Dagur - 20.09.1988, Blaðsíða 5
Nokkrir hressir krakkar stilltu sér upp fyrir myndatöku í sandkassanum. Frá vinstri: Mundi, Arndís, Gréta, Sunna,
Þorri, Daginar, Atli, Gísli, Davíð og Guðmundur Kári. Myndir: -bjb
“í
F.ini „fóstrinn'
leikskóla norðanlands?
- í leikskólanum Furukoti á Sauðárkróki
Það hefur oft talist tíðindum
sæta þegar kvenmenn byrja í
störfum sem karlmenn hafa
löngum stundað, s.s. sjó-
mennsku, byggingavinnu, bif-
vélavirkjun o.fl. Það gerist
hins vegar sjaldnar að karl-
menn taki að sér hefðbundin
kvennastörf. Á Sauðárkróki
gerðist það í síðustu viku að
karlmaður hóf störf við Leik-
skólann Furukot og samkvæmt
upplýsingum sem Dagur aflaði
sér þá er afar sjaldgæft að karl-
menn séu við leikskóla. Frá
Fósturskóla íslands hafa út-
skrifast 7 karlmenn sem flestir
starfa á Reykjavíkursvæðinu,
og á Akureyri hafa nokkrir
karlmenn verið starfandi í leik-
skólum en í dag er enginn.
Þannig að Eiríkur Hilmisson
er að öllum líkindum eini karl-
maðurinn á Norðurlandi sem
vinnur á leikskóla.
Blaðamaður Dags heimsótti
Furukot í síðustu viku og heilsaði
upp á starfsfólk og tók Eirík tali.
Starfsstúlkur í Furukoti sögðust
vera ánægðar með að hafa fengið
karlmann á vinnustaðinn og
sögðu að. Eiríkur hefði staðið sig
vel. „Hann er mjög efnilegur,
krakkarnir ná vel til hans og hann
virðist kunna handbrögðin.
Krakkarnir voru hissa fyrst þegar
hann byrjaði, þau voru ekki
alveg tilbúin til að meðtaka að
hann væri kominn til að vera, þau
Eiríkur Hilmisson við vinnu sína í leikskólanum Furukoti.
héldu fyrst að hann væri bara í
heimsókn. En krakkarnir eru
mjög hrifnir,“ sögðu starfsstúlk-
urnar um Eirík og viðbrögð
krakkana við honum.
Eiríkur sagðist hafa sótt um
þetta starf vegna þess að hann
hefði verið atvinnulaus, en áður
var hann á sjó í þrjú ár og þar
áður í bifvéíavirkjun, en hætti
því og fór á sjóinn. Eiríkur á eftir
Hluti starfsfólks í Furukoti, þ.e. það sem vinnur eftir hádegi. Frá vinstri:
Hulda Hlín Sigurbjörnsdóttir, María Ásgrímsdóttir, Eiríkur Hilmisson,
Hafdís Skúladóttir, Sigurlaug Konráðsdóttir forstöðukona, Sigurlaug Ólafs-
dóttir og Björg Einarsdóttir. Á myndina vantar Önnu Maríu Gunnarsdóttur.
þrjú fög í þóklegu námi í bifvéla-
virkjun og segist geta farið í
sveinspróf ef hann vilji. „Ég var
ekki hissa á að fá þetta starf, ég
hefði verið frekar hissa ef ég
hefði ekki fengið það, því ég tel
mig hafa ýmislegt til brunns að
bera í þessu starfi. Maður hefur
verið viðloðandi krakka í mörg
ár og m.a. sem foreldri," sagði
Eiríkur.
Eftir 2ja daga veru í leik-
skólanum sagði Eiríkur að hon-
um líkaði vinnan vel, starfsstúlk-
ur tækju sér vel svo og börnin.
„Stelpurnar tóku mér opnum
örmum og sýndu mér drengilega
framkomu. Krakkarnir eru óðum
að taka mig í sátt, tveir ungir
karlmenn komu t.d. og gáfu mér
blóm,“ sagði Eiríkur. Hvað varð-
ar framtíðina sagði Eríkur að
hún væri óráðin, aldrei að vita
nema Fósturskólinn væri næstur
á dagskrá. „Ég dansa bara þann
dans sem boðið er í,“ sagði Eirík-
ur að lokum.
í leikskólanum í Furukoti eru
um 80 börn, 40 mæta fyrir hádegi
og 40 eftir hádegi. Skólinn sinnir
alveg eftirspurn og er enginn bið-
listi. 11 manns vinna við leikskól-
ann og skiptist það í hálfsdags- og
heilsdagsstörf. Forstöðukona er
Sigurlaug Konráðsdóttir. Mjög
aðlaðandi umhverfi er á leik-
skólalóðinni í Furukoti og
aðstaða öll mjög góð. -bjb
HSí£»
20. september 1988 - DAGUR - 5
Tilkynning til
Æs söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að gjalddagi
söluskatts fyrir ágúst mánuð er 15. september. Ber þá að
skila skattinum til innheimtumanns ríkissjóðs ásamt sölu-
skattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið.
Aðalfundur
Skautafélags Akureyrar
verður haldinn í kafiistofu Garðræktar miðviku-
daginn 28. september kl. 20.00.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Veitingar.
3. Önnur mál.
V.
Stjórnin.
J
Söngáhugafólk
TAKIÐ EFTIR:
Kirkjukór Akureyrarkirkju er að hefja vetrarstarf
sitt.
Söngfólk vantar í allar raddir, þó einkum í bassa og tenór.
Margt skemmtilegt verður á döfinni í vetur, og má þar fyrst
nefna helgarferð að Skútustöðum í Mývatnssveit, þar sem
æft verður fyrir tónleika. Fargjald ásamt uppihaldi er kórfé-
lögum að kostnaðarlausu.
Kórinn æfir í kapellu kirkjunnar á þriðjudagskvöldum frá kl.
20.30 til 22.30.
Ef ykkur langar að taka þátt í líflegu og gefandi starfi, hafið
þá endilega samband.
Allar nánari upplýsingar veita:
Björn Steinar Sólbergsson, söngstjóri s. 25642 og
Margrét Sigurðardóttir, formaður s. 21993.
V.............. —................ J
Júdó-æfingar
veturinn 1988-1989
Æfingarnar hófust mánudaginn 19. september
Flokkur 5-8 ára:
Miðvikudaga kl. 18.10-19.10.
Sunnudaga kl. 13.00-14.00. Æfingagjald fram að áramótum kr. 1500,-
Flokkur 9-13 ára:
Þriðjudaga kl. 18.10-19.10.
Fimmtudaga kl. 18.10-19.10.
Sunnudaga kl. 14.00-15.00. /Efingagjald fram að áramótum kr. 2000,-
Flokkur 14 ára og eldri:
Mánudaga kl. 19.30-21.00.
Þriðjudaga kl. 19.30-21.00.
Miðvikudaga kl. 19.30-21.00.
Fimmtudaga kl. 19.30-21.00.
FÖStudaga kl. 18.30-20.00. Æfingagjald fram að áramótum kr. 3000,-
Kvennaflokkur:
Mánudaga kl. 21.00-22.00.
Fimmtudaga kl. 21.00-22.00.
Sunnudaga kl. 15.00-16.00. Æfingagjald fram að áramótum kr. 2000,-
Æfingar eru í íþróttahöllinni.