Dagur


Dagur - 18.11.1988, Qupperneq 6

Dagur - 18.11.1988, Qupperneq 6
6 - DAGUR - 18. nóvember 1988 WgíM íffK till ..... ts pi mw jjll 4f?ö#¥ í'jki ifc/ '• Austur-Húnavatnssýsla: Brunavarnir í 30 ár Stofnsamningur um Bruna- varnir Austur-Húnavatnssýslu var gerður á Hótel Blönduósi þann 20. nóv. 1958 og eru sam- tökin því 30 ára næst komandi sunnudag. í fyrstu bráða- birgðastjórn samtakanna til næsta sýslufundar voru kjörnir Hermann Þórarinsson, Bjarni Ó. Frímannsson og Grímur Gíslason. Þetta hefur þó ekki verið fyrsti vísirinn að brunavörnum í hérað- inu því þann 25 okt. árið 1939 var Jón Einarsson ráðinn slökkviliðs- stjóri á Blönduósi. Á fyrstu árunum eftir að Brunavarnir Austur-Húnavatns- sýslu voru stofnaðar fylgdi starf slökk viliðsstj óra sveitarstj óra- starfinu á Blönduósi og síðar færðist það yfir til verkstjóra Blönduóshrepps. Þann 1. nóv. 1981 varÞorleifur Arason ráðinn í fast starf sem slökkviliðsstjóri og hefur hann gegnt því starfi síðan. Hann var áður starfsmaður Blönduós- hrepps og meðfram því lausráð- inn slökkviliðsstjóri frá árinu 1971 og varamaðurfrá 1969. Þor- leifur er enn í dag eini fastráðni starfsmaður Brunavarna Austur- Húnavatnssýslu en lausráðnir menn sem sinna útköllum eru nú 25 talsins og auk þess er 5-9 manna lið í hverjum sveitahrepp- anna. Það sem þá gerði mögulegt að ráða slökkviliðsstjóra í fasta stöðu var samstarf við Flugmála- stjórn. Slökkviliðsstjórar á undan Þor- leifi og auk Jóns Einarssonar sem áður er getið voru Sigurgeir Magnússon, Einar S. Jónsson, Skúli Jakobsson, Einar Þorláks- son og Þorvaldur Ásgeirsson. Fyrsta bifreið slökkviliðsins var keypt árið 1959. Það er rússneskt torfærutröll sem hentar vel til að brjótast áfram í snjó og ófærð en hentaði ekki vel til að slnna útköllum um langan veg inn til sveita. Árið 1972 var svo önnur bifreið keypt. Hún er af gerðinni Bedford og mun hress- ari í lengri ferðum en eldri bifreiðin þótt ekki geti hún talist hraðskreið. Það var svo í júlí 1979 sem fest voru kaup á þriðju bifreiðinni sem er búin froðu- tanki og hefur hún verið notuð sem flugvallarbifreið. Sú bifreið er í eigu Flugmálastjórnar. Slökkvistöðin hafði aðsetur í áhaldahúsi Blönduóshrepps fram til ársins 1975 en þá var byggð slökkvistöð sem stendur við Norðurlandsveg, norðan Blöndu. í apríl 1984 var komið upp neyðarsíma með útkallskerfi fyrir slökkvilið lækna, sjúkraflutn- ingamenn og löreglu. Símanum var valinn staður á Héraðssjúkra- húsinu. Það mun hafa ráðið stað- arvalinu að það var og er eina stofnunin á Blönduósi sem hefur fasta vakt allan sólarhringinn. Það er full ástæða til að þakka starfsfólki sjúkrahússins fyrir þá þjónustu sem þar hefur verið veitt í sambandi við þessa neyð- arþjónustu. Árið 1984 var sett upp sérstakt útkallskerfi fyrir slökkviliðið. Það er mikið öryggisatriði þar sem kalla þarf út mannskap út um allan bæ þegar litköll verða. Slökkvistöðin á Blönduósi er í heild þokkalega búin tækjum þótt alltaf megi gera betur. Núverandi slökkviliðsstjóri hefur unnið mikið og gott starf í þágu brunavarna í héraðinu. fh * Viðskiptavinir! Komið og skoðið kjötborðið hjá okkur Þið farið örugglega ekki tómhent heim. Mikið úrval af salötum og alltaf eitthvað nýtt, til dæmis: Túnfisksalat, ferskt ávaxtasalat, luxussalat og ekki má gieyma kjötinu. Erum með mikið úrval af réttum beint á pönnuna og í ofninn, svo sem: Hvítlauksstungið lambalæri, Sæl- kerapannan, ítalskt buff og Ostabuff. Athugið! Kynning verður í gangi í dag og á morgun. Gjörið svo vel - Velkomin í Hrísalund. Opið til kl. 19.00 í kvöld föstudagskvöld og til kl. 16.00 laug- ardaga.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.