Dagur - 16.12.1988, Page 18
ol8
- DAGUR 16. DESEMBER 1988
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 800 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 70 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 530 KR.
RITSTJÓRI:
BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON (Iþróttir),
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON
(Sauðárkróki vs. 95-5960), EGILL H. BRAGASON,
FRlMANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Hósavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON
(Reykjavik vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavik),
MARGRÉT ÞÓRA ÞÓRSDÓTTIR, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSMYNDARAR: GUÐMUNDUR HRAFN BRYNJARSSON,
TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
i
bœkur
!l
Örkin hans
Nonna
Iðunn hefur gefið út nýja barna-
bók eftir Brian Pilkington og
heitir hún Örkin hans Nonna.
Lausnarsedill myndgátu
Lausn:
Nafn:
Heimllisfang: Sími:
Utanáskriftin er: Dagur — (myndagáta) • Strandgötu 31 • Pósthólf 58 • 602 Akureyri
SkilaíresLux er ill lu. jaiuiar 1989
Hann hefur myndskreytt fjölda
barna- og unglingabóka, m.a.
Ástarsögu úr fjöllunum eftir
Guðrúnu Helgadóttur, bækurnar
um Elías eftir Auði Haralds og
margar fleiri, svo hann er lesend-
um að góðu kunnur. En að þessu
sinni sér Brian Pilkington ekki
einungis um myndskreytingu,
hann er jafnframt höfundur sögu-
textans.
Hér segir frá Nonna sem er
hræddur um að brátt fari að rigna
- hellirigna - og honum finnst
vissara að smíða sér örk eins og
Nói forðum, úr öllu timbrinu sem
hann hefur safnað saman. Þang-
að ætlar hann að safna dýrum,
helst tveimur af hverri tegund.
En það hefur margt breyst síðan
á tímum Nóa og flest fer öðruvísi
en ætlað er.
Bókin vakti mikla athygli á
bókasýningu í Bologna á Italíu
síðastliðið vor og kemur fljótlega
út í Bretlandi, Færeyjum, Sví-
þjóð og Þýskalandi, einnig stend-
ur til að gefa hana út í Bandaríkj-
unum. Prentun bókarinnar á við-
komandi tungumálum fer fram í
Prentsmiðjunni Odda hf. og er
það í fyrsta skipti sem samprent á
svo stóru upplagi fer fram hér-
lendis.
„Nikkólína og
villiköt.tiirinri“
Mál og menning hefur sent frá
sér norsku verðlaunamyndabók-
ina Nikkólfna og villikötturinn,
eftir Anne Kieruld. Þetta er saga
af sómakærri heimiliskisu sem
ókyrrist einn daginn og leitar í
burtu á vit ævintýranna. Fyrr en
varir skilar hún sér heim aftur og
ekki líður á löngu uns heimilis-
köttunum fjölgar.
Á hverri síðu eru litmyndir.
Bókin sem er 32 bls., er þýdd af
Silju Aðalsteinsdóttur.
/ í;. SiSMN
■•/iW. ELÐJÁR1
Nýjar sögur
um Kugg
Bókaútgáfan Forlagið hefur sent
frá sér bókina Kuggur til sjávar
og sveita eftir Sigrúnu Eldjárn.
Bókin hefur að geyma nýjar sög-
ur um snáðann Kugg og hana
prýða um 40 litmyndir eftir höf-
undinn. Þessar sögur eru sjálf-
stætt framhald bókarinnar Kugg-
ur og fleiri fyrirbæri sem út kom í
fyrra.
Kuggur til sjávar og sveita segir
frá kostulegum ævintýrum sem
þau lenda í - Kuggur og vinir
hans. Það eru þær Málfríður og
mamma hennar - kerlingar sem
ekki kalla allt ömmu sína þegar
taka skal til hendinni, að
ógleymdum Mosa - glaðlyndu og
hrekkjóttu kríli sem býr yfir
ótrúlegum hæfileikum. Þau eru á
eilífum þeytingi til sjávar og
sveita, bregða sér í útilegu, fara á
skak og stunda umsvifamikil
garðyrkjustörf - þó meir af kappi
en forsjá. Og síðast en ekki síst
bregða þau sér í geimferð til ann-
arrar stjörnu þar sem Málfríður
glatar pilsinu sínu og kemur aftur
til jarðarinnar á brókinni, segir í
frétt frá Forlaginu.
Kuggur til sjávar og sveita er
32 bls.
íslensk
ævintýrabók
Út er komin ný íslensk ævintýra-
bók, Óvænt ævintýri, eftir Olaf
M. Jóhannesson kennara - heill-
andi og skemmtileg bók við hæfi
allra þeirra er slíkum frásögnum
unna.
Lesandinn er leiddur inn í
heim ævintýranna er koma ein-
lægt á óvart, hvort sem lesandinn
ferðast í fylgd með hjálpsama
hvíta fuglinum, skapstyggu geit-
inni hans Jósa, svartþrestinum í
Blátannaborg, Bangsa litla,
töfrastafnum hans afa, Dísu í
eyðimörkinni eða malarastrákn-
um sem villtist frá myllunni sinni.
Ævintýrin eru rituð á ljósu og
vönduðu máli og prýdd fjölda
mynda eftir höfundinn. Ólafur
M. Jóhannesson hefur um árabil
ritað greinar í dagblöð. Sögur
eftir hann hafa birst í barnablöð-
um og verið fluttar í hljóðvarpi
og sjónvarpi:-' Ólafur er afar vel
ritfær og á auðvelt með að skilja
hugarheim barna.
Övænt ævintýri er 80 bls.
Kápumynd er eftir höfundinn en
útgefandi er Æskan.
„Iitla vampíran
flytur“
Bókaútgáfan Nálin hefur sent frá
sér barna- og unglingabókina
„Litla vampíran flytur“ eftir
v.-þýska höfundinn Angelu
Sommer-Bodenburg í íslenskri
þýðingu Jórunnar Sigurðardótt-
ur. Bókin er önnur bókin af átta í
samnefndum bókaflokki en hver
bók er sjálfstæð saga. Fyrsta
bókin, Litla vampíran, kom út á
síðasta ári og féll í góðan jarðveg
hjá börnum og unglingum,
Litla vampíran flytur, fjallar
eins og fyrsta bókin um vægast
sagt sérkennilega vináttu þeirra
Antons Túliníus og Runólfs
Hrollberg, en sá síðarnefndi er
vampíra! Fleiri koma þó við
sögu, til dæmis foreldrar Antons
sem trúa alls ekki á vampírur og
Anna hin tannlausa, systir
Runólfs. Hún var svo óheppin
að verða vampíra sem barn og
því eina vampíran sem verður að
nærast á mjólk! Runólfur Hroll-
berg á líkt og Anton í hálfgerðu
brasi við fullorðna ættingja sína,
því allur samgangur við mann-
anna börn er stranglega bannað-
ur. Og í nýju bókinni lendir
Runólfur í grafarbanni fyrir þá
sök eina að besti vinur hans er af
mannaættum! Hvert getur hann
leitað í vanda sínum annað en til
besta vinar síns . . . en ekki orð
meira um það!
Bókin er innbundin, 157 síður,
í vönduðu bandi, myndskreytt og
ætluð börnum á aldrinum 7-14
ára.