Dagur - 22.09.1988, Blaðsíða 16
TEKJUBREF• KJARABRÉF
Akureyri, fimmtudagur 22. september 1988
FJARMAL ÞIN - SÉRGREIN OKKAR
TJARFESTINGARFELAGID
Ráðhústorgi 3, Akureyri
Myndvikan:
Átta myndir bárust
í kvikmyndasamkeppni
Síðustu vikuna í október verð-
ur haldin kvikmyndahátíð,
svokölluð myndvika, til heið-
urs Eðvarð Sigurgeirssyni átt-
ræðum. í tengslum við mynd-
vikuna var efnt til kvikmynda-
samkeppni og rann skilafrestur
út um miðjan þennan mánuð.
Dómnefnd kom saman til
fyrsta fundar í gær.
Að sögn Ingólfs Ármannsson-
ar, menningarfulltrúa Akureyr-
arbæjar, bárust 8 myndir í sam-
keppnina. Um er að ræða stuttar
kvikmyndir, 5-10 mínútur að
lengd. Efni þeirra var að mestu
gefið frjálst, en þó var gefin sú
ábending að efnið tengdist Akur-
eyri eða nágrenni. Reiknað er
með að úrslit liggi fyrir við upp-
haf myndvikunnar.
Fyrstu verðlaun í kvikmynda-
samkeppninni eru 50 þúsund
krónur og hugsanlega fá fleiri
myndir viðurkenningar, 10 þús-
und krónur hver. t*ær myndir
sem fá verðlaun eða viðurkenn-
ingar verða sýndar almenningi í
myndvikunni, en frekari sýningar
eru samkomulagsatriði höfunda
og dómnefndar.
Menningarmálanefnd tilnefndi
vinnuhóp til að standa að undir-
búningi myndvikunnar og er Þór-
ey Eyþórsdóttir þar í forsvari.
Aðrir í hópnum eru bíóstjóri
Borgarbíós, fulltrúar frá Samveri
og myndklúbbum framhaldsskól-
anna. Dómnefndina í kvik-
myndasamkeppninni skipa þeir
Eðvarð Sigurgeirsson, hinn
kunni kvikmyndagerðarmaður,
Guðmundur Ármann, myndlist-
armaður, og Þórarinn Ágústsson,
kvikmyndagerðarmaður. SS
Sauðárkrókur:
Mikil ('f'tirspurn
í íbúðarhúsnæði
-15 sóttu um eina íbúð í verkamannabústað
Mikil eftirspurn er eftir íbúðar-
húsnæði á Sauðárkróki ef
marka má fjölda umsókna eftir
einni íbúð í verkamanna-
bústað. Alls sóttu fimmtán
aðilar um þessa 2ja herbergja
íbúð að Víðigrund 28. A næst-
unni verður ein 3ja herbergja
íbúð auglýst laus til umsóknar
en að sögn Hilmis Jóhannes-
sonar í stjórn verkamanna-
bústaða búast menn ekki við
eins mikilli ásókn í þá íbúð.
„Fólk er meira að sækja eftir
2ja herbergja íbúð því það eru
mest ung pör, annað hvort
barnlaus eða með eitt barn,
sem vantar húsnæði,“ sagði
Hilmir.
Endursöluverð íbúðarinnar
sem stjórn verkamannabústaða
ætlar að auglýsa er rúmar 2,6
milljónir og áætlaður afhending-
artími íbúðarinnar er 1. nóvem-
ber nk.
Stjórn verkamannabústaða á
Sauðárkróki sótti um að fá að
byggja 16 verkamannabústaði á
næsta ári og að sögn Hilmis von-
ast menn til að fá úrskurð um það
eftir áramót. „Það má teljast gott
ef við fáum úrskurðinn í janúar
því þetta húsnæðiskerfi er heldur
þunglamalegt. Á síðasta ári t.d.
fengum við úrskurð í apríl um
hvað við fengjum í ár. Maður
hefur nú einhvern veginn á til-
finningunni að kaupleiguíbúðirn-
ar ruglist eitthvað saman við
verkamannabústaðina í kerfinu,
án þess að maður viti það nokkuð
með vissu,“ sagði Hilmir.
Eitt er ljóst að þörfin fyrir
íbúðarhúsnæði á Sauðárkróki er
gífurleg og sem kunnugt er fékk
bærinn leyfi til byggingar á 8
kaupleiguíbúðum í ár. Ekki hef-
ur verið ákveðið hvenær þær
framkvæmdir hefjast en menn
vonuðust í upphafi
gætu hafist í haust.
til
að þær
-bjb
Byrjað á gerð hestastígs við Skagfirðingabraut á milli „vinabæjaaspanna" og
gangstéttarinnar. Bæjarstarfsmennirnir Steinn Ástvaldsson, Róar Jónsson
og Ragnar Björnsson íbyggnir við verkið. Mynd: -bjb
Norðurlandamót
í skólaskák:
Hefst á Akur-
eyri í dag
Norðurlandamót framhalds-
skólasveita í skák hefst á
Akureyri í dag. Hér er um að
ræða árlegt skákmót fram-
haldsskóla og taka öll Norður-
löndin þátt í mótinu, sem
stendur í fjóra daga eða til 25.
september.
Mótið verður sett í kjallara
Möðruvalla klukkan 18.45 og
verður fyrsta umferð mótsins
sama kvöld. Á föstudag fer 2.
umferð fram, á laugardag 3. og 4.
umferð en mótinu lýkur með 5.
umferð, lokahófi og verðlauna-
afhendingu á sunnudag.
Keppendur frá íslenskum
framhaldsskólum eru átta. Frá
Menntaskólanum á Akureyri
koma þeir Arnar Þorsteinsson,
Tómas Hermannsson, Magnús
Pálmi Örnólfsson og Bogi
Pálsson. Skafti Ingimarsson er
varamaður en Bogi Pálsson fyrir-
liði hópsins. Frá Verslunarskóla
íslands koma Davíð Ólafsson,
Andri Áss Grétarsson, Veturliði
Þór Stefánsson og Óttar Már
Bergmann. Fyrirliði hóps Versl-
unarskólans er Davíð Ólafsson
en Óttar Már Bergmann er vara-
maður.
íslendingar hafa tíu sinnum
unnið Norðurlandamót fram-
haldsskólasveita í skák frá árinu
1973, en sjö ár eru liðin frá því
mótið var haldið síðast hér á
landi. EHB
Akureyri:
íþróttafulltrúi gerir grein
fyrir snjótroðarakaupimum
Skýrsla íþróttafulltrúa um
snjótroðarakaup fyrir Skíða-
staði var lögð fram á fundi
Bæjarstjórnar Akureyrar á
þriðjudag. íþróttafulltrúi
samdi skýrsluna að beiðni
bæjarstjóra eftir að umræður
höfðu orðið um troðarakaupin
í bæjarstjórn. í skýrslunni er
gerð grein fyrir vali íþróttaráðs
á snjótroðara og ákvörðunin
rökstudd.
í skýrslu íþróttafulltrúa kemur
fram að í upphafi umræðna um
málið var strax hallast að því að
festa kaup á Kassbohrer af svip-
aðri gerð og fyrir er í Hlíðarfjalli.
Ekki voru gerðar neinar ráðstaf-
anir til utboðs vegna kaupanna
þar sem íþróttaráð hafði þegar
kynnt sér þær gerðir snjótroðara
sem í boði voru og talið umrædda
gerð heppilegasta.
Rökstuðningur fyrir valinu var
aðallega sá að óheppilegt væri að
festa kaup á annarri gerð snjó-
troðara en fyrir var í Fjallinu,
einkum með tilliti til varahluta.
Kassbohrer troðarinn sem fyrir
er hefur reynst mjög vel þau 9 ár
sem hann hefur verið í notkun í
Hlíðarfjalli. Þá segir í skýrslunni
að nauðsynlegt sé að panta troð-
ara í september eða október ef
hann á að koma í gagnið á næsta
skíðatímabili.
Gísli Bragi Hjartarson sagði á
bæjarstjórnarfundinum að bæjar-
verkfræðingur hefði verið hafður
með í ráðum við val á snjótroð-
ara. Þá hefði íþróttaráð frétt af
tilboðum frá Leitner og Kass-
bohrer vegna snjótroðarakaupa
fyrir skíðasvæðið í Oddsskarði og
þar hefði Leitner reynst mun dýr-
ari. Kjarni málsins væri sá að
ekki hefði komið til greina að
kaupa Leitner troðara þar sem
þeir væru þyngri og hefðu ekki
reynst eins vel og Kassbohrer við
þær aðstæður sem væru í Hlíðar-
fjalli.
Bæjarráð Akureyrar ákvað 15.
þ.m. að kaup á stærri tækjum og
vélum til bæjarins skuli framvegis
gerð eftir útboð eða ítarlegan
samanburð á verði og gæðum.
Bæjarverkfræðingur skal hafa
yfirumsjón með slíkum málum.
EHB
Útflutningsgreinar
í vaxandi erfiðleikum
- segir Jón Sigurðarson, forstjóri Álafoss hf.
Mikil óvissa ríkir í efnahags-
málum þessa dagana því ekk-
ert er vitað með vissu um
aðgerðir væntanlegra stjórn-
valda. Jón Sigurðarson, for-
stjóri Álafoss hf., telur afar
brýnt að grípa sem fyrst til
aðgerða til hjálpar útflutnings-
greinum. Meginatriðið sé að
treysta grundvöll útflutnings-
iðnaðar til framtíðar með var-
anlegum lausnum.
„Það vantar sífellt meira upp á
að hægt sé að reka útflutningsiðnað
í þessu landi. Okkur bráðliggur á
festu í efnahagsmálum þannig að
unnt sé að gera áætlanir og gera
sér grein fyrir því sem er fram-
undan. Þetta gildir um ullariðn-
aðinn og annan þann útflutnings-
iðnað sem ég þekki til,“ sagði Jón
Sigurðarson um stöðu útflutn-
ingsiðnaðarins.
- En hvað segir forstjóri Ála-
foss um millifærsluleiðina?
„Það bráðliggur á festu í þess-
um málum. Menn hafa verið að
ræða um millifærslu til sjávar-
útvegsins. Það yrði reiðarslag fyr-
ir útflutningsiðnað landsins ef
millifærslan kæmi eingöngu fram
í sjávarútvegi því aðrar útflutn-
ingsgreinar en sjávarútvegur
þurfa jáfnvel enn frekar á henni
að halda. Ég tel millifærslu raun-
ar vera gervilausn og til þess
fallna að fresta því að taka á
vandanum. Ég spái því að ef
menn fara millifærsluleið muni
þeir sjá rekstrarstöðvun mjög
margra útflutningsfyrirtækja á
næstu mánuðum.“