Dagur - 02.12.1988, Side 14
14 - DAGUR - 2. desember 1988
Viðskiptavinir
athugið!
Vöruafgreiðsla á Akureyrarflugvelli verður
opin til kl. 12.00 laugardaginn 3. desember.
FLUGLEIDIR
Hvað er að gerast
L
Skákfélag Akureyrar:
Sveitakeppni gnumskóla
og 15 mínútna mót
Frá menntamálaráðuneytinu:
Lausar stöður
við framhaldsskóla
Að Fjölbrautaskólanum í Breiðholti vantar stunda-
kennara á vorönn í:
Þýsku, eðlisfræði, efnafræði, sálarfræði og rafiðnir, en
í þá grein er óskað eftir tæknifræðingi.
Þeir sem hug hafa á kennslu eru beðnir að senda umsókn-
ir til skólameistara fyrir 10. desember n.k.
Menntamálaráðuneytið.
★
Allar auglýsingar sem þarf að vinna sérstak-
lega, þurfa að berast til auglýsingadeildar
tveimur til þremur dögum fyrir birtingu.
Auglýsingadeild Dags.
Skókfélag Akureyrar heldur 15
mínútna mót á föstudagskvöldið.
Tefldar verða sjö umferðir eftir
Monrad kerfi. Mótið hefst kl. 20.
Á laugardaginn kl. 13.30 hefst
sveitakeppni grunnskóla á Akur-
eyri og í Eyjafjarðarsýslu.
Nemendur í 1 .-6. bekk leiða sam-
an hesta sína á laugardaginn.
Á sunnudaginn kl. 13.30 tefla
Nonnahús:
Jólamarkaður
og kaffisala
Zontaklúbbur Akureyrar verður
með jólamarkað og kaffisölu í
Zontahúsinu Aðalstræti 54, á
morgun laugardag 3. desember
kl. 15-18.
Þar verður margt á boðstólum
svo sem handunnið jólaskraut,
jólaservíettur og jólapappír,
laufabrauð og kökur, glænýr
broddur úr sveitinni. Einnig
verður bókin Nonni í nýrri útgáfu
til sölu ásamt Nonnabókum á
þýsku. Tilvaldar jólagjafir til vina
heima og erlendis.
Það verður jólastemmning í
Zontahúsinu, kaffi og heitar
vöfflur og happdrætti í gangi.
(S)Metabo
Jólatilboð
(jjj)Metabo
rafmagnsverkfærum
Rafhlöðuborvélar
Verð frá kr. 12.700.-
Höggborvélar
Verð frá kr. 7.035.-
Stingsagir
Verð frá kr. 9.255.-
Metabo = Ending + Kraftur + Oryggi
Byggingavörur
Lónsbakka, símar 21400 og 23960.
nemendur í 7.-9. bekk. Hver
skóli má senda fjórar sveitir í
hvorn flokkinn og sigurvegarar
öðlast réttindi til að taka þátt í
íslandsmóti grunnskólasveita
sem haldið verður næsta vor í
Reykjavík.
I fyrra bar A-sveit Gagnfræða-
skóla Akureyrar sigur úr býtum í
flokki eldri nemenda, en Á-sveit
Lundarskóla sigraði í yngri
flokknum. Þetta er ein fjölmenn-
asta keppni sem Skákfélag Akur-
eyrar stendur fyrir.
Húsavíkurkirkja:
Aðventustund
á sunnudag
Aðventifstund verður haldin í
Húsavíkurkirkju sunnudaginn 4.
des. og hefst kl. 17.00, en frá
16.45 mun David Thompson
leika jólalög á píanó.
Á efnisskánni er forleikur á
píanó, flytjandi David
Thompson. Samleikur á píanó og
flautu, flytjendur David Thomp-
son og Keith Miles. Flaututríó,
Keith Miles, Kristín Magnúsdótt-
ir og Þorgerður Þráinsdóttir.
Sharon Thompson syngur ein-
söng. Sr. Kristján Valur Ingólfs
son Grenjaðarstað flytur ræðu.
Saxófónkvartett leikur en hann
skipa: Keith Miles, Grétar Sig-
urðsson, Karl Hilmarsson og
Kristján Þ. Magnússon. Óli Hall-
dórsson og Vaiur Guðmundsson
leika á gítar. Að Iokum flytur
kirkjukórinn nokkur verk undir
stjórn Sharon Thompson og við
undirleik David Thompson. IM
Jólafötin sýnd
í SjaUanum
í kvöld
Þeir sem farnir eru að huga að
jólafötunum í ár geta barið aug-
um það helsta sem tískuverslanir
á Akureyri bjóða upp á nú fyrir
jólin á þeim vettvangi. í kvöld
verður nefnilega heilmikil
tískusýning í Sjallanum þar sem
fjölmargar verslanir sýna nýjustu
línurnar í jólafatnaði.
Húsið verður opnað kl. 22.00
og verður þá boðið upp á for-
drykk og einnig geta þeir sení
vilja fengið sér ostapinna í
svanginn. Að því loknu hefst
tískusýningin. Þær verslanir sem
þátt taka í sýningunni eru, Fínar
línur, Tískuverslunin Ess, JMJ
Fan Unique, Skótískan, Sport-
húsið, Tara, Perfect og ída. Sól-
veig Grétarsdóttir hefur umsjón
með sýningunni.
Hljómsveitin Strax mun síðan
hefja leik sinn og spila fyrir gesti
. nokkur vel valin lög og loks verð-
ur slegið upp diskóteki.
WlfWMM
viA Hvannavelli.
Símar 24119 og 24170.
Volvo 240 GL, árg. ’86.
Ek. 35 þús. km. Verð kr. 820.000,00.
Subaru st. 4x4, árg. ’88.
Ek. 42 þús. km. Verð kr. 670.000,00.
Subaru 4x4 Justy, árg. ’86.
Ek 35 þús. km. Verð kr. 380.000,00.
MMC L-200 4x4, árg. ’82.
Ek. 88 þús. km. Verð kr. 350.000,00.
MMC Pajero long T/D, árg. ’87.
Ek. 90 þús. km.Verðkr. 1.350.000,00.
Range Rover, árg. ’82.
Ek. 93 þús. km. Verð kr. 850.000,00.
Lada Samara, árg. ’88.
Ek. 11 þús. km. Verð kr. 280.000,00.
Toyota Tercel 4x4, árg. ’85.
Ek. 73 þús. km. Verð kr. 500.000,00.
Greiðslukjör
við allra hæfi
WZLmiuw