Dagur - 08.09.1988, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 8. september 1988
Ólafsfjörður:
Forvarnir í
fiaUinu
Eftir náttúruhamfarirnar í
Ólafsfírði á dögunum hefur
nokkuð verið rætt um hugsan-
legar forvarnir í fjallinu ofan
við bæinn.
Bæjarstjórinn í Ólafsfirði,
Bjarni K. Grímsson sagði í sam-
tali við blaðið að þótt beigur væri í
sumu fólki, gerði það sér grein
fyrir því að alltaf geti eitthvað í
þessa veru komið upp á. Kostirnir
við að búa þarna séu hins vegar
fleiri en ókostirnir og því ekki
bilbugur í íbúum.
„Við stefnum nú að því að gera
ýmsar forvarnir í fjallinu, t.d að
grafa skurði og veita burtu vatni.
Þá höfum við hug á að fá í lið
með okkur einhverja aðila til
þess að græða upp jarðveginn,
t.d. með grasi og trjám til þess að
hefta og binda jarðveginn." VG
Sláturhús KS:
Skólamir eru byrjaðir!
Þá eru skólamir byrjaðir. Krakkar flykkjast í verslanir og kaupa skólavörurnar, allt þarf að vera klárt; skólataskan
og pennaveskið, skólapeysurnar og úlpurnar. Þegar skólarnir hefja vetrarstarfið, segja sumir að haustið sé komið.
Nú í vetur verða um 2500 börn og unglingar í skólum Akureyrar og er það heldur færra en var á síðasta ári. Ástæðun
er sú að árgangur 1972 er einhver sá stærsti sem komið hefur inn í skólana. Við sendum öllum þeim sem eru að byrja
í skólunum bestu kveðjur og vonum að vel gangi lesturinn.
Slátrun að heflast
- 33 þúsund dilkum slátrað
Sauðfjárslátrun hjá Sláturhúsi
Kaupfélags Skagfírðinga hefst
nk. þriðjudag. Áætlað er að
slátra rúmlega 33 þúsund dilk-
um og að sögn Árna Egilsson-
ar sláturhússtjóra verður mun
Bæjarstjórn Akureyrar:
Endurskoðun á notkun
ganda Bamaskólans
Bæjarstjórn Akureyrar sam-
þykkti samhljóða á síðasta
fundi sínum tiliögu Úlfhildar
Rögnvaldsdóttur bæjarfulltrúa
Ars-
rcikningur
Höfðahrepps
Lokið er gerð ársreiknings fyr-
ir sveitarsjóð Höfðahrcpps og
stofnanir hans fyrir árið 1987
og eru helstu atriði reiknings-
ins sem hér segir.
um að menningarmálanefnd
verði falið að endurskoða nýt-
ingu gamla Barnaskólahússins
við Hafnarstræti 53 og koma
með tillögur um nýtingu þess.
Ótilgreindir listamenn hafa
haft afnot af hluta hússins um
nokkurra ára skeiö, án þess að
formlega hafí verið um slíkt
samið.
Úlfhildur flutti þessa tillögu í
framhaldi af fyrirspurn vegna
Hafnarstrætis 53. í fyrirspurninni
spuröi Úlfhildur um hver hefði
með höndum umsjón eða útleigu
á húseigninni, hvaða starfsemi
færi þar fram og hvernig leigu-
kjörum væri háttað. Gagnrýn-
isvert væri að ár eftir ár viðgeng-
ist að ótilgreindir einstaklingar
væru leigulaust í hluta hússins og
húsnæðið væri ekki einu sinni
auglýst. Þótt það væri ekki boð-
legt til almennrar útleigu sem
íbúðarhúsnæði væri það samt
ágætt til sinna nota.
Sigfús Jónsson, bæjarstjóri,
svaraði fyrirspurninni á þá leið að
embætti húsameistara bæjarins
hefði með höndum umsjón með
framkvæmdum og viðhaldi við
húsið. Bæjarráð hefði ráðstöfun
þess með höndum og hefði gefið
leyfi til þeirra sem það notuðu
nú, en ekki hefðu verið gerðar
neinar bókanir um málið þar sem
húsnæðið hefði í raun ekki verið
talið hæft til leigu.
Hópur myndlistarmanna, sem
á sínum tíma var með aðstöðu í
„Rauða húsinu" sem stóð við
Skipagötu, sendi beiðni til bæjar-
ráðs um að fá aðstöðu í gamla
Barnaskólanum. Þáverandi
bæjarstjóra var falið að heimila
hópnum afnot af húsinu en ekki
var rætt um að nein leiga yrði
greidd fyrir. Hafa listamenn síð-
an haft afnot af mið- og norður-
hluta efri hæðar hússins. Leikfé-
lag Akureyrar hefur haft alla
neðri hæðina til afnota á hlið-
stæðum kjörum.
Snemma í júní samþykkti
menningarmálanefnd hugmyndir
að framkvæmdaáætlun næstu
þriggja ára þar sem m.a. er gerð
tillaga um að umrætt húsnæði
verði innréttað sem „listasmiðj-
ur,“ en þær tillögur liafa ekki
ennþá verið til umfjöllunar hjá
bæjarstjórn. EHB
minna um niðurskurð nú í ár,
en í fyrra var hann töluverður.
Vel hefur gengið að fá fólk til
starfa í sláturhúsinu.
Árni sagði að undanfarin ár
hafi gengið illa að manna slátur-
húsið en nú væri slátrun háttað
miðað við fjölda starfsmanna.
„Við slátrum færra fé á dag og
þurfum þess vegna ekki eins
margt fólk, við áætlum að slátra
1500 dilkum á dag,“ sagði Árni.
Reiknað er með að sauðfjár-
slátrunin taki um fimm vikur og
ljúki í kringum miðjan október.
Þá tekur við folaldaslátrun hjá
Sláturhúsi KS, en ekki verður um
neina sérstaka nautgripaslátrun
að ræða. „Það er aiveg hætt að
vera með hana því nautgripir eru
yfirleitt seldir ófrosnir beint til
kaupenda, þannig að það verður
ekki nein sérstök nautgripaslátr-
un hjá okkur," sagði Árni að
lokum. -bjb
Heildartekjur sveitarsjóðs
urðu 48 millj. á árinu, þar af 44,4
millj. rekstrartekjur en afgangur-
inn framlög úr ríkissjóði. Heild-
arkostnaður varð 47,4 millj.
þannig að um lítilsháttar rekstr-
arafgang var að ræða.
Stærsti tekjuliðurinn voru
útsvör, 23,4 millj. eða 47,4% af
heildartekjum. Fræðslumál voru
kostnaðarsamasti gjaldaliðurinn,
7 milljónir. Þar á eftir koma
almannatryggingar og félagshjálp
5,6 millj., yfirstjórn sveitarfélags-
ins 5 millj. og fjármagnskostnað-
ur upp á 4,9 milljónir.
Rekstrartekjur hafnarsjóðs
voru alls 4 millj. en rekstrargjöld
2,4 millj. svo þar varð nokkur
tekjuafgangur.
Rekstrartekjur félagsheimilis-
ins Fellsborgar námu alls 2,2
millj. en rekstrargjöld 2,7 millj.
Þar að auki fóru 2 millj. í viðhald
og endurbætur á Fellsborg.
Fyrir utan þær stofnanir sem
hér hafa verið nefndar eru einnig
gerðir ársreikningar fyrir bóka-
safnið, stjórn verkamannabú-
staða og Sjóminja- og munasafn-
ið. Heildarvelta sveitarsjóðs og
tengdra stofnana var alls um 55,7
milljónir króna. fh
Eins og kemur fram í frétt á
forsíðu, er fyrirhugaður mik-
ill samdráttur í vinnu hjá
hluta starfsfólks Skinnaiðn-
aðar Sambandsins á Akur-
eyri. Blaðamaður var á ferð í
fyrirtækinu í gær og ræddi við
nokkra starfsmenn sem málið
varðar. Ekki var að heyra
annað en bjartsýni ríkti hjá
þeim og áttu þeir ekki von á
öðru en að hjólin færu að
snúast á fuila ferð innan ekki
mjög langs tíma.
Ólafur Aðalbjörnsson trúnað-
armaður:
„Fóik hefur tekið þessu mjög
skynsamlega enda gerir það sér
grein fyrir vandanum. Við von-
um þó að þetta sé aðeins bið-
staða og hlutirnir fari að rúlla
eðlilega mjög fljótlega. Vinnu-
tíminn var styttur um 1 klst. hjá
dagvaktinni um síðustu mán-
aðamót og menn þola það ekki
til lengri tíma að vinnutíminn sé
skertur meira. Við fáum þó
atvinnuleysisbætur þá tvo daga í
viku sem við ekki vinnum".
Óskar Jónsson starfsmaður:
„Það er lítið vit í að framleiða
vöru sem ekki er hægt að selja.
Ég vona þó að stjórnendur
fyrirtækisins reyni á meðan
staðan er svona að færa menn til
innan fyrirtækisins í stað þess að
auglýsa eftir nýju fólki, t.d. í
leðurvinnsluna."
Hrafn Hauksson yfirverkstjóri:
„Þetta var samþykkt einróma
af starfsmönnum, svo ekki
þyrfti að koma til fjöldaupp-
sagna. Menn eru bjartsýnir og
vonandi fer að kólna í Evrópu,
því að þá eykst salan á mokka-
skinnum. Ég hef fulla trú á því
að þetta ástand eigi eftir að lag-
fulla ferð áður en langt um
líður." KK
Ólafur Aðalbjörnsson trúnaðarmaður t.v. og Óskar Jónsson t.h.
Mynd: KK