Dagur - 24.09.1988, Page 12
e^TiBéöö1*-^ SI0W5Í&S5 W8
„Það er
dásamlegtað
sofabakvið
pálmatré“
ann sendi ég þetta í fjölritun og
gaf þar með út bók.
Helmingurinn af efninu er á
íslensku og helmingurinn á
ensku. Bókin var gefin út í 100
ónúmeruðum og ótölusettum
eintökum og fæst hún hvergi. Eg
á ennþá tugi bóka, en hef fleygt
henni í vini og kunningja við
mikla kátínu.“
- Þú hefur líka dundað við
smásögur, ekki satt?
„Jú, maður er alltaf skrifandi
eitthvað en það verður voðalega
lítið úr því. Það situr í mér að
klára nógu margar sögur til að
eiga nóg í hefti, kannski 10-15
sögur, en það gengur hægt. Ég
skrifa eina góða sögu á ári og ætli
ég verði ekki um fertugt þegar ég
get gefið út fyrstu og sennilega
einu bókina.“
- Þú hefur kannski lítið skrif-
að á íslensku eftir að þú fórst út.
„Ég hef ekkert skrifað á
íslensku. Það er orðið svo að ég
er betur talandi á ensku en
íslensku. Það er ferlegt að koma
heim og þurfa allt í einu að tala,
hlusta og hugsa á íslensku. Síðan
tala ég þýsku við mömmu. Þýsk-
an er núna komin í þriðja sæti.
Ég reyni að halda henni við úti
með því að ráðast á hvern Þjóð-
verja sem ég kemst í færi við og
lesa þýskar bækur.“
„Reagan er venjulegt
gamalmenni“
- Snúum okkur að Bandaríkjun-
um. Þú fórst í tískunámið fjöl-
miðlafræði. Er það draumurinn
að segja okkur kvöldfréttirnar í
framtíðinni, í útvarpi eða sjón-
varpi?
„Nei, ég verð sennilega aldrei
fyrir framan myndavélarnar,
heldur á bak við þær. Ég er á
sérstöku sviði fjölmiðlafræði
þarna úti sem heitir: Broadcast
journalism, og snýst eingöngu
unt sjónvarp. Þetta svið skiptist
síðan í tvennt; annað hvort að
vera fréttamaður eða tæknimað-
ur á bak við vélarnar. Ég er á
tæknibrautinni, enda hef ég eng-
an áhuga á því að standa fyrir
framan vélarnar. Það er nóg að
horfa á sjálfan sig í spegli svo
maður þurfi nú ekki að horfa á
„Veit enginn hvort ég giftist þarna
Úti.“ Myndir: GB
sjálfan sig á skjánum líka.
Það má eiginlega segja að ég sé
í kvikmyndatökunámi, með þá
sérgrein að taka myndir sem
passa í fréttir sem eru 1-1VS
mínúta að lengd. Þetta er ekki
langur tími til að segja frá ein-
hverju mikilvægu og hugmyndin
er að reyna að gefa meiri upplýs-
ingar varðandi fréttina með
myndum, „illústrera“ fréttirnar.
Þeir segja þarna úti að maður
geti aldrei fengið vinnu í þessu
nema að hafa farið í vissa
þjálfun, sem felst í ólaunuðu
starfi við sjónvarpsstöð. Ég var
svo heppinn að komast til Wash-
ington og vann í sumar hjá
Washington Indipendent News.
Þetta er nokkurs konar umboðs-
aðili. Það var hringt í okkur utan
af landi og einhver sjónvarpsstöð
vildi fá efni frá Washington í
kvöldfréttirnar. Við fórum og
tókum upp efnið og sendum það
síðan í gegnum gervihnött til við-
komandi sjónvarpsstöðvar.
„Betur talundi á ensku en íslcnsku.“
Ég vann þarna sem hljóðmað-
ur og kynntist aragrúa af míkró-
fónum. Ég fór í Hvíta húsið og sá
Reagan tala, Jackson sá ég líka,
Bush og fleiri toppa. Þetta voru
ósköp venjulegir menn, Reagan
er bara venjulegt gamalmenni."
„Sæki kannski um hjá
Sjónvarpinu“
- Ertu búinn að ákveða hvernig
og hvar þú ætlar að nota þetta
nám?
„Nei, það kemur til greina að
vinna í Bandaríkjunum en það er
mjög erfitt að fá atvinnuleyfi þar.
Helst er það hægt ef maður giftist
bandarískri stúlku og er öruggur
með búsetu. Það veit enginn
hvort ég giftist þarna úti.
Ég er að velta því fyrir mér að
fara til Ástralíu þegar námi
lýkur. Ég á töluvert af vinum þar
og mig hefur alltaf hálfpartinn
langað til að búa þar. Svo er
aldrei að vita nema maður sæki
bara um starf hjá Sjónvarpinu og
flytji alfarinn til Reykjavíkur og
fari aldrei út framar. Mér þykir
það samt ólíklegt."
„Síðan getur maður þess vegna leg-
ið í „coma“ fram að næsta degi.“
- Flökkueðlið er þá ekki alveg
dautt.
„Flökkueðlið er alltaf að drepa
mig. Maður er í viku á einum
stað og er ekki í ró fyrr en maður
er kominn á annan stað.“
- En flakkari eins og þú hlýtur
að sjá ísland í öðru ljósi en hinir
átthagakæru. Hvernig líst þér á
land og þjóð?
„Landið er afskaplega fallegt
og myndrænt. Mig hefur langað
mikið til að koma hingað með
kvikmyndatökuvél og gera 15-20
mínútna heimildarmynd um
Eyjafjörðinn, Akureyri og
nágrenni, til að sýna fólkinu úti.
Fólk sem ég hef talað við í
Bandaríkjunum veit ósköp lítið
um ísland og það væri gaman að
geta skellt spólu í tækið og sýnt
því hvernig landið er.“
Snjóhúsin hituð upp
með rafmagni!
- Og losna þannig við eskimóa-
ímyndina.
„Já, ég er oft spurður hvort ég
búi í næsta húsi við eskimóa eða
hvort við búum í snjóhúsum.
Einn mann hitti ég í Egyptalandi,
og sá þóttist fróður. Hann hafði
það fyrir satt að við ættum heima
í snjóhúsum og að við hituðum
snjóhúsin með rafmagni. Hann
var mikið að velta því fyrir sér
hvernig við kæmum í veg fyrir að
snjóhúsin bráðnuðu þar sem það
væri svo hlýtt inni í þeim!
Vitneskjan um ísland þarna úti
er voðalega takmörkuð. Maður
sér landið í öðru ljósi en aðrir,
t.d. þegar maður er spurður um
hluti sem manni þykja sjálfsagðir
en aðrir furða sig á. Ég get nefnt
drykkjarvatnið, skyrið, fiskinn,
mjólkina og smjörið. Það eru
svona hlutir sem maður saknar
úti.“
Þar með sláum við botninn í
þetta spjall. Jens var á leiðinni til
Bandaríkjanna aftur. Hann
skrapp til íslands í vikutíma til að
heilsa upp á móður sína á Krist-
nesi, en síðasti veturinn í skólan-
um er framundan og hvað síðan
tekur við hjá honum er stórt
spurningarmerki. SS
DANSSKÓLI
Scéáu
Síðustu innritunardagar
Kennsla hefst 26. september
Nemendur athugið!
Afhending skírteina verður laugardaginn 24. sept-
ember milli kl. 14 og 16.
Nánari upplýsingar í síma 26624.
TILBOÐ
óskast í eftirtaldar tjónabifreiðar
Volvo 244 ........................... árg. 1978
Mazda 323 4x4 Turbo ................. árg. 1987
Volkswagen Golf ..................... árg. 1986
M M Spacewagon 4x4 .................. árg. 1988
Subaru Sedan ........................ árg. 1983
Bifreiðamar eru til sýnis að Glerárgötu 24. Tilboð
leggist inn fyrir fimmtudag 29. september nk.
Brunabótafélag íslands Akureyrarumboð
Langar þig
að starfa í
hjálparsveit?
Vaxtarræktin
Nú fer nýliðaþjálfun Hjálparsveitar skáta Akureyri að
hefjast, því verður efnt tií kynningarfundar á starfsemi
sveitarinnar, þriðjudaginn 27. september kl. 20.00.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði sveitarinnar Lundi
v/Skógarlund.
Við leitum að fólki 17 ára og eldra sem hefur áhuga á
björgunarstörfum hvar sem er og hvenær sem er. Fólki
sem er tilbúið að leggja á sig mikla vinnu við margvísleg
störf.
Allir sem áhuga hafa og vilja kynna sér málið ættu að
koma á kynningarfundinn. Þar verður gerð grein fyrir
starfinu í máli og myndum.
r
Vaxtarræktin Iþróttahöll
Almennir tímar:
Mánud. og fimmtud. kl. 16.30-
20.30.
Þriðjud., miðvikud., föstud. kl.
16.30-22.00.
Laugard. kl. 10.00-14.00.
Byrjendatímar karla:
Þriðjud. — föstud. kl. 20.00.
Laugard. kl. 11.30.
Kvennatímar:
Dagtímar: mánud. og miðvikud.
kl. 14.00.
Kvöldtímar: mánud. og fimmtud.
kl. 20.30.
Laugard. kl. 10.00.
Leiðbeinendur:
Sigurður Gestsson,
Einar Guðmann,
Kristjana ívarsdóttir og
Halla Stefánsdóttir.
Mánaðargrjald. kr. 2.500.-
Frjáls mæting.
Nánari upplýsingar í síma 21061.