Dagur - 25.08.1988, Blaðsíða 3
25. ágúst 1988 - DAGUR - 3
(Það er vissara að hafa hlutina í lagi áður en haldið er af stað,
< >
Tilkynning
frá Sparisjóði Glæsibæjarhrepps
Opið verður föstudaginn 26. ágúst frá kl. 10-12.
Lokað eftir hádegi vegna jarðarfarar
Skarphéðins Halldórssonar
fyrrverandi sparisjóðsstjóra.
Sparisjóöur Glæsibæjarhrepps.
V______________________1_____________/
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir júlímánuð 1988, hafi hann
ekki veriö greiddur í síðasta lagi 25. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern byrj-
aðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin 20%, en
síðan reiknast dráttarvextir til viðbótar fyrir hvern byrjaðan
mánuð, talið frá og meö 16. sept.
Fjármálaráðuneytið.
Meindýraeyðingar á Akureyri:
Rottuherferðir á
vorin og haustin
Að sögn Svanbergs Þórðarson-
ar meindýraeyðis á Akureyri
hefur ekki verið mikið um að
vera í sumar. í fyrra var meira
af rottum en nú og í fyrrahaust
og vetur var mikið um mýs.
Svipað mun vera um maura og
pöddur í húsum og undanfarið.
Eins konar rottuherferð er
gerð á vorin og á haustin. Þá er
sett eitur í brunnana í götunum
til þess að reyna að halda rottun-
um í skefjum.
„Það er alltaf eitthvað af rott-
um sem sjást og þá eitrum við
fyrir þeim. Þær halda sig í holræs-
unum og ef skolpleiðslurnar frá
húsum bila þá grafa þær sig upp í
gegnum lóðina. Við reynum að
eitra í holurnar og loka fyrir þeg-
ar þetta kemur fyrir,“ segir
Svanberg.
Starfi meindýraeyðis fylgir
einnig eftirlit með hundum og
köttum. Svanberg sagði alltaf
eitthvað vera um að hundar
gengju lausir og væri nokkuð um
kvartanir þess vegna og einnig ef
hundar væru með mikið ónæði þó
að þeir væru bundnir.
Reynt er að stemma stigu við
útigangsköttum en þeir eru alltaf
þó nokkrir. „Það virðist vera
heldur mikið frjálsræði með bæði
heimiliskettina eins og hundana.
Fólk er að hringja í mig og kvarta
yfir því að þeir séu að þvælast
heima hjá þeim og grafa upp beð
og slíkt,“ sagði Svanberg Þórðar-
son. KR
Þórshöfn:
Unnið að lagfær-
Verslunarhúsnæöl
tíl leigu
Til leigu eru 440 m á 1. hæð í húsi Landsvirkjunar
Glerárgötu 30.
Húsnæðið er laust 1. nóvember nk.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Lands-
virkjunar sími 96-26411.
Landsvirkjun, Glerárgötu 30, Akureyri.
Aiiar auglýsingar sem þarf ad vinna sérstak-
lega, þurfa ad berast tij auglýsingadeildar
tveimur til þremur dögum fyrir birtingu.
Auglýsingadeild Dags.
ingum á sláturhúsi
„Viö erum á ágætis tíma meö
þetta,“ sagði Kristján Karl
Kristjánsson, kaupfélagsstjóri,
aöspuröur um hvernig fram-
kvæmdir gengju við sláturhús
Kaupfélags Langnesinga á
Þórshöfn. Að öllum líkindum
hefst slátrun í húsinu um miðj-
an september.
Héraðsdýralæknir gerði kröfu
um venjubundið viðhald og
málningu á sláturhúsinu, sem
stendur autt milli sláturtíða. Hús-
ið fær ekki undanþágu frá land-
búnaðarráðuneytinu til slátur-
leyfis fyrr en tilkynning hefur
borist um að framkvæmdunum sé
lokið.
Þegar er stærstu framkvæmda-
liðunum lokið, það voru breyt-
ingar á banaklefa og frágangur á
gluggum. Verið er að vinna við
að efla heita vatnið og síðan á
eftir að hreinsa, mála og ljúka
ýmsum smáverkefnum í slátur-
húsinu. IM
Aðalfundur SSA:
Rætt um stofimn
gjaldheimtu
Aðalfundur Sambands sveitar-
félaga á Austurlandi verður
haldinn á Neskaupstað næst-
komandi föstudag og laugar-
dag. Þar verður rætt um
byggðamál, samgöngur í lofti
og á jörðu niðri, tekjustofna
sveitarfélaga, verkaskiptingu
ríkis og sveitarfélaga o.fl.
Sigurður Símonarson, bæjar-
stjóri á Egilsstöðum, sagði að á
fundinum yrði einnig rætt um tvö
stór mál: Stofnun gjaldheimtu á
Austurlandi og stofnun héraðs-
nefnda, en samkvæmt lögum á að
leggja sýslunefndir niður um
næstu áramót og héraðsnefndir
eiga að taka við verkefnum
þeirra.
Sigurður sagði að það yrði að
breyta þeirri tekjuviðmiðun sem
höfð er til hliðsjónar við úthlutun
úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga
því útsvarsáætlanir skattstjóra
eru óvenju háar. Því yrði að taka
upp aðra viðmiðun. SS
Skólatílboð
Skólaúlpur, stærðir 4-14 .Verð aðeins kr. 1995.-
Skólaúlpur, stærðir 6-14 .Verð aðeins kr. 1995.-
Jogging peysur, stærðir 6-12 Verð aðeins 995.-
Skólabuxur, stærðir 6-16 .. Verð aðeins kr. 1290.-
Skólapeysur, stærðir U6-176 Verð aðeins kr. 995.-
Sértilboð
Barnastakkar, stærðir 104-164 Verð aðeinskl. 950.
Opiö laugardaga 10-12
• •
llf EYFJORÐ
wWW Hjalteyrargötu 4 • Sími 22275