Dagur - 18.11.1988, Page 3
18. nóvember 1988 - DAGUR - 3
Hlustunarsvæði Hljóðbylgjunnar stækkar verulega:
Norðanmenn að heQa
útsendingar í Reykjavík
- fyrsta
„Við förum í loftið fyrsta
desember,“ sagði Pálmi
Guðmundsson útvarpsstjóri
Hljóðbylgjunnar á Akureyri.
Hljóðbylgjan hefur fengið leyfi
útvarpsréttarnefndar til
útsendinga á höfuðborgar-
svæðinu og á fullveldisdaginn
geta íbúar á svæðinu hlustað á
norðanmenn á FM-95.7 sem er
gamla Ljósvakatíðnin.
Fjórir Hljóðbylgjumenn munu
leggjast í víking og hafa aðsetur
sitt í hljóðveri Útrásar, útvarpi
framhaldsskólanema, en það er í
Ármúlaskóla í Reykjavík. Auk
Pálma munu þau Snorri Sturlu-
son, Hafdís Eygló Jónsdóttir og
Linda Gunnarsdóttir sjá um
útsendingin á fullveldisdaginn
dagskrá stöðvarinnar fyrir
sunnan. Páimi sagði að viðbót-
armannskap fengi stöðin á
heimavelli og nefndi að þegar
hefðu nokkrir vanir útvarpsmenn
m.a. af Stjörnunni sótt um vinnu
hjá Hljóðbylgjunni í Reykjavík.
I janúarbyrjun fá þeim Hljóð-
bylgjumenn örbylgjulínu suður
yfir heiðar og flytja sunnanfarar
sig þá aftur heim í hérað og senda
alla sína dagskrá út frá Akureyri.
Pálmi sagði að vissulega væri til-
tækið dýrt í framkvæmd, „en það
var annað hvort að hrökkva eða
stökkva.“ Auglýsendur sagði
hann strax hafa sýnt mikil við-
brögð og væru þeir spenntir fyrir
hinni nýju útvarpsstöð. „Hlust-
endur eru forvitnir þegar ný stöð
fer í loftið og það vita auglýsend-
ur. Við eru því bjartsýn á að
þetta gangi vel,“ sagði Pálmi.
Rekstur Hljóðbylgjunnar sagði
hann ganga vel um þessar mundir
og var þokkalega ánægður með
auglýsingamagnið. „Við höfurn
orðið vör við samdrátt á síðustu
vikum í kjölfar ástandsins í þjóð-
félaginu,“ sagði Pálmi.
Útsendingartími Hljóðbylgj-
unnar á höfuðborgarsvæðinu
verður frá klukkan átta á morgn-
ana til klukkan eitt eftir mið-
nætti. Dagskrá Hljóðbylgjunnar
sem send er út yfir hlustunar-
svæðið á Norðurlandi verður eftir
sem áður óbreytt. mþþ
Árekstrum í þéttbýli
Ijölgar verulega
- dauðaslysum í umferðinni flölgar
Á fyrstu átta mánuðum þessa
árs létust 22 í umferðarslysum
hér á landi, tveimur fleiri en á
öllu síðasta ári. Á þessum tíma
urðu 490 umferðarslys en 506
slys urðu á sama tíma í fyrra og
stefnir því í að slysum fjölgi
verulega á þessu ári, en hafa
ber í huga að bflafloti lands-
manna hefur töluvert stækkað
á sama tíma.
Það er athyglisvert þegar litið
er á tölur um slys að fjölgun
þeirra í þéttbýli er mikil. Skráð
slys í þéttbýli á þessu átta mán-
aða tímabili eru 350 en voru 313
Jólin koma:
Jólatrén
á öllu árinu í fyrra. í dreifbýli
voru 193 skráð slys á öllu síðasta
ári en voru orðin 140 í septem-
berbyrjun í haust.
Slasaðir í umferðinni þann 1.
september voru 687 en voru 740 á
árinu 1987. Mest fjölgar þeim
sem verða fyrir minni háttar
meiðslum. Eins og við er að
búast eru slasaðir í umferðinni
flestir ökumenn og farþegar bif-
reiða en þó hefur slysum á öku-
mönnum bifhjóla og fótgangandi
vegfarendum fjölgað nokkuð.
Jafn margar konum höfðu slas-
ast í umferðinni á fyrstu átta
mánuðum þessa árs og á öllu síð-
asta ári. Hins vegar höfðu 412
karlar slasast á þessu tímabili í
umferðinni en 450 á öllu árinu í
fyrra. JÓH
Á fyrstu átta mánuðum ársins urðu
490 slys í umferðinni hér á landi.
V *«v«iuiUUI
hefhr verlð opnuð
Gler^ötu 28, sínii 22551.
Aðaláliersla er InrrA -
ogskrejUngar
'r,ð 0,1 tæklfœri.
vandaa®n“*“ttUPPá
FyrirttpSff. teðar aafevðrur.
bjS™^néS(rf,u,?u,u
Ss ,.og^uTuaiaðglÖf
að þær prífíst veí cf óskað er
°*)ið tílkUUUa ch<u>
Nú streyma
jólavörumar inn
Pils ★ Blússur ★ Bolir ★ Kjólar
★ Peysur
Mikið úrval af skartgripum væntanlegt í vikunni.
Komið og gerið
góð kaup meðan
úrvalið er mest.
Opið á laugardögum
frá kl. 10-16.
Sunnuhlíð 12, sími 22484.
falla í
Fnjóskadal
Starfsfólk Skógræktarinnar að
Vöglum í Fnjóskadal stendur í
stórræðum þessa dagana við
að höggva væntanleg jólatré
landsmanna.
Sigurður Steinþórsson sagði í
samtali við Dag, að góð tíð undan-
farið hefði gert að verkum, að vel
hafi gengið við höggið. „Það er
að verða mjög jólalegt hjá okkur,
en við erum nú búin að fylla eitt
hús af jólatrjám," sagði hann.
Þegar höggi lýkur, tekur við
vinna við snyrtingu trjánna fyrir
sölu. Trén frá Vöglum eru seld á
svæðinu frá Blönduósi allt til
Þórshafnar. VG
Þakkir frá
Akureyrar-
kirkju
Kærar þakkir til hinna fjölmörgu
sem komu í safnaðarheimilis-
bygginguna sunnudaginn 6.
nóvember sl. og lögðu þar fram
sinn skerf til styrktar því stóra
verkefni. Sá áhugi og góðvild,
sem sóknarbörnin sýna þvf að
safnarheimilið rísi sem fyrst, flýt-
ir framkvæmdum.
Sóknarnefndin.
Akureyringar
og nágrannar
í tilefni 4ra ára afmælis verslunarinnar Vatnsrum i Keyr
sölumaður að Hótel KEA frá kl. 14-21 laugardaginn 1'
nk., með myndir og baeklinga til sýnis.
15% staðgrei&sluafsláttur.
7% afsláttur af greiöslukjörum - Lánstími allt aö 12 mánuöir
60 daga skilafrestur og 5
á dýnum og hitara
Verslunin Vatnsrúm hf
Borgartúni 29, sími 91-621622.
Rúmgott sf.
Ármúla 4, sími 91-689477