Dagur - 23.08.1988, Blaðsíða 10
rrfönUí-tóíJ.«söfij[ m
-'23.ágústV988
'«? '\\ 1 \';‘r
Flugleiðamótið í handknattleik er nú í fullum gangi, en það hófst á laugardag. Þá léku Sovétríkin og ísland B á
Akureyri og unnu Sovétmenn stórsigur, 37:16. Á myndinni má sjá Valdimar Grímsson skora eitt marka sinna en
hann var besti maður íslands í leiknum. Úrslit í öðrum leikjum um helgina urðu ísland A-Tékkóslóvakía, 23:17,
Spánn-Sviss, 20:17, Spánn-Sovétríkin, 28:20, ísland A-Sviss, 19:20, og Tékkóslóvakía-Ísland B, 27:19. Mótinu lýkur
á morgun. Mynd; TLV
Enska knattspyrnan:
Nú haföi Iiverpool
betur gegn Wimbledon
sigraði 2:1 í F.A. Charity Shield
Á laugardaginn fór fram a
Wembley hinn árlegi opnunar-
leikur ensku knattspyrnunnar.
Liverpool, núverandi Eng-
landsmeistarar, lék þá gegn
bikarmeisturum Wimbledon
um góðgerðarskjöldinn að við-
stöddum 54.887 áhorfendum.
Þessi sömu lið léku einmitt til
John Aidridge skoraði bæði
mörk Liverpool gegn Wimble-
don á laugardaginn.
úrslita í bikarkeppninni sl. vor
og þá hafði Wimbledon betur,
sigraði óvænt með einu marki
gegn engu.
Almennt var búist við auðveid-
um sigri Liverpool að þessu sinni.
Ýmsir af bestu leikmönnum
Wimbledon hafa verið seldir, eða
eru á sölulista og hörkutólið
Vince Jones var í leikbanni. En
Liverpool varð að hafa fyrir
hlutunum og það var reyndar
John Fashanu sem náði forystu
fyrir Wimbledon á 18. mín. eftir
góða sendingu Dennis Wise frá
hægri og Fashanu skallaði í
markið framhjá Bruce Grobbe-
laar. En Liverpool jók hraðann
eftir markið og aðeins 6 mín. síð-
ar náðu þeir að jafna. Ronnie
Whelan sendi þá fram á Steve
McMahon, en Simon Tracey sem
lék sinn fyrsta leik í marki Wim-
bledon kom út úr teignum og
skallaði frá. Leikmenn Liverpool
náðu boltanum strax og John
Aldridge sendi hann í autt
markið. Liverpool skoraði síðan
sigurmarkið í síðari hálfleik,
John Barnes lék þá upp vinstri
kantinn, sendi síðan fyrir þar sem
Aldridge tók við knettinum og
sendi hann í netið með glæsilegu
skoti. Sanngjarn sigur meistar-
anna var í höfn, en mikil barátta
leikmanna Wimbledon kom þeim
þó oft í nokkur vandræði.
Lið Liverpool í leiknum var
þannig skipað: Grobbelaar,
Venison, Gillespie, Watson,
Ablett, Houghton, McMahon,
Whelan, Barnes, Beardsley og
Aldridge.
Whelan var fyrirliði í stað Alan
Hansen sem er meiddur, en í
hans stað kom Alex Watson í
vörnina. Jan Mplby var varamað-
ur og Steve Nicol ásamt Ian Rush
meiddur. Aldridge lék mjög vel í
leiknum og virðist staðráðinn í að
afhenda Rush ekki stöðu sína
baráttulaust, en búist er við því
að þeir muni berjast um sama
sætið. Þrátt fyrir að Liverpool gæti
fengið 1 milljón punda fyrir Ald-
ridge er ekki talið líklegt að hann
verði seldur og hugsanlegt að
Kenny Dalglish leysi vandann
með því að láta þá báða spila og
færa þá Beardsley aftar og setja
Whelan í bakvarðarstöðu.
Þ.L.A.
Knattspyrna 3. deild:
Finun mörk F.in-
heija gegn Hvöt
Einherji vann sanngjarnan og
öruggan sigur á Hvöt þegar lið-
in mættust á Vopnafirði um
helgina. Einherjaliðið skoraði
fimm mörk gegn engu marki
gestanna og þrátt fyrir að
Hvatarmenn hafi á köflum ver-
ið óheppnir var sigur heima-
manna aldrei í hættu.
Hvöt fékk sín færi í leiknum en
tókst ekki að nýta þau. Strax á 5.
mínútu fékk liðið dauðafæri þeg-
ar einn sóknarmanna þess komst
einn inn fyrir en skot hans fór í
stöngina og út aftur. Einherji lék
undan vindi í fyrri hálfleik og
náði góðum tökum á leiknum. A
23. mínútu náðu þeir forystunni
með marki upp úr hornspyrnu og
áður en nokkurn varði höfðu þeir
bætt við tveimur slíkum og stað-
an allt í einu orðin 3:0. Fjórða
markið kom síðan 5 mínútum
fyrir hlé.
Síðari hálfleikur var kafla-
skiptur en Einherjaliðið hafði þó
lengst af undirtökin og sigur þess
var aldrei í hættu. Því tókst að
bæta við einu marki og úrslitin
því 5:0. Njáll Eiðsson og Hall-
grímur Guðmundsson skoruðu
tvö mörk hvor fyrir Einherja og
Stefán Guðmundsson eitt. JHB
Staðan
- 3. deild
B-riðill
Úrslit í 12. umferð:
Huginn-Þróttur 4:2
Magni-Sindri 4:0
UMFS Dalvík-Reynir 2:1
Einherji-Hvöt 5:0
Einherji 11 8-2-1 29: 8 26
Magni 12 5-4-3 18:12 19
Reynir Á. 12 6-1-5 20:17 19
UMFS Dalvík 125-3-4 18:2718
Þróttur N. 11 5-2-4 20:15 17
Huginn 12 4-3-5 23:27 15
Hvöt 12 2-4-6 6:16 10
Sindri 12 1-3-8 17:29 6
Markahæstir:
Guðbjartur Magnas. Þrótti N. 11
Sveinbjörn Jóhannsson Hugin 8
Knattspyrna 2. flokkur:
Tindastóll tapaði
síðasta leiknum
- brottrekstur, handleggsbrot og
slitið liðband
Sl. sunnudag lék 2. flokkur
Tindastóls sinn síðasta leik í
íslandsmótinu, gegn Leikni í
Reykjavík. í hörkuleik varð
Tindastóll að sætta sig við tap,
2:1. Öll mörkin voru skoruð í
síðari hálfleik.
Jafnræði var með liðunum í
fyrri hálfleik en Tindastóll náði
að klúðra nokkrum færum fyrir
framan mark Leiknismanna og
áttu hæglega að geta verið yfir í
leikhléi.
Tindastóll skorðaði fyrsta
markið í leiknum og það gerði
Guðbjartur Haraldsson úr víta-
spyrnu. Fljótlega jöfnuðu Leikn-
isdrengirnir og þá kom mikil
harka í leikinn. Einn leikmaður
Leiknis var rekinn út af fyrir
gróft brot og tveir leikmenn
Tindastóls þurftu að yfirgefa völl-
inn vegna meiðsla, einn hand-
leggsbrotnaði og annar sleit
liðbönd. Þegar liðið var fram yfir
venjulegan leiktíma náði Leiknir
svo að skora sigurmarkið úr víta-
spyrnu.
Talsverð umræða hefur verið
um 2. flokkinn í knattspyrnu að
undanfömu vegna ljótra brota
sem þar hafa sést og hvað mikið
hefur verið leyft í leikjunum af
dómurum. Á fundi aganefndar
KSÍ fyrir skömmu voru 8 leik-
menn úr 2. flokki dæmdir í leik-
bann, og sumir í tveggja eða
þriggja leikja bann vegna brota á
knattspyrnuvelli. Þetta er þróun
sem verður að stöðva áður en í
algjört óefni fer. -bjb
Úr leik íslands B og Sovétríkianna á Flugleiðamótinu í handknattleik.
Mynd: TLV