Dagur - 07.09.1988, Qupperneq 1
Nýr hagsýslu-
stjóri
Bæjarráð Akureyrarbæjar hef-
ur ráðið nýjan hagsýslustjóra,
Dan Jens Brynjarsson.
Aðeins ein umsókn barst um
starf hagsýslustjóra og var hún
frá Dan Jens. Hann er viðskipta-
fræðingur að mennt og mun
væntanlega hefja störf þann 1.
október nk. VG
Stokkfiskur:
Kröfur
upp á120
xnilljómr
Alls hefur verið lýst kröfum að
upphæð um 120 milljónir
króna í skiptabú Stokkfisks á
Laugum. Asmundur S. Jó-
hannsson bústjóri skiptabúsins
sagðist ekki vita hvort fleiri
kröfur væru væntanlegar, en
hann var að kanna hve miklar
eignir fyrirtækið ætti á móti.
Byggðastofnun festi kaup á
þrotabúi Stokkfisks en Fiskiðju-
samlag Húsavíkur hefur séð um
rekstur fyrirtækisins frá því það
var lýst gjaldþrota. Sem kunnugt
er hefur Stokkfiskur framleitt
þurrkaða þorskhausa til útflutn-
ings.
Nýlega var stofnað nýtt hluta-
félag um reksturinn, Laugafiskur
hf., og er meiningin að halda
starfseminni áfram með auknu
hlutafé. Tryggvi Finnsson, fram-
kvæmdastjóri Fiskiðjusamlags-
ins, er einnig framkvæmdastjóri
nýja hlutafélagsins. SS
Grunur leikur á að miklar steypuskemmdir geti verið í brúnni yflr Krossastaðaá.
Mynd: TLV
Grunur um steypuskemmdir
í nýrri brú í Hörgárdal
- borkjarnar úr brú yfir Krossastaðaá sendir til Reykjavíkur til rannsóknar
Rannsóknastofnun byggingar-
iðnaðarins í Keldnaholti hefur
nú til athugunar borkjarna úr
brú sem steypt var í sumar yfir
Krossastaðaá í Hörgárdal.
Sýnishorn voru tekin úr brúnni
Bæjarstjórn Akureyrar:
Deilt um umboðslaun til
forstöðumanns Skíðastaða
Til allsnarpra skoðanaskipta
kom í gær í bæjarstjórn Akur-
eyrar milli bæjarfulltrúanna
Sigríðar Stefánsdóttur og Gísla
Braga Hjartarsonar vegna
kaupa á snjótroðara til
Skíðastaða, en í bókun bæjar-
ráðs frá 1. september er lagt til
að íþróttaráði verði heimilað
að festa kaup á snjótroðara
fyrir 6,6 milljónir króna.
Sigríður benti á að hún efaði
ekki þörfina fyrir snjótroðara í
Hlíðarfjall en slæmt væri að
þurfa að taka ákvörðun um svo
stóra upphæð skömmu áður en
vinna við fjárhagsáætlun hefst,
einkum þegar ýmsar blikur eru á
lofti um erfiðan fjárhag sveitar-
félagsins. Verkefnin væru mörg
og gæti hún talið upp tugi mála
sem hún vildi geta ráðstafað
þessu fé til fyrir bæinn.
Sigríður sagði ennfremur: „Ég
á mjög erfitt með að standa að
þessum lið nema ég fái sönnun
fyrir því að umboðslaun vegna
snjótroðarans komi til lækkunar
á verði hans. Þetta er kannski
mál sem þykir ekki við hæfi að
ræða í bæjarstjórn en ég tel ekki
annað hægt. Það er óþolandi að
Frá Skíðastöðum.
við kaup á tækjum í Hlíðarfjall
skuli koma í ljós að þegar búið er
að leggja til kaup á tæki af ákveð-
inni gerð komi í Ijós að umboðs-
maður þess tækis er starfsmaður
íþróttaráðs." Átti hún við ívar
Sigmundsson, forstöðumann
Skíðastaða.
Gísli Bragi Hjartarson bað
næstur um orðið. Bað hann við-
stadda að taka vel eftir því að
fulltrúi Alþýðubandalagsins væri
á móti snjótroðarakaupunum.
Sannleikurinn væri að ef ekki
hefði verið ákveðið að kaupa
troðara nú hefði ekki verið hægt
að fá hann fyrir skíðavertíðina.
Hvað umboðslaun varðaði af
tækjum í Fjallið hefði forstöðu-
maðurinn ekki tekið þau. „Ég
veit að ívar hefur tekið umboðs-
laun af tækjum sem Reykjavíkur-
borg hefur keypt og ég sé engan
mun á þessu og að maður sem sit-
ur sem byggingafulltrúi teikni
fyrir opinn markað." Snjótroð-
arakaupin voru samþykkt með
níu atkvæðum. Fulltrúar Alþýðu-
bandalags sátu hjá. EHB
á föstudag og er niðurstöðu að
vænta innan skamms. Grunur
leikur á að steypan í brúnni
standist ekki þær kröfur sem
gerðar eru til slíkra mann-
virkja.
Rögnvaldur Gunnarsson,
tæknifræðingur hjá brúadeild
Vegagerðar ríkisins í Reykjavík,
sagði að í sumar hefðu verið
steyptar upp tvær brýr í Hörgár-
dal. Önnur brúin er yfir Fossá en
hin yfir Krossastaðaá. Sýnishorn
úr steypunni voru tekin eins og
venjulegt er og styrkur þeirra
kannaður. Kom þá í ljós að sýnis-
horn úr brúnni yfir Krossastaðaá
stóðust ekki fyllilega steinsteypu-
staðla. Því þótti þörf á nákvæm-
ari rannsóknum og voru bor-
kjarnar úr brúnni sendir suður.
Brúin sem hér um ræðir er lítil,
ekki nema fimm metra löng.
„Það er verið að rannsaka
steypuna og ég get ekkert sagt
fyrr en það er búið. Það kom í
ljós að prufur úr annarri brúnni,
brúnni yfir Krossastaðaá, bentu
til efasemda um styrkinn í steyp-
unni. Sýnishorn úr brúnni á
Fossá stóðust allar kröfur." sagði
Gunnar Rögnvaldsson.
Tæknifræðingar Vegagerðar-
innar vildu ekki segja til um af
hvaða orsökum steypan væri ekki
nægilega sterk í annarri brúnni.
Steypusýnishorn eru brotin
u.þ.b. mánuði eftir að þau eru
tekin. Verktakinn, Konráð Vil-
hjálmsson frá Brekkum í Skaga-
firði, hefur að sögn Vegagerðar-
innar fengið greitt fyrir þann
hluta verksins sem þegar hefur
verið lokið. Ýmislegt bendir til
að endanlegum frágangi við
brúna verði frestað þar til mál
þetta liggur ljósar fyrir. EHB
Morgunblaðið:
Bæjarstjóri
kvartar
Sigfús Jónsson, bæjarstjóri á
Akureyri, sagði á bæjarstjórn-
arfundi í gær að hann hefði
orðið fyrir „mjög óheiðarlegri
blaðamennsku frá hendi blaða-
manns Morgunblaðsins á
Akureyri“. Væri þetta því
miður ekki í fyrsta sinn sem
hann hefði orðið fyrir slíku.
Bæjarstjóri lét dreifa ljósriti af
Akureyrarsíðu Morgunblaðsins
frá því í síðustu viku á fundinum.
Sagði hann að hringt hefði verið
til sín að kvöldlagi og sér tjáð að
blaðamaður Morgunblaðsins á
Akureyri hefði tekið viðtal við
Björn Jósef Arnviðarson um það
að sá síðarnefndi væri því fylgj-
andi að Akureyrarbær seldi eign-
arhlut sinn í Landsvirkjun. Beðið
hefði verið um athugasemd
bæjarstjóra.
Bæjarstjóri sagðist hafa heimil-
að að eftir sér væri höfð ákveðin
stutt setning en síðan hefði verið
blandað inn í greinina óskyldum
málum og sér gerðar upp skoðan-
ir. Svokallað viðtal við Björn
Jósef hefði síðan verið minnsti
hluti greinarinnar sem birtist.
EHB