Dagur - 03.11.1988, Blaðsíða 15
3. nóvember 1988 - DAGUR - 15
Otrúlega léttur sigur hjá KA
KA vann frækinn sigur á liði
Víkings 30:20 í íþróttahöllinni
í gærkvöld. Gæðamunurinn á
þessum tveimur liðum var
ótrúlegur og líktust gestirnir
frekar miðlungs 2. deildar liði
en frambærilegu 1. deildarliði.
„Petta var sigur liðsheildarinn-
ar,“ sagði Friðjón Jónsson fyrir-
liði KA-liðsins kampakátur eftir
sigurinn. „Við höfum lagt mikið
á okkur að undanförnu og úrslit-
in því ánægjuleg,“ bætti hann
við.
í byrjun leit út fyrir jafnan og
spennandi leik. Víkingar skor-
uðu fyrsta markið en KA jafnaði.
Gestirnir freistuðu þess að leika
vörnina framarlega og klippa
þannig á skyttur KA-liðsins. Það
gekk ekkert of vel því bæði Erling-
ur og Friðjón þrumuðu tuðrunni
í netið fyrstu mínúturnar.
Sóknarleikurinn hjá KA var
ekki nógu einbeittur í fyrri hálf-
leik en það sem bjargaði liðinu
var einstaklingsframtakið í sókn-
inni. Vörnin small hins vegar vel
saman um miðjan fyrri hálfleik-
inn og markvarslan hjá Axel var
mjög góð. Heimamenn sigu þvt'
fram úr og höfðu fjögurra ntarka
forskot í leikhléi 12:8.
Duranic þjálfari hefur sjálfsagt
lesið vel yfir KA-liðinu í leikhléi
því þeir kontu ntjög frískir til
leiks og skoruðu fjögur fyrstu
mörkin. Eftir það var aldrei
spurning hvoru megin sigurinn
myndi lenda. Þeir gulklæddu fóru
hreinlega á kostum fyrstu mínút-
urnar og vissu Víkingar ekki
hvaðan sig á stóð veðrið. Þar var
fremstur í flokki Jakob Jónsson
og skoraði fjögur falleg mörk í
röð.
Varnarleikurinn var mjög góð-
ur hjá KA-mönnum og voru þeir
rauðklæddu farnir að skjóta úr
algjörlega lokuðum færum. Axel
varði líka eins og berserkur á
sama tíma og hreinlega lokaði
markinu á tímabili.
Nú gripu Víkingar til þess ráðs
að taka tvo menn úr umferð hjá
KA. Við þetta kom dálítið fát á
sóknina og fóru heimamenn illa
að ráði sínu í nokkrum sóknum
og reyndi Jakob m.a. nokkur
vafasöm skot. Á þessum tíma
ntinnkuðu Víkingar muninn úr
20:12 f 21:16.
En þeir gulklæddu tóku sig
saman í andlitinu og hireinlega
rúlluðu Víkingum upp. Þar bar
mest á Sigurpáli Árna Aðal-
steinssyni og skoraði hann m.a.
þrjú mörk í röð á glæsilegan hátt.
Hrósa verður liðsheildinni hjá
KA í þessum leik enda vannst
hann á mikilli baráttu og
- unnu Víking 30:20 í gærkvöld
skemmtilegri samvinnu leik-
manna. Áfram með þetta strákar!
Þótt KA liðið hafi náð mjög
hagstæðum úrslitum í þessunt
leik mega þeir ekki ofmetnast.
Andstæðingurinn var mjög slak-
ur að þessu sinni og það eru
nokkur atriði sem þarf að fín-
pússa fyrir næsta leik gegn FH-
ingum.
Víkingar mega muna sinn fífil
fegri í handknattleik. Það þarf
sjálfsagt að leita mörg ár aftur í
tímann til að finna leik þar sem
þeir tapa með tíu marka mun. í
þessum leik bar mest á Árna
Friðleifssyni og einnig átti Eirík-
ur Benónýsson þokkalegan lcik.
Úrslit í öðrum leikjum urðu
þannig að Valur vann UBK
27:23, FH vann Stjörnuna 24:23,
og KR vann Fram 30:18. Leik
ÍBV og Gróttu var frestað.
Mörk KA: Sigurpáll Árni Aðal-
steinsson 9/6, Erlingur Kristjáns-
son 5/1, Friðjón Jónsson 5, Pétur
Bjarnason 4, Jakob Jónsson 4,
Guðmundur Guðmundsson 2,
Svanur Valgeirssson 1/1.
Mörk Víkings: Árni Friðleifsson
6/2, Eiríkur Benónýsson 4,
Bjarki Sigurðsson 3, Sigurður
Ragnarsson 3, Karl Þráinsson 2,
Jóhann Samúelsson 1, Siggeir
Magnússon 1
Þau voru mörg glæsileg niörkin hjá KA í gærkvöld. Mynd: tlv
- fimm af Norðurlandi í þeim hópi
Knattspyrna:
„Vil vera með
KA-liðinu áfram“
Boðið fór í gegnum Skíða-
samband íslands og ákvað það að
hvert hinna átta skíðahéraða
myndi tilnefna einn fulltrúa.
María Magnúsdóttir verður full-
trúi Akureyrar, Sigurður Hreins-
son fulltrúi Húsavíkur, Bjarni
Jóhannsson fer frá Dalvík, Guð-
mundur Óskarsson frá Ólafsfirði,
Halldóra Blöndal verður fulltrúi
Austurlands, en Siglfirðingar
voru ekki alveg búnir að ganga
frá tilnefningu þegar blaðið fór í
prentun.
Eins og flestir vita þá varð
borgin Albertsville í Frakklandi
fyrir valinu til að halda Vetrar-
ólympíuleikanna árið 1992. Áður
en keppnisstaðurinn var valinn
höfðu Frakkarnir lofað að bjóða
3000 ungmennum til borgarinnar
ef þeir hnepptu hnossið. Það
varð ofan á og síðan hafa krakk-
arnir streyint til borgarinnar.
Eins og gefur að skilja komast
ekki allir fyrir í einu og koma
ungmennin því í smærri hópum.
íslenski hópurinn fer út 13.
janúar og borga gestgjafarnir all-
an kostnað við ferðina frá Kefla-
víkurflugvelli til Frakklands.
Boð Frakkanna var skilyrt að
því leyti að fulltrúarnir máttu
ekki vera landsliðsfólk, vera á
aldrinum 16-18 ára og bæði ætti
að senda fulltrúa norrænu og
alpagreinanna.
Stjórn SKÍ ákvað því að þau
átta skíðahéruð sem öflugasta
hafa starfsemina myndu tilnefna
einn fulltrúa hver og síðan velur
stjórn SKÍ einn skíðamann í við-
bót við hina átta.
Skíðahéruðin átta sem um
ræðir eru Akureyri, Dalvík,
Ólafsfjörður, Húsavík, Siglu-
fjörður, Austurland, ísafjörður
og Reykjavík.
- segir Bjarni Jónsson
Að vanda stunda margir leik-
manna KA-Iiðsins í knatt-
spyrnu nám í Reykjavík yfir
vetrartímann. Það fara því
ætíð sögur af stað að hinn eða
þessi ætli að skipta um félag og
leika með öðru liði næsta
sumar. Dagur forvitnaðist um
áform nokkurra leikmanna
með því að slá á þráðinn til
þeirra í höfuöborginni.
„Ég stefni á það að vera áfram
fyrir norðan og spila með KA,“
sagði Bjarni Jónsson hinn knái
miðjumaður KA-liðsins þegar
hann var spurður um næsta
sumar. „Vandamálið er að ég
klára tölvunarfræðina í
Háskólanunt unt áramótin og er
nú þegar í vinnu hjá Skýrsluvél-
um ríkisins. Ég veit ekki hvernig
það mun ganga að aðlaga knatt-
spyrnuna að vinnunni, því maður
hleypur ekki svo auðveldlega frá
Bjarni Jónsson.
nýrri vinnu. Hins vegar vona ég
að það gangi upp og ég geti spilað
með KA næsta sumar.
- Friðfinnur Hermannsson
lýkur viðskiptafræðiprófi næsta
vor og hefur í hyggju að stunda
framhaldsnám erlendis. Hann
var spurður hvort það myndi hafa
áhrif á knattspyrnuna næsta
sumar.
„Framhaldsnám er ekki á
dagskrá fyrr en næsta haust þann-
ig að það eitt ntun ekki hafa áhrif
á knattspyrnuiðkunina. Það er
öruggt að ég mun ekki spila með
neinu félagi hér fyrir sunnan og
ef ég spila með einhverju liði
verður það örugglega KA. Hins
vegar er því ekki að leyna að lík-
aminn er aðeins farinn að þreyt-
ast, en knattspyrnan er jú bakter-
ía sem erfitt er að losna við,“
sagði Friðfinnur Herntannsson.
Stefán Ólafsson lýkur sjúkra-
þjálfaraprófi í júní og þarf þá að
öllum líkindum að skila ein-
hverju vinnuprógrammi. Það er
því spurning hvað mikið hann
getur verið með í boltanum næsta
sumar.
Ekki er vitað annað en að
Steingrímur Birgisson, sem lýkur
viðskiptafræðinni næsta vor, og
Arnar Bjarnason komi aftur og
spili með KA næsta sumar.
Jón Kristjánsson lék sinn fyrsta
leik með Valsmönnum í gær-
kvöldi í handboltanum og hann
mun sjálfsagt ekki gera upp hug
sinn í sambandi við fótboltann
fyrr en með hækkandi sól og
minnkandi mána.
Franska ríkisstjórnin og
franska Ólympíunefndin hafa
ákveðið að bjóða níu íslensk-
um skíðamönnum á aldrinum
16-18 ára til borgarinnar
Albertsville í Frakklandi.
Þetta er í kynningarskyni fyrir
Vetrarólympíuleikanna sem
haldnir verða í borginni árið
1992.
Fulltrúar íslands eru bæði í norrænum- og alpagreinum.
Ungum skíðamönnum
boðið til Frakklands