Dagur - 08.09.1988, Side 13
8. september 1988 - DAGUR - 13
Norður- og Austurland:
Réttir að heíjast
Fjár- og stóðréttir eru nú að
hefjast. Þeir sem standa fyrir
réttum á Norður- og Austur-
landi eru vinsamlegast beðnir
um að hafa samband við blaðið
og tilgreina hvenær verður
réttað á hverjum stað. Margir
lesenda blaðsins hafa áhuga á
að koma í réttir og fylgjast
með en oft getur reynst erfitt
að afla upplýsinga um réttir í
umræddum fjórðungum.
Blaðinu hafa borist fréttir af
eftirtöldum réttum:
Föstudagur 9. september:
Tjarnarrétt í Kelduneshreppi,
Mánárrétt í Tjörneshreppi,
Skógarrétt í Reykjahreppi og
Grófagilsrétt í Seyluhreppi.
Laugardagur 10. september:
Reistarárrétt í Arnarneshreppi,
Árskógsrétt í Árskógshreppi,
Auðkúlurétt í Svínavatnshreppi,
Laufskálarétt í Hólahreppi,
Tjarnarrétt í Kelduhverfi, Reyk-
árrétt í Hrafnagilshreppi, Akur-
eyrarréttir, Þórustaðarétt í
Glæsibæjarhreppi, Víkingavatns-
rétt og Fjallarétt í Keldunes-
hreppi, Tungugerðisrétt í Tjör-
neshreppi, Kalsárrétt í Ljósa-
vatnshreppi, Skíðastaðarétt í
Skefilsstaðahreppi, Gilhagarétt í
Lýtingsstaðahreppi, Deildardals-
rétt í Hofshreppi og Unadalsrétt
í Hofshreppi,
Sunnudagur 11. september:
Illugastaðarétt í Hálshreppi,
Hrútatungurétt í Staðarhreppi,
Skarðarétt í Skarðshreppi,
Skrapatungurétt í Vindhælis-
hreppi, Miðfjarðarrétt í Ytri-
Torfustaðahreppi, Þverárrétt í
Öngulsstaðahreppi, Borgarrétt í
Saurbæjarrhreppi, Tungurétt í
Svarfaðardalshreppi, Fellsrétt í
Ljósavatnshreppi, Hraunsrétt í
Aðaldælahreppi, Selnesrétt í
Skefilsstaðahreppi og Mælifells-
rétt í Lýtingsstaðahreppi.
Mánudagur 12. september:
Reykjahlíðarrétt í Skútustaða-
hreppi, Reynistaðarrétt í Skaga-
firði og Staðarrétt í Staðar-
hreppi.
Miðvikudagur 14. september:
Baldursheimsrétt í Skútustaða-
hreppi.
Föstudagur 16. september:
Undirfellsrétt í Vatnsdal (föstu-
dag og laugardag) og Valdarás-
rétt í Víðidal.
Laugardagur 17. september:
Stafnsrétt í Bólstaðarhlíðar-
hreppi, Víðidalstungurétt í Þor-
kelshólshreppi, Hamarsrétt og
Þverárrétt í Þverárhreppi, Loka-
staðarétt í Hálshreppi, Dalvíkur-
rétt og Skálárrétt í Fellshreppi.
Sunnudagur 18. september:
Hlíðardalsrétt í Bólstaðarhlíðar-
hreppi, Gljúfurárrétt í Höfða-
hverfi, Þverárrétt í Öxnadals-
hreppi, Melarétt í Skriðuhreppi,
Reykjarétt í Ólafsfirði. Mæli-
fellsrétt í Lýtingsstaðahreppi,
Flókadalsrétt í Fljótahreppi og
Stífurétt í Fljótahreppi.
Mánudagur 19. september:
Silfrastaðarétt í Akrahreppi.
Stóðréttir
Sunnudagur 18. september:
Skarðsrétt í Skarðshreppi, Staðar-
rétt í Staðarhreppi, Silfrastaða-
rétt í Akrahreppi og Skrapa-
tungurétt í Vindhælishreppi.
Laugardagur 24. september:
Laufskálarétt í Hólahreppi.
Sunnudagur 25. september:
Hlíðarrétt í Bólstaðarhlíðar-
hreppi.
Sunnudagur 25. september:
Deildardalsrétt í Hofshreppi
Rit um böm
meö Downs syndróm
Rit það sem hér er lítillega sagt
frá kom nýverið út á vegum
Landssamtakanna Þroskahjálpar
og Öryrkjabandalags íslands.
Sambærilegt efni var upphaflega
gefið út í Noregi, hefur komið
þar út í nokkrum útgáfum og ver-
ið þýtt á önnur Norðurlandamál.
Það birtist hér í þýðingu Guðnýj-
ar Bjarnadóttur læknis, sem
einnig skrifar formála, en sjálf á
hún barn með Downs syndróm.
Þá leggja aðrir íslendingar orð í
belg.
í ritinu er einnig fjallað um
hvað Downs syndróm er og
hverjar séu orsakir þessa ástands.
Sagt er frá því hvernig þannig
barn þroskast og hagnýtar ráð-
leggingar gefnar s.s. um fæðu og
umönnun, mál og tal og hreyfing-
ar og leiki þess. Þá er að finna í
þessu hefti vísbendingar um
hvert hægt er að snúa sér við
þessar kringumstæður.
Óskir foreldra fatlaðra barna
verða sífellt háværari um upplýs-
ingar og fræðslu ýmiss konar. Er
því mikill fengur að þessu riti
sem vonandi uppfyllir að ein-
hverju leyti þær óskir.
Þó efni þess sé miðað við börn
með Downs syndróm leikur eng-
inn vafi á að það kemur foreldr-
um annarra fatlaðra barna, sem
og öðrum áhugasömum, einnig
að gagni.
Ritið, sem er 20 síður í stóru
broti, verður til sölu í bókaversl-
unum og á skrifstofum Þroska-
hjálpar og Öryrkjabandalags og
kostar þar 500 krónur.
Allar auglýsingar sem þarf að vinna sérstak-
lega, þurfa að berast til auglýsingadeildar
tveimur til þremur dögum fyrir birtingu.
Auglýsingadeild Dags.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta, á fasteigninni fiskeldishúsi á Haukamýri,
þingl. eigandi Fiskeldi hfl., fer fram á eigninni sjálfri þriðju-
daginn 13. september 1988 kl. 11.00.
Uppboðsbeiðendur eru: Byggöastofnun og Sigríöur
Thorlacius hdl.
Bæjarfógeti Húsavíkur.
Nauðungaruppboð
Þriðja og síðasta, á fasteigninni Austurvegi 4, Þórshöfn,
þingl. eigandi Jón Stefánsson, fer fram á eigninni sjálfri
mánudaginn 12. september 1988 kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru: Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hdl.,
Gunnar Jónsson hdl. og Björn Ólafur Hallgrímsson hdl.
Sýslumaður Þingeyjarsýslu.
it
Móðir okkar og stjúpmóðir, tengdamóðir, amma, langamma
og langalangamma,
GUÐBJÖRG PÉTURSDÓTTIR OLSEN,
lést að Dvalarheimilinu Hlíð þann 31. ágúst.
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 9. sept-
ember kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Dvalarheimilið Hlíð.
Bára Jakobsdóttir Olsen, Hrafn Sveinbjörnsson,
Björn Olsen Jakobsson, Aslaug Þorsteinsdóttir,
Ásta Jakobsdóttir Olsen,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför,
BIRNU MARGRÉTAR JÓNSDÓTTUR.
Börn, tengdabörn, barnabörn og aðrir aðstandendur.
Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, tengdamóðir, amma og
systir,
LILJA MAGNÚSDÓTTIR,
Lerkilundi 44,
lést aðfaranótt 4. september.
Útför fer fram föstudaginn 9. september kl. 15.00 að Möðru-
vallakirkju í Hörgárdal.
Magnús V. Tryggvason,
Magnús Magnússon, Ingveldur Ólafsdóttir,
Valrún Helga Magnúsdóttir,
barnabörn og systkini hinnar látnu.