Dagur - 02.09.1988, Side 2
2 - DAGUR - 2. september 1988
Mynd: SS
Pistilflörður:
Hey skemmd og hrakin
- hjá þeim sem verst urðu úti vegna rigninganna
Heyskapur hefur gengið mjög
misjafnlega á austanverðu
Norðurlandi í sumar. Hey hafa
sums staðar hrakist undanfar-
ið, jafnvel vikum saman, og
hafa þeir bændur komist best
frá heyskapnum sem verka
mikið í vothey.
Sigfús A. Jóhannsson, bóndi á
Gunnarsstöðum í Þistilfirði,
sagði að þeir sem síðast byrjuðu
heyskap hefðu yfirleitt orðið
verst úti og sums staðar væri mik-
ið hey eftir á túnum. Túnin væru
Þórshafnarhreppur:
Lætur byggja
leiguíbúðir
Um þessar mundir eru að hefj-
ast framkvæmdir við byggingu
fjögurra lciguíbúða á vegum
Þórshafnarhrepps. Leiguíbúð-
irnar eiga að mæta brýnni
húsnæðisþörf á Þórshöfn og er
hér um umtalsverða fjárfest-
ingu að ræða fyrir sveitarfélag-
ið.
Daníel Árnason, sveitarstjóri á
Þórshöfn, sagði að um væri að
ræða byggingu tveggja parhúsa
en hvort parhús kostar um ellefu
milljónir króna. Kaupfélag Lang-
nesinga er byggingaverktaki að
húsunum en á vegum kaupfélags-
ins hefur alllengi verið rekin
trésmiðja og önnur verktaka-
starfsemi á sviði húsbygginga.
Stærð parhúsanna er 190 fermetr-
ar, hvors fyrir sig.
„Sveitarfélagið hefur hugsað
sér að losa um eldri leiguíbúðir
og koma þeim yfir í eigu einstakl-
inga, annað hvort í gegnum
verkamannabústaðakerfið eða á
annan hátt. Hér eru nokkur hús í
eigu hreppsins sem eru farin að
fullorðnast og þurfa mikið
viðhald. Þeim er betur komið í
einstaklingseign,“ sagði sveitar-
sjórinn.
Áætlað er að bygging parhús-
anna taki um fimmtán mánuði en
samkvæmt því verður hægt að
flytja inn í þau seint á næsta ári.
EHB
blaut eftir stórrigningar í rúmar
þrjár vikur.
Þegar Sigfús var spurður að því
hvernig ástandið væri hjá þeim
sem verst væru staddir sagði
hann: „Heyin eru orðin skemmd
og túnin blaut. Tíminn er að fara
frá okkur því við þurfum í göng-
ur upp úr 10. september. Ef stytt-
ir upp á næstunni getur þetta
bjargast ef vindar verða góðir og
ekki regnblotnar á. Það sem þarf
er sunnanátt, hlýindi og góður
þurrkur.“
Sigfús sagði ástandið mjög mis-
jafnt milli bæja, sumir væru búnir
eins og gengur en aðrir ekki.
Verst væri hversu hrakin heyin
væru orðin því þau hefðu legið
úti í mánuð. Á sumum bæjum í
sjónmáli frá Gunnarsstöðum
hefði verið byrjað að binda þegar
regn skall ofan í og væru þau hey
illa farin. í Öxarfirði og þar vestan
við er ástandið mun betra og er
heyskap þar víðast hvar lokið. I
Þistilfirði vestanverðum tókst
betur til með heyskap en á aust-
anverðu Langanesi.
Seina sprettu í vor má rekja til
ísalaga á túnum sem voru óvenju
mikil síðari hluta vetrar, einkum
á nokkrum bæjum við innanverð-
an Lónafjörðinn sunnan Þórs-
hafnar. EHB
„Nú er komið hrímkalt haust/horfin sumars blíða.“
Unglingalandskeppni í skák:
Sjallinn ★ Stöð 2 ★ Stjaman
í sumarskapi
með liorðlendingum
á föstudagskvöld
Hljómsveitin PA55
leiKur fyrir dansi föstudags-
og laugardagsKvöld
Glæ5ilegur matseðill
ATh! Matargestir borga ekki aðgangseyri
ÐE LÓMLÍ BLÚ BOJ5 í SJALLAMUM
16. og 17. september
Kjallarinn opinn öll kvöld
Sn&áut
Miða- og borðapantanir
í súna 22970.
Islendingar töpuðu
fyrir bandarísku liði
- tveir Akureyringar á meðal keppenda
Nýlokið er í Bandaríkjunum
14 borða landskcppni á skák,
„1988 Chess Saga“, þar sem
unglingalið J. Collins og ungl-
ingalið íslands leiddu saman
hesta sína. Keppnin var haldin
á Concord Resort Hotel við
Kiamesha Lake, 90 mílur
norðan við New York.
Keppendur í íslenska liðinu
voru á aldrinum 9-15 ára og
þeirra á meðal voru tveir Akur-
eyringar; Rúnar Sigurpálsson 15
ára og Þórleifur Karlsson 11 ára.
Tefldar voru fjórar umferðir á
fjórtán borðum. Rúnar tefldi á 1.
borði og fékk 1V4 vinninga af 4
mögulegum, en Þórleifur tefldi á
í júlímánuði gerði Akureyrar-
bær samning við sorphreins-
unarmenn. Var hann að mestu
leyti endurnýjun á samningi
sem verið hafði í gildi í nokkur
ár og var verið að samræma
hann við kjarasamninga kaup-
lega séð.
Að sögn Karls Jörundssonar
var ákvæðisvinna sorphreinsun-
armanna endurskoðuð í vetur.
Vinnumagnið var mælt og svo og
hvort einhver aukning hefði orð-
ið í vinnu frá því yfirferð var síð-
ast mæld. „Ókkur ber að gera
þetta öðru hvoru til að sjá hvort
við erum undirmannaðir. Það
kom í ljós núna að svo er ekki
þannig að sami starfsmannafjöldi
4. borði og fékk 2 v. af 4.
í 1. umferð fékk íslenska liðið
6'/2 vinning en það bandaríska
IVi, í 2. umferð fengu bæði liðin
7 vinninga og í 3. umferð tapaði
íslenska liðið með 6 vinningum
gegn 8. í 4. umferð var staðan
lengi vel jöfn, 4:4, og ætluðu
íslensku strákarnir að reyna að
krækja sér í 9 vinninga og þar
með sigur á mótinu. Leikar fóru
á annan veg, því íslenska liðið
fékk 5 vinninga en það banda-
ríska 9. Lokastaðan varð því 3V/z
v. gegn 24'/2, bandaríska liðinu í
vil.
Landskeppni þessi á sér all-
langa sögu og er þetta í fyrsta
sinn í langan tíma sem íslending-
verður hjá okkur og áður,“ sagði
Karl.
Hann sagði ennfremur að sorp-
hreinsunarmenn hefðu náð góð-
um árangri og væru þeir fljótari
en áður að hreinsa bæinn. „Þeir
eru búnir að ná mjög góðri hag-
ræðingu,“ sagði Karl.
Aðalbreytingin á samningnum
var að bónusprósenta sem var
31% af ákveðnu dagvinnukaupi
fór upp í 35%. Dagvinnukaupið
sem hafði verið miðað við 12 ára
starfsaldur var fært niður í 6 ára
starfsaldur. „Krónutalan sem
bónusinn er miðaður við lækkaði
því en prósentan hækkaði á móti.
Þetta kemur því svipað út og
áður,“ sagði Karl. KR
ar tapa keppninni. Næsta keppni
verður hugsanlega haldin í
Reykjavík í lok ársins, milli jóla
og nýárs. SS
Réttardagar
í Húnaþingi
- göngum flýtt
í sumum hreppum
Nú fer senn að líða að göngum
og réttum og hafa nú flestir
bændur í Húnaþingi lokið hey-
skap og eru búnir að járna
gangnahestana og farnir að
liðka þá. Nokkuð almennur
áhugi virðist vera hjá bændum
fyrir því að flýta göngum og
réttum þó að ekki hafi náðst
um það almenn samstaða.
Að þessu sinni verður það
Auðkúlurétt sem fyrst verður
réttað í, laugardaginn 10. sept.
en samstaða náðist um að flýta
göngum á Auðkúluheiði.
Þann 11. sept. verður svo rétt-
að í Skrapatungurétt, Hrúta-
tungurétt og Miðfjarðarrétt.
Föstudaginn 16. sept. verður
réttað í Valdarásrétt og þann 17.
í Víðidalstungurétt, Stafnsrétt,
Hamarsrétt og Þverárrétt. Síðust
í röðinni verður Hlíðarrétt en þar
verður réttað sunnudaginn 18.
sept.
Stóðréttir fara að heyra fortíð-
inni til þar sem víða hefur verið
bannað að reka hross á afrétti. í
fjallgarðinn á milli Húnavatns-
og Skagafjarðarsýslna er upp-
rekstur hrossa heimill og verður
stóðið réttað í Skrapatungurétt
sunnudaginn 18 sept. og í Hlíðar-
rétt þann 25. fh
Akureyrarbær:
Samningur við sorp-
hreinsimarmenn