Dagur - 07.09.1988, Page 2

Dagur - 07.09.1988, Page 2
2 - DAGUR - 7. september 1988 Menntaskólinn á Akureyri: Rætt við bæjarráð um ný- framkvæmdir Jóhann Sigurjónsson, skóla- mcistari Menntaskólans á Akureyri, hefur staðið í við- ræðum við bæjarráð vegna nýrra laga um framhaldsskóla í kjölfar breytinga á verkaskipt- ingu ríkis og sveitarfélaga. Ríkið sér um rekstur skólanna en sveitarfélög eiga að greiða 40% á móti ríkinu við stofn- kostnað framhaldsskóla. Björn Jónasson staðarstjóri Krafttaks hf. fylgist með hreinsun á svæðinu við gangaopið, þar sem skriðan féll og setti eina gröfu nánast á kaf í drullu. Verið var að hreinsa frá henni. Viima við göngin tefst um hálían mánuð“ - segir Björn Jónasson staðarstjóri Krafttaks hf. við Múlagöngin Verktakinn við Ólalsfjarðar- göngin, Krafttak hf., varð fyrir miklu tjóni þegar stór skriða féll á það svæði sem búið var að gera við gangamunnann Ólafsfjarðarmegin. Stór grafa, 52ja tonna, varð undir skrið- unni og fór nánast í kal'. Er tal- ið að um 20 þúsund rúmmetrar af aur og drullu hafi verið í skriðunni, þannig að hún hefur ekki verið nein smásmíði. Byrjað var að hreinsa svæðið í síðustu viku og mun skriðan tefja verkið um hálfan mánuð. Krafttak hf. er sameignarfyrir- tæki Norðmanna og íslendinga og sérhæfir sig í jarðgangagerð. Það var stofnað árið 1984 í kring- um göngin í Blönduvirkjun. Framkvæmdir við göngin í gegn- um Múiann hófust í byrjun ágúst og byrjuðu á vegagerð og því að koma upp aðstöðu. Fljótlega var farið að sprengja í bergið við munnann og þegar skriðan féll var búið að sprengja fram urn 2 þúsund rúmmetra af grjóti. Undirverktaki við göngin er Ell- ert Skúlason hf. frá Njarðvík, Húsavfk: Klæðing á götur Unnið hefur verið við gatna- gerðarframkvæmdir við sex götur á Húsavík í sumar. Klæðing var sett yfir lélegt olíumalarlag á þrem götum og fyrra klæðingarlagið sett á þrjár götur sem ekki hefur ver- ið lagt bundið slitlag á áður, síðara lagið verður sett á þess- ar götur um næstu mánaða- mót. Sigurður Hafsteinsson, bæjar- tæknifræðingur sagði í samtali við Dag að ástæðan fyrir að klæð- ing hefði verið valin á göturnar sé hvað miklu ódýrari hún er en malbik, kostnaður við klæðingu sé innan við 30% af malbikunar- kostnaði. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem kiæðing er notuð við gatnagerð á Húsavík því fyrir nokkrum árum var slitlag af þeirri gerð lagt á Þverholt. Það eru Laugarbrekka, Stóri- garður og Miðgarður sem fengu lag af klæðingu yfir lélegu olíumölina sína í sumar. Skipt var um jarðveg í Útgarði og klæðing lögð á götuna og einnig á Sólvelli og Iðavelli. í krikann við Suðurgarðinn var sett á klæðing til bráðabirgða en steypt verður yfir hana síðar. Á fjárhagsáætlun Húsavíkur- bæjar eru jarðvegskipti og lagnir við Brávelli og gangstéttagerð við Garðarsbraut sem fyrirhugað er að vinna í sumar. IM sem sér um alla vegagerð. Gangagerðin er því eingöngu verkefni Krafttaks. Staðarstjóri Krafttaks hf. er Björn Jónasson jarðfræðingur. „Samkvæmt þeirri áætlun sem var í gildi þegar skriðan féll, þá ætluðum við að sprengja fyrstu eiginlegu sprenginguna inn í fjall- ið þann 12. september, en það er alveg ljóst að það tefst um 10 daga til hálfan rnánuð," sagði Björn. Við enda ganganna í gegnum Múlann verður byggður um 160 metra steinsteyptur vegskáli og sagði Björn að þar með væri ekki hætta á snjóflóðum eða aurskrið- um við gangaopin. „Það er eins og gengur þegar eitthvað kemur upp á að menn fara að viðra ýmsa möguleika. Menn hafa rætt um ýmislegt, bæði fyrir og eftir skriðuna, og spáð í spilin. Þeir hafa verið hér á fundum með okkur frá Vegagerðinni og við erum komnir á fullt aftur og höldum ótrauðir áfram. Tíminn líður og það er að koma vetur eins og fjöllin hafa gefið til kynna,“ sagði Björn. Krafttak hefur komið upp stór- um vinnubúðum við enda bæjar- ins, þar sem starfsmenn munu dvelja. Þegar mest verður munu um 45 manns vinna við göngin, en að staðaldri verða það um 20- 25 manns. Unnið verður á vökt- um við göngin, tvisvar sinnum tíu tíma vaktir og fjögurra tíma stopp um hánóttina. „Það þýðir það að við verðum alltaf að vera með eina frívakt, þannig að við þurfum mikið lið til þess að dekka þetta vinnufyrirkomulag. Síðan erum við með ákveðinn fjölda sem er alltaf á dagróli, s.s. í þrifum, eldhússtörfum og verk- stæðisvinnu,“ sagði Björn. Göngin í gegnum Múlann verða rúmir 3 kílómetrar að lengd og verða lengstu göng á landinu. Stefnt er að því að þau verði tilbúin 1991 og þá verður án efa stór stund hjá Olafsfirðing- um. -bjb „Ég var að leita eftir viljayfir- lýsingu bæjarstjórnar um það að ef til nýframkvæmda kæmi þá myndi Akureyrarbær standa við sitt. Hins vegar er ekki ljóst hvort Akureyrarbær mun síðan leita eftir samstarfi við önnur sveitar- félög. Þetta eru engar stórupp- hæðir, enda fær bærinn fullmót- aða stofnun með litlum tilkostn- aði og losnar auk þess við þann þunga bagga sem Verkmennta- skólinn hefur verið,“ sagði Jóhann. Aðspurður um upphæð sagði Jóhann að þetta væru um 20 milljónir króna á næstu 6 árum sem Menntaskólinn væri að fara fram á vegna kennsluhúsnæðis. Bygging heimavistar er hins veg- ar einvörðungu á vegum ríkisins. Skólinn hefur sótt um fjárveit- ingu á næsta ári vegna hönnunar- kostnaðar við kennsluhúsnæði. í bókun bæjarráðs kemur fram að ráðið telur eðlilegt að mennta- málaráðuneytið eigi frumkvæðið að viðræðum við bæjarstjórn um framkvæmd framhaldsskólalag- anna. Þá segir í bókuninni: „Bæjarráði er ljós þörf skólans fyrir aukið og bætt húsnæði og stofnbúnað og telur nauðsynlegt, að umbeðnar fjárveitingar til hönnunar verði teknar inn á fjár- lög næsta árs.“ SS Herinn selur blómamerki Dagana 7. til 9. september mui Hjálpræðisherinn selja blóma merki á götum Akureyrar. fréttatilkynningu frá Hjálp ræðishernum kemur fram að héi er um að ræða fjáröflunarherferc til styrktar starfi Hjálpræðishers ins, einkum þó barna- og ungl ingastarfi hans. Merkið kostai 100 krónur. Tæknigarður - samvinna Háskóla íslands og einkafyrirtækja Nú er að rísa á lóð Háskóla íslands, á Melunum vestan Suðurgötu, nýtt hús, svonefnd- ur Tæknigarður. Þar verður m.a. til leigu húsnæði fyrir fyrirtæki og einstaklinga sem vinna að rannsókna- og þróun- arverkefnum á sviði upplýs- inga- og tölvutækni pg ýmiss konar tækniiðnaðar. I Tækni- garði verður einnig Reikni- stofnun Háskólans og hluti af starfsemi Raunvísindastofnun- ar Háskólans. í nútímaþjóðfélagi er mikil- vægt að búa vel að rannsókna- og - í rannsókna- og þróunarstarfsemi þróunarstarfsemi sem tryggir uppbyggingu og framfarir atvinnulífsins. Víða á Vestur- löndum hafa opinberir aðilar, ríki, bæjarfélög og æðri mennta- stofnanir byggt sérstaka tækni- garða, þar sem er skapað raun- hæft og hvetjandi umhverfi fyrir rannsóknir og þróunarstarf. Tilgangur með rekstri Tækni- garðs er að sameina á einum stað þá vitneskju og aðstöðu sem Háskólinn getur boðið einkafyr- irtækjum upp á þannig að báðir aðilar hagnist á því samstarfi. í Tæknigarði verður margvís- leg þjónusta við leigutaka, má þar geta sameiginlegrar síma- þjónustu, fundaaðstöðu og mat- stofu. Þeir aðilar sem koma sér upp rannsókna- og vinnuaðstöðu í byggingunni geta tengst tölvum og tölvuneti Háskóla fslands. Ýmis önnur aðstaða skapar grundvöll fyrir nánari tengsl og samstarfi við kennara og vísinda- menn í hinum ýmsu deildum Háskólans. Leigutakar í Tæknigarði greiða markaðsleigu fyrir húsnæðið og leigutekjur verða notaðar til greiðslu fjármagnskostnaðar, rekstrargjalda og stofnkostnaðar að hluta. Háskóli íslands greiðir þann hluta stofnkostnaðar, sem tekjur Tæknigarðs hf. ná ekki yfir og mun eignarhluti Háskól- ans þannig aukast smátt og smátt. Tæknigarður hf. er reistur af samnefndu hlutafélagi, en að því standa Háskóli íslands, Reykja- víkurborg, Þróunarfélag íslands hf., Iðntæknistofnun íslands, Fé- lag íslenskra iðnrekenda og Tækniþróun hf. AP

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.