Dagur - 07.09.1988, Síða 16
TEKJUBRÉF• KJARABRÉF
Akureyri, miðvikudagur 7. september 1988
Raufarhöfn:
Engin umferðar-
óhöpp í sumar
Ekkert umferðaróhapp hefur
orðið í umdæmi lögreglunnar á
Raufarhöfn í sumar. Lög-
gæslumenn eru að vonum kátir
yfir árangrinum.
Jón Eiður Jónsson lögreglu-
maður á Raufarhöfn sagðist varla
muna eftir að tilkynnt hefði verið
um umferðaróhapp á öllu þessu
ári. Sumarið var samt óvenju gott,
ekkert óhapp hafi verið tilkynnt
til Iögreglu. „Fólkið ekur
Árgangur þorskseiða
lélegur þriðja árið í röð
Ýmsar blikur eru nú á lofti í
sambandi við framtíðarhorfur
fiskvciða hér við land. Niður-
stöður úr leiðangri Hafrann-
sóknastofnunar í síðasta mán-
uði benda til þess að 1988
Akureyri:
Skipulags-
stjóri hættir
Finnur Birgisson skipulags-
stjóri Akureyrarbæjar hefur
sagt upp störfum frá og með
síðustu mánaðamótum. Upp-
sögnin tekur gildi þann 1. des-
ember. Staðan hefur þegar
verið auglýst og er umsóknar-
frestur til 20. september.
Finnur hefur verið skipulags-
stjóri á Akureyri í 9 ár, „og mér
hefur bæði líkað vel og illa,“
sagði hann án þess þó að vilja tjá
sig nánar um hvaða atriði hann
væri ekki fyllilega ánægður með.
„Pað segir sig sjálft að ef menn
eru 100% ánægðir í starfi, þá
hætta þeir ekki.“ Finnur sagði að
er hann tók að sér skipulagsstjóra-
starfið fyrir 9 árum hafi hann
ekki litið svo á að um endanlegt
starf væri að ræða. „Mér þótti
tímabært að stíga skrefið nú,“
sagði Finnur. mþþ
árgangur þorskseiða sé mjög
Iélegur og er það þriðji
árgangurinn í röð sem fær
þann úrskurð.
Ýsuárgangurinn 1988 er einnig
frekar lélegur, þótt horfurnar séu
ekki eins slæmar og með þorsk-
stofninn. Hins vegar lítur mun
betur út með loðnuseiðin og ef
ekkert kemur upp á, má búast
við góðri loðnuvertíð árin 1990-
’91. í>á fannst einnig mikið af
karfaseiðum í leiðangri Hafrann-
sóknastofnunar og er útlitið með
þær veiðar nokkuð bjart.
í fyrra voru veidd um 390.000
tonn af þorski og í ár er búist við
að veidd verði 360.000 tonn.
Næsta ár var reiknað með að
veiða um 330.000 tonn af þorski
en í ljósi þeirra upplýsinga sem
nú liggja fyrir, gæti þurft að
minnka veiðarnar enn frekar og
fara jafnvel niður í 300.000 tonn.
Á mánudaginn kemur heldur
Útvegsmannafélag Norðurlands
fund í Sjallanum á Akureyri, þar
sem rætt verður um stöðu útgerð-
arinnar og framtíðarhorfur. Á
meðal ræðumanna á fundinum
eru þeir Halldór Ásgrímsson
sjávarútvegsráðherra og Kristján
Ragnarsson formaður LIÚ.
Staða útgerðarinnar hefur verið
slæm að undanförnu og nýjustu
tölur fiskifræðinga gefa ekki
tilefni til þess að auka bjartsýni
manna á framtíðina. -KK
FJARMAL ÞIN - SÉRGREIN OKKAR
TJARFESTINGARFELAGIÐ
Ráðhústorgi 3, Akureyri
skikkanlega hér um slóðir,“ sagði
hann og til marks um það nefndi
hann mælingar lögreglu um
verslunarmannahelgina. Enginn
bíll hefði mælst á yfir 85 kíló-
metra hraða.
Umdæmi lögreglu á Raufar-
höfn er stórt, nær frá Auð-
bjargarstaðabrekku í vestri, aust-
ur að Ormarslónsá og allt suður
til Grímsstaða á Fjöllum. Árang-
urinn hlýtur því að teljast góður.
mþþ
, .
Í •
Þegar haustar að fara margir að huga að kartöfluuppskerunni. Á myndinni
er SofTía Alfreðsdóttir, húsfrcyja á Sílastöðum í Eyjafirði, að taka upp í
soðið. Mynd: TLV
Lokið við
smíði brúar
yfir
Hafralónsá
- og lagningu 6,2 km
bundins slitlags
Lokið var við smíði nýrrar
brúar yfir Hafralónsá í Þistil-
firði um miðjan ágústmánuð,
en brú þessi er allmikið mann-
virki, 60 metra löng og tví-
breið. Kostnaður við smíði
brúarinnar var um 24 milljónir
króna.
Smíði brúarinnar hófst í fyrra
og þá voru undirstöður hennar
steyptar. Tíu manna vinnuflokk-
ur vann að smíðinni undir yfir-
umsjón brúadeildar Vegagerðar
ríkisins í Reykjavík. Yfirsmiður
við verkið var brúarsmiður úr
Reykjavík.
í tengslum við brúarsmíðina og
í framhaldi af henni var lögð
klæðing á veg frá Þórshöfn í átt
að Hafralónsá og var lokið við
það verk 23. ágúst. Lengd
bundna slitlagsins er 6,2 kíló-
metrar og var kostnaður við
verkið, þ.e. við klæðingu og
undirbyggingu vegarins, um 10
milljónir króna. Vinnuflokkur
frá Vegagerð ríkisins á Akureyri
sá um það verk. EHB
Kartöflubændur í Eyjafirði undirbúa upptöku:
Útlit fyrir rýrari upp-
skeru miðað við fyrra ár
- spámenn telja að íslenskar kartöflur endist ekki árið
Kartöflubændur við Eyjafjörð
eru þessa dagana að undirbúa
upptöku, en margir hyggjast
íiefja haustverkin nú um helg-
ina. Leiðindavcður síðustu
daga ágústmánaðar hefur sett
verulegt strik í reikninginn
hvað sprettuna varðar og hefur
hún verið afar hæg nú síðustu
vikur. Garðar eru blautir og
því lítt árennilegir, en kartöflu-
bændur láta það ekki á sig fá,
bretta upp ermar og arka í
garðinn.
Sveinberg Laxdal formaður
félags kartöflubænda í Eyjafirði
KEA tekur sláturhús KNÞ
á Kópaskeri á leigu
- fái það lánafyrirgreiðslu. Hlutafjársöfnun gekk vel en engin lán fengust!
Stofnfundi um hlutafélag
vegna reksturs sláturhúss á
Kópaskeri hefur verið frestað
um óákveðinn tíma. í fyrra-
kvöld var hins vegar haldinn
fundur þar sem fulltrúar frá
Kaupfélagi Norður-Þingeyinga
og Kaupfélagi Eyfirðinga báru
saman bækur sínar og varð að
samkomulagi að síðarnefnda
kaupfélagið tæki rekstur slát-
urhússins á leigu nú í haust.
Að undanförnu hafa heima-
menn safnað hlutafjárloforðum
og hefur það gengið vel, að sögn
Eysteins Sigurðssonar kaupfé-
lagsstjóra á Kópaskeri. Ætlunin
var að safna um 30 milljónum
króna og hefur bróðurparturinn
þegar skilað sér, eða á milli 23 og
25 milljónir króna.
„Við sáum fram á að ekki
myndi takast að tryggja nægilega
góða fjármögnun á afurðunum í
tæka tíð,“ sagði Eysteinn og því
var tekin ákvörðun um að leita til
Kaupfélags Eyfirðinga um slátrun
nú í haust.
Eysteinn sagði að hlutafélagið
hefði ekki fengið jákvæð svör
varðandi lánafyrirgreiðslu. Bank-
ar lána ekki fé til nýrra sláturleyf-
ishafa og sagði Eysteinn að menn
hefðu ekki treyst sér til að slátra
fé í þeirra óvissu sem ríkti varð-
andi greiðslur til bænda. Þau lán
sem um er að ræða eru afurða-
lán upp á um 70 milljónir króna
og því til viðbótar staðgreiðslulán
upp á um 20 milljónir.
Þar sem lánafyrirgreiðsla brást
og málið í eindaga var leitað til
stjórnar KEA um leigu á slátur-
húsinu. Kaupfélagið mun því
taka húsið á leigu fái það þá lána-
fyrirgreiðslu sem þarf, en svör
þar að lútandi liggja ekki fyrir
enn. Slátrun á Kópaskeri hefst
næstkomandi þriðjudag og verð-
ur slátrað tæplega 20.000 fjár.
Um 75 manns verða við vinnu í
sláturhúsinu í haust, en reiknað
er með að siáturtíðin taki um
þrjár vikur. mþþ
sagði að eins og staðan væri
stefndi allt í að uppskera yrði
undir meðallagi á Eyjafjarðar-
svæðinu. Margir hefðu látið mun
minna niður í vor eða allt að 10-
15% miðað við fyrra ár og við
það bættist að útlit væri fyrir rýr-
ari uppskeru. Hann sagði því að
útlit væri fyrir að íslenskar kart-
öflur myndu ekki endast árið út
og spámenn í greininni hefðu
jafnvel giskað á að þær yrðu upp-
urnar í maí eða júní á næsta ári.
„Uppskeran veltur þó á því
hvað gerist næstu daga. Ef hlýnar
í veðri þá er ekki ólíklegt að kart-
öflurnar taki verulega við sér.
Þetta eru happdrættisdagar sem
framundan eru. Það getur í raun-
inni allt gerst, við þekkjum ótrú-
lega hluti hér, kartöflugrös hafa
fallið 25. ágúst, en þau hafa líka
staðið langt fram í september.
Nú veltur allt á veðráttunni,"
sagði Sveinberg.
Hvað verðlagsmálin varðar,
sagði hann að kartöflubændur
hafi staðið í verðstríði síðustu 13
mánuði, en útlit væri fyrir að því
linnti nú í haust. í góðærinu í
fyrra þegar uppskera sló öll met
hafi menn verið hræddir við að
sitja eftir og geta ekki selt fram-
leiðslu sína. I kjölfar rýrari upp-
skeru ættu menn ekki að óttast
að verða útundan og málin því að
færast í sæmilegt horf. mþþ