Dagur - 23.08.1988, Blaðsíða 9

Dagur - 23.08.1988, Blaðsíða 9
8 - DAGUR - 23. ágúst 1988 fþróttir Knattspyrna 4. deild: Æskan vann Neista í fjöragum leik Æskan sigraði Neista í miklum markaleik á laugardaginn. Níu mörk voru skoruð og gerði Æskan sex af þeim og Neisti þrjú. Leikurinn var nokkuð opinn eins og úrslit- in gefa tii kynna. Fyrri háfleikurinn var nokk'uð jafn en Æskan hafði þó undirtökin. Liðið komst í 3:0 en Neisti minnkaði muninn í 3:2 fyrir hlé. í síðari hálfleiknum var Æsk- an mun sterkari, komst í 6:2 en Neisti minnkaði muninn á lokamínútunum. Bald- vin Hallgrímsson skoraði tvívegis fyrir Æskuna og Arnar Kristinsson, Einar Áskels- son og Atli Brynjólfsson skoruðu eitt mark hver. Magnús Jóhannesson skoraði öll mörk Neista. JHB Efling burstaði Vask Efling vann stórsigur á Vaski í 4. deild- inni á laugardaginn. Lokatölurnar urðu 5:0 eftir að staðan í leikhléi hafði verið 1:0. Jafnræði ríkti með liðunum í fyrri hálfleik en Efling átti þó öllu meira í leiknum og tókst að skora eitt mark. í síðari hálfleik tók liðið öll völd á vellinum og sigurinn var aldrei í hættu. Þórarinn Ulugason skoraði tvívegis fyrir Eflingu og Þórarinn Jónsson, Hermann Geirsson og Glúmur Haraldsson eitt hver. Pá lék Efling gegn UMSE-b á fimmtudag en þeim leik hafði verið frestað um nokkurn tíma. Efling sigraði 1:0 í þeim leik og var það Guðmundur Jónsson sem skoraði sigurmark- ið. JHB Enn einn sigur Kormáks Kormákur hélt uppteknum hætti þegar liðið mætti UMSE-b á laugardaginn. Lið- ið bætti við enn einum sigrinum, 3:2, en verður að teljast heppið að hafa farið með öll stigin úr þessari viðureign. Staðan i leikhléi var 0:0 en UMSE-b komst í 2:0 í síðari hálfleik. Kormáksmenn gáfust þó ekki upp og bættu við þremur mörkum áður en upp var staðið og tryggðu sér sigurinn. Grétar Eggertsson, Páll Leó Jónsson og Bjarki Gunnarsson skoruðu mörk Kormáks. Ekki tókst að afla upplýs- inga um hver skoraði fyrsta mark UMSE-b en síðara mark liðsins var sjálfsmark hjá Kormáki. JHB Staðan - 4. deild, D-riðill Úrslit í 14. umferð: Efling-Vaskur Æskan-Neisti UMSE-b-Kormákur Kormákur HSÞ-b Neisti Æskan Efling UMSE-b Vaskur Markahæstir: Baldvin Hallgrímsson Æskunni 8 Ari Hallgrímsson HSÞ-b 7 Grétar Eggcrtsson Kormáki 6 Þórarinn Jónsson Eflingu 6 5:0 6:3 2:3 12 8-2-2 22:14 26 11 4-6-1 26:17 18 12 4-4-4 22:23 16 10 4-2-4 25:22 14 12 4-2-6 17:20 14 10 2-3-5 13:18 9 10 2-3-5 13:23 9 SL-deildin: Valsmenn ekki í vandræðum með slaka Þórsara unnu 3:0 á Akureyrarvelli Þórsarar áttu ekki mikla möguleika er þeir mættu Islandsmeisturum Vals á Akureyrarvelli á sunnudags- kvöldið. Þórsarar léku vægast sagt illa, barátta og leikgleði var engin, og íslandsmeistar- arnir voru ekki í vandræðum með að tryggja sér 3:0 sigur. Evrópudraumur Þórsara virð- ist úr sögunni enn eina ferðina og liðið má taka sig á ef það ætlar ekki að enda í neðri hluta deildarinnar þegar upp verður staðið. Valsmenn voru fljótir að ná tökum á leiknum á sunnudags- kvöldið. Þórsarar báru greinilega virðingu fyrir meisturunum og gáfu þeim frið til að byggja upp sóknarleik sinn nánast eins og þeim sýndist. Þeir fengu dauða- færi á 22. mínútu þegar Guð- mundur Baldursson var einn og óvaldaður í vítateig Þórs en Baldvin bjargaði vel. Þrátt fyrir að Valsmenn fengju að ráða gangi leiksins áttu þeir í basli framan af með að skapa sér færi. Það voru Þórsarar sem áttu næsta færi, Kristján átti þá góða sendingu á Halldór sem lenti í kapphlaupi við Sævar en laust skot hans fór fram hjá markinu. Valsmenn hófu nýja sókn og skoruðu fyrst mark leiksins. Send var stunga inn í vítateig Þórs og Jón Grétar náði að pota boltan- um framhjá Baldvin sem hikaði í markinu en hefði átt að hirða þennan bolta. Valsmenn héldu uppteknum hætti eftir hlé en voru þó öllu ákveðnari upp við mark Þórs. Á 48. mínútu átti Jón Grétar hörkuskalla eftir horn en Siguróli bjargaði á línu. Fáum mínútum síðar skallaði Atli yfir eftir annað horn og á 65. mínútu bættu Vals- menn við öðru marki. Jón Grétar fékk þá boltann á vítateig Þórs- ara, lék á einn varnarmann og skaut þrumuskoti sem Baldvin hálfvarði en missti undir sig og í markið. Þórsarar höfðu vart tekið miðj- una þegar Valsmenn stálu bolt- anum og skoruðu þriðja markið. Sigurjón fékk þá boltann einn og óvaldaður í miðjum teig Þórsara og skoraði með föstu skoti. Eftir þetta voru Valsmenn áfram meira með boltann og á lokamínútunum fengu þeir tví- vegis dauðafæri sem þeim tókst ekki að nýta og úrslitin því 3:0. Eins og fyrr segir voru Þórsar- Knattspyrna 2. deild: KS-ingar dauflr gegn UBK - töpuðu 2:3 Siglfirðingar fengu ekki að sjá sigur í fyrsta leik KS í 2. deild- inni á nýja grasvellinum á Hóli. Mikill fjöldi áhorfenda var á leiknum í blíðskapar- veðri. KS tapaði fyrir UBK með tveimur mörkum gegn þrem mörkum Blikanna. I leikhléi var staðan 1:1. Sigur Breiðabliks verður að teljast sanngjarn, miðað við gang leiksins. Leikurinn byrjaði mjög rólega og voru fyrstu mínútur hans tíð- indalitlar, liðin þreifuðu fyrir sér án þess að skapa sér marktæki- færi. Á 24. mínútu dró til tíð- inda. KS fékk hornspyrnu og eft- ir hana barst boltinn úi þvögu til Steve Rutter, sem þrumaði knettinum í marknet Blikanna. Stórsigur KA á ísafirði KA vann stórsigur á ÍBI þegar liðin mættust í 1. deild kvenna á Isafirði á fimmtudagskvöld- ið. Lokatölurnar urðu 6:0 eftir að staðan í leikhléi hafði verið 4:0. Tölurnar gefa nokkuð góða mynd af gangi leiksins. KA- stúlkurnar náðu strax góðum tök- um á honum og sigurinn var aldrei í hættu. Inga Birna Hákonardóttir skoraði þrjú mörk fyrir KA, Arndís Ólafsdóttir tvö og íris Thorleifsdóttir eitt mark. JHB Eftir markið dofnaði heldur yfir leiknum, Blikar þó ögn hressari ef eitthvað er. Rétt fyrir leikhlé kom svo jöfnunarmark Breiðabliks. Þeir fengu aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig KS og Jón Þórir Jónsson skaut úr henni og skoraði með „bananabolta" í bláhornið. En dómarinn flautaði markið af þar sem hann var ekki búinn að flauta aukaspyrnuna á. Jón Þórir tók þá spyrnuna aftur og skoraði á nákvæmlega sama stað aftur. Sem sagt, 1:1 í hléi. KS byrjaði seinni hálfleikinn af krafti og virtist ætla að taka leik- inn í sínar hendur. En það stóð stutt yfir því á 54. mínútu kom annað mark UBK. Það var Jón Þórir sem það gerði, aftur beint úr aukaspyrnu. Við markið hresstust KS-ingar á ný, en það var eins og vantaði herslumuninn í leik þeirra þegar nær dró marki UBK. Helsta færi KS í seinni hálfleik var skalli Hafþórs Kol- beinssonar á 58. mínútu, sem sleikti markstöng Blikanna. Fimm mínútum síðar kom svo þriðja mark UBK. Það gerði Þorsteinn Hilmarsson með þrumuskoti utan af teig, óverjandi fyrir Ómar Guðmundsson í marki KS. KS-ingar náðu að minnka muninn rétt fyrir leikslok og það gerði Paul Friar með föstu skoti af vítateigslínu. Tap blasti við KS og má liðið fara að bíta meira frá sér í botnbaráttu 2. deildar. Bestu menn KS í þessum leik voru Tómas Kárason og Paul Friar, aðrir voru langt frá sínu besta. Ágætur dómari leiksins var Eyjólfur Ólafsson. -bjb ar afar daprir og er þetta senni- lega lélegasti leikur liðsins í sum- ar að bikarleiknum gegn Víkingi undanskildum. Allt liðið lék und- ir getu að Júlíusi undanskildum sem var frískur og Birgi Skúla- syni sem átti ágæta spretti. Vals- Iiðið var jafnt og þurfti lítið að hafa fyrir hlutunum. Jón Grétar var mjög frískur í framlínunni og olli Þórsurum verulegum vand- ræðum á köflum. JHB Lið Þórs: Baldvin Guðmundsson, Júlíus Tryggvason, Birgir Skúlason, Nói Björnsson, Valdimar Pálsson, Kristján Kristjánsson, Jónas Róbertsson, Guðmundur Valur Sigurðsson, Sig- uróli Kristjánsson, Hlynur Birgisson, Halldór Áskelsson. Lið Vals: Guðmundur Baldursson, Magni Blöndal Pétursson, Sævar Jónsson, Guðni Bergsson, Sigurjón Kristjánsson, Atli Eðvalds- son, Hilmar Sighvatsson, Valur Valsson, Ingvar Guðmundsson, Guðmundur Baldursson, Jón Grétar Jónsson. Gult spjald: Valur Valsson, Val. Dómari: Friðgeir Hallgrímsson og var ágætur. Línuverðir: Bragi V. Bergmann og Árni Ara- son. Hlynur Birgisson og Hilmar Sighvatsson í baráttu um knöttinn. Hilmar og félagar unnu auöveldan sigur að þessu sinni. Mynd: tlv Knattspyrna 3. deild: Oruggt hjá Magna - sigraði Sindra 4:0 Magni vann öruggan sigur á Sindra í B-riðli 3. deildar Islandsmótsins á Grenivík um helgina. Eftir að staðan hafði verið 1:0 í leikhléi, Magna í vil, fór liðið af stað í síðari hálfleik og skoraði þá þrjú mörk og úrslitin urðu 4:0. Nokkuð jafnræði var með lið- unum í fyrri hálfleik en Magna- menn voru heldur frískari og sóttu meira. Þeir skoruðu eina mark hálfleiksins og var þar Þor- steinn Jónsson að verki. í síðari hálfleik var nánast um einstefnu að ræða. Magnaliðið hreinlega óð í færum og tókst að bæta við þremur mörkum en þau hefðu hæglega getað orðið fleiri. Jónas Baldursson og Hringur Hreinsson skoruðu sitt markið hvor 'og Tómas Karlsson innsigl- aði síðan sigur Magna úr víta- spyrnu. JHB Hafþór Kolbeinsson sækir að marki UBK en markvörðurinn grípur örugg- lega inn í. Mynd: bjb 23. ágúst 1988 - DAGUR - 9 Sem fyrr segir var þátttaka mjög góð og mættu flestir frá Golfklúbbi Akureyrar, eða 40 kylfingar, 19 frá heimamönnum, 15 frá Golfklúbbi Húsavíkur, 9 frá Golfklúbbi Ólafsfjarðar, 6 frá Golfklúbbi Skagastrandar og 5 frá Golfklúbbnum Ósi á Blöndu- ósi. Ólafur Gylfason GA vann m.fl. karla og setti nýtt vallarmet Hlíðarendavallar fyrri daginn, lék á 73 höggum, bætti metið um eitt högg. Sem fyrr segir var keppni mjög jöfn og sem dæmi léku þrír kylfingar bráðabana um 3ja sætið í m.fl. karla en Kristján Gylfason GA, bróðir Ólafs, hafði það gegn Eggerti Eggertssyni GA og Kristjáni Hjálmarssyni GH. í mótslok fór fram verð- launaafhending og þess má geta að Sjóvá tryggingarfélagið gaf glæsilega farandbikara í mótið í mfl. karla og kvenna, öldunga- Á efri myndinni má sjá verðlaunahafa á Norðurlandsmótinu samankomna. Á neðri myndinni hampar Ólafur Gylfa- og unglingaflokki. son verðlaunum sínum en hann varð sigurvegari í karlaflokki. Myndir: bjb Urslit mótsins urðu þessi: 1. fl. kvenna högg 1. Mattý Einarsdóttir GA 221 2. Halla B. Árnadóttir GA 233 3. Bjarnhildur Sigurðard. GSk 236 2. fl. karla högg 1. Júlíus Haraldsson GA 180 2. Hjörtur Geirmundss. GSS 180 3. Guðmundur Gunnarss. GSS 182 3. fl. karla högg 1. Bjarni Sveinsson GH 190 2. Birgir Guðjónsson GSS 197 3. Einar Einarsson GSS 200 Öldungaflokkur (með forgjöf) högg 1. Ásmundur Bjarnason GH 142 2. Friðrik J. Friðrikss. GSS 152 3. Karl Hannesson GH 155 Unglingaflokkur högg 1. Örn Arnarsson GA 158 2. Sigurður O. Sigurðss. GA 162 3. Guðmundur Sverriss. GSS 172 -bjb Úr leik Dalvíkinga og Reynis. Eins og sjá má er ýmsum brögðum beitt. Mynd: TLV Knattspyrna 3. deild: Reynismenn lágu fyrir Dalvíkingum UMFS Dalvík sigraði Reyni þegar liðin mættust á Dalvík- urvelli um síðustu helgi með tveimur mörkum gegn einu. Það voru gestirnir sem náðu forystunni en heimamenn gáf- ust ekki upp og bættu við tveimur mörkum og tryggðu sér sigurinn. Reynismenn byrjuðu mun betur, voru mun ákveðnari, og þeir náðu forystunni strax á 10. mínútu. Tekið var langt innkast inn í vítateig Dalvíkinga og þar datt boltinn niður á milli tveggja varnarmanna og Heimir Braga- son var á réttum stað og skoraði af öryggi. Reynismenn sóttu áfram mun meira og áttu nokkur góð færi, m.a. skalla í þverslá en smátt og smátt komust Dalvíkingar meira inn í leikinn og á 28. mínútu jafn- aði Björn Friðþjófsson fyrir þá með ágætu marki. Ingólfur Krist- jánsson bætti síðan við öðru marki rétt fyrir hlé og staðan í leikhléi var 2:1. Síðari hálfleikur var nokkuð jafn. Reynismenn voru öllu meira með boltann en þeim gekk illa að skapa sér færi. Dalvíking- ar fengu hins vegar nokkur ágæt færi en Eiríkur Eiríksson í marki Reynis varði vel og mörkin urðu því ekki fleiri. JHB SL-deildin: Vöm Keflvíkinga gaf sig ekki - og Leiftur tapaði 1:2 Ekki var að sjá að leikur ÍBK og Leifturs væri barátta tveggja liða um sæti í 1. deild- inni. Hann fór mjög rólega af stað og það var ekki fyrr en undir lok leiktímans að leik- mennirnir fóru virkilega að spretta úr spori. En Keflvík- ingar náðu að hanga á forskoti sínu, sigra 2:1 og þar með tryggja stöðu sína í deildinni. Kári konungur heilsaði leik- mönnum með roki og rigningu suður með sjó á sunnudagskvöld- ið. Þetta virtist slá á baráttuand- ann í leikmönnum og var t.d. mun minni barátta í Ólafsfirðing- unum en í flestum öðrum leikjum liðsins í sumar. Keflvíkingar voru mun meira með boltann í fyrri hálfleik og komust Leiftursmenn varla upp að vítateig Suðurnesjapiltanna. Hins vegar létu færin á sér standa og það var ekki fyrr en um miðjan fyrri hálfleik að einhver hætta skapaðist við mark gestanna. Jón Sveinsson átti þá gott skot að markinu en Þorvaldur varði vel. Fyrsta mark leiksins leit dags- ins ljós á síðustu mínútu fyrir leikhlé og voru þar heimamenn að verki. Garðspilturinn Grétar Einarsson fékk þá góða sendingu frá hægri frá Gesti Gylfasyni, tók knöttinn niður á brjóstið og sendi hann síðan með föstu skoti í markhornið fjær. ÍBK hélt uppteknum hætti í síðari hálfleik og brátt juku þeir við forskotið. Árni Vilhjálmsson átti þá sendingu af kantinum á Óla Þór sem afgreiddi hann snyrtilega í netið hjá Leiftri. Þor- valdur hafði hendur á knettinum, en rennblautur völlurinn gerði það að verkum að hann náði ekki að stöðva skotið fullkomlega og tveggja marka forskot þeirra gul- klæddu var staðreynd. Nú var eins og Ólafsfjarðar- sveinunum hefði verið gefin víta- mínsprauta í rassinn og fóru þeir að berjast eins og þeir eiga til. Halldór Guðmundsson var hættulegur í framlínunni og var hann óheppinn að skora ekki í leiknum. Á 70. mínútu fékk hann sendingu inn í vítateig heima- manna, lék á Þorstein í markinu og renndi knettinum að markinu úr þröngu færi. Á síðustu stundu Hafsteinn Jakobsson skoraði ecen ÍBK. kom Keflvíkingurinn Einar Á. Ólafsson, eins og eimreið, og bjargaði á marklínu. Áfram hélt Leiftur að sækja og máttu Keflvíkingar hafa sig alla við að hreinsa frá marki. Þeir skoruðu að vísu mark í viðbót en það var réttilega dæmt af vegna rangstöðu. Að lokum tókst Leiftri að rjúfa „Berlínarmúr" Suðurnesjasvein- anna og var þar Hafsteinn Jak- obsson að verki. Lúðvík Berg- vinsson átti þá góða sendingu fyr- ir mark ÍBK og þar sneiddi Haf- steinn boltann skemmtilega með kollspyrnu í móður jörð og í mark Keflvíkinga. Þrátt fyrir þunga sókn síðustu mínúturnar tókst Leifturspiltun- um ekki að skora fleiri mörk og urðu því að sætta sig við tap. Staðan er því ekki glæsileg hjá þeim í dcildinni og mega Ölafs- tirðingar taka sig mikið á ef þeir ætla ekki að húrra niður um deild. AP Liö Lcifturs: Þorvaldur Jónsson. Guömundur Garðarsson. Árni Stcfánsson, Gústaf Ómars- son(Lúðvík Bcrgvinsson 69. mín.). Þorstcinn Gcirsson, Halldór Guömundsson. Höröur Bcn- onýsson, Friögcir Sigurösson(Róbcrt Gunnars- son), Sigurbjörn Jakobsson, Óskar Ingimundar- son, Hafstcinn Jakobsson. Liö ÍBK: Þorstcinn Bjarnason, Óli Þór Magn- ússon, Jón Svcinsson(Kjartan Einarsson). Árni Vilhjálmsson (Gunnar M. Jónsson), Ragnar Margcirsson. Danícl Einarsson. Siguröur Björgvinsson, Guömundur Sighvatsson, Einar Á. Ólafsson, Gcstur Gylfason. Dómari: Sæmundur Víglundsson og átti hann ágætan dag cnda lcikurinn auödæmdur. Áhorfcndur: 350 Norðurlandsmótið í golfi: Mctþátttaka á vel heppnuðu móti - Ólafur Gylfason, GA, setti vallarmet og varð Norðurlandsmeistari í karlaflokki Norðurlandsmótið í golfi var haldið á Hlíðarendavelli Goif- klúbbs Sauðárkróks um helg- ina. Metþátttaka var á mótinu, 94 kylflngar mættu til leiks í 8 flokkum, en Norðurlandsmót var fyrst haldið nú sem flokka- keppni. Keppendur fengu gott veður báða mótsdaga og lauk rnótinu ekki fyrr en á sunnu- dagskvöld. Keppni var mjög jöfn og þurfti að útkljá úrslit með nokkrum bráðabönum í lokin. Mfl. karla högg 1. Ólafur Gylfason GA 151 2. Axel Reynisson GH 158 3. Kristján Gylfason GA 161 Mfl. kvenna högg 1. Árný Árnadóttir GA 171 2. Andrea Ásgrímsdóttir GA 179 3. Sigríður B. Ólafsd. GH 189 1. fl. karla högg 1. Kristján Guðjónsson GH 162 2. Örn Sölvi Halldórsson GSS 165 3. Haraldur Friðriksson GSS 169

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.