Dagur - 23.12.1988, Qupperneq 17
2ði desémbér 1508 - ÐAGlÍR - 17
poppsíðan
ji-----------------------
J Umsjón: Valur Sæmundsson.
Phil Collins 3. hluti:
Frægðarsólin hækkar ört
og skín og skfn og skín
Þarna eru Genesismeðlimirnir í pásu frá upptökum fyrstu plötunnar sem Phil Collins var aðalsöngvari á. Ekki verður
annað séð en að Phil (lengst til vinstri) sé hrókur alls fagnaðar.
Þessar gömlu eru alltaf skemmtilegar. Þetta er Phil að tromma með Genesis
árið 1972, í febrúar nánar tiltekið.
Phil í aðalhlutverkinu. Söngvarinn. Myndirnar eru frá hljómleikaferð Genesis í Japan í desember 1979.
og var allt yfirbragð hennar mun
léttara en á Face Value. Skífan
hlaut nafnið Hello I must be going!
og eitt laga hennar varð alveg feiki-
vinsælt. En það var þó ekki eftir Phil
sjálfan, heldurgamalt lag, You can’t
hurry love sem Diana Ross og stöll-
ur hennar í Supremes gerðu vin-
sælt árið 1966. Það ár komst lagið í
3. sætið á breska vinsældalistan-
um, en Collins kom því í fyrsta sæt-
ið þar sem það var lengi.
Næsta plata frá Phil Collins kom
svo ekki fyrr en 1985 en hann sat
ekki auðum höndum í millitíðinni.
Meðal verka hans á þessu tímabili
má nefna hið ofurfallega titillag úr
kvikmyndinni Against all odds og
lagið Easy lover, sem hann söng
með Philip Bailey söngvara Earth
Wind and Fire.en Phil hefureinmitt
notað blásturssveit EW&F á plötum
sínum. Bæði þessi lög náðu miklum
vinsældum.
En þriðja sólóplatan, No jacket req-
uired, er þó af mörgum talin sú
besta af sólóplötunum þremur. Á
henni er að finna mörg góð lög sem
náðu miklum vinsældum, m.a.
Sussudio, One more night, Don’t
lose my number og T ake me home.
Við skulum láta þetta nægja í bili en
frásögninni er hvergi nærri lokið.
Síður en svo.
Við skildum við síðast þegar verið
var að leita að nýjum söngvara fyrir
Genesis. Óhætt er að segja að leit-
að hafi verið með logandi Ijósi, því
að þegar hér er komið við sögu
höfðu yfir 300 umsækjendur verið
prófaðir. Þegar svo að lokum
einn var ráðinn var það enginn af
þessum 300, heldur var það
trommuleikari hljómsveitarinnar
sem tók stöðu Peters Gabriel við
hljóðnemann. Þ.e.a.s. Phil Collins.
Dulítið varð mörgum skemmt þegar
þessi ákvörðun var gjörð heyrin-
kunnug og töldu margir að sveitin
væri með þessu dauðadæmd, þar
eð Phil hafði litla reynslu sem
söngvari. Hann hafði að vísu sungið
á Genesisplötum en þau lög voru
teljandi á fingrum annarrar handar.
Auk þess áttu menn ekki von á að
Collins næði að viðhalda þeirri
ímynd sem Peter Gabriel hafði
skapað og aðdáendur töldu ómiss-
andi hluta af öllu því sem Genesis
fylgdi.
En Genesismenn létu þetta bölsýn-
istal ekkert á sig fá og strax í febrú-
ar 1976 kom plata frá þeim fjór-
menningunum. Skemmst er frá því
að segja að henni var forkunnarvel
tekið og ekki var frammistaða Coll-
ins við hljóðnemann síst lofuð.
Aðdáendur voru sammála gagnrýn-
endum og varð þessi skífa því sú
mest selda frá hljómsveitarinnar
hendi frá upphafi. Þetta þótti þeim
félögum í Genesis gaman og á
þessu sama ári kom önnur plata frá
þeim og þótt ótrúlegt megi virðast
stóð hún fyrirrennara sínum í engu
að baki. Phil Collins sýndi og sann-
aði á þessum tveim plötum hversu
góður söngvari hann var og víst er
það að ekki hefur honum farið aftur
síðan.
Lengra skulum við ekki rekja sögu
Genesis, en þó skal þess getið að
sveitin sú er enn starfandi, þó að
tónlistin hafi lést töluvert síðustu
árin og meðlimirnir orðnir ráðsettir
og rólyndir heimilisfeður í sveit (Phil
á líka heima í sveit en þó er hann
fremur lítt ráðsettur, t.d. á hann 20
bílal).
Snúum okkur að sólóferli Phils.
Hann hefur gefið út 3 sólóplötur. Sú
fyrsta kom út árið 1981 og bar nafn-
ið Face Value. Af þessari plötu
náðu tvö lög umtalsverðum vin-
sældum og eitt töluverðum. Lagið In
the air toníght varð afar vinsælt
enda mjög magnþrungið. Það
komst í 2. sætið á breska vinsælda-
listanum og lagið I missed again í
það 17. If leaving me is easy komst
svo í það 19. Platan er annars allt
öðruvisi en plötur Genesis, mun
einfaldari og rólegri og venjulegum
ástarsöngvum er veitt dágott rúm á
plötunni. Það stafar sennilega i og
með af því að Phil var nýskilinn við
konuna sína á þessum tíma. Sum-
um sem ég þekki finnst jafnvel sum
lögin vera væmin og leiðinleg. En
það skiptir ekki máli, aðalatriðið er
það að fyrsta sólóplata Phil Collins
þótti velheppnuð og hlaut góðar við-
tökur.
Önnur sólóplatan kom svo ári síðar
Sæti Vinsældalistar Hljóðbylgjan - vikuna 17/12-24/12 1988 Áður Vikur Lag Flytjandi
1. (1.) (6) Harder I try Brother Beyond
2. (4.) (3) Þig bara þig Sálin hans Jóns
3. (8.) (3) Frostrós Greifarnir
4. (N.) (1) Ekki segja góða nótt ... Valgeir Guðjónss.
5. (13.) (2) Last Christmas Wham
6. (2.) (5) Wildwildwest Escape Club
7. (N.) (1) Jólahjól Sniglabandið
8. (21.) (2) Froðan Geiri Sæm
9. (6.) (2) Geta pabbar ekki grátið Síðan skein sól
10. (19.) (2) Með vottorð í leikfimi Rás 2 - vikuna 16/12-23/12 1988 Bjartmar Guðlaugss.
Sæti Áður Vikur Lag Flytjandi
1. (5.) (4) Þig bara þig Sálin hans Jóns míns
2. (1.) (8) Handle witli care .. Traveling Wilburys
3. (2.) (8) I'm gonna be (500 miles) The Proclaimers
4. (6.) (7) Það er svo undarlegt með unga menn Bítlavinafélagið
5. (9.) (3) Hólmfriður Júlíusdóttir
6. (7.) (3) Gott Eyjólfur Kristjánsson
7. (3.) (7) Two Hearts
8. (25.) (2) Missing you
9. (14.) (4) Girl you know it’s true
10. (10.) (4) Froðan Geiri Sæm & Hunangstunglið íslenski listinn - vikuna 17/12-24/12 1988
Sæti Áður Vikur Lag Flytjandi
1. (1.) (4) Þig bara þig Sálin hans Jóns míns
2. (8.) (3) Frostrós
3. (3.) (9) I’m gonna be 500 miles Proclaimers
4. (2.) (6) Two Hearts Phil Collins
5. (10.) (5) Froðan Geiri Sæm og Hunangstunglið
6. (4.) (8) Wild wild west Escape Club
7. (11.) (3) Geta pabbar ekki grátiö Síðan skein sól
8. (6.) (5) Gott Eyjólfur Kristjánsson
9. (12.) (3) Last Christmas Wham
10. (5.) (13) Kokomo Beach boys Óvinsældalisti Ólundar - vikuna 18.- 25. des. 1988
Sæti Áður Vikur Lag Flytjandi
1. (1.) (5) Handel viþþ ker Traveiing Vilbörís
2. (6.) (3) Frosthrós
3. (N.) (D Eindjel ov harlemm
4. (9.) (4) Æ dónt vont jor lof
5. (23.) (2) Kissínng a fúl
6. (2.) (7) Ver didd æ gó vrong
7. (7.) (2) Last Kristmas
8. (13.) (2) Lóko in Agapúlkó For Topps
9. (4.) (6) Æm gona bí
10. (N.) (D Misteltó end væn