Dagur - 02.12.1988, Page 5
2. desember 1988 - DAGUR - 5
„Dagbók góðrar
grannkonu
- skáldsaga eftir
Doris Lessing
Bókaútgáfan Forlagið hefur gefið
út skáldsöguna Dagbók góðrar
grannkonu eftir Doris Lessing.
Þuríður Baxter þýddi söguna.
Doris Lessing er Isíendingum að
góðu kunn, en áður hefur Forlag-
ið gefið út skáldsögu hennar,
Grasið syngur.
Sagan segir frá Jane Somers.
Hún er kona í ábyrgðarstöðu og
hefur alla tíð hugsað fyrst og
fremst um starf sitt, útlit og
frama. Þegar hún horfir á eftir
eiginmanni sínum og móður í
gröfina, rennur smám saman upp
fyrir henni að samband hennar
við samferðamenn sína hefur
verið reist á sandi.
Af tilviljun kynnist hún gamalli
konu, Maudie, sem komin er um
nírætt. Smám saman þróast sam-
band þeirra á þá lund að Jane
axlar ábyrgð á gömlu konunni og
dregur um leið lærdóm af lífi
hennar. Maudie sýnir henni ver-
öld sem Jane hefur aldrei kynnst,
óvægna baráttu ungrar stúlku um
aldamótin fyrir tilveru sinni -
baráttu sem ekki er lokið, því að
á gamals aldri berst hún jafn von-
lausri baráttu fyrir verðugu lífi.
í frétt Forlagsins segir m.a.:
„Dagbók góðrar grannkonu vitn-
ar um djúpan mannskilning og
tilfinningahita mikils rithöfund-
ar.
„Leitin að
dvragaröinum
- Sagnasafn eftir
Einar Má
Leitin að dýragarðinum, sagna-
safn eftir Einar Má Guðmunds-
son er komið út hjá Almenna
bókafélaginu. Sögurnar í bókinni
eru átta og nefnast: Sending að
sunnan, Malbikunarvélin, Garð-
yrkjumennirnir, Austrið er rautt,
Regnbogar myrkursins, Þegar
örlagavindarnir blésu, Æðahnút-
ar og eiturlyf og Leitin að dýra-
garðinum.
Eins og sjá má af titlunum er
þetta sagnasafn fjölbreytt. Einar
leiðir í því fram margar og ólíkar
persónur. Meðal annars Ágúst,
fyrrum hafnarverkamann, sem
reynir fyrir sér sem sölumaður
um allt land, þrjá bræður sem
bregða búi og flytja til Reykja-
víkur, sérvitringana Jakob og
Ólaf, hjónin Nikulás og Nönnu
og námsmann sem sér loks fyrir
endann á doktorsritgerð sinni um
portkonur á miðöldum eftir nær
tveggja áratuga háskólanám.
Nafn sitt dregur bókin af loka-
sögunni sem fjallar um ungan og
andlega sinnaðan Fransmann
sem kemst að þeirri niðurstöðu
að eyja úti í hafi með rúmlega
200.000 íbúa hljóti að vera stærsti
dýragarður í heimi.
„Mjófírðingasögur 11“
- eftir Vilhjálm Hjálmarsson
Bókaútgáfa Menningarsjóðs hef-
ur gefið út annan hluta af Mjó-
firðingasögum, eftir Vilhjálm
Hjálmarsson á Brekku, en fyrsti
hluti þeirra kom út árið 1987.
Rekur höfundur að þessu sinni
byggðarsöguna í átthögunum
eystra og spannar sveitina sunnan
fjarðar og í botni hans. Greint er
frá bújörðum og landsnytjum á
þeim slóðum og birt bændatöl
með bólstaðalýsingum. Inn á
milli er svo skotið ítarlegum köfl-
um um síld- og hvalveiðar
Norðmanna í Mjóafirði og af
Sveini Ólafssyni, héraðshöfð-
ingja og alþingismanni, er sat
óðalið Fjörð allan fyrri hluta
aldarinnar, en af honum varð
staðurinn víðfrægur.
í fréttatilkynningu frá útgef-
anda segir m.a.: „Mjófirðinga-
sögur“ lýsa tímabili mikilla breyt-
inga í lifnaðarháttum, sviptinga í
atvinnulífi og röskunar íbúa-
fjölda. Sögusviðið er afmarkað
en þó vítt og sérstakt. Þar lifðu
og störfuðu Mjófirðingar Vil-
hjálms á Brekku, dáðrakkir og
eftirminnilegir þegnar, sem lögðu
af mörkum ærin drög að sögu
lands og þjóðar."
Rúmdýnur!
Latex og svampur
Latex koddarnir komnir.
Allar svampvörur.
10-15% afsláttur til 16. desember.
Verslið v/Ö fagmann.
Svampur og bólstrun
Austursíðu 2, sími 96-25137.
■s
■S.
Hægt er á einlaldan hátt að setja
inn á upptöku daginn, mánuðinn,
árið, klukkutimann og mínúturnar
(t.d. 21.08.88/19:30:00). Eftir að
einu sinni er búið að stilla inn
dagsetningu og tíma er hvenær
sem er hægt að kalla upplýs-
ingarnar fram aftur því klukkan
gengur þótt slökkt sé á vélinni.
Einnig er hægt að setja titil inn á
mynd, t.d. Sigga 5 ára eða Jólin
1988 og geyma tvo titla i minni. Þá
er hægt að velja um .g.
átta liti I letrið. l
Ótrúiega
l'llar spólur
9.4 cm á breidd og
6 cm á hæö.
Fáanlegar 30 min., 60 min., 120 min.
og 180 min.
Sex sinnum Zoom linsa.
Sjálfvirkur og handvirkur tókus.
CCD myndrásir.
Þriggja tima upptökuspólur.
Innbyggður hljóðnemi.
Tengi fyrir aukahljóðnema.
Ljósnæmi 12 lux.
Heyrnartólstengi.
Sjállvirk og handvirk hvituviðmiðun.
Stafrænt (digital) minni til texta og
t myndinnsetninga.
A Hreinar myndklippingar.
A Hrein myndinnsetning.
Video-8 videomyndavélakerfið frá
Sony fer nú sigurför um heiminn
og fjölgar þeim stöðugt framleið-
endunum sem veðja á video-8 sem
framtiöarmyndavétakerfið, enda
skiptir ekki máli hvaöa mynd-
bandstæki eöa sjónvarpstæki þú
átt, video-8 passar
Allt sem er tekið upp sést jafnóðum
i innbyggðum skjá þannig að það
fer aldrei á milli mála hvað er veriö
aö gera. Þá er skjárinn líka notaöur
i afspilun og skiptir þá ekki máli
hvort þú ert uppi á Vatnajökli, I
miðri Sahara eða bara niðri við
Tjörn. Þú getur hvenær sem er
skoðað upptökurnar á staönum.
Einnig gefur innbyggði skjárinn
upplýsingar um allar gjörðir
vétarinnar ásamt upplýsingum um
birtu, rakastig, ástand rafhlööu og
svo framvegis.
JAPIS
Er myndin í fókus eða ekki? Á
Sony CCD-F330 þurfum við ekki að
hafa áhyggjur af svoleiöis hlutum
eða þá birtu- og hvitustillingu þvi
hægt er að hafa allar stittingar sjálf-
virkar og sér þá vélin um að allt sé
rétt, þú þarft bara að fylgjast
meö þvi sem þú .............."
ert að taka upp. \
Vélin sér um \ \ \
yTÉT' afganginn. \
SKIBM3ATA1 - SlM 96 25611
PASSAR VIÐ ÖLL TflEKI
Þar sem myndavélin er lika
afspilunartæki er hægt að tengja
hana við öll sjónvarpstæki og sýna
beint af vélinni eða tengja við
heimiHsmyndbandið og ,,kHppa“,
þ.e.a.s. færa á milli þau atriði sem
þið viljið varðveita af upptökunni
eða búa til eintök til að senda
vinum og vandamönnum.