Dagur - 25.08.1988, Blaðsíða 5
25. ágúst 1988 - DAGUR - 5
Aðalstræti 30
Mynd: GB
Fær viðurkenningu fyrir snyrtilegar og stflhreinar endurbætur bæði á húsi og lóð. Sérstaklega
lofsvert er að garðurinn er svo gott sem fullfrágenginn áður en flutt er í húsið.
Skálagerði 3
Mynd: GB
Fær viðurkenningu fyrir sérstaklega góða hirðingu og fjölbreytta notkun gróðurs þar sem teg-
undum er raðað upp á mjög smekklegan hátt og hver og ein planta fær að njóta sín.
Kotárgerði
Allir garðar gróskumiklir, snyrtilegir og vel hirtir. Fjölbreytileg en um leið mjög falleg heildar-
mynd götu.
Arnarsíða 6
Mynd: TLV
Fær viðurkenningu fyrir mjög vel hirtar lóðir. Góð samstaða er greinilega meðal eigenda um
framkvæmdir allar og kemur það vel fram í stflhreinu útliti bæði á framlóðum og baklóðum.
Merkingar íbúða eru til fyrirmyndar.
Mynd: GB Mynd: GB
Langamýri 25 og Kringlumýri 2 Hamragerði 27
Þessir þrír garðar fá endurviðurkenningu í sumar og í umsögn dómnefndar segir að viðurkenningarnar séu veittar fyrir að hvergi hafi verið slakað á kröfunum um gott viðhald og snyrtimennsku
undanfarin ár. Þessir garðar hafa allir fengið viðurkenningu fyrir 10 árum eða meir, en nú þykir tími til kominn að veita þeim viðurkenningu á ný.