Dagur - 08.09.1988, Blaðsíða 15
8. september 1988 - DAGUR - 15
íþróttir
Knattspyrna:
Guðjón áfram
með
KA
Ákveðið hefur verið að Guð-
jón Þórðarson þjálfi KA-liðið
á næsta keppnistímabili. Að
sögn Stefáns Gunnlaugssonar,
formanns knattspyrnudeildar
KA, hefur verið gengið frá
þessu munnlega en ekki verður
gengið formlega frá ráðning-
unni fyrr en að loknum aðal-
fundi sem verður að öllum lík-
indum í október.
Eins og kunnugt er hefur
Guðjón náð góðum árangri með
KA-liðið í sumar og sagði Stefán
menn ánægða með störf hans.
Guðjón mun hafa ákveðið að
dvelja á Akureyri í vetur með
fjölskyldu sína. JHB
Annasamt hjá aganefnd:
Jón Kristjánsson í
þriggja leikja bann!
- fimm leikmenn KA og Leifturs
Á fundi aganefndar KSÍ sl.
þriðjudagskvöld var Jón
Kristjánsson, KA, dæmdur í
þriggja leikja bann eftir leik
KA og Fram á Laugardals-
velli á dögunum. Eins og
menn muna sló Jón til Guð-
mundar Steinssonar og var
vísað af leikvelli fyrir vikið.
Þetta þýðir að Jón kemur
ekki meira við sögu á þessu
Islandsmóti þar sem aðeins
þrjár umferðir eru eftir.
í sama leik var Guðjóni Þórð-
arsyni, þjálfara KA, vísað af
leikvelli og Guðjón var því
einnig dæmdur í bann. Þetta
þýðir að KA-liðið mætir þjálf-
aralaust til leiksins gegn Leiftri
í banni
um næstu helgi því Guðjón er
ekki eingöngu í banni sem
leikmaður heldur er hann úti-
lokaður með öllu frá leiknum.
En þar með eru ekki öll áföll
KA-manna upptalin því Erling-
ur Kristjánsson, fyrirliði liðsins,
fékk gult spjald í sama Ieik og
var það fjórða áminning hans
þannig að Erlingur hlaut eins
leiks bann.
Leiftursmenn mæta heidur
ekki með fullskipað lið til leiks-
ins gegn KA. í leik Leifturs og
KR um sfðustu helgi var Herði
Benónýssyni vísað af leikvelli
og Steinar Ingimundarson hlaut
sitt fjórða gula spjald. Þeir
hlutu báðir eins leiks bann.
JHB
U-21 árs landsliðið í knattspyrnu:
ItvjóHur valínn
í 16 manna hóp
- fyrir leikinn gegn Hollendinguin’
á þriðjudag
Júrí Sedov þjálfari landsliösins
í knattspyrnu skipuðu leik-
mönnum undir 21 árs hefur
valið landsliðshópinn sem leik-
ur gegn Hollendingum nk.
þriðjudag í Evrópukeppninni.
Eyjólfur Sverrisson Tindastól
er þar meðal leikmanna og er
sá eini af Norðurlandi.
Sem kunnugt er hefur Eyjólfur
æft með landsliðshópnum að
undanförnu og staðið sig vel og
skorað nokkur mörk. Leyfilegt er
að hafa tvo leikmenn eldri en 21
árs og fyrir valinu verða að öllum
líkindum þeir Sævar Jónsson Val
og Ómar Torfason Fram.
Landsliðshópurinn er því
þessi:
Markverðir: Ólafur Gottskálks-
son ÍA, Adolf Óskarsson ÍBV.
Aðrir leikmenn: Hallsteinn Arn-
arsson Víkingi, Pétur Óskarsson
Fylki, Baldur Bjarnason Fylki,
Einar Páll Tómasson Val, Steinar
Adolfsson Val, Rúnar Kristins-
son KR, Þorsteinn Halldórsson
KR, Gestur Gylfason ÍBK, Ólaf-
ur Kristjánsson FH, Eyjólfur
Sverrisson Tindastól, Arnljótur
Davíðsson Fram, Alexander
Högnason ÍA, Sævar Jónsson
Val, Ómar Torfason Fram.
Leikurinn gegn Hollendingum
verður sem fyrr segir nk. þriðju-
dag kl. 17.30 á Laugardalsvellin-
um. 28. september á U21 árs lið-
ið leik gegn Finnum í Evrópu-
keppninni og verður leikurinn
háður í Finnlandi. -bjb
Eyjólfur Sverrisson hefur leikið frábærlega í sumar
Mynd: bjb
Akureyringarnir sem kepptu í Borgarnesi tilbúnir til brottfarar á föstudug. Sigurvegarinn, Konráð Gunnarsson, er
annar frá vinstri. Mynd: gb
Fyrsta landsmót SÍS-starfsmanna í golfi:
Konráð Guraiarsson sigraði
- um helmingur keppenda frá Akureyn
Um síðustu helgi fór fram í
Borgarnesi landsmót íslenskra
samvinnustarfsmanna í golfi.
Þetta var í fyrsta sinn sem slíkt
mót er haldið en stefnt er að
því að gera þetta að árvissum
atburði. Um 30 keppendur
tóku þátt og áttu Norðlending-
ar mikið af fulltrúum því 14
keppendur komu frá Akureyri
auk keppenda frá Húsavík og
Blönduósi.
Mótið þótti takast mjög vel og
fóru keppendur ánægðir heim
þrátt fyrir að veðurguðirnir hafi
ekki leikið við keppendur. Keppt.
var um veglega farandbikara og
aukaverðlaun og voru öll verð-
laun gefin af Skinnaiðnaði SÍS og
Álafossi hf.
Sigurvegari í keppni án for-
gjafar varð Konráð Gunnarsson
frá Akureyri en hann lék á tveim-
ur höggum minna en næsti
maður. Magnús Steinþórsson frá
Egilsstöðum varð sigurvegari í
keppni með forgjöf en annars
varð röð efstu manna þessi:
Án forgjafar:
1. Konráð Gunnarsson, Akureyri 162
2. Gestur Sigurðsson, Borgarnesi 164
3. Böðvar Bergþórss., Borgarnesi 171
Með forgjöf:
1. Magnús Steinþórss., Egilst. 125
2. Ari Sigurbjörnss., Egilsstöðum 136
3. Einar Jónsson, Borgarnesi 141
JHB
Á þriðjudagskvöld léku Þór og Leiftur minningarleik um Óskar Gunnarsson, sem um árabil var ein styrkasta stoð
Þórsliðsins. Leikurinn fór fram á Akureyrarvelli og lauk honum með sigri Leifturs, 2:0. Það voru Steinar Ingimund-
arson og Hafsteinn Jakobsson sem skoruðu mörkin. Þess má geta að Leiftursmenn sigruðu í þessum sama leik i
fyrra. Mynd: TLV
Körfubolti:
A-stigs þjálfaranámskeið
haldið á Sauðárkróki
Lazslo Nemeth leiðbeinir
KKÍ mun standa fyrir A-stigs
þjálfaranámskeiði í körfu-
knattleik, sem haldið verður í
öllum fjórðungum landsins. Á
Norðurlandi verður námskeið-
ið á Sauðárkróki helgina 10.-
11. september nk. Meðal leið-
beinenda á námskeiðinu verð-
ur dr. Lazslo Nemeth lands-
liðsþjálfari í körfubolta.
Námskeiðið er sérstaklega ætl-
að fyrir þá sem áhuga hafa fyrir
unglingaþjálfun í körfuknattleik
og verða kennd undirstöðuatriði
leiksins fyrir þetta námsstig. Ekki
verður haldið námskeið fyrir
færri en 10 manns.
Dr. Nemeth kemur til meö að
sjá um körfuknattleiksþáttinn í
námskeiðinu, ásamt öðrum leið-
beinenda sem mun kenna það
efni sem kemur frá ÍSÍ. Áætlað
er að halda B-stigs þjálfaranám-
skeið næsta vor, í framhaldi af A-
stigs námskeiðunum.
Kostnaður á hvern þátttak-
anda er áætlaður kr. 5000, með
öllum kennslugögnum. Þátttaka
tilkynnist til Friðriks Jónssonar í
vs. 95-5600 og hs. 95-5277, eða á
skrifstofu KKÍ í síma 91-685949
fyrir fimmtudaginn 8. september
nk. Þar verða allar nánari upplýs-
ingar veittar. -bjb