Dagur


Dagur - 07.09.1988, Qupperneq 4

Dagur - 07.09.1988, Qupperneq 4
4 - DAGUR - 7. september 1988 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 800 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 70 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 530 KR. RITSTJÓRAR: ÁSKELL ÞÓRISSON (ÁBM.) BRAGI V. BERGMANN BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (Reykjavik vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík), ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BJÖRN JÓHANN BJÓRNSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960), EGILL BRAGASON, FRÍMANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, KRISTJÁN JÓSTEINSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON (íþróttir), MARGRÉT ÞÓRA ÞÓRSDÓTTIR, STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÚTTIR, LJÓSMYNDARAR: GUÐMUNDUR HRAFN BRYNJARSSON, TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON, AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Hnin Ávöxtunar sf. Hrun Ávöxtunar sf. hefur orðið til þess að ýta óþyrmilega við mörgum sparifjáreigendum, sér- staklega þeim sem eiga fjárhæðir í vörslu fyrir- tækisins. Viðbrögð þeirra sem gerst þekkja til á verðbréfamarkaðinum koma einnig spánskt fyrir sjónir nú, eftir að Ávöxtun sf. hefur verið lokað með stjórnvaldsaðgerðum. Þegar Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðu- bandalagsins, lýsti því yfir á fundi í Kópavogi fyrir þremur vikum að eitt eða fleiri verðbréfafyrirtæki stæðu það tæpt, að hætta væri á að almenningur glataði fjármunum sem þar voru lagðir inn til vörslu, voru viðbrögð forráðamanna ávöxtunarfyr- irtækjanna öll á einn veg. Þeir kröfðust þess að for- maður Alþýðubandalagsins nafngreindi viðkom- andi fyrirtæki þegar í stað, því svo sannarlega ætti þeirra fyrirtæki ekki í hlut! Meðal þeirra, sem svo létu, voru forráðamenn Ávöxtunar sf. Fréttastjóri Stöðvar 2 gekk meira að segja svo langt að lýsa því yfir að fréttamenn þar hefðu ekkert við Ólaf Ragn- ar að tala fyrr en hann nafngreindi viðkomandi fyrirtæki, en með þeirri yfirlýsingu dæmdi hann orð Ólafs Ragnars í raun dauð og ómerk. En nú hefur sem sagt komið á daginn að Ólafur Ragnar Grímsson hafði rétt fyrir sér, þótt ummæli hans hafi e.t.v. orðið til þess að flýta því að Ávöxt- un sf. mætti örlögum sínum. En nú bregður svo einkennilega við að forráðamenn hinna verðbréfa- fyrirtækjanna keppast við að lýsa því yfir að hrun Ávöxtunar sf. komi ekki svo mjög á óvart: Fyrir- tækið sé nefnilega svo sér á báti hvað alla upp- byggingu varðar. Sú spurning vaknar óhjákvæmi- lega í framhaldi af því: Hversu margir vissu, en þögðu þó? Hvort Ávöxtun sf. verður eina fyrirtækið á þess- um markaði sem leggur upp laupana á næstu vikum, skal ósagt látið. Þó er ljóst að verðbréfa- fyrirtækin standa á mistraustum grunni; sumum virðist fyllilega hægt að treysta, öðrum ekki. Að sjálfsögðu er það átakanlegt að stór hópur einstakl- inga komi til með að glata umtalsverðu fé vegna hruns Ávöxtunar sf. Við því er hins vegar lítið hægt að gera úr þessu. Viðskiptavinum verðbréfa- fyrirtækjanna ætti að vera ljóst að hárri ávöxtun fylgir ákveðin áhætta og að tafarlaus innlausn verðbréfa er langt í frá sjálfsagður hlutur, þrátt fyrir gylliauglýsingar sem gefa annað í skyn. Hrun Ávöxtunar sf. er hins vegar ótvírætt merki til stjórnvalda um að láta málefni verðbréfamark- aðarins og „gráa markaðarins" í heild til sín taka. Þau fyrirtæki sem þar eru þurfa að lúta mun strangari reglum og eftirliti en nú er. Þeir sem fara með stjórn peningamála í landinu verða að byrgja brunn frjálshyggjunnar áður en fleiri detta ofan í. BB. Jóhannes Sigurjónsson: ÖU blöð eru héraðsfréttablöð í fjölmiðlaflórunni íslensku þrífst hinn fjölbreytilegasti gróður. Þar má finna fjölmiðla sem eru skrautrósaígildi og þar með án næringargildis, aðrir eru hið mesta þarfaþing, sannkallaðir kálhausar fjölmiðlanna. Mest er þó auðvitað um arfa í túni íslenskrar fjölmiðlunar. Óskilgreindur lággróður í fjöl- miðlaflórunni eru hin svokölluðu héraðsfréttablöð, sem sumir kalla landsmálablöð af einhverj- um undarlegum hvötum. Margir kannast við nöfnin á nokkrum þessara rita, Víkurfréttir, Víkur- blaðið, Vestfirska fréttablaðið, Bæjarpósturinn o.s.frv. En flestir, a.m.k. á SV-horni landsins, telja sig ekki hafa barið héraðsfréttablöð augum. Sem er að sjálfsögðu alrangt. Staðreyndin er sem sé sú að Moggi, DV, Þjóðvilji, Tími og Alþýðublað, eru auðvitað ekkert annað en héraðsfréttablöð. Þau eru útgefin í Reykjavíkurhéraði, fjalla einkum um fréttir úr því héraði og brúka svo fréttir úr öðrum héruðum heimsins, s.s. Afghanistan eða Eyjafirði, sem uppfyllingarefni. Ritstjóri eins héraðsfrétta- blaðsins í Reykjavík, Árni Bergmann á Þjóðvilja, reit eitt sinn pistil í blað sitt um hin óháðu landsbyggðarblöð, sem hann kallaði svo. Ritstjórinn fann þessum blöðum allt til for- áttu, taldi að þau tækju aldrei á neinu sem máli skipti og fjölluðu einkuni og aðallega um opnun nýrra hamborgarastaða eða snyrtistofa í viðkomandi byggð- arlagi. Þessi túlkun getur svo sem staðist, einkum ef menn hafa ekki lesið viðkomandi lands- byggðarblöð, en það er líka næsta auðvelt að snúa henni upp á dagblöðin, ekki síst Þjóðvilj- ann. Á ritunartíma þessa Berg- mannspistils var annar ritstjóri Þjóðviíjans, svo og fréttastjóri að reyna í fyrsta skipti að fjalla sjálf- stætt um innanhússerjur í Al- þýðubandalaginu og verkalýðs- hreyfingunni. Og það var að sjálfsögðu ekki þolað að tekið væri á einhverju sem máli skipti í blaðinu og þegar upp var staðið voru ritstjórinn og fréttastjórinn látnir fjúka. Og hvað það varðar að litlu landsbyggðarblöðin fjalli einkum um skyndibitastaði og snyrtistofur, þá ber að hafa það í huga að opnun matsölustaðar í smábæ úti á landi eða minkabús í nærsveitum, hefur hlutfallslega jafn mikil áhrif í atvinnulífi á við- komandi stöðum og tilkoma Kringlunnar í Reykjavík suður, sem héraðsfréttablöðin í höfuð- borginni hafa fjallað um í máli og glansmyndum. Þetta er sem sagt spurning um stærðarhlutföll og stigsmun, ekki eðlismun á héraðsfréttablöðun- um í Reykjavík og úti á landi. Litlu landsbyggðarblöðin þjóna mikilvægu hlutverki á hverjum stað, á sama hátt og dagblöðin í Reykjavík og Dagur á Akureyri. Þar gefst íbúum byggðarlagsins kostur á að koma á framfæri skoðunum sínum, rit- deilur fara þar fram, sveitar- stjórnarmenn miðla þar upplýs- Erindi flutt á Fjórðungs- þingi Norðlendinga á Húnavöllum 3. september sl., undir dagskrárliðnum „Fjölmiðlun á landsbyggð- inni.“ ingum til lesenda og blaðamenn fjalla um það sem fréttnæmt þyk- ir hverju sinni. Og síðast en ekki síst þá halda burtfluttir, fyrrum íbúar byggðarlagsins, sambandi við sína gömlu heimabyggð með lestri þessara blaða. Litlu blöðin þjóna einnig hlutverki sem dag- blöð Reykvíkinga hin ríkis- styrktu, sem gefa sig út fyrir að vera blöð allra landsmanna, yrðu ella að þjóna. Þetta er auðvelt að sýna með dæmum. í Víkurblaðinu á Húsavík fór fram fyrir nokkrum árum, hörku- ritdeila múrara um lélegan frá- gang á tiltekinni byggingu í bæn- um og hver bæri þar höfuð- ábyrgð. Deilan stóð í margar vik- ur og lesendur fylgdust með af áhuga og höfðu af nokkra skemmtan þegar byggingamenn veifuðu múrskeiðum og létu dólgslega á síðum blaðsins. Það er hins vegar næsta ólíklegt að múrarar á Húsavík hefðu fengið inni í Reykjavíkurblöðunum með þessi sín hugðarefni, ef Vík- urblaðið hefði ekki verið til staðar. Annað dæmi. í kringum bæjar- og sveitarstjórnarkosningar eru Reykjavíkurblöðin full með greinar eftir frambjóðendur í Reykjavík. Þetta eru ógurlegar langlokur og skipta hundruðum. Greinar af sams konar toga birt- ast í héraðsfréttablöðum um land allt, þar sem sveitarstjórnarmenn á hverjum stað útmála eigið ágæti í löngu máli. Ef litlu landsbyggð- arblöðin væru ekki til staðar, þá væru Reykjavíkurblöðin eini vettvangur greinaskrifa allra frambjóðenda á landinu. Og blöð allra landsmanna gætu auðvitað ekki mismunað mönnum eftir búsetu. Tilvonandi sveitarstjórn- armenn á Grundarfirði, Raufar- höfn, Húsavík og um land allt, fengju því að sjálfsögðu inni með greinar sínar í Mogga á sama hátt og borgarstjórnarkandídatar. Sem leiddi til þess að Mogginn teldi, lauslega áætlað, 1347 blað- síður daglega síðustu vikurnar fyrir kosningar! Á þennan hátt, m.a., spara llitlu landsbyggðarblöðin, blöðum |allra landsmanna ómælda fjár- muni, og spurning hvort ákveðið hlutfall af auglýsingatekjum stóru blaðanna ætti ekki að renna til landsbyggðarfjölmiðla, sem greiðsla fyrir veitta þjónustu í þágu þeirra stóru. Ríkisvaldið áttar sig auðvitað ekki á þessu þjónustuhlutverki, frekar en öðru, og til ríkisvalds- ins höfum við ekkert að sækja. Þannig t.d. bannaði Albert Guð- mundsson, þáverandi fjármála- ráðherra, bæjarfógetaembættum að auglýsa í héraðsfréttablöðum úti á landi. Og fyrir nokkrum árum rakst ég á auglýsingu í Alþýðublaðinu um bann við rækjuveiðum í Öxarfirði. Þess skal getið að áskrifendur Alþýðu- blaðsins á Húsavík þá, voru 21, þar af amma mín níræð með heiðursáskrift og auðvitað enginn rækjusjómaður. Ég hringdi í við- komandi ráðuneyti og bauð aug- lýsingu í Víkurblaðinu með sína 500 áskrifendur og alla rækjusjó- menn á staðnum í þeim hópi. Eftir mikið japl og jaml og fuður var kveðinn upp sá úrskurður suður í ráðuneyti að það væri búið að auglýsa bannið í Alþýðu- blaðinu, punktur og basta. Við þetta er svo því að bæta að Jón nokkur Baldvin var ritstjóri Alþýðublaðsins á þessum árum og rækjuveiðibannið í Öxarfirði fór að sjálfsögðu framhjá öllum rækjusjómönnum á svæðinu. Að einu leyti má segja að landsbyggðarblöðin séu tíma- skekkja og það er í sambandi við vinnsluferli þeirra. Fyrir nokkru varð Blaðamannafélag íslands 90 ára og var þá gefið út veglegt afmælisblað. í þessu blaði birtist m.a. viðtal við gamlan fréttahauk sem lýsti því hvernig blaðaútgáfu var háttað og starf blaðamanns vaxið, fyrir 40-50 árum. Lýsing hans var eitthvað á þessa leið: Á þeim árum voru oft ekki nema 1-2 menn á blöðunum. Sami maður þurfti að skrifa af skynsamlegu viti um allt milli himins og jarðar, hann þurfti að taka myndir og framkalla þær, safna auglýsingum og áskrift og rukka hvorutveggja. Hann fylgd- ist með uppsetningu blaðsins, las próförk og sá jafnvel um dreif- ingu blaðsins. Allt vinnsluferli blaðsins frá því hugmynd að frétt kviknaði þar til blaðið kom í hendur lesenda, hvíldi á herðum eins manns. „Já, svona var nú blaðamennskan fyrir 50 árum,“ sagði þessi aldni blaðamaður sem mundi tímana tvenna í þessum efnum. Mér þótti þessi grein einkar merkileg, einkum og aðallega fyrir þær sakir að uppgötva að ég og margir kollegar mínir á litlu landsbyggðarblöðunum, vorum 50 árum á eftir tímanum. Myndin sem dregin var upp af starfi blaðamannsins fyrir 50 árum, var sem sé nákvæm lýsing á mínu starfi á því herrans ári 1988. Góðir áheyrendur. Ég hefi hér af handahófi drep- ið á ýmislegt er lýtur að útgáfu og hlutverki svokallaðra héraðs- fréttablaða. Vonandi vekur þessi pistill einhverjar spurningar sem unnt verður að fjalla um í umræðunni hér á eftir. Höfundur er ritstjóri Víkurblaösins á Húsavík.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.