Dagur - 25.08.1988, Blaðsíða 12

Dagur - 25.08.1988, Blaðsíða 12
TEKJVBRÉF■ KJARABRÉF FJÁRMÁL ÞÍN - SÉRGREIN OKKAR Q2> TJARFESTINGARFELAGID Ráðhústorgi 3, Akureyri Egilsstaðir: Sigurður Símonarson, bæjar- stjóri á Egilsstöðum, telur það ekki sjálfgefíð að millilanda- flug fari einungis fram í gegn- um Keflavíkurflugvöll. í tillög- um um flugsamgöngur á Aust- urlandi sem bæjarstjórn hefur samþykkt er atvinnumála- nefnd falið að fjalla bæði um innanlands- og millilandaflug. „Með þeim breytingum er verða þegar við fáum nýjan flug- völl þurfum við að vera vakandi gagnvart millilandaflugi. Frá Norður-Evrópu er stysta flugleið- in hingað og ef við horfum á þetta í Ijósi þess að hringvegur- inn er jafn langur hvar sem byrj- að er á honum, þá hljótum við að draga þá ályktun að það verði hagkvæmara að taka hingað leiguflug með erlenda ferða- menn,“ sagði Sigurður. Hann tók það fram að ekki væri nema fjögurra klukkustunda ferð frá Egilsstöðum til Akureyr- ar í góðum langferðabíl og til Mývatns væri hægt að komast á tveimur og hálfri klukkustund. Fannig væri hægt að dreifa ferða- mönnunum frá Austurlandi, til hagsbóta fyrir landsbyggðina, í stað þess að láta hótelin í Reykjavík njóta góðs af öllum ferðamönnum, sem óhjákvæmi- lega streyma þangað frá Kefla- víkurflugvelli. SS Þetta er hinn eini sanni alþjóðlegi flugvöllur! Mynd: TLV Akureyri: Seinagangur sirkusmanna - sóttu um skemmtana- leyfi á síðustu stundu Sirkusfólk dvelst nú á Akur- eyri og hyggst skemmta bæjar- búum næstu vikuna. Eitthvað virðast umsjónarmenn hafa dvalið við undirbúning því nú sem fyrr, voru þeir á síðustu stundu með að sækja um skemmtanaleyfí og afhenda aðgöngumiða til stimplunar. Samkvæmt bréfi sem bæjar- fógetinn á Akureyri sendi umsjónarmanni í maí sl. bar hon- um að sækja um skemmtanaleyfi með hæfilegum fyrirvara. Ekki var sótt um leyfið fyrr en sirkus- fólkið var komið í bæinn. Þá bar þeim einnig að prenta sérstaka miða fyrir sýninguna á Akureyri og koma þeim til fógeta nokkru áður en sala hæfist svo uppgjör gæti farið fram á eðli’ gan hátt. Á því voru sömuleiðis v mhöld af hálfu umsjónarmanna. VG Kröfluvirkjun gangsett á ný verið að bora 24. holuna á svæðinu Kröfluvirkjun var gangsett á ný á laugardag en virkjunin hefur verið stopp frá 17. maí í vor. I sumar hefur verið unnið að viðhaldi á Kröflusvæðinu og einnig við breytingar á gufuveitunni í Bjarnarflagi, sem Landsvirkjun tók yflr um leið og hún tók við rekstri virkjun- arinnar. Þá er verið að bora 24. holuna á svæðinu um þess- ar mundir en 9 þeirra eru nýtt- ar í dag. „Við framleiðum 24 megawött ■ núna en það er svona verið að Lögreglan í nýjan búning sendur á Krókinn til reynslu Lögreglan á Sauðárkróki fékk fyrir skömmu til reynslu nýjan lögreglubúning og var þessi búningur sendur á tvo aðra staði, lögreglustöðvarnar í Keflavík og Hafnarfírði. Til að byrja með er eingöngu um frakka að ræða, ekki buxur eða höfuðfat. Nýi búningurinn er svarblár að lit og öllu vígalegri en svarti jakk- inn sem íslenska lögreglan hefur verið í um áraraðir. Hægt er að breyta nýja stakknum úr vetrar- búningi yfir í sumarbúning á örskammri stundu, með því að renna rennilás að innan og taka fóðrið úr. Að sögn lögreglu- manna er mjög sterkt efni í nýja búningnum og ekki auðvelt fyrir menn að grípa í hann. Sem fyrr segir er þessi búning- ur til reynslu og ekki búið að ákveða hvort hann verður fram- tíðarklæðnaður íslensku lögregl- unnar. Til tals hefur komið að breyta höfuðfatinu einnig og hug- mynd komið upp um að nota „bátahúfur“, líkt og lögreglan í Þýskalandi, Svíþjóð og víða ann- ars staðar notar. En þetta er ein- ungis hugmynd eins og stendur. -bjb Hér eru lögregluþjónarnir Bjarki Sigurösson og Adolf Árnason í gamla og nýja búningnum, Bjarki í þeim gamla og Adolf í nýja. Bjarki sagði að gömlu svörtu búningarnir væru ólíkt virðulegri en þeir nýju hæfðu ungum lögregluþjónum betur. tína inn holurnar og smá mjaka framleiðslunni upp á við. Við getum ekki framleitt mikið meira en 30 megawött, þar sem hverfill- inn er ekki gerður fyrir meira og ætli framleiðslan fari ekki nærri því,“ sagði Hinrik Árni Bóasson fyrsti vélstjóri virkjunarinnar í samtali við Dag. „Gufuaflsstöðin í Bjarnarflagi hefur ekki verið í gangi undan- farin ár en það hafa verið gerðar töluvert miklar breytingar á henni í sumar og meiningin er að setja stöðina þar í rekstur í vetur.“ sagði Hinrik Árni einnig. Aðspurður um jarðhræringar á svæðinu sagði Hinrik Árni að allt væri með kyrrum kjörum þarna núna og að sennilega hefði nú verið gert meira úr þessum hlut- um en efni stóðu til. -KK Bflvelta á Ólafsflarðarvegi - grunur á að Bakkus hafi verið með í fór Síðdegis á þriðjudag varð bfl- velta á Ólafsfjarðarvegi, við bæinn Baldursheim í Arnar- neshreppi. Að sögn rannsókn- arlögreglunnar á Akureyri, leikur grunur á að um ölvunar- akstur hafl verið að ræða. í bifreiðinni voru 6 manns og missti ökumaður stjórn á bifreið- inni með þeim afleiðingum að hún fór 1-2 veltur út af veginum. Tvennt var flutt á Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri, en meiðsl þeirra reyndust ekki eins alvarleg og fyrst var talið. Bif- reiðin, sem er af Volkswagen gerð, er sögð gjörónýt. VG Góðkunningi lög- regluiinar gómaður - með stolið ávísanahefti Nýlega var maður handtekinn fyrir ávísanamisferli á Akur- eyri. Viðkomandi, sem er að sögn góðkunningi lögreglunnar í Reykjavík, hafði stolið veski fyr- ir sunnan og haldið með það til Akureyrar. í veskinu var m.a. ávísanahefti og tók hann til vic að skrifa og leysa út úr því ávís anir. Rannsóknarlögreglan á Akur eyri fékk pata af ferðum manns ins og tókst að koma í veg fyrii frekari svik. Ekki mun hafa veric um stórar upphæðir að ræða. VC

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.