Dagur - 16.12.1988, Page 3
Vigdís á óskalistanum.
armál í heiðurssessi á náttborði
hennar. Þar voru einnig íslend-
ingasögurnar, „en það gengur
hægt og rólega með lestur þeirra.
En þær hlaupa ekki frá mér.“
Ekki segist Guðný geta talist
hreinræktaður bókaormur, hún
hafi þó töluvert lesið á yngri
árum, „samt ekki svo mikið að ég
hafi legið yfir bókunum og klárað
þær á einum sólarhring. Ég er
frekar lengi að lesa og lengi að
melta bækurnar, þetta tekur allt
sinn tíma.“
Eftirminnilegustu jól Guðnýj-
ar í bókalegu tilliti sagði hún vera
jólin er hún hafi lesið Capitolu.
„Ég var ákaflega hugfangin.
Þetta var bók sem heillaði mig
mjög.“
Að fínna lausn á dularfulla kattar-
hvarfinu á einni jólanóttu var mikið
afrek.
Margrét Blöndal:
Slíylda ad lesa
alla jólanóttina
„Ég er að lesa Óbærilegan létt-
leika tilverunnar og ætla mér
að klára hana fyrir jólin,“
sagði Margrét Blöndal dag-
skrárgerðarmaður. „Ég er
búin að sjá kvikmyndina, en ég
á von á að bókin sé enn betri.“
Margrét sagði að það væri
skylda að lesa helst alla jólanött-
ina, láta fara vel um sig og maula
konfekt og sötra á „maltesíni"
blöndu maltöls og appelsíns, en
það væri hennar jóladrykkur.
„Ég man eftir því þegar ég í
fyrsta sinn komst yfir að klára
heila bók yfir nóttina. Þá þótti
ntaður sko maður með mönnum
og bræður mínir hættu að líta á
mig sem algjöran smápolla."
Bókin sem Margréti tókst að
klára á einni nóttu hið fyrsta sinni
var Dularfulla kattarhvarfið um
félaga Finn og þótti Margréti sem
og bræðrunum mikið til koma.
Efst á óskalista Margrétar af
jólabókum þessa árs er Leitin að
dýragarðinum eftir Einar Má
Guðmundsson. Þá nefndi hún
þýðingu Kristins R. Ólafssonar á
bókinni Paskval Dvarte og hyski
hans og sagðist hún hlakka til að
lesa þá bók. Dagbók góðrar
grannkonu eftir Doris Lessing
var líka ofarlega á lista Margrét-
ar. „Ég vona bara að ég komist
yfir að lesa þessar bækur.“
Fer á ærlegt bókafyllerí um jólin.
Stefanía
Þorgrímsdóttir:
Tómasar Jónssonar
jólin eftirminnileg
Ást og skuggar Isabelle Allende
og Járngresið sem Guðbergur
Bergsson þýðir voru þær bæk-
ur sem Stefanía Þorgrímsdóttir
frá Garði í Mývatnssveit
nefndi sem líklegar bækur til
jólalestrar. Stefanía er nú
búsett á Vopnafirði, þangað
sem hún flutti í haust og sagð-
ist hún hafa skilið bókasafn sitt
eftir heima í héraði. Þangað
stefnir fjölskyldan yfir jóla-
hátíðina og þá hyggst Stefanía
draga fram nokkrar bækur úr
bókasafni sínu, sem skilið var
eftir í Garði er fjölskyldan
flutti búferlum.
„Ég hef hugsað mér að fara á
ærlegt bókafyllerí um jólin,
svamla bæði í ýmsum góðkunn-
ingjum úr bókasafninu og eins
berst væntanlega eitthvað af nýj-
um bókum inn á heimilið. Eina
bók get ég nefnt sem mikil sálu-
bót er að í skammdeginu og það
er Slagur vindhörpunnar eftir
Heinesen í þýðingu Guðfinnu
Þorsteinsdóttur, Erlu.“
Á jólum er fastur liður hjá fjöl-
skyldunni að fletta í gegnum
Aldirnar, einkum eldri bækurn-
ar. Annar siður er að hlusta á
jólaleikrit af hljómplötu og er
Gullna hliðinu og íslandsklukk-
unni brugðið undir nálina til
skiptis á milli ára.
„Ég les alveg gífurlega mikið
og hef alltaf gert. Frá því í sept-
ember hef ég einkum lesið hand-
bækur verkalýðshreyfingarinnar
og þær eru á náttborðinu hjá mér
núna. Þetta er ágæt lesning, en
það er gott að breyta til um jólin.
Mér finnst afskaplega gott að
kíkja í gamaldags sakamálasögur
þegar ég er þreytt, þá á ég við
þessar heimilislegu glæpasögur af
gamla skólanum, sögur á borð
við þær sem Agatha Christie skrif-
aði og eins P.D. James. Ég er
ekki nógu ánægð með þær sögur
sem verið er að þýða nú á tímum,
það vantar þennan heimilislega
blæ í þær.“
Stefanía sagði að jólanóttin
væri notuð til lestrar og hádegis-
verði á jóladag hagað f samræmi
við það. Börn Stefaníu hafa tekið
upp lestrarsiði heimilisins og
sagði hún þau afar ánægð með
jólanóttina, hana fengju þau að
Iesa svo lengi sem þau vildu,
„þau hafa þessa einu nótt ársins
gulltrygga, það mælist enginn til
að þau slökkvi hjá sér ljósið þá
nóttina fyrr en þau sjálf kjósa.“
Stefanía minnist eftirminni-
legra jóla í tengslum við bóka-
lestur, og skal þá fyrst nefna er
hún las bókina Rúmið brennur.
Hún fjallar um konu sem verður
eiginmanni sínum að bana og er
sýknuð vegna aðstæðna. „Þessi
bók sat í mér öll jólin og ég var
alveg stórhættuleg manneskja.
Mér leið hálf einkennilega og var
lengi að átta mig á hvernig á
þessu stæði. Ég uppgötvaði það
síðan þegar ég hafði verið mjög
„aggressív“ í jólaboði!“
Stefanía segir bók eina hafa
haft veruleg áhrif á gang mála á
sínu heimili er hún var að alast
upp. Það var bókin Tómas Jóns-
son metsölubók eftir Guðberg
Bergsson. „Móðir mín fékk bók-
ina, illu heilli, fyrir jólin og sat
yfir bókinni og hló og hló.
Hvorki gekk né rak ineð jóla-
baksturinn og vorum við farin að
hafa verulegar áhyggjur af jóla-
haldinu. Þegar mamma hafði lok-
ið lestrinum greip ég bókina til að
athuga hvað væri svona merkilegt
við hana, að ekki væri hægt að
sinna jólaverkum hennar vegna,
en fann ekkert við bókina.
Fannst hún hreinasta rugl og
hafði um það mörg orð. En þetta
er ein af mínum uppáhaldabók-
um í dag og það er oft hlegið að
Tómasar Jónssonar jólunum í
fjölskyldunni í dag.“
IVfeð Sturlungu á náttborðinu.
Gísli Konráðsson:
Hef áhuga á að
grípa niður í ástar-
bréf Bryndísar
Gísli Konráösson fram-
kvæmdastjóri Útgerðarfélags
Akureyringa sagðist lesa það
sem kæmi upp úr jólapökkun-
um, „en það eru ýmsar forvitni-
legar bækur á ferðinni fyrir jól-
in núna. Ætli ég hafi ekki
mestan áhuga á að grípa niður
í ástarbréfin hennar Bryndísar.“
Af öðrum bókum sem út koma
fyrir jólin og Gísli hafði áhuga á
að lesa, nefndi hann bókina um
íslenskar kirkjur. „Ég vona að
tími vinnist til að lesa hana yfir
jólin. “
„Þegar mig vantar gott lesmál,
þá gríp ég í einhverja bók Hall-
dórs Laxness,“ sagði Gísli. Bækur
hans allar hefur Gísli lesið og
sumar hverjar marg oft.
- En á hann einhverja uppá-
haldsbók eftir Laxnes? Jú, vissu-
legá og segir hann svo vera og
nefnir fremsta meðal jafningja
bókina um Olaf Kárason Ljós-
víking; Heimsljós.
Ekki sagðist Gísli lesa mikið
yfir jólin, umstangið á heimilinu
væri að jafnaði mikið, enda börn-
in og barnabörnin gjarnan í
heimsókn. „Það er vakað lengi á
aðfangadagskvöld, þannig að
manni veitir ekki af því að fara
að sofa þegar allt umstangið er
búið.“
Bókin á náttborði Gísla dag-
ana fyrir jólin var Sturlunga.
„Ætli það sé ekki fyrir áhrif frá
honum Hrafnkeli Helgasyni úr
þáttum Hemma Gunn. Ánnars
gefst manni lítill tími til lestrar
núorðið, fjölmiðlarnir eru orðnir
svo yfirþyrmandi." mþþ
16. DESEMBER 1988 - DAGUR
':"3
r\
\fc
Óskum viðskiptavinum okkar
svo og öllum landsmönnum
gleðilegra jóla og
farsæls komandi árs
fíSi Sjóvátryggingafélag íslands hf.
Ráðhústorgi 5, sími 22244.
J)
' ;
V:
Oskum viðskiptamönnum
og landsmönnum öllum
gleðilegra jóla
og gleðilegs nýárs
Þökkum viðskiptin á liðnu ári.
<Sh> ~
<t
n
Við sendum okkar bestu
jóla- og nýárskveðjur
til viðskiptavina okkar og landsmanna.
Þökkum viðskiptin á árinu.
TEPPfíLRND - Dúkaland
------3
Sími 25055
<r
/
Bestu jóla- og nýársóskir
sendum við öllum viðskiptavinum
okkar og landsmönnum öllum.
Þökkum viðskiptin.
HAGKAUP
Norðurgötu 62
=J