Dagur


Dagur - 14.01.1989, Qupperneq 1

Dagur - 14.01.1989, Qupperneq 1
72. árgangur Akureyri, laugardagur 14. janúar 1989 FjARMAL PlN SÉRGREIN OKKAR 10. tölublað FJARFESriNGARFELAGIDi Ráðhústorgi 3, Akureyri Akureyri: Innlán í bankana jukust frá um 27% og upp í ríunlega 60% Innlán hafa aukist talsvert í öll- uni bönkum á Akureyri á milli áranna 1987 og 1988, eða á bil- inu frá 27% og upp í 50%. Inn- Iánin jukust um helming í úti- búi Iðnaðarbankans, en þar á bæ eru meðtalin innlán í formi verðbréfakaupa. Útibússtjórar annarra banka tóku fram að einungis væri miðað við inn- eignir á sparisjóðsbókum og reikningum. í Landsbankanum varð 31.3% innlánsaukning, en á árinu 1988 voru lagðir inn í bankann tveir milljarðar og rúmar tvær milljón- ir króna. „Við erum ánægðir með þessa aukningu," segir Helgi Jónsson útibússtjóri. Heildarút- lán bankans jukust um 38.4% og numu fjórum milljöröum, 375 milljónum króna. Sú tala er ekki miðuð við gengisbreytingar vegna afurðarlána. I Utvegsbankanum jukust inn- lán um 28.2%, sem er um 40 milljón króna aukning og útlánin jukust unt 31% sem er um 55 milljónum meira en á árinu þar á undan. Innlánsaukning í Alþýðu- bankanum varð 20.5% og útláns- aukningin varð á síðasta ári 44%. í Iðnaðarbankanum jukust innlánin um 58.7 í aðalútibúinu, en í útibúi bankans við Hrísalund jukust innlánin um 49 milljónir króna á milli ára sem gerir 63.3% aukningu. Innlánin á síðasta ári numu tæplega 616 milljónum króna. Par er um að ræða bæði verðbréfakaup á árinu og einnig inneignir á bókum. Útlán bank- ans námu á síðasta ári 654 millj- ónum króna, í aðalútibúinu juk- ust þau um 61%, en um 30% í útibúinu við Hrísalund. Um 27% innlánsaukning var í Búnaðarbankanum og útlán juk- ust um 38%. Innlán í bankann numu alls rúmum einum milljarði króna. „Fólk hefur áttað sig á að það er hagstætt að eiga peninga í banka,“ segir Gunnar Hjartarson útibússtjóri. Mismuninn á inn- og útlánum sagði Gunnar fyrst og fremst stafa af mun meiri vanskil- um en áður og sagði hann að einkum hefðu vanskilin verið hina síðustu mánuði ársins. mþþ Helgarveðrið: Hvasst, frost og snjókoma Helgarveðrið á Norðurlandi verður fremur leiðinlegt. í dag er gert ráð fyrir norðaustan hvass- viðri og stormi á öllum miðum og djúpurn. Á Akureyri og nágrenni veröur vaxandi austanátt. hvasst og snjókoma eða slydda síðdegis. I nótt mun hins vegar lægja og á morgun er gert ráð fyrir þurru og björtu veðri, en frosti um allt land. Samkvæmt þessu virðist ætla að verða ágætt veður til að taka til í geymslunni í dag eða gera eitthvað annað gagnlegt innandyra. VG Formaður Áfengisvarna- nefndar Akureyrar: Aukinn drykkju- skapur það sem þjóðin síst þaröiast Sú nefnd á vegum bæjarins, er hefur með áfengisvarnir að gera hefur ekki fengið upp á borð til sín til umfjöllunar umsóknir vegna nýrra vínveit- ingaleyfa. Allt eins höfðu menn búist við að slíkum umsóknum myndi rigna inn á borð nefndarinnar nú þegar styttist verulega í að almcnn- ingi gefst kostur á að kneyfa hinn umdeilda mjöð; bjórinn. Þetta er forinanni Áfengis- varnanefndar Akureyrarhæjar mikið fagnaðarefni. Ingimar Eydal formaður nefnd- arinnar telur að vínveitingaléyfi í Akureyrarbæ séu um tíu. Ekki kannaðist liann við að ákveðið hámark veittra leyfa til vínveit- inga væn í gangi í bænum. „En það er stefna nefndarinnar að sporna á móti nýjum vínveitinga- leyfum í bænum," segir Ingmar. „Við tcljum að gengið sé þvert á stefnu áfengisvarna með stefnu hins opinbera í áfengismálum, ef stcfnu skyldi kalla." Ingimar seg- ir aö áfengisvarnanefndir hvar- vetna séu óhressar með ákvörðun stjórnvalda varðandi sölu á bjór, enda muni áfengisneysla slórauk- ast í kjölfarið. Aukin drykkju- skapur sé það sem þjóðin síst þarfnist nú. „Fað er sagt að stór og stækk- andi hópur manna í Vestur- Evrópu geri sig ánægðan með bjór og vídeóspólur, ég vona svo sannarlega að þeir tímar renni ekki upp hér á landi. Nefndin sendi á sínum tíma frá sér ályktun þar sem leyfi til sölu áfengs öls var mótmælt og segir Ingimar það álit nefndarinnar að liægt sé að einhverju leyti að stýra áfengisneyslu með einföld- um stjórntækjum eins og því hve- nær selja megi áfengi, hvar og hvaða tegundir og á hvaða verði það er selt. mþþ

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.