Dagur - 08.09.1988, Qupperneq 1
71. árgangur Akureyri, fimmtudagur 8. september 1988 169. tölublað
UuMja
liiiilW
Margir
ökumenn
trassa
ljósin
Skammdegið er bak við næsta
horn og senn líður að því að
allir bifreiðaeigendur eiga að
hafa Ijósin í lagi.
Að sögn lögreglunnar á Akur-
eyri, eru nokkur brögð að því að
bifreiðar séu með vanstillt ljós og
að ökumenn trassi ljósastillingu.
Þann 1. október nk. ber öllum
að hafa útvegað sér nýja ljósa-
stillingu, en það eru bifreiðaverk-
stæði sem framkvæma hana. VG
Verðlagseftirlitið
á Akureyri:
Liðsauki
væntanlegur
fljótlega
Starfsmenn Verðlagseftirlitsins
á Akureyri standa í ströngu
þessa daga eins og starfsfélagar
þeirra annars staðar á landinu.
Mikið er hringt á skrifstofu
Verðlagseftirlitsins með fyrir-
spurnir og ábendingar vegna
verðstöðvunar ríkisstjórnar-
innar. Hjá Verðlagseftirlitinu
á Akureyri eru starfsmenn í
einni og hálfri stöðu, en til
stendur að tímabundinn liðs-
auki berist þeim frá Reykjavík
á næstunni.
Níels Halldórsson verðlagseft-
irlitsmaður á Akureyri sagði í
samtali við blaðið, að því miður
ættu ekki allar ábendingar sem
berast skrifstofunni við rök að
styðjast. „Sumir taka mið af því
sem keypt var snemma á árinu,
en við miðum við verð frá 15.
ágúst sl. Allt sem hækkað hefur
eftir það er athugað og við þiggj-
um með þökkum allar ábending-
ar. Ég vil reyndar hvetja fólk til
þess að hringja og láta okkur vita
ef það telur að verð hækki ólög-
lega.“
Um miðjan mánuð verður skorin niður vinna hjá um 80 starfsmönnum Skinnaiðnaðar SÍS á Akureyri. Mynd:KK
Akureyri:
Frestun
gjaldskrár-
hækkana
Ákveðið hefur verið að fresta
hækkunum á gjaldskrá Sund-
laugar Akureyrar og gjaldskrá
félagsmálaráðs vegna verð-
stöðvunarinnar sem gildir út
septembermánuð.
Bæjarstjórn Akureyrar sam-
þykkti á síðasta fundi að fresta
hækkun á ofangreindum töxtum.
Dagvistargjöld á dagvistarstofn-
unum áttu að hækka um 20% 1.
september en ekkert verður af
þeirri hækkun í bili.
Gjaldskrá Sundlaugar Akur-
eyrar var einnig lækkuð í kjölfar
verðstöðvunarinnar, en gjald-
skráin hafði nýlega verið
hækkuð. Fólk getur því farið í
sund á „gamla“ verðinu, og gert
góð kaup í sundmiðum, að sögn
sundlaugarstjóra. EHB
Akureyri:
Gott heilsufar
Samkvæmt skýrslu Heilsu-
gæslustöðvarinnar á Akureyri í
ágúst, virðast Akureyringar og
nærsveitamenn hafa verið við
tiltölulega góða heilsu í mán-
uðinum.
Ekki er um nein óvenjuleg
frávik að ræða á skýrslunni, en
sem dæmi má nefna, að 2 voru
með flensu, 148 kvef og háls-
bólgu, 7 hlaupabólu, 66 maga-
kveisu og 11 með kláðamaur.
Upplýsingar þessar ber að taka
með fyrirvara um að læknar hafa
misjafnt mat á hvort og hvenær
skrá skuli sjúkdóma. VG
Skinnaiðnaður Sambandsins:
Vinna skorin niður hjá
hluta starfsfólksins
- um 80 manns vinna aðeins þrjá daga í viku fram að mánaðamótum
Verðstöðvunin nær til hvers
konar vöru og þjónustu. Sérstak-
lega er til tekið, að þegar nýjar
vörur koma f verslanir frá heild-
sölum eða framleiðendum, er
bannað að selja þær á hærra verði
en því verði sem síðast var á
sömu vörutegundum áður en
verðstöðvunin gekk í gildi. Þá
bendir Verðlagsstofnun á það að
gefnu tilefni, að verðstöðvunin
gildir fyrir hvers konar gjöld fyrir
skóla og námskeið. Bannað er að
hækka slík gjöld frá því verði
sem síðast var í gildi vegna sams
konar námskeiða og skólahalds.
Gildir þetta um alla dagskóla og
námskeið t.d. dans- og heilsu-
ræktarnámskeið, námsflokka
o.fl. á meðan verðstöðvun er í
gildi. Öldungadeildir framhalds-
skóla eru undanþegnar þessu og
eru þær einu sem leyfi hafa til
þess að hækka gjöld sín. VG
Vegna mikils samdráttar í sölu
mokkaskinna í upphafi ársins,
hefur þurft að draga úr vinnu
hjá hluta starfsfólks Skinna-
iðnaðar Sambandsins á Akur-
eyri. Frá miðjum þessum mán-
uði mun starfsfólk í þurrvinnslu-
sal fyrirtækisins, um 80 manns,
aðeins vinna þrjá daga í viku.
Þannig fyrirkomulag verður í
gildi fram að næstu mánaða-
mótum en þá verður Ijóst
hvort framhald verður á.
Alls vinna um 220 manns hjá
fyrirtækinu, sem hefur undanfar-
in ár unnið bæði mokkaskinn og
leður en þó mun meira af mokka-
skinni. Eftirspum eftir leðri hef-
ur hins vegar aukist og mun fyrir-
tækið halda úti fúllri vinnu hjá
því fólki sem starfar að þeirri
vinnslu.
„Við lítum á þetia sem tíma-
bundið ástand en þetta hefur
gerst áður hjá fyrirtækinu. Þessi
samdráttur í sölu mokkaskinna
til Evrópu, hefur bitnað á okkur
eins og öðrum framleiðendum
þessarar vöru í heiminum. Við
höfum hingað til getað komist
hjá því að draga saman í vinnslu,
á meðan verksmiðjur erlendis
hafa þurft að draga verulega sam-
an og jafnvel loka,“ sagði Bjarni
Jónasson forstöðumaður Skinna-
iðnaðar SÍS í samtali við blaðið.
„Við teljum ekki fært að halda
úti fullri vinnslu á meðan við höf-
um ekki trygga sölu á þeirri vöru
sem við emm að framleiða.
Birgðasöfnun er það dýr og það
er sameiginlegt vandamál hjá
fyrirtækjum í útflutningsiðnað-
inum almennt. Við ætlum því
einungis að framleiða vöru sem
við getum selt strax og þess vegna
höfum við farið út í það að draga
saman í vinnslu á mokkaskinn-
um.“
Bjarni sagði að sá hluti starfs-
fólks sem þetta mál varðaði,
hefði sýnt þessu mikinn skilning
og samþykkt að vinna aðeins þrjá
daga í viku út þennan mánuð.
„Þetta þýðir tekjuskerðingu hjá
þessu fólki en það gerir sér fulla
grein fyrir því hvemig málin
standa og hefur áhyggjur eins og
aðrir. Við vitum vonandi meira
um það hvað gerist á þessum
mörkuðum um mánaðamótin og
þá verður tekin ákvörðun um það
hvort framhald verður á þessu.
Það ríkir mikil óvissa í sölumálum
en ástæðan fyrir því að salan hef-
ur dregist saman er bæði sú að
veturinn í Evrópu hefur verið
mildur undanfarin þrjú ár
og einnig spilar tískan eitthvað
inn í líka. Þá hefur verð á refa-
skinnum fallið verulega og því
lítill munur á refapelsum og
mokkafatnaði og það á sinn þátt í
þessum samdrætti," sagði Bjarni.
Hjá Skinnaiðnaðinum er unnið
á tveimur vöktum og vann dag-
vaktin 9 tíma á dag en kvöldvakt-
in 8 tíma. Fyrir skömmu var dag-
vaktin stytt um eina klst. og því
eru unnir 8 tímar á báðum
vöktum. -KK
Sjá blaösíðu 2.