Dagur - 18.11.1988, Side 9

Dagur - 18.11.1988, Side 9
8 - DAGUR - 18. nóvember 1988 18. nóvember 1988 - DAGUR - 9 spurning vikunnar Ertu farin(n) að huga að undirbúningi jólanna? Spurt á Húsavík Sigrún Jónasdóttir: Ég var aö kaupa þrjú jóladagatöl og ég hef veriö að föndra meö börnunum. Ég byrja að undirbúa jólin um mánaöamótin. Sigvaldi Jónsson: Með aldrinum mér aftur fer því áttu’ aö trúa vina játa aö konan jafnan sér um jólahátíðina. Kristinn V. Magnússon: Nei, ekki aldeilis. Ég byrja svona um miðjan desember og hugsa aö ég byrji á að smala saman krakkahópnum til aö fá hann heim um jólin. Björn Líndal: Ég er ekki byrjaður en þaö fyrsta sem ég geri er að senda pakka til útlanda í byrjun desember. Ég held aö konan sé farin að baka einhverjar kökur og fyrstu merkin um jólaundirbúning á heimilinu eru þegar frúin byrjar smáköku- bakstur. Sigrún Ingvarsdóttir: Eru aö komajól? Þaö eru hreinar línur að ég er ekki farin aö huga aö jólaundirbúningi en kona sem ég þekki mjög vel er farin aö baka smákökur. Þaö er gott bakarí hérna og þar fást Ijómandi tertubotnar og fleira svo ég hef akkúrat engar áhyggjur af bakstri. UMF Vorboðinn: Fárnnnt fékg sem hefitr óíf frábœrt fijálsíþróttqfólk — byggir nú sinn eigin íþróttavöll með þriggja kvölda félagsvist hérna á hótelinu og fengum þar þokkalega aðsókn. í vetur ætlum við að haida eitt innanfélagsmót á Húnavöllum í hverjum mánuði sem verður skipt í fjóra aldurs- flokka. Þetta er nýjung í starfi félagsins og er ætlað til að hvetja krakkana til að mæta á æfingarn- ar. Með vorinu ætlum við að verðlauna þá krakka sem mæta best og sýna mestu frámfarir og besta árangur eftir veturinn samanlagt." - Hafið þið haft þann hátt á að verðlauna íþróttafólkið fyrir mætingar? „Já við byrjuðum á því á síð- asta ári að verðlauna fyrir mæt- ingar á árinu 1987. Við verð- launuðum þá sex aðila, þrjá úr hvorum flokki fyrir bestu mæt- ingu, þau fengu veggplatta. Síð- an skiptum við í tvo aðra hópa sem fengu verðlaunaskjöl fyrir góða mætingu. Þetta virkar hvetjandi sérstaklega á yngri krakkana og maður varð var við það í sumar að þeir vildu helst ekki tapa úr neinni æfingu. Það verður alltaf að hafa eitthvað til að stefna að í öllu félagsstarfi og þetta virðist hafa hitt í mark." - Er ekki vandasamt fyrir þjálf- arann að vera með svona breiðan aldurshóp? „Jú, það var mjög erfitt fyrir hann og manni fannst stundum alveg óskiljanlegt hvernig hann komst yfir það á tveim tímum að gera eitthvað fyrir alla. Hins veg- ar vorum við svo heppin á sl. sumri að USAH réði til sín þjálf- ara í byrjun júlí sem var þá hjá okkur eitt kvöld í viku. Þá gátu þjálfararnir skipt liðinu á milli sín eftir aldri og þetta gekk allt mun liðlegar. Það er varla hægt að ætla einum manni að æfa svona breiðan aldurshóp." Tekjur af Lottóinu eru drjúgar - Hvernig fjármagnar svo lítið félag sem Vorboðinn er allt þetta íþróttastarf og framkvæmdir? „Það er nokkuð erfitt en þó ekki eins og mætti álíta í fyrstu. í sambandi við byggingu íþrótta- vallarins höfum við fengið alveg frábær viðbrögð frá mörgum heimaaðilum. Félagasamtök og einstaklingar hafa styrkt okkur verulega og gerðu það strax á fyrsta árinu sem við vorum að vinna að vallargerðinni. Fyrir utan það þá hefur Engihlíðar- hreppur sýnt þessu máli mikinn skilning og styrkt okkur reglu- bundið á hverju ári síðan við hóf- um framkvæmdirnar þar. Það má segja að ef við reiknum inn í dæmið allt ógreitt framlag frá rík- inu þá eigum við völlinn skuld- lausan eins og hann stendur. Ríkisstyrkurinn er greiddur með jöfnum afborgunum á fjórum árum eftir að hver framkvæmd er unnin þannig að ef það þarf að brúa það bil með lánum þá hækka þau mikið á þeim tíma sem beðið er eftir styrknum en hann er óverðtryggður og stend- ur í stað eða hann hefur ekkert hækkað fram að þessu frá því að við hófum okkar framkvæmdir. Lottóið hjálpar okkur mikið því það hefur nægt fyrir greiðsl- um til þjálfara á sl. ári." Vel gæti Vorboðinn átt eftir að fara aðra sigurgöngu eins og 1962 þegar unga fólkið sem nú er að æfa nær keppnisaldrinum. fli Kvenfólkið lét ekki sitt eftir liggja við að þekja völlinn. Ungmennafélagið Vorboðinn er gamalt ungmennafélag, var stofnað þann 3. janúar 1915. Félagssvæði Vorboðans nær yfir Engihlíðar- og Vindhælishrepp sem eru með fámennustu hreppum Austur-Húnavatnssýslu. Frátt fyrir fámennið hefur starfsemi félagsins oft staðið í miklum blóma og oft hefur félagið haft á að skipa mjög góðu frjálsíþróttafólki á landsvísu. Á sjötta áratugnum og nokkuð fram yfir 1960 stóð frjálsíþróttalíf innan félagsins mjög vel en þegar þeir sem þá höfðu skarað fram úr hættu að æfa íþróttir og keppa varð nokkur aðdragandi að því að nýtt fólk fyllti þau skörð. Félagið hélt upp á 70 ára afmæli sitt árið 1985 með því að hefja framkvæmdir við að koma upp eigin íþróttavelli á Bakkakotsmelum og er nú fyrirhugað að halda upp á 75 ára afmælið með því að ljúka gerð vallarins þá. Héraðsmót í frjálsum íþróttum bar hæst í hátíðarhöldum 17. júní. inum kcrhur til meö að kosta okkur um 400 þúsund." - Hvað er það stór hópur af krökkum og unglingum sem get- ur mætt á æfingar þegar allir mæta? Æfíngar vel sóttar „Það eru í kringum 30 manns og í sumar kom það ekki fyrir að færri en 20 mættu á æfingarnar. Hitt var þó algengara að það væru 25 til 30 sem mættu og það sýnir best hvað áhuginn er mikill. Það má segja að aldur þeirra sem mættu á æfingarnar hafi verið frá sex ára og upp undir fertugt." - Hefur íþróttafólk Vorboð- ans náð því að skila einhverjum stórum afrekum í sumar? „Það er ekki hægt að segja að það séu nein stór afrek en það eru félagar frá okkur í sýsluliði USAH bæði í meistaraflokknum og eins í yngri flokkunum sem hafa farið og keppt fyrir USAH á mörgum mótum. Við eigum mjög efnilega unga krakka sem lofa góðu og það hefur verið mik- il framför hjá þeim. Margir þeirra cru það ungir að þeir eru rétt að komast upp í að verða gjaldgengir í aðalkeppnina. Við höfum verið með okkar stærsta hóp á unglingamótunum en nú er að koma að því að þeir fari að keppa á héraðsmótum og í eldri flokkunum.“ - Eru félagar í Vorboðanum ekki aðeins úr Vindhælis- og Engihlíðarhreppi? „Jú það má nú segja það en hins vegar eru nokkrir Blöndós- ingar í félaginu.“ Vaxandi vetrarstarf - Hvað um vetrarstarfið? „Það er nú fyrst síðustu tvo veturna sem við höfum verið með skipulagðar íþróttaæfingar yfir veturinn. Við vorum nýverið Systkinin frá Móbergi unnu marga glæsta sigra En það mun hafa verið árið 1954 sem ungt fólk frá UMF Vorboð- inn fór að hasla sér verulega völl á sviði íþróttanna. Þrjú systkini frá Móbergi í Langadal, Guð- laug, Stefán og Valdimar Stein- grímsbörn voru afburða íþrótta- fólk og margir aðrir af félögum Vorboðans unnu til verðlauna á héraðsmótunum á þessum árum. Guðlaug Steingrímsdóttir kom fyrst inn í keppni árið 1954 og var alveg sérstaklega fjölhæf íþrótta- kona og keppti jafnt í hlaupum, stökkum og köstum. Keppnis- ferill hennar stóð fram til ársins 1967 og sum héraðsmet hennar hafa staðið mjög lengi án þess að þeim væri hnekkt og enn á hún héraðsmet í 100 m hlaupinu en það met setti hún árið 1961, 12,7 sek. Alls setti Guðlaug héraðsmet í 9 greinum frjálsíþrótta á íþrótta- ferli sínum og oft í sumum grein- unum. Valdimar Steingrímsson setti héraðsmet í 200 m hlaupi 1960, hljóp á 23,4 sek. Bræðurnir Valdimar og Stefán voru mjög harðir spretthlauparar en ekki eins fjölhæfir íþróttamenn og systir þeirra. Lúvís Pétursson, Vorboðanum setti héraðsmet í 5000 m hlaupi 1961, hljóp þá vega- lengd á 17:32.0 mín. svo vel má sjá að Vorboðinn átti góða full- trúa á mótum á þessum tíma. Sveit frá UMFÍ fór keppnis- ferð til Danmerkur 1961 og á því móti setti húnvetnska sveitin héraðsmet í 5x80 m hlaupi kvenna. Þrjár af þeim stúlkum sem skipuðu þá vösku sveit voru einmitt frá UMF Vorboðanum, en það voru auk Guðlaugar þær Margrét Hafsteinsdóttir og Ásta Karlsdóttir. Á þessum árum var Pétur H. Björnsson frá Móbergi formaður Vorboðans en hann er föður- bróðir íþróttafólksins frá Móbergi. Þessi vasklegi hópur sótti æfingar á Vorboðavellinum 1987. ur til æfinga en í vetur erum við með æfingu á laugarÖögum í íþróttasalnum á Blönduósi." Þjálfarinn okkar hefur sjálfur verið í skóla á Sauðárkróki en þrátt fyrir það hefur hann komið hingað á æfingarnar bæði nú og í fyrravetur.“ Þetta átti nú allt að vera smærra í sniðum - Verður það ekki að teljast bjartsýni hjá svo litlu félagi að koma upp sínum eigin íþrótta- velli. Hvenær fæddist sú hugmynd? „Þetta átti nú í fyrstu allt að vera mun smærra í sniðum en mönnum dettur í hug í dag. Þeg- ar við fórum að ræða í alvöru um æfingaaðstöðu fyrir krakkana þá var aðeins um tvennt að ræða. Annars vegar að koma upp aðstöðu á Bakkakotsmelunum eða að fá að æfa á Blönduósi. Það var mikill áhugi fyrir því inn- an félagsins að koma upp eigin æfingaaðstöðu. Þetta þróaðist svona smátt og smátt og kom að því að við fengum jarðýtu til að slétta svolítið svæði þarna á mel- unum. Síðan kom að því að við fengum íþróttafulltrúa ríkisins til að líta á svæðið og honum leist mjög vel á þetta allt saman. Áhorfendasvæðin eru tilbúin af náttúrunnar hendi og efni sem á svæðinu var taldi hann mjög gott til vallargerðar. Ég vil nú meina að það hafi verið fyrir hvatningu frá honum sem við ákváðum að gera þarna íþróttavöll af þeirri stærð að hann væri gjaldgengur til styrkveitingar frá ríkinu. Það urðu þáttaskil eftir komu íþrótta- fulltrúans og við ákváðum að hafa þetta allt vandaðra og stærra í sniðum en við ætluðum í fyrstu. Þá var ákveðið að koma þarna upp grasi grónum knattspyrnu- velli vegna þess að áhugi innan félagsins var það mikill að ljóst var að félagarnir voru reiðubúnir til að vinna það starf allt í sjálf- boðavinnu. Við fengum efnið í þökurnar einnig án endurgjalds og með þessu sköpuðum við okk- ur fjármagn til að standa undir kostnaði við fyrstu framkvæmdir á vellinum." Kostnaðarsöm mistök - Hver eru mörkin til að eiga rétt á framlagi frá ríkinu? „í upphafi var okkur tjáð að til þess þyrfti stærð vallarins að vera minnst 151,5x84 m með hlaupa- brautunum. Við fórum að vinna Hópur Vorboðafélaga á æfíngu. að vallargerðinni eftir þannig teikningu og gerðum knatt- spyrnuvöll sem var 177x92,5 m eins og teikningin sagði til um. Svo kom það í ljós á sl. sumri að misskilningur hafði orðið á milli félagsins og íþróttafulltrúans þannig að við höfðum talið að sú teikning sem við unnum eftir gæfi okkur möguleika á 400 m hlaupabraut allan hringinn en það reyndust aðeins vera 370 m brautir. Hvatinn að því að við fórum út í þetta var að við töldum okkur sjá að það yrði félaginu ekkert dýrara að vanda svona til vallarins og ná ríkisframlaginu heldur e'n að byggja upp góðan æfingavöll á eigin reikning.“ - Hvað annað er komið í gagnið en fótboltavöllurinn? „Það er búið að steypa kast- hringi fyrir kúlu og kringlu og það er byrjað að leggja hlaupa- brautir. 100 m brautir eru full- frágengnar og það hefur nýverið klárast að breikka völlinn sam- kvæmt nýrri teikningu og það liggur fyrir núna, ef veðurguðirn- ir verða okkur hliðhollir, að fara í það á næstu dögum að mæla fyr- ir hlaupabrautunum og gróf- leggja í þær. Fyrst búið er að breikka völlinn á þetta allt að fara að ganga upp.“ - Er til áætlun um hvað þessar framkvæmdir muni kosta? „Upphaflega áætlunin hljóðaði upp á rétt um 1500 þúsund fyrir utan það sem unnið er af félögun- um í sjálfboðavinnu og með því fannst okkur að ríkisstyrkurinn mundi dekka kostnað við þá vinnu sem við þyrftum að kaupa. En vegna þeirra upphaflegu mistaka sem uppgötvuðust ekki fyrr en á sl. sumri er ljóst að kostnaðurinn verður mun meiri og breytingarnar sem við urðum að gera urðu til þess að útlagði heildarkostnaðurinn fer að nálg- ast 2 milljónir. Stækkunin á vell- Hér áður var héraðsmót USAH í frjálsum íþróttum fastur liður í hátíðarhöldum á Blöndu- ósi þann 17. júní og eru ábyggi- lega margir sem sakna þess að héraðsmótið skuli vera horfið úr hátíðarhöldum þjóðhátíðardags- ins. Á seinni árum virðist áhugi á frjálsum íþróttum hafa vikið verulega fyrir knattspyrnunni og handboltanum og héraðsmót í frjálsum íþróttum er ekki lengur sá mikli stórviðburður í augum almennings sem það var á árun- um frá 1950 og fram um 1970. Á þessum árum áttu Húnvetningar margt mjög gott frjálsíþróttafólk sem sást á verðlaunapöllum á landsmótum. Auðvitað voru það stærstu félögin, Fram á Skaga- strönd og Hvöt á Blönduósi sem börðust um sigurbikarinn á hér- aðsmótunum. Stjórn og varastjórn Vorboðans. F.v. Valdimar Guðmannsson, Sigurður Ágústsson, Olafur Kristjánsson, Kristján Frímannsson og Björn Björnsson. Sitjandi Magðalena Jónsdóttir og Fjóla Ævarsdóttir. Þessi ungmenni hlutu verðlaun fyrir besta árangur, mestu framför og bestu mætingu á æfíngar 1987. Árið 1962 var óslitin sigur- ganga Vorboðans en það ár varð USAH 50 ára og Vorboðinn var það félag sem lengst hafði starfað innan sambandsins. Vorboðinn vann þá öll mót sem USAH gekkst fyrir á árinu en fyrir utan héraðsmótið var það sveita- keppni í skák og knattspyrnumót USAH. Þar að auki varð Guðlaug þre- faldur íslandsmeistari og Norður- landsmethafi í 200 m hlaupi sem um leið jafnaði gildandi íslands- met. Nú er þjálfað allt árið Nú á undanförnum árum hefur félagsstarf Vorboðans verið fjöl- þætt sérstaklega á sviði frjáls- íþrótta. Félagið hefur sl. tvö ár verið með þjálfara allt árið, Guðmund Ragnarsson, frjáls- íþróttamann frá Blönduósi, og yfir sumartímann hefur hann þjálfað á Vorboðavellinum tvö kvöld í viku en yfir veturinn er aðeins ein æfing í viku, nú í íþróttasal grunnskólans á Blönduósi. Áður en Guðmundur réðist sem þjálfari til félagsins hafði Þórhalla Guðbjartsdóttir þjálfað hjá Vorboðanum í tvö sumur en það starf féll þá niður yfir vetrarmánuðina. Nýverið hefur Vorboðinn stað- ið fyrir þriggja kvölda félagsvist á Hótel Blönduósi og var aðsóknin þar allgóð. Núverandi formaður Vorboð- ans er Valdimar Guðmannsson í Bakkakoti. Blaðamaður Dags spjallaði við Valdimar til að fræð- ast um starf Vorboðans. Það verður að stefna að einhverju sérstöku markmiði - Hvenær hófst þessi fjörkippur í frjálsíþróttastarfi Vorboðans? „Hann hófst strax eftir að við hófum framkvæmdir við að koma upp okkar eigin íþróttavelli. Það var árið 1984 og síðan þá hefur áhuginn farið ört vaxandi, það þarf alltaf að keppa að einhverju sérstöku markmiði ef vel á að ganga. Fyrst vorum við með eina frjálsíþróttaæfingu á viku en sl. sumar æfðum við tvisvar í viku og þær æfingar voru síst verr sóttar þó að þeim væri fjölgað um helming. Svo var það á sl. vetri að við fórum einnig að halda uppi æfingum yfir vetrarmánuðina og þá í íþróttasalnum á Húna- völlum. Við fengum því fram- gengt að skólabíllinn færi tveim tímum seinna frá Húnavöllum á föstudögum og sá tími var notað- Unnið við stækkun Vorboðavallarins. Guðlaug Steingrímsdóttir sigurvegari á landsmóti í Reykjavík 1961.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.