Dagur - 25.08.1988, Blaðsíða 7

Dagur - 25.08.1988, Blaðsíða 7
6 - DAGUR - 25. ágúst 1988 25. ágúst 1988 - DAGUR - 7 Akureyringar eignuðust íslandsmeistara á dögunum. Það voru knattspyrnustúlkurnar í 2. flokki kvenna hjá KA sem heimtu þennan titil á íslandsmótinu í ár. Hér er um að ræða fyrsta íslandsmeistaratitil KA á stórum velli, en 6. flokkur karla hjá félaginu vann íslandsmeistara- titil á óopinberu móti árið 1985. Það er ekki á hverjum degi að titlar sem þessir koma til Akur- eyrar svo okkur þótti tilhlýðilegt að sækja stelp- urnar „heim“ á KA svæðið í vikunni. Það var æfing hjá þeim og 11 stúlkur mættar. Pétur Ólafsson þjálfari stormaði af stað með hópinn í leit að grassvæði fyrir æfinguna, en á sama tíma þennan dag fóru fram tveir leikir á íþróttasvæði félagsins auk æfinga hjá fleiri flokkum svo segja má að þarna hafi allt iðað af lífi. Auk íþrótta- fólksins var fjöldi áhorfenda á leikjunum sem ýmist stóðu hjá og hvöttu sína menn, eða lágu og teygðu úr sér í grasinu. Frá félagsheimilinu barst ilmandi kaffilykt fyrir þá sem það kusu. Að sjálf- sögðu var létt yfir stelpunum á æfingunni, en byrjað var á teygjuæfingum. „Svona stelpur, teygja vel á svo þið finnið hvernig strekkist á lær- vöðvunum! Og svo er það sprettur!“ Auðvitað var ekkert múður í þeim og þær ruku af stað. Við notuðum tækifærið og tókum Pétur þjálfara tali auk þess sem hér verður rætt við tvær stelpn- anna. Myndir: TLV Texti: VG íslandsmeistarar KA í 2. flokki kvenna 1988. Efri röð frá vinstri: Pétur Ólafsson þjálfari, Linda Hersteinsdóttir, Vala Óttarsdóttir, Munda Kristinsdóttir, Sigrún Ingadóttir, María Magnúsdóttir, Eva Rafns- dóttir, Linda ívarsdóttir, íris Thorleifsdóttir og Stefán Gunnlaugsson formaður knattspyrnudeildar. Fremri röð frá vinstri: Þórir Sigmundsson (lukkudýr), Eydís Marinósdóttir, íris Gunnlaugsdóttir, Inga L. Símonardóttir, Arndís Ólafsdóttir (fyrirliði), Fanney Halldórsdóttir, Ingibjörg H. Ólafsdóttir, Sigríður Arnardóttir og Hildur Símonardóttir. Mynd: bjb Það er vandasamt verk að taka að sér íþróttaþjálfun. Þjálfari þarf ekki aðeins að stýra æf- ingum því það eru ótal önnur verkefni sem hvíla á honum. Hann þarf auðvitað að undir- búa æfíngarnar, keppnisferða- lögin og oft kemur fyrir að hann sest í sæti sálusorgara. Pétur var fyrst spurður að því, hver væri lykillinn að vel- gengni stelpnanna. „Hann er m.a. fólginn í því að margar af stelpunum eru með ákaflega góða boltatækni. Þá rík- ir í hópnum rétt hugarfar til knattspyrnu og þær hella sér í þetta af öllum lífs og sálar kröftum.“ - Hvernig hefur gengið í sumar? „Það hefur í raun gengið mjög illa að ná þeim til æfinga, því aldursdreifingin í hópnum er 10- 16 ár og samanstendur hópurinn því af tveimur flokkum, þ.e. 3. flokki kvenna og meistaraflokki kvenna. Auk þess er ein stúlka í hópnum í 6. flokki karla. Þær eru því allar í öðrum flokkum en þessum eina, stunda æfingar með þeim og eiga erfitt með að mæta á æfingu hjá 2. flokki. Af þessu leiðir að í sumar hafa að jafnaði ekki verið fleiri en 6-8 stelpur á æfingu í einu.“ - Hvernig stendur 2. flokkur kvenna hjá KA miðað við önnur lið í sama aldursflokki á landinu? „Fyrst og fremst ber að nefna meðalaldur liðsins, sem er ákaf- lega lágur. Sem dæmi má nefna að í liði KR eru allar stúlkurnar 16 og 17 ára og sömu sögu er að segja um stúlkurnar í ÍA sem kepptu við okkur í úrslitaleikn- um.“ - Gerðir þú þér vonir um svona góðan árangur hjá þeim í upphafi? „Nei. Þegar ég sá hvernig undirbúningi yrði háttað, gerði ég mér litlar vonir. En eftir að við unnum Breiðablik sællar minningar í Kópavogi, fór ég að gæla við þessa hugmynd og sem betur fer tókst þetta.“ - Að lokum Pétur, heldur þú að þessi hópur sé framtíðar íslandsmeistari? „Ég er ekki í nokkrum vafa um að þessi hópur á eftir að gera stóra hluti í sínum aldursflokki á næstu tveimur árum a.m.k. Þær halda allar áfram næsta tímabil en þá verða þrjár á efsta ári. Ég reikna því með að næstu tvö sum- ur ættu þessar stúlkur að vera í toppbaráttunni, það er engin spurning." Um leið og Dagur óskar Pétri til hamingju með árangurinn, þökkum við honum fyrir spjallið. Pétur Ólafsson þjálfari ákveðinn á svip. „Teygja vel stelpur.“ Þær hlýddu að sjálfsögðu hverri skipun. Og engin reyndi að skorast undan, allar voru með og tóku vel á. vonir í upphafi - segir Pétur Ólafsson þjálfari Gerði mér ekki miklar j Arndís Ólafsdóttir fyrirliði: IJrslitalftiknrinn var frekar erfiður Arndís Ólafsdóttir hefur leikiö með 2. flokki og meistara- flokki kvenna í sumar. Hún er fyrirliði 2. flokks og við feng- um hana til þess að taka sér pásu og spjalla við okkur. - Hvert er nú hlutverk fyrir- liða í knattspyrnu? „Það er svo margt, hann reynir að halda hópnum saman og hjálpa til. Þá reyni ég eins og ég get að hvetja stelpurnar í leikj- um.“ - Hvernig finnst þér hafa gengið í sumar? „Það hefur gengið æðislega vel. Reyndar er dálítið erfitt að æfa og spila með tveimur flokk- um því við sem það gerum, þurf- um að mæta á um 5 æfingar á viku og svo getur hist þannig á að við þurfum að spila tvo leiki um helgar. Maður gerir ekki mikið annað á meðan.“ - Bjuggust þið við því að vinna íslandsmótið í ár? „Nei, alls ekki. Við bjuggumst frekar við því að vinna á næsta ári, því þá ganga svo margar stelpur upp. Þetta var því óvænt en æðislega gaman. Eftir að við vorum búnar að vinna Breiðablik í riðlinum fórum við að gera okk- ur grein fyrir þessu og meira að segja í úrslitaleiknum gerðum við okkur ekki almennilega grein fyr- ir því hvað við vorum að spila mikilvægan leik.“ - Hverjir finnst þér hafa verið erfiðustu andstæðingarnir í sumar? „Það var Breiðablik í riðlinum og Akranes í úrslitaleiknum, en haA víir frpl<ríir prfifSiir Ipilrnr “ Nú var Pétur farinn að gefa okkur hornauga svo við þorðum íinnnö pn nö slí^nna Addv Addý greinilega ekkert óánægð með að þurfa að taka spretti. Ingibjörg Ólafsdóttir 10 ára: Akveðin í að halda áfram Yngsti leikmaður 2. flokks kvenna er Ingibjörg Ólafsdóttir, en hún er aðeins 10 ára gömul. Þrátt fyrir ungan aldur, er hún þegar vel þekkt sakir knatt- spyrnukunnáttu sinnar, en hún æfír einnig með 6. flokki karla hjá KA. Ingibjörg, eða Imba eins og allir kalla hana, var ekki á æflngunni hjá 2. flokki því hún spilar aðeins með þeim. En hún var á KA svæð- inu og því upplagt að spjalla aðeins við hana. Imba, eins og hinar stelpurnar æfir 5-6 sinnum í viku og keppir svo um helgar. Hún sagði að það hefði verið mjög gaman að vinna íslandsmeistaratitilinn. „Ég bjóst nú reyndar ekki við þessu,“ sagði hún. Undanfarin 3-4 sumur hefur hún æft fótbolta með yngri flokk- um félagsins og verið eina stelpan í hópnum. Hún sagði að strák- arnir hafi alltaf tekið sér mjög vel. Aftur á móti þætti strákum í öðrum liðum sem þau hafa verið að keppa við, stundum skrítið að sjá stelpu í hópnum. Við hjá Degi vitum hins vegar að strák- arnir í KA eru mjög stoltir af Imbu. Hún er alveg ákveðin í að halda áfram í fótbolta en á næsta sumri gengur hún upp í 5. aldurs- flokk. Imba, sú yngsta í hópnum var ekki á æfingu en boltinn er aldrei langt undan

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.