Dagur


Dagur - 02.09.1988, Qupperneq 16

Dagur - 02.09.1988, Qupperneq 16
DACKTR Akureyri, föstudagur 2. september 1988 Haldið veisluna eða fundinn í elsta húsi bæjarins Afmælisveislu ★ Giftingarveislu ★ ★ Erfidrykkju ★ Kaffisamsæti ★ Fundi og hvers konar móttökur. Allar nánari upplýsingar gefa Hallgrímur eða Stefán í síma 21818. Akureyri: Ekið á átta ára dreng á reiðhjóli Skömmu fyrir ki. 16 í gær, var ekið á átta ára dreng á reið- hjóli á gangbraut við Hörgár- braut, rétt norðan við Glerár- brú. Drengurinn var fluttur með sjúkrabifreið á Slysadeild Fjórðungssjúkrahússins en meiðsli hans voru ekki telj- andi. Bifreið á hægri akgrein stopp- aði við gangbrautina til þess að hleypa tveimur drengjum á hjól- um yfir en bíll sem kom aðvíf- andi á vinstri akrein ók á annan þeirra. Þá ók bifreið á brunahana við Hlíðarbraut í gær og auk þess urðu tveir minniháttar árekstrar til viðbótar að sögn lögreglunnar á Akureyri en eignatjón var lítið. -KK Verkmenntoskólinn settur Verkmenntaskólinn á Akureyri var settur við hátíðlega athöfn í Akureyrarkirkju í gær. Fjölmenni var við setning- una og nemendur greinilega hressir og endurnærðir eftir leik og starf sumarsins. A innfelldu myndinni er Baldvin Bjarnason skólameistari VMA í ræðustól. Mynd: tlv Steinullarverksmiðj an: 80% söluaukning erlendis - einnig mikil sala á innanlandsmarkaðinum Skipuð hefur verið nefnd á vegum Landssambands kart- öflubænda, Stéttarsambands bænda og landbúnaðarráðu- neytisins til þess að vinna að heildarendurskipulagningu Hagsýslustjóri Akureyrarbæjar: Engin umsókn kominenn - umsóknarfrestur rann út í byrjun ágúst Ennþá hefur enginn sótt um stöðu hagsýslustjóra hjá Akur- eyrarbæ. Umsóknarfrestur rann út í byrjun ágúst en núverandi hagsýslustjóri, Úlf- ar Hauksson hættir 1. nóvem- ber nk. Karl Jörundsson starfsmanna- stjóri Akureyrarbæjar sagði bæjarstjóra vera að vinna í að fá hæfan mann til þess að sækja um stöðuna. „Það vonandi skilar árangri því eins og er er ekkert sem liggur fyrir,“ sagði Karl. „Það er mjög slæmt og baga- legt að enginn skuli hafa sótt um stöðuna. Þegar við fyrst aug- lýstum hana lausa og fundum að einhver tregða var ákváðum við að auglýsa aftur en allt kom fyrir ekki,“ sagði hann. Karl sagðist þrátt fyrir allt ekki hafa trú á öðru en að málið leyst- ist einhvern veginn. KR Mikil minkaveiði hefur verið í Þingeyjarsýslum í sumar og er orsökin talin vera mikil frjó- semi dýranna og hve vel þeim tókst að koma hvolpum á legg í vor vegna góðrar tíðar. Feðgarnir Vilhjálmur Jónasson og Baldur Vilhjálmsson á Sílalæk í Aðaldal hafa veitt 336 minka í kartöfluræktunar á landinu. Nefndin hefur ekki komið saman enn en áætlað er að það verði á næstu dögum. Ólafur G. Vagnsson ráðunaut- ur Búnaðarsambands Eyjafjarð- ar er formaður nefndarinnar skipaður af landbúnaðarráðu- neytinu. Hann sagði verkefni nefndarinnar vera að semja drög að reglugerð um stjórn og skipu- lag kartöfluræktarinnar. „Þetta er framhald af ákvæði í búvöru- lögunum svokölluðu um að ef samstaða er meðal framleiðenda í grein búvöruframleiðslu þá er hægt að óska eftir því við land- búnaðarráðuneytið að það setji ákveðna reglugerð um stjórnun á framleiðslu í greininni,“ sagði hann. Ólafur taldi mjög nauðsynlegt að skipulagning kæmist á þessi mál því allt væri að fara í kalda kol. „Afkoma kartöflubænda hefur verið afleit og dreifingar- fyrirtækin sem bændur hafa verið með standa mjög höllum fæti. í heild er kerfið mjög illa statt vegna skipulagsleysis og ekki hef- ur verið um neina samstöðu að ræða hjá bændum því mikið hef- ur verið um undirboð og slíkt. Menn hafa farið illa með sig á þessu og gæti því reynst erfitt að ná þeim saman um ákveðnar til- lögur og leiðir,“ sagði Ólafur. Vonast er til að hægt verði að leggja drögin fram fyrir vorið þannig að þau gætu tekið gildi, ef mönnum sýnist svo, áður en sett verður niður næsta vor. KR sumar og er það með mesta móti sem þeir hafa veitt á einu sumri. Þeir hafa stundað minkaveiðar fyrir mörg sveitarfélög í sumar, flest í Suður-Þingeyjarsýslu en einnig sveitarfélög í Norðursýsl- unni og Eyjafjarðarsýslu. Er Dagur innti Vilhjálm eftir frétt- um af veiðunum sagði hann að stöðugt væri að aukast að sveitar- „Þaö er mikil og góð sala á innanlandsmarkaðinum núna og síðasti mánuður hjá okkur var metmánuður,“ sagði Þórð- ur Hilmarsson framkvæmda- stjóri Steinullarverksmiðjunn- ar þegar blaðið hafði samband við hann. Fyrstu sex mánuði þessa árs jókst sala á innan- landsmarkaði um 15% á milli ára og um 80% á erlendum markaði. „Það má segja að þetta sé allt á réttu róli. Ef ríkisstjórnin fer niðurfærsluleiðina þá verðum við heldur hressari, því hún kemur eins vel við okkur og gengisfell- ing kæmi illa. Það er erfitt fyrir fyrirtæki eins og Steinullarverk- smiðjuna, sem er með mikið af erlendum lánum, að búa við miklar gengissveiflur. Stöðug- leiki í efnahagslífinu almennt, er félög hefðu samvinnu um eyð- ingu á mink. Slíkt fyrirkomulag virtist gefa besta raun, bæði fyrir sveitarfélögin og veiðimennina. Betri árangur yrði af veiðunum með þessu fyrirkomulagi og veiðimennirnir gætu frekar stundað veiðarnar sem atvinnu og komið sér upp vel þjálfuðum hundum. IM og verður lykilatriði fyrir okkur,“ sagði Þórður. Sem fyrr segir var 80% sölu- aukning á útflutningi fyrstu sex mánuði ársins og stafar það af aukinni sölu á Færeyjamarkaði og lausullarsölu til Finnlands, sem hófst sl. vor. Þá fór fyrsta sending á Bretlandsmarkað í júní sl., alls 65 tonn og að sögn Þórðar er beðið eftir því hvernig sá markaður mun koma út og þróast. Einnig hefur verið flutt steinull til Hollands og til Græn- lands í gegnum íslenska verk- taka. „Það er heilmikið á döfinni hjá okkur í sambandi við innanlands- markaðinn. Við erum að gefa út á næstunni mjög viðamikinn bækling um hljóðeinangrun. Hann er það viðamikill að það eru horfur á að hann verði notað- ur til kennslu í skólum, hugsan- lega allt upp á háskólastig. Við vinnum þetta í samvinnu við Rannsóknastofnun byggingariðn- aðarins og erum með þessu að vekja athygli á einstökum hljóð- einangrunareiginleikum steinull- arinnar. Þessi bæklingur kemur líklega út í næsta mánuði og er það helsta hjá okkur í útgáfumál- um,“ sagði Þórður. Þá benti Þórður á að verk- smiðjan er búin að hanna tvær nýjar afurðir, múrplötur til að nota undir múr innanhúss og síð- an grunnplötur til að nota undir steyptar plötur í grunnum. „Þetta eru þær vörunýjungar sem við erum að fara af stað með núna og þær lofa góðu,“ sagði Þórður að lokum. Sem kunnugt er hættir Þórður Hilmarsson sem framkvæmda- stjóri Steinullarverksmiðjunnar nú um mánaðamótin og við af honum tekur Einar Einarsson sem verið hefur framleiðslustjóri verksmiðjunnar frá upphafi. Þórður tekur við forstjórastöðu hjá Glóbusi hf. í Reykjavík. -bjb Foxtrot í Borgarbíói Byrjað var að sýna íslensku spennumyndina Foxtrot í Borgarbíói á Akureyri í gær- kvöld. Myndin var frumsýnd í Reykjavík fyrir um viku og hefur aðsókn þar verið með besta móti. Myndin fjallar um ferð tveggja hálfbræðra frá Reykjavík út á land og á leiðinni koma fyrir atburðir sem enginn reiknaði með. Frostfilm framleiðir myndina í samvinnu við tvö norsk fyrirtæki Filmeffect og Vikingfilm. Hand- ritshöfundur er Sveinbjörn I. Baldvinsson, leikstjóri Jón Tryggvason og stjórnandi kvik- myndaupptöku Karl Óskarsson. Framkvæmdastjórn er í höndum Hlyns Óskarssonar og leik- myndina gerði Geir Óttar. KR Þingeyjarsýslur: Yfír 300 minkar felldir Nefnd um skipulag í kartöflurækt: „Aíkoma kartöflubænda heftiryerið afleit“ - segir Ólafur G. Vagnsson formaður nefndarinnar

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.