Dagur


Dagur - 02.09.1988, Qupperneq 14

Dagur - 02.09.1988, Qupperneq 14
14 - DAGUR - 2. september 1988 Nýr opnunartími Eftir 1. sept. verður versiun HAGKAUPS opin sem hér segir: Akureyri Mánud. -miðvikud. 900-1800 Fimmtud.-föstud. 900-1900 Laugard. 1000-1600 HAGKAUP Akureyri HAPPDRÆTTI Bílaklúbbs Akureyrar 1. vinningur: Toyota GTI árgerð 1989 með öllu. Heildarverðmæti kr. 998.300,00. 2.-6. vinningur: Audioline sterio bíltæki með hátölurum og ísetningu. Heildarverðmæti kr. 19.360,00. Upplag miða er aðeins 3000 stk. og kostar hver miði kr. 1.000,00. Vinningar verða dregnir út 1. október 1988. Allar nánari upplýsingar eru gefnar hjá Bílaklúbbi Akureyrar, Frostagötu 6 b eða í síma 96-26450. IíCióðbyCqian FM 101,8 Happdrættismiðar eru seldir við Hagkaup, Hrísalund og í göngugötunni. Útför eiginmanns míns og fööur okkar, SIGURBJÖRNS V. ÞORSTEINSSONAR, húsasmiðs, Skarðshlíð 25a, Akureyri, fer fram frá Glerárkirkju þriöjudaginn 6. sept. kl. 13.30. Margrét Sigurðardóttir og börn. Fæddur 21. desember 1897 - Dáinn 27. ágúst 1988 Gamall maður er til moldar geng- inn eftir dáðríkt og fjölbreytilegt starf í þágu samborgara sinna á Akureyri og í Eyjafirði, rúmlega níræður að aldri. Fer útför hans fram í dag, föstudag, frá Akur- eyrarkirkju. Kristján var fæddur í Grjótár- gerði í Fnjóskadal, sonur hjón- anna Lovísu Sigurbjargar Guð- mundsdóttur frá Breiðabóli á Svalbarðsströnd og Rögnvaldar Sigurðssonar Péturssonar frá Grjótnesi á Sléttu. Þegar Krist- ján var barn að aldri fluttu for- eldrar hans að Fífilgerði í Kaup- angssveit og þar ólst hann upp í hópi sex systkina, er upp komust. Ungur að árum hóf Kristján múraranám hjá Sveinbirni Jóns- syni, þeim mikla athafnamanni og vann hjá honum m.a. við byggingu verslunarhúss KEA við Kaupangsstræti í kringum 1930. Ekki varð þó múraraiðn hans ævistarf, heldur hneigðist hugur hans með aldrinum að garð- og blómarækt og þegar bróðir hans Jón Rögnvaldsson hóf brautryðj- endastarf sitt í skógrækt og öðr- um ræktunarmálum gerðist Kristján samverkamaður hans í öllum þeim málum, sem Jón tók sér fyrir hendur, fyrst á bújörð hans í Fífilgerði, en síðar við blómabúina Flóru á Akureyri er þeir bræður áttu sameiginlega, en þar var Kristján verslunarstjóri í mörg ár uns hún var lögð niður. Mest varð þó samstarf þeirra við Lystigarðinn á Akureyri, þegar Jón tók við honum 1954 og starf- aði Kristján með bróður sínum þar óslitið til 1970. Hið merkasta í starfi þeirra bræðra, fyrir utan trjárækt, mun hafa verið söfnun íslenskra jurta og blómategunda, en Jón byrjaði að efna til slíks grasgarðs íslensku flórunnar snemma á sín- um búskaparárum og kom upp góðu safni þar, sem hann svo flutti með sér í Lystigarðinn á Akureyri er hann tók við honum og sem nú er varðveitt þar, að því er ég best veit, sem fyrsti gras- garður hér á landi yfir íslenskar jurtir. Við allt það starf var Kristján honum ómetanleg stoð og stytta, svo mikill blómarækt- armaður sem hann var og um árabil fór hann um fjöll og firn- indi á sumrin og safnaði jurtum, en á veturna vann hann að merk- ingu þeirra og greiningu. Hann fór einnig til Grænlands til að safna þar heimskautaplöntum. Munu þær plöntur, er hann safn- aði þar, vera enn að finna í Lysti- garðinum. Ekki eru nema fá ár síðan hann fór í síðustu ferð sína í leit að íslenskum jurtum. Fór hann þá suður í Öræfi og hélt vestur eftir Suðurlandi og stans- aði ekki fyrr en undir Eyjafjöll- um. Fékk hann þá dágóða viðbót við safn þeirra bræðra. Þannig hefur Kristján, þótt óskólageng- inn sé, lagt sitt af mörkum til efl- ingar íslenskum náttúrufræðum. Þetta starf hans leiddi til þess, að hann fór að starfa fyrir Náttúru- gripasafnið á Akureyri. Var hann safnvörður þess í mörg sumur og vann margt fleira fyrir safnið og er mér kunnugt um að forráða- menn þess höfðu miklar mætur á Kristjáni fyrir trúmennsku hans og samviskusemi í öllum störfum fyrir safnið. En það voru fleiri söfn en Nátt- úrugripasafnið, sem nutu góðs af verkum Kristjáns. Hann var um fjölda ára safnvörður Matthíasar- safns á Sigurhæðum, leit bæði eftir húsi og lóð af stakri alúð og umhyggju. Og þegar Davíðshús var gert að safni tók Kristján það einnig að sér og gerðist safnvörð- ur þess, en þeir voru miklir vinir og margar ánægjustundir átti ég með þeim heima hjá Kristjáni, því til hans kom Davíð oft. Davíðshúsi fylgdi stór garður og það var sjálfgert að Kristján sæi einnig um hann og af ekki minni kostgæfni en safninu innanhúss. Og kannske var það hans ánægju- legasta verk að sjá vel um Davíðshús og garð á meðan hann gat. Nú er nokkuð um liðið frá því Kristján hætti allri safn- vörslu. En það var fleira, sem Krist- jáni var til lista lagt, en getið er hér að framan. Hann var mjög músíkalskur maður og þráði mjög á yngri árum að fara í söngnám, því hann hafði ágæta söngrödd, en aðstæður fyrir slíkt nám voru ekki fyrir hendi hér í þá daga. Aftur á móti eignaðist hann snemma orgel og varð ágæt- is orgelleikari, mest af sjálfsdáð- um, það svo, að hann var í ára- tugi organisti í kirkjum hér í Eyjafirði, m.a. í sóknarkirkju sinni, Kaupangskirkju. Og lengi fór hann með presti okkar þá, sr. Pétri Sigurgeirssyni, núverandi biskupi, út í Grímsey til að spila þar og stjórna söng við guðsþjón- ustur. Kristján var mikill umhverf- isverndarmaður. Hann bar mikla umhyggju fyrir öllu lífi í náttúr- unni, bæði stóru og smáu. Bar garðurinn við hús þeirra bræðra að Barðstúni 3, sem hann sá um, þess vott að þar var vel hugsað um blóm og trjálundi. Hann gift- ist aldrei né átti afkomendur, en hann átti alltaf góða íbúð og vel búna listrænum munum hér á Akureyri. Þar var alltaf gott að koma því þar voru listir í háveg- um hafðar, bæði tónlist og málara- list, því Kristján átti það til að bregða fyrir sig litum og pensli og alltaf var hann reiðubúinn að grípa í hljóðfærið. Áttum við félagar hans þar margar glaðar og góðar stundir. Kveð ég svo Kristján vin minn og þakka hon- um hin gömlu og góðu kynni. Þar var alltaf heilsteyptur og heiðar- legur maður á ferð. Jónas Thordarson. Birting afinælis- og minningargreina Dagur tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjalds- laust. Tekið er við greinunum á ritstjórn blaðsins að Strandgötu 31, Akureyri svo og á skrifstofum blaðsins á Blönduósi, Húsavík, Reykjavík og Sauðárkróki. Áthygli skal vakin á því að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í fimmtudagsblaði, að berast síðdegis á þriðjudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. Þá eru minningargreinar ekki birtar í laugardagsblaði. Meginreglan er sú að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Heimshlaupið ’88: Ein mesta íjársöfnun sem farið hefur fram Rauði kross íslands mun standa fyrir svokölluðu Heimshlaupi ’88 þann 11. sept- ember næstkomandi. Hlaup þetta er liður í einni mestu fjársöfnun sem fram hefur far- ið þ.e. Sport aid ’88 og er til- gangurinn að vekja athygli á slæmri stöðu barna víða í heiminum. Gert er ráð fyrir að á milli 20 og 30 milljónir manna um allan heim taki þátt í hlaupinu. Á íslandi er markmiðið að a.m.k. 15.000 manns taki þátt og vonast er til að bæði börn og fullorðnir leggi málinu lið. Tekjuöflunin hér á landi fer fyrst og fremst fram með sölu þátttökunúmera sem fengin verða hjá Sport aid samtökunum í London. Samkvæmt reglum samtak- anna sem standa fyrir hlaupinu er gert ráð fyrir að 80% söfnunar- fjárins renni til aðstoðar börnum utaniands og þá sérstaklega í þróunarlöndunum. Þau 20% sem eftir eru renna síðan til innanlandsverkefna og á íslandi verða þeir fjármunir notaðir til fíkniefnavarna á vettvangi barna og unglinga. Hlaupið sem hefst kl. 15.00 að heimstíma (G.M.T.) verður ræst við byggingu Sameinuðu þjóð- anna í New York að viðstöddum tveimur börnum frá hverju þátt- tökulandi. Gert er ráð fyrir að 14 ára stelpa og strákur sem talist geta verðugir fulltrúar íslenskrar æsku fari fyrir íslands hönd. KR

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.