Dagur - 02.09.1988, Side 13

Dagur - 02.09.1988, Side 13
hvað er að gerast? I Vinningsbíllinn í happdrætti Bílaklúbbs Akureyrar. Bílaklúbbur Akureyrar: Fer af stað með happdrætti - safnar peningum til húsakaupa Bílaklúbbur Akureyrar var stofn- aður árið 1974 og ári síðar, 1975, tók klúbburinn á leigu húsnæði við Kaldbaksgötu þar sem rekin var sjálfstæð þjónusta fyrir félagsmenn. Upp úr þessu byrj- uðu félagarnir í klúbbnum fljót- lega að hugsa um að eignast eigið húsnæði og árið 1977 rættist sá draumur, því það ár keypti félag- ið húseign við Hafnarstræti 19. í því húsi var komið upp viðgerða- og félagsaðstöðu. Árið 1981 seldi B.A. þetta húsnæði og festi kaup á 107 fer- metra húsnæði að Öseyri 6 c. Nýlega komu upp raddir um að bílaklúbburinn stækkaði enn við sig þar sem þetta húsnæði væri orðið allt of lítið. Þá var ráðist á kaup á húsinu Frostagata 6 b (norðurendi húss Hellusteypunn- ar). Þar sem þetta var mikið stökk og erfitt fjárhagslega fór klúbburinn af stað með happ- drætti til að reyna að afla fjár- muna upp í kaupverðið. . 1. vinningur í happdrættinu er stórglæsileg Toyota Corolla árg. ’89, bíll með öllu, að verðmæti um ein milljón króna. 2.-6. vinn- ingur er stereótæki í bíla frá Audioline, hvert að verðmæti 19 þúsund krónur. Ákveðið var að selja hvern miða á 1000 krónur og gefa þess í stað út færri miða, aðeins 3000 stk. Vinningsmögu- leikar eru því með því besta sem gerist í happdrættum. Þess skal að lokum getið að mönnum standa til boða afnot af húsnæði bílaklúbbsins til þrifa og smáviðgerða gegn vægu gjaldi. Miðar verða seldir í göngugöt- unni, við Hagkaup, verslun KEA Hrísalundi, á bensínsölum, bíla- sölum og einnig verður gengið í hús. Háskólinn á Akureyri: Fundað um framtíðarsvæði á morgun kl. 14.00 Háskólinn á Akureyri og Skjöldur, félag áhugamanna um Háskólann á Akureyri, boða til almenns fundar um framtíðar- svæði Háskólans laugardaginn 3. september. klukkan 14.00 í húsi Verkmenntaskólans við Þórunn- arstræti (gamla Iðnskólahúsinu). Sérfræðingar í skipulagsmálum flytja erindi á fundinum. Að þeim loknum verða almennar umræður. Fjölsækið þennan fund. Skjöldur - félag áhuga- manna um Háskólann á Akur- eyri - Háskólinn á Akureyri. KA-félagar: Hreinsunarferð til Ólafsfjarðar KA hefur ákveðið að efna til félagsferðar til Ólafsfjarðar í því Skákfélag Akureyrar: Sumarhrað- skákmót Sumarhraðskákmót Skákfélags Akureyrar verður haldið í félags- heimili Skákfélagsins, Þingvalla- stræti 18, föstudaginn 2. sept- ember næstkomandi. Mótið hefst kl. 20 og má búast við spennandi keppni. skyni að taka þátt í hreinsunar- starfi í bænum. Félagsmenn eru hvattir til að taka þátt í ferðinni og tilkynna þátttöku í félags- heimilinu í síma 2 34 82. Brottför verður kl. 8 á sunnudagsmorgun. Farið verður á einkabílum frá fé- lagsheimilinu til Dalvíkur og þaðan með skipi til Ólafsfjarðar. Þátttakendur eru beðnir að taka með sér hlífðarföt, stígvél, skóflu og handverkfæri. Auk þess þurfa þeir að taka með sér nesti til dagsins. Lifuni orð Hann kom til eignar sinnar, en hans eigin menn tóku ekki við honum. En öllum þeim, sem tóku við honum, gaf hann rétt til að verða Guðs börn, þeim, er trúa á nafn hans." Jóh. 1. 11-12. Jesús kom til ísraelsþjóðar- innar sem kölluð hefur verið Guðs útvalda þjóö. „En hans eigin menn tóku ekki við honum." Honum var ekki tekið eins og vænta mátti; hann var ekki viðurkenndur af yfirvöld- um þess tíma né ríkjandi trú- arskoðunum. Hann kom sem frelsari til að lækna hin and- legu mein. En væntingar þeirra voru bundnar við sterk- an veraldlegan leiðtoga, sigur- sælan stjórnanda sem reist gæti þjóðina úr stjórnmálalegri niðurlægingu. Hann sagði: „Mitt ríki er ekki af þessum heimi." Jóh. 18. 36. Kenning hans fékk ekki rúm hjá þeim, þegar á heildina er litið. Þeir voru ekki reiðubúnir að hlýða á hinn auðmjúka fræðara sem kenndi Guðs vegu, reyndar á nýjan og byltingarkenndan hátt. Jesús sagðist hafa vald til að fyrirgefa syndir. Hann boðaði iðrunar- og afturhvarfs-' boðskap. Hann kenndi fólkinu að elska jafnvel óvini sína. En þessi boðskapur fékk ekki hljómgrunn hjá fjöldanum. „En öllum þeim, sem tóku við honum.“ Það voru þeir ein- staklingar sem létu sannfær- ast, að hann væri heilagur sonur Guðs. Máttarverk hans og kenning báru því vitni. Þeir sem tóku viö honum, eignuð- ust lífið í Guöi, sem er lifandi samfélag við hann. Þeir fengu rétt til að kallast Guðs börn; rétt til að tilheyra Guði og ávarpa hann sem sinn himn- eska föður. Þessi réttindi eign- aðist sérhver fyrir trúna á Krist Jesú og fyrir milligöngu hans. Hver einstaklingur þurfti að taka afstöðu til hans. Eins þurfum við að taka afstöðu til hans, annaðhvort tökum við á móti honum sem frelsara og leiðtoga, eða við höfnum honum. í Biblíunni er Kristur m.a. nefndur „hrösunarhella" eða „ásteytingarsteinn", það er einmitt í afstöðunni til Krists sem svo márgir hrasa. Því svo stendur í Ritningunni: „Sjá, ég set hornstein í Síon, valinn og dýrmætan. Sá sem trúir á hann mun alls eigi verða til skammar. Yður sem trúið er hann dýrmætur, en hinum vantrúuðu er steinninn, sem smiðirnir höfnuðu, orðinn aö hyrningarsteini og: Ásteyting- arsteini og hrösunarhellu." 1. Pét. 2. 6-8. Sí iseptember Í98á - BkóOR - fá Kennsla á hljómborð og rafmagnsorgel Innritun í síma 24769 eftir kiukkan 17.00. Orgelskóli Gígju. Frá Ólafsfirði S M Þ M F 19.30 8.30 8.30 F 8.30 Frá Dalvík 20.00 9.00 9.00 9.00 9.00 9.00 15.00 Frá Akureyri 21.00 12.30 12.30 12.30 12.30 12.30 17.00 Ferðir á mánud., miðvikud. og kl. 12.30 á föstudögum aðeins til Dalvíkur. ÆVAR KLEMENSSON. Nýr sölutími kjörbúða KEA frá 1. september 1988 Hrísalundur 5 Mánud., þriðjud. og miðvikud........................... kl. 09-18 Fimmtud................................................ kl. 09-19 Föstud................................................. kl. 09-19 Laugard................................................ kl. 10-16 Byggðavegur 98 Mánud., þriðjud., miðvikud., fimmtud. og föstud........ kl. 09-20 Laugard. og sunnud..................................... kl. 10-20 Sunnuhlíð 12 Mánud., þriðjud., miðvikud., fimmtud. og föstud....... kl. 09-20 Laugard............................................... kl. 10-20 Höfðahlíð 1 Mánud., þriðjud., miðvikud., fimmtud. og föstud. kl. 09-18 Brekkugata 1 Mánud., þriðjud., miðvikud., fimmtud. og föstud. kl. 09-18 Ath. Aðrar kjörbúðir hafa óbreyttan opnunartíma Kjövbúðir KEA Allar auglýsingar sem þarf að vinna sérstak- lega, þurfa að berast til auglýsingadeildar tveimur til þremur dögum fyrir birtingu. Auglýsingadeild Dags. Illl framsóknarmenn I|éI AKUREYRI I Bæjarmálafundur mánudaginn 5. september kl. 20.30 aö Hafnar- stræti 90. Fundarefni: Dagskrá næsta bæjarstjórnarfundar. Önnur mál.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.