norð-
urlands sagði aðeins örfáar fyrir-
spurnir hafa borist til þeirra
vegna ummælanna, en enginn
hafi leyst skírteini sín út. Hann
sagði ummælin aðeins vera órök-
studdar staðhæfingar. „Mér hefði
fundist eðlilegt og það ætti að
krefja Ólaf Ragnar Grímsson um
að nefna þau fyrirtæki sem um er
að ræða. Fólk tekur yfirleitt eitt-
hvert mark á ummælum stjórn-
málamanna, þó að það hafi
greinilega ekki tekið mark á
Ölafi Ragnari."
Aðspurður um hvort fullyrð-
ingarnar væru algerlega úr lausu
lofti gripnar sagðist hann telja
það líklegt því ef þær væru
sannar, hefði hann vegna nálægð-
ar sinnar við verðbréfamarkað-
inn, verið búinn að heyra ávæn-
ing um slæma stöðu viðkomandi
fyrirtækja áður en ummælin
féllu.
Enn sem komið er, hafa þau
því ekki raskað ró viðskiptavina
og sagði Jón Hallur eigendur
Einingarbréfa a.m.k ekki hafa
ástæðu til þess að óttast, þar sem
ummælin eigi örugglega ekki við
um þau bréf. VG